Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991 19 á ýmsum sviðum. Hitaveita Reykja- víkur gæti ekki byggt veitingahús upp á milljarða, ef slíkur skattur væri lagður á. Hvernig væri að iðn- aðarráðherrann liti á slík sanngirnis- rök, í stað þess að hvetja sífellt til sérstakrar skattlagningar á sjáv- arútvegi? Endurskoðun fisk- veiðistefnunnar Það verður fróðlegt að fylgjast með endurskoðun fískveiðistefnunn- ar. Umræðan á stjórnarheimilinu er heldur tætingsleg, einn daginn á að selja veiðileyfí, næsta dag á ekki að gera það. Að morgni þykir óeðlilegt að hjálpa til við fjárhaglega endur- skipulagningu sjávarútvegsfyrir- tækja, að kvöldi gefa menn eftir staðgreiðsluskatta, sem aldrei hefur verið gert áður. Fjármálaráðherrann segir að Síldarverksmiðjur ríkisins séu gjaldþrota. Sjávarútvegsráðher- rann er nú búinn að fínna út að svo er ekki. Forsætisráðherrann segir að ekki eigi að hjálpa illa stöddum fyrirtækjum, en formaður sjávarút- vegsnefndar og Byggðastofnunar telur að þaðeigi að aðstoða rækjuiðn- aðinn. Hvort út úr þessu öllu getur komið heilsteypt stefna sem byggj- andi er á, skal ég ekki dæma um. Eitt er vist, að sjávarútvegurinn þarf að búa við góð starfsskilyrði og öryggi um framtíð sína. Það er forsenda þess að vel takist til, að menn viti að hveiju er stefnt í fram- tíðinni. Núverandi ríkisstjórn hefur gefið mönnum litlar upplýsingar um það. Plöggin úr Viðey hafa ennþá ekki komið í leitimar. Við sem störf- um í stjórnarandstöðu höfum enn ekki fengið upplýsingar um, hvernig eigi að skipuleggja endurskoðun fiskveiðistefnunnar. Við gerum um það kröfur, að við fáum eðlilega aðild að svo mikilvægu hagsmuna- máli þjóðarinnar. Við treystum ekki nefnd á vegum núverandi ríkisstjór- ar til að fjalla eingöngu um það mál. Sú umræða sem heyrst hefur frá stjórnarheimilinu að undanförnu hefur ekki orðið til að auka það traust. Við lítum ekki á bættan hag sjávarútvegsins sem vandamál. Höfundur er alþing-ismaður og varaformaður Framsóknarflokksins Hans-Göran Elfving Píanótónleikar í Norræna húsinu Sænski píanóleikarinn Hans- Göran Elfving heldur tónleika í fundarsal Norræna hússins sunnudaginn 30. júní kl. 17. A efnisskránni eru verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Hjálmar H. Ragnarsson, sænsku tónskáldin Wilhelm Stenhammar og Sven- Erik Johansson og norska tón- skáldið Edvard Hagerup Bull. Hans-Göran Elfving hefur hald- ið einleikstónleika og leikið með hljómsveitum og kammersveitum í heimalandi sínu og víðar á Norðurlöndum, m.a. verk eftir ís- lensk tónskáld. Einnig hefur hann haldið tónleika i Þýskalandi. Hann lærði m.a. hjá píanó- leikaranum José Ribera og próf- essor Stinu Sundell og Dorothy Irving. Auk náms í píanóleik hefur hann fil.kand. próf í tónlistarfræð- um. Hans-Göran Elfving er í stjórn Sambands tónmenntakennara í Svíþjóð og í Félagi pianókennara. Hann situr þing Norræna tón- menntakennarasambandsins sem haldið er á Laugarvatni um þessar mundir. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. AUGLYSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKIRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00 1977- 2.fl. 1978- 2.fl. 1979- 2.fl. 10.09.91-10.09.92 10.09.91-10.09.92 15.09.91-15.09.92 kr. 891.074,72 kr. 569.264,03 kr. 371,129,25 FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00 1985-1.fl.A 1985- 1.fl.B 1986- 1.fl.A3 ár 1986-1 .fl.A 4 ár 1986-1.fl.B 1986- 2.fl.A4 ár 1987- 1 .fl.A 2 ár 1987-1 .fl.A 4 ár 10.07.91-10.01.92 10.07.91-10.01.92 10.07.91-10.01.92 10.07.91-10.01.92 10.07.91-10.01.92 01.07.91-01.01.92 10.07.91-10.01.92 10.07.91-10.01.92 kr. 48.160,44 kr. 31.023,86**) kr. 33.196,34 kr. 35.837,94 kr. 22.881,23**) kr. 30.626,10 kr. 26.476,01 kr. 26.476,01 *)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. **)Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1 og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, júní 1991. SEÐLABANKI ÍSLANDS SEGLBRETTASÝNING (seglbrettahermir á staðnum) TILBOÐ Á ÝMSUM HLUTUM ÚTBÚNAÐUR TIL GÖNGUFERÐA ALLIR FÁ HRESSINGU Á STAÐNUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.