Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ F.ÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991 Flugfargjöld: Engin nið- urstaða en annar fund- ur boðaður ENGIN niðurstaða varð af fundi Flugeftirlitsnefndar með fulltrú- um Flugleiða í gær um hækkanir á millilandafargjöldum félagsins. Annar fundur var ákveðinn á mánudaginn og verða þá lagðar fram nánari upplýsingar um ýmis atriði sem tengjast far- gjaldahækkununum. Birgir Þorgilsson, ferðamála- stjóri og formaður Flugeftirlits- nefndar, sagði í samtali við Morg- unblaðið að á fundinum í gær hefði verið farið yfír ýmsa kostnaðar-, þætti í fargjöidunum, svo sem olíu- verð, gengisþróun Bandaríkjadoll- ars og fleira. Fargjöld Flugleiða til Evrópu höfðu hækkað um 17,5-18,7% frá því í fyrrasumar er þau lækkuðu 10. júní síðastliðinn um 4%. Frakt- gjöld hafa hins vegar ekkert iækkað og sagði Birgir að á fundinum hefði komið fram að þau hefðu ekki hækkað eins mikið og fargjöldin, en þau færu mikið fram með sér- stökum leiguflugum, sem hefðu hækkað minna en fargjöldin. Flugeftiriitsnefnd fylgist með og heimilar hækkanir á fargjöldum milli landa. Í henni eiga sæti, auk ferðamálastjóra, fulltrúar Flug- máiastjómar, samgönguráðuneytis og Verðlagsstofnunar. Dýraspítalinn í Víðidal: Morgunblaðið/Sverrir Kötturinn Snúlli og Þorvaldur H. Þórðarson dýralæknir. Innfellda myndin er röntgenmynd sem sýnir hvernig mjaðmagrind Snúlla var sett saman. KÖTTURINN Snúlli, tveggja og hálfs árs gamall, fór í mjaðma- grindaraðgerð á Dýraspítalanum í Víðidal sl. mánudag. Hann hafði brotnað er hann varð fyrir bíl aðfaranótt sunnudagsins 23. júní sl. og var illa haldinn. I stað þess að vera lógað var fram- kvæmd skurðaðgerð á Snúlla af Þorvaldi H. Þórðarsyni og Katrínu Harðardóttur, dýralæknum Dýraspítalans, og er hann á batavegi. Kötturinn Snúlli varð fyrir því óhappi aðfaranótt sl. sunnudags að bíll keyrði á hann. Eigandi Snúlla, Kolbrún Ingibergsdóttir, fann hann af tilviljun liggjandi í Garðastræti. Hún taldi víst að það yrði að lóga kettinum vegna þess hvemig hann var útleikinn og fór með hann á Dýraspítalann í þeim tilgangi. Þorvaldur H. Þórðarson, dýralæknir, benti Kolbrúnu þá á að hægt væri að bjarga Snúlla með skurðaðgerð. Að sögn Þor- valdar gerir fólk sér sjaldan grein fyrir því að hægt sé að laga bein- brot dýra eins og manna. Það var tilviljun sem réð því að Kolbrún fann Snúlla á götunni og vill hún beina þeim tilmælum til ökumanna að þeir hugi að dýr- um ef þeir aka á þau. Það er mjög slæmt fyrir eigendur að vita ekkert um örlög gæludýra sinna og enn verra ef þau em skilin eftir til þess að deyja þegar hægt er að bjarga þeim. Að sögn Þorvaldar H. Þórðar- sonar hefur hann oft gert að bein- brotum katta og hunda en aðgerð- in á Snúlla var sérstaklega flókin vegna þess hve brotið var slæmt. Hafði mjaðmagrindarspaði Snúlla tvíbrotnað og einnig kvamast úr beinum. Þorvaldur sagði að Snúlli ætti að ná sér að fullu innan 5-6 vikna og yrði þá jafn hress og fyrir slysið. Flókin skurð- aðgerð á ketti Ljósmynd/Jón Stefánsson Slökkviliðsmenn að störfum í Miðbæjarskólanum í gær. Miðbæjarskólinn: Komið var í veg fyrir stórbruna SJÁLFVIRKUR eldvarnabúnaður fór í gang í Miðbæjarskólanum í Reykjavík um kl. 19 í gærkvöldi og fóru þrír dælubílar slökkviliðsins á staðinn. Eldur reyndist vera í ruslakörfu á ann- arri hæð I vesturálmu og var slökkt í honum með handslökkvi- tæki. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu hefði ekki mátt miklu muna að mikill eldsvoði hefði hlotist af. Eldurinn var í Ijósritunarherbergi og hefði hann náð að læsa sig í húsgögn hefði voðinn verið vís. Miðbæjarskólinn er bámjárnsklætt timburhús. Greiðlega gekk að reyklosa húsið en einhveijar skemmdir munu hafa orðið í herberginu. Ekki er ljóst hver upptök eldsins voru en rannsókn þess er í hönd- um Rannsóknarlögreglu ríkisins. Fiskvinnslufyrirtæki í Grundarfirði og á ísafirði: Sameining er ekki talin tímabær í bili Stöðvarfirði og Breiðdalsvík. „Það segir Guðmundur. Hann sagði þó er nokkuð ljóst að um augljósa að ekki væri verið að ræða um sam- hagræðingu væri að ræða þar,“ einingu eystra. Evrópumótið í brids: Gífurleg spenna á lokasprettinum ALLAR hugmyndir um samein- ingu fiskvinnslufyrirtækja I Grundarfirði annars vegar og Isafirði hins vegar hafa verið lagðar á hilluna í bili. Forsljóri Byggðastofnunar telur stöðu rækjuvinnslunnar á ísafirði það slæma að ekki sé grundvöllur fyrir sameiningu. „Starfsmenn stofnunarinnar undir forystu Bjarka Bragasonar áttu all marga fundi með fulltrúum fyrirtækjanna í Gmndarfirði, sér- staklega Hraðfrystihússins og Sæ- fangs, sem em stórir fiskverkendur þama. Sumir aðrir fylgdust með viðræðpnum f fjarlægð en vissu af þeim. Ur þessu varð ekkert, a.m.k. ekki í bili,“ segir Guðmundur Malmquist forstjóri Byggðastofn- unar. „Á ísafirði var raunverulega reynt það sama að beiðni rækju- vinnslunnar þar. Við rákumst fljótt á vissan vegg enda er ekki hægt að raða saman erfíðri fjárhagsstöðu margra fyrirtækja og fá út góða fjárhagsstöðu. Það má því segja að þetta hafí verið ómögulegt og menn sáu ekki leiðir til sameiningar. Það er opinberlega viðurkennt að það þarf að fækka rækjuverk- smiðjum á ísafirði, sem nú em fjór- ar, og það er ekki hægt að sameina þessi fyrirtæki nema það takist að selja einhverjar fasteignir þeirra, þá er strax komin betri staða. Fyrr en það gerist er ekkert að frétta af hugsanlegri sameiningu," sagði Guðmundur. Hann segir nóg að gera við undir- búning við hugsanlega sameiningu fískvinnslufyrirtækja á Suðurlandi og í lok næstu viku eigi að liggja fyrir gögn þannig að samningsaðil- ar geti tekið afstöðu til þess hvort þeir vilja halda viðræðum áfram. Hann segir að oft hafi verið rætt um sameiningu á Austfjörðum og þá sérstaklega á Fáskrúðsfirði, ÍSLENDINGAR og Pólveijar eru í þriðja til fjórða sæti á Evrópu- mótinu í brids þegar þijár umferð- Ráðherra óskar grein- argerðar landlæknis DEILUR hafa undanfarið staðið milli Hallgríms Magnússonar læknis og landlæknis og hefur læknastofa Hallgríms á Sel- Ijarnanesi verið lokuð að undan- förnu. Heilbrigðisráðherra hefur óskað eftir greinargerð frá land- lækni vegna þessa máls. Sighvatur Björgvinsson heil- brigðisráðherra sagðist í gærkvöldi ekkert vilja segja um málið annað en að hann hefði óskað eftir því við landlækni að fá frá honum greinar- gerð um málið. Ekki náðist í Ólaf Ólafsson land- læknis í gærkvöldi, en ríkisútvarpið sagði frá því, að í dag yrði haldinn fundur landlæknis og Hallgríms Magnússonar. ir eru eftir. Hollendingar einu stigi á eftir. Islendingar voru 7 stigum yfir í hálfleik gegn ímm. í seinni hálfleik bættu þeir 30 stigum við og unnu leikinn 21-9 og munaði þar mest um hálfslemmu, sem Guðlaugur Jó- . hannsson og Öm Amþórsson fóm í. í seinni leiknum gerði íslenska sveitin jaftefli við ítala. Bretar em enn efstir, með 487,5 stig og Svíar em í öðru sæti með 475 stig. íslend- ingar og Pólverjar em með 442 stig og Hollendingar 441. Bretar fengu 16 stig í gærkvöldi gegn Ungveijum og Svíar unnu Búlgari 23-7. Hollendingar unnu 25 stig gegn Tékkum en Pólveijar fengu aðeins 13 stig gegn Portúgölum. Rúðubrot til rannsóknar Grindavík. RANNSÓKN á því hvað olli rúðu- brotinu í bifreið í fyrradag er ekki lokið. Vinnueftirlit ríkisins skoðaði sláttuvélina í gær og töldu menn að nær útilokað væri að steinn gæti hafa skotist frá vélinni. f;ó

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.