Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991 Sólveig Sigurðar- dóttir - Minning Fædd 31. ágúst 1936 Dáin 21. júní 1991 Við kölluðum hana Dídí, hún var alltaf kölluð Dídí, og það var engin önnur Dídí. Henni tengjast óneitan- lega margar ljúfar minningar. Vegna mikils vinskapar okkar vinkonanna og Heddýar, áttum við þess kost að eyða mörgum stundum inn á heimili Dídíar og Bimba. Þar ríkti ætíð örlæti og hlýja, kannski ekki síst vegna hinnar miklu um- hyggjusemi sem Dídí bar í bijósti í garð fjölskyldunnar. Við vinkon- urnar fundum sterklega fýrir þess- ari umhyggju í okkar garð og minn- umst hennar svo sannarlega á ein- stakan hátt. Ógleymanlegar eru t.d. þær ófáu stundir við gluggann í borðstofunni á Barðaströndinni. Þar voru hin ýmsustu mál rædd og oft- ar en ekki var það einmitt Dídí sem lagði okkur lífsreglurnar, reglur sem seint gleymast. Um leið og við kveðjum góða konu, hana Dídí, og þökkum henni samfylgdina, biðjum við góðan Guð að styrkja elsku Heddý okkar, Bimba, Gittu, Sigga og fjölskyldur þeirra og aðra aðstandendur. Þau ljós sem skærast lýsa þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast. Og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið loga skæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta (F.G.Þ.) Innilegustu samúðarkveðjur, Agnes, Kata og Sigrún Sólveig, mín kæra vinkona er nú horfin frá okkur vinunum, falleg og vel gefin kona á besta aldri, aðeins 54 ára gömul. Hún barðist baráttu hetjunnar við þann sjúkdóm sem of marga fellir í blóma lífsins þegar svo margt er eftir að sjá og lifa fyrir. Hún fæddist á Akureyri 31. ág- úst 1936 dóttir þeirra sæmdarhjóna Kristínar Bjarnadóttur og Sigurðar 0. Björnssonar prentsmiðjustjóra POB. Þau eru nú bæði látin. Á Akureyri ólst hún upp á miklu menningarheimili í faðmi yndis- legra foreldra og systkinahóps, sem mótuðu hana sem manneskju og gáfu henni styrk í tilgangi þessa lífs. Fáa hefí ég hitt á minni lífs- leið sem báru jafn mikla virðingu fyrir sínum foreldrum og Dídí. Var það öðrum til fyrirmyndar og er það trú mín, að hennar eigin fjöl- skylda hafi þar af henni mikið lært. Ung giftist hún eftirlifandi eigin- manni sínum Finnboga Gíslasyni, einnig frá Akureyri, og eignuðust þau 3 böm, Kristínu, Sigurð og Herdísi sem eru fyrirmyndarfólk og stóðu saman sem einn við að hlúa að móður sinni veikri fram að síð- ustu stundu og sá ég þá hve bönd- in voru sterk milli þeirra allra. Bles- suð séu þau ævinlega. Hjónaband þeirra Dídí og Finn- boga var traust og svo gott að mér fannst oft eins og þau væru nýtrú- lofuð. Við Dídí kynntumst hér í Reykja- vík, þótt báðar væru fæddar á Ak- ureyri. Við eignuðumst okkar fyrstu íbúð í sömu blokk og hófst þar sá vinskapur á milli okkar sem aldrei hefur slitnað. Finnbogi var stýri- maður hjá Eimskipafélagi íslands til fjölda ára og var lengi stýrimað- ur á Gullfossi. Veit ég að hann á ómæld sporin fyrir aðra í þeim ferð- um, því alltaf var verið að biðja fyrir pakka og kaupa hluti sem ekki fengust hér og ekkert var sjálf- sagðara, ef hægt var að koma því við. Ég veit að margir eru honum þakklátir ævinlega fyrir ljúf- mennskuna og greiðasemina í sín- um ferðum á sjónum í svo mörg ár. En auðvitað kemur til kasta góðr- ar konu og móður þar sem eigin- maður og faðir er oftast víðs fjarri, og Dídí var ein af þeim. Hún var bæði mikil húsmóðir og móðir og sýndi það svo sannarlega allan þann tíma sem þess þurfti með. Hún var listræn og hafði auga fyrir öllu sem fagurt var. Ber heimili þeirra Finn- boga þess vitni, en þau byggðu sér hús á Barðaströnd 3 á Seltjarnar- nesi. Þar var allt pússað og þvegið og ég man að okkur vinkonunum þótti hún leggja alltof mikið á sig við þetta „þó hann Finnbogi væri nú að koma í land“. Við vorum saman í brids-klúbbi í mörg ár ásamt Kittý, Grétu og fleirum. Það voru skemmtileg ár og bjartsýnin í fyrirrúmi hjá okkur vinkonunum, og mikið var alltaf gaman og glatt á hjalla hjá okkur, en spilin auðvit- að númer eitt. Minningarnar streyma fram, all- ar jafn ljúfar og góðar, og finnst mér ég ekki ennþá geta sætt mig við að fá ekki að sjá Dídí aftur í þessum heimi. En það verður ör- ugglega í þeim næsta, það er mín trú. Um leið og ég kveð mína tryggu og góðu vinkonu sem ég vildi hafa séð mikið oftar síðustu árin þá bið ég góðan guð að styrkja Finnboga og fjöl'skyldu þeirra, börn og barna- börnin 3 sem sjá á eftir móður og ömmu sem var alltaf „ankerið" í lífi þeirra allra. Þau fengu það besta veganesti sem ein góð kona getur veitt sínum. Fjölskyldu hennar fyrir norðan og Ingu systur hennar send- um við hjónin einnig okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Góð og göfug kona er kvödd með virðingu og þakklæti. Ásta Hauksdóttir í dag kveðjum við mikla mann- kostakonu, hana Dídí. Hún bjó yfir því sem prýðir þá sem vaxa af sjálf- um sér eftir að vegarnesti frá for- eldrahúsum er upp urið. Nesti sem hafði að vísu ekki verið sparað úr föðurgarði. Ung gafst hún manni sínum og yfirgaf heimabæ sinn þar sem hún hafði notið atlots og ástrík- is mikilhæfra foreldra sem settu svip sinn á bæjarlífið meðan þeirra naut við. Dídí var ein af þessum manneskj- um sem sí og æ eru að hugsa um aðra. Gefandi af orku sinni til sam- ferðarmanna, án þess nokkru sinni að ætlast til að fá endurgoldið í hinu minnsta. Óeigingjarnari og hjálpfúsari geta menn varla orðið. Hún var ótilkvödd boðin og búin að létta undir með sínum ogJangt út yfir frændgarðinn, sem er þó æði stór. Er við hófum búskap sunnan heiða, með dagvistarvanda unga fólksins á herðum, var Dídí óðara búin að bjóðast til að annast frum- burðinn á daginn og ganga honum í „ömmu“ stað. Þrátt fyrir að vera sjálf ung kona með stórt heimili og eiginmann siglandi um öll heimsins höf og nýlega flutt á Nesið í hús sem var rétt búið að byggja, sá hún engin vandkvæði á því að annst fyrir okkur dóttur okkar meðan bæði voru við nám. Ekki var í ófá skipti að með fylgdi þegar náð var í barnið boð um að koma um helg- ina í mat eða síðdegiskaffí. Auk þess sem við nutum góðs af ýmsu sem hún gaukaði að okkur. Þannig var og um marga aðra sem nutu góðs af hjálpsemi hennar. Þetta fengum við henni aldrei fullþakkað né heldur þá vináttu og umhyggju, sem hún ávallt sýndi okkur í gegn- um tíðina. Dídí skóp sér umhverfi sem gott var að vera nærri. Hún sjálf geisl- aði af gleði og umhyggju fyrir eigin- manni og börnum og var ætíð svo jákvæð og maður undraðist hversu miklu hún gat áorkað. Heimilið ætíð í röð og reglu, eins og nýstrok- ið hvenær sem mann bar að garði. Heimili sem bar smekkvísi hennar fagurt vitni. Þar var notalegt að koma. Þegar von var á Bimba úr siglingu fann maður ástina og um- hyggjuna sem hún bjó yfir og eftir- væntinguna að fá hann heim. Aldr- ei kom maður á Barðaströndina án þess að Bimba bæri á góma ef hann var ekki í landi. Hans missir er mikill, en minningin um ástríka eig- inkonu gefur styrk til að vinna á sorginni og söknuðinum sem slíkur missir hefur í för með sér. Börnum sínum var hún mikil móðir og góður uppalandi enda hafa þau erft elsku og hlýju foreldr- anna og þar hefur verið hlúð að því besta. Barnabörnin orðin þijú. Piltar sem sjá ekki meira af ömmu Dídí en eiga eftir að heyra mikið um hana talað og ýmislegt eftir hana að sjá þar sem allar listir léku í höndum hennar en listfengi var henni í blóð borið. Dídí kveðjum við með söknuði miklum og óskum þess að algóður guð megi blessa og vernda hana á þeim vegum sem hún hefur nú lagt út á. Trú okkar er sú að nú fái hún að njóta alls þess er hún sáði með- a! okkar og kringum sig í lifandi og fögru lífí. Dídí fékk notið þess að kveðja sína nánustu á heimili sínu eftir hetjulega baráttu við hið óumflýjan- lega, baráttu sem háð var af dugn- aði og æðruleysi. Þegar kraftar hennar þrutu var henni hjúkrað af eiginmanni og börnum á heimili sínu með ómetanlegri aðstoð starfs- fólks Líknar, heimahlynningar í Reykjavík. Bimbi, börn, tengdabörn og barnabörn, við þökkum ykkur fyrir að leyfa okkur að eiga Dídí með ykkur og óskum þess að hugljúf minning megni um síðir að deyfa sorgina, sem nú hefír knúð dyra. Með þakklæti og virðingu, Haddí, Egill og börn Það var á bjartasta og lengsta degi ársins að sorgarský færðist yfir hús á Barðaströndinni. Hetjuleg barátta Dídíar við erfiðan sjúkdóm var á enda og sá hafði yfirhöndina er að lokum allt sigrar. Þau voru ekki mörg árin sem við nutum kynna við Dídí en náin urðu tengslin engu að síður og minning- arnar ljúfar. Það var í ágústlok, nokkrum dögum fyrir afmæli Dí- díar, fyrir rétt tæpum tveimur árum að við hittumst fyrst. Heddý dóttir hennar hafði haldið utan til Banda- ríkjanna til að heimsækja pabba sinn og mömmu sem höfðu þá búið í Boca Raton í Florida um tíma. Við vorum þá við nám í Miami sem er skammt frá. Nokkrum vikum áður höfðum við Heddý hist á Is- landi og ákváðum að hafa samband er hún kæmi út. Það varð úr og urðu ferðirnar á milli Boca og Miami margar eftir það. Ég minnist þess hversu glæsileg hún var á afmælisdaginn en Bimbi hafði þá ákveðið að fara með þær mæðgur á franskan veitingastað í grenndinni sem var í miklu uppá- haldi hjá Dídí ogþau voru svo elsku- leg að bjóða mér með. Það þurfti ekki langan tíma til að sjá að Dídí bjó eipnig yfir miklum innri glæsi- leika og kostum. Hlýja, umhyggja og hjartagæska einkenndu hana svo sem glöggt kom í ljós þegar konan mín og litli strákurinn okkar komu til Miami þá um haustið. Mér er sérstaklega hugleikið kvöld eitt síðla nóvembermánaðar þegar þakkargjörðarhátíðin var. Bimbi og Dídí buðu okkur heim til kvöldverð- ar og var kalkúnn á boðstólum. Þar smökkuðum við ljúffengustu kalk- únafyllingu sem við höfum nokkurn tíma bragðað, en þetta var sérstök leyniuppskrift Dídíar. Jón Andri litli varð fljótt hændur að henni sem von var eins og hún lét með dreng- inn. Stór pakki og blíðuhót gera sitt þegar Iítil börn eru annars veg- ar. Litli prakkarinn hafði þó meira dálæti á stórri og fallegri perlufesti sem Dídí hafði um hálsinn, en því sem í pakkanum var. Ég man þeg- ar hann bað um að fá að leika sér með festina í fyrsta sinn það kvöld. Við vorum skjót til og sögðum auð- vitað að það væri ekki hægt. Þá sagði Dídí, „auðvitað má hann fá perlufestina hennar ömmu Dídí“, tók hana af sér og leyfði honum að leika sér með eins og hvert ann- að barnaglingur. Upp frá því kall- aði Jón Andri hana ekki annað en „ömmu Dídí“, en perlurnar urðu hans helsta leikfang í síðari heim- sóknum. Þó að ekki væri enn kominn des- ember var Dídí samt þá þegar búin að ljúka jólainnkaupunum og voru þarna haugar af skrautlegum gjöf- um og pökkum handa börnunum hennar og barnabörnum sem hún hafði á orði að hún hefði ekki séð allt of lengi og hlakkaði mikið til að fara heim til íslands og eyða jólunum með. Við dvöldum hjá Bimba og Dídí þessa nótt og er við - héldum niður til Miami daginn eftir var Dídí búin að fylla hin ýmsu ílát af mat sem afgangs hafði orðið, „við mættum til með að taka þetta með því það myndi spara okkur matarinnkaupin f einn eða tvo daga“, sagði hún þegar við kvödd- umst. Þetta finnst okkur lýsa vel hversu hlý og gefandi Dídí var. Næsta vor kom Heddý aftur út að heimsækja pabba sinn og mömmu. Áttum við þá margar góð- ar stundir saman. Við flettum myndaalbúminu í fyrrakvöld og rifj- uðust þá upp þessir góðu tímar. Þær voru margar myndirnar sem voru teknar af skemmtisiglingu sem þær fóru saman í, Dídí, Heddý og Jó- hanna til Bahamaeyja. En Jóhanna átti einmitt afmæli þann dag og höfðu þau því boðið henni í sigling- una. Ég horfí á stækkuðu myndina á korktöflunni í eldhúsinu af þeim þremur á þilfari skipsins, brúnum, sællegum og áhyggjulausum. Mér er ljóst að það er margt sem er tekið sem sjálfsagt í þessum heimi, en enginn vissi þá um hin illu mein- vörp sem höfðu tekið sér bólfestu í líkama Dídíar og hversu skammt hún átti eftir að dvelja hér. Stuttu eftir að við komum til íslands síðastliðið sumar var hringt í mig og mér sagt að það væru slæmar fréttir af Dídí, hún væri með krabbamein. Við slík tíðindi verður manni orða vant. Jóhanna vann þá um sumarið og nýliðinn vetur á Landspítalanum og hitti því oft þær Heddý og Dídí. Þær spjöll- uðu margt saman og var umræðu- tónninn ávallt gæddur bjartsýni, viljaþreki og innri styrk enda stóð Heddý við hlið mömmu sinnar eins og klettur allan þann tíma sem hild- in var háð uns yfir lauk. Um leið og við þökkum Dídí þær yndislegu stundir sem hún hefur gefíð okkur viljum við votta Finn- boga, börnum, barnabörnum og fjölskyldum þeirra samúð og biðjum almáttugan Guð að veita þeim styrk í harmi sínum. Dídí mun lifa í minn- ingunni. Hjalti, Jóhanna og Jón Andri. Margs er að minnast frá því við vorum smástelpur á Akureyri og myndirnar renna í gegnum huga minn. Dýrðlegar sumarnætur á hestbaki í Sellandi. Við báðar að undirbúa brúðkaup í júlí 1956, hún þann 7. og ég 21. Kristín hennar og Sigurður minn eru bæði fædd 1957. Og svo þúsund aðrar ljúfar minningar. Nú er hún komin í faðm Guðs, 37 umvafin yl hans og kærleika um alla eilífð. Ég bið hann um að gefa fjöl- skyldu Sólveigar styrk í þeirra þungu raun. Jóna Sigurðardóttir, Sidney, Ástraliu. í dag kveðjum við elskulega móðursystur okkar, Dídí frænku. Fjölskyldubönd okkar hafa alltaf verið sterk og var Dídí okkur systk- inunum alltaf sem móðir, rétt eins og móðir okkar er börnum hennar. Dídí fæddist á Akureyri 31. ág- úst 1936, dóttir hjónanna Sigurðar 0. Björnssonar, prentsmiðjustjóra og Kristínar Bjamadóttur. Hún var þriðja elst sjö syskina, en hin eru: Geir prentsmiðjustjóri á Akureyri, Bjarni prentsmiðjustjóri á Akur- eyri, Ingibjörg hótelstjóri í Lux- embourg, Ragnar augnlæknir á Akureyri, Oddur jarðfræðingur í Reykjavík og Þór offsetljósmyndari á Ákureyri. Dídí ólst upp á stóru og myndar- legu heimili foreldra sinna á Akur- eyri. Á sumrin dvaldi fjölskyldan öll í sælureitnum okkar, Sellandi í Fnjóskadal. Þar undi Dídí sér vel við heyskap, hestamennsku og plöntun tijáa ásamt pabba sínum, og höfum við heyrt að hún hafi verið liðtækur bílstjóri á jeppanum þótt ung væri. 16 ára gömul fór hún í nám til Englands og útskrifaðist sem tísku- teiknari tveimur árum síðar. Hún starfaði reyndar aldrei í því fagi, en þó það hafi ekki legið fyrir Dídí að starfa sem tískuteiknari, var hún alltaf mjög listræn og mikill lista- maður í sér. Hún giftist, 7. júlí 1956, Finn- boga Gíslasyni, skipstjóra, og eign- uðust þau þijú böm; Kristínu, Sig- urð og Herdísi. Vegna starfs síns var Finnbogi mikið að heiman og var Dídí því mikið ein með krakkana meðan þau voru ung. En dugnaðurinn og kraft- urinn var alltaf mikill, það sem hún byijaði á var klárað — hún vissi ekki hvað hálfkák var. Hún stóð til dæmis mikið í því að byggja hús fjölskyldunnar á Seltjarnarnesi, og eftir að það var tilbúið töluðum við oft um að tuskan hefði alltaf verið á lofti, því um leið og rykkorn sást var hún byijuð að þurrka af. Það sem hún gat gert í dag var aldrei geymt til morguns. Dídí var hlý og góð, mikill fagur- keri og listunnandi sem heimili fjöl- skyldunnar hefur alla tíð borið vott um. Árið 1982 fluttust þau hjónin til Bandaríkjanna og voru búsett þar að mestu leyti síðan. Það var í júlí í fyrra sem sjúkdómurinn, sem dró Dídí til dauða, uppgötvaðist. En þrátt fyrir sjúkdóminn var hún jafn ósérhlífín og hörð við sjálfa sig og áður, og fór til dæmis tvisvar vest- ur um haf á þessu síðasta ári. Dídí frænka dó allt of ung og við munum öll sakna hennar sárt. Við erum þakklát fyrir allar góðu skemmti- legu stundirnar sem við áttum sam- an í Sellandi, hjá afa og ömmu á Akureyri og öll þau ógrynni af skemmtilegum sögum sem Dídí, mamma og bræður þeirra hafa sagt okkur krökkunum. Okkur fínnst stundum að uppvöxtur þeirra systk- jna sé vafin ævintýraljóma og þáð var oft glatt á hjalla við upprifjun uppvaxtarára þeirra systkina. Dídí var glæsileg kona, alltaf smekkleg pg mikið fyrir að vera vel til höfð. í hugum okkar sjáum við Dídí frænku, glæsilega með allt gullið sitt. Hún dó heima. Dvaldist heima síðustu vikurnar, sem var mögulegt vegna dugnaðar og sérstakrar umhyggju eiginmanns, barna henn- ar og tengdasona. Þau voru alveg sérstök þar til yfir lauk. Einnig verður að nefna hjálp heimahlynn- ingar Krabbameinsfélagsins, sem hún naut, og var alveg frábær. Elsku Bimbi, Gitta, Siggi, Heddí, tengdasynir og barnabörn! Missir ykkar er mestur, en þið eigið minn- inguna um yndislega eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, sem við vitum að þið getið yljað ykkur við. Megi góður Guð styrkja ykkur í sorginni. Sólveig, Kolbrún, Sigurður Óli og Tinna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.