Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991 H Hvað er eigmlega á seyði í lífeyrismáluniim? eftir Bjarna Þórðarson Laugardaginn 15. júní sl. birtist í Morgunblaðinu leiðari undir fyrir- sögninni „Lífeyrissjóðakerfið“. Leiðarinn fjallar um ýmsan vanda, sem steðjar að í lífeyrismálum landsmanna, og í lokin er varpað fram hugmyndum, sem ég fæ ekki túlkað á annan veg en tillögur blaðsins. Leiðari þessi á sér nokk- urn aðdraganda í Morgunblaðinu, en Reykjavíkurbréf fjallaði um til- tekinn þátt þessara mála 2. júní sl. Þeim sjónarmiðum, sem þar var hreyft, var svarað í blaðinu 8. júní af þeim Hrafni Magnússyni, fram- kvæmdastjóra Sambands almennra lífeyrissjóða, og Sigurgeir Jónssyni, fv. hæstaréttardómara. Þá fjallaði leiðari blaðsins 11. júní um „Tekju- tenginu ellilífeyris" og má líta á hann sem svar við greinunum tveimur. Hér hefur Morgunblaðið fjallað um veigamikil hagsmunamál, sem LINDA PÉTURSDÓTTIR slensk fegurð NO NAME COSMETICS -.. Loksins eru þeir komnir nýju sumarlitirnir Nýjar pakkningar Ný varalitalína, stórkostlegir litir Komið, skoðið og fáið leiðbeiningar hjá fagfólki í eftirtöldum verslunum: Snyrtivöruversl. Dísella, Miðvangi 41, Hafnarfirði - 28/6 kynning Verslunin Perla, Kirkjubraut 2, Akranesi - 12/7 kynning Snyrtilínan, Fjarðarkaupum, Hafnafirði - 4. og 5/7 kynning Snyrtistofan Paradís, Laugarnesvegi 82 Gott útlit, Nýbýlavegi 14, Kópavogi Snyrtistofan Rós, Engihjalla 8, Kópavogi Snyrtistofan Líf, Álfabakka 12, Mjódd, Reykjavík - 28/6 kynning Snyrtihús Heiðars, Vesturgötu 19, Reykjavík Hár og förðun, Faxafeni 9, Reykjavík Ingólfsapótek, Kringlunni 8-12, Reykjavík Snyrtistofan NN, Kringlunni 6, Reykjavík. Snyrtistofan Yrja, Klausturhvammi 15, Hafnarfirði Snyrtistofan Táin, Smáragrund 2, Sauðárkróki Gloría, Hafnargötu 21, Keflavík -12/7 kynning Snyrtistofa Nönnu, Strandgötu 23, Akureyri allir landsmenn eiga mikið undir, að verði leidd til lykta á skynsam- legan hátt og þá að ráði þeirra sem gjörst þekkja. Því er rétt að þakka blaðinu fyrir að helja nauðsynlega umræðu, sem vonandi á eftir að fræða þá sem málið varðar og þá fyrst og fremst almenning um stöðu lífeyrismála í dag og hvernig unnt sé að bæta hana. Fjárhagsstaða lífeyrissjóða A undanförnum dögum hefur verið greint opinberlega frá fjár- hagsstöðu ýmissa lífeyrissjóða á forræði opinberra aðila, þ.e. ríkisins og Landsbanka og Seðlabanka. Það er ekki að furða að almenningi blöskri þær fjárhæðir, sem lands- menn eru ábyrgir fyrir vegna þeirra lífeyrisskuldbindinga, sem stofnað hefur verið til með aðild að þessum sjóðum. Þeim, sem til þekkja, koma þessar niðurstöður ekki á óvart, þar sem ekkert samræmi hefur verið milli þess lífeyrisréttar, sem við- komandi sjóðfélögum hefur verið lofað og þeirra iðgjalda, sem greidd hafa verið til sjóðanna. Þá hafa þessir sjóðir einnig haft þá sér- stöðu, að vísu með nokkrum fleiri sjóðum, að lána út fé með verulega lægri vöxtum en almennt gerist. Sjóðfélagar þessara sjpða þurfa ekkert að óttast um sinn lífeyris- rétt, því ríkissjóður og sveitarfélög (svo og ýmsar aðrar stofnanir og fyrirtæki) og þar með skattborgarar landsins munu standa undir öllum greiðslum til þeirra í tímans rás. Aunninn lífeyrisréttur sjóðfélag- anna verður ekki skertur og kjörum á Iánum, sem þegar hafa verið veitt, verður ekki breytt nema að takmörkuðu leyti. En það eru ekki allir sjóðfélagar svona heppnir. Það er viðbúið að lífeyrisréttur margra verði skertur og það þrátt fyrir að þeir hafi orðið að greiða hæstu vexti á hveijum tíma af þeim lánum, sem þeir hafa fengið hjá lífeyrissjóði sínum. Leið- arahöfundur Morgunblaðsins segir að án aðgerða stefni flestir lífeyris- sjóðir í gjaldþrot á næstu áratugum. í raun er ekki til neitt sem heitir gjaldþrot lífeyrissjóðs, því sú skylda hvflir á stjórn lífeyrissjóðs að grípa til nauðsynlegra ráðstafana, ef ljóst er að sjóðurinn getur ekki staðið við lífeyrisloforð sín. Geti stjórn sjóðs ekki leyst fjárhagsvanda sjóðsins með öðrum hætti ber henni að skerða réttindi sjóðfélaganna hlutfallslega. Það er ekki ætlun mín að ræða hér almennt um þann vanda sem blasir við mörgum sjóðum af þess- um sökum. Leiðarahöfundur Morg- unblaðsins víkur að því í inngangi sínum, að brýna nauðsyn beri „til að taka allt lífeyriskerfi lands- manna til gagngerðrar endurskoð- unar“. Hér skal tekið heils hugar undir þessa skoðun en jafnframt Bjarni Þórðarson „Stjórnvöld verða nú þegar að taka á þeim vanda sem blasir við í lífeyrismálum lands- manna. Þau mega ekki skerða rétt sjóðfélaga lífeyrissjóða til bóta frá almannatryggingum frekar en orðið er, heldur verða þau að snúa þeirri þróun við sem átt hefur sér stað með síauknu vægi tekjutryggingarinnar.44 bent á að þijár ríkisstjómir hafa haft tii umfjöllunar ítarlegar tillög- ur „endurskoðunarnefndar lífeyris- kerfisins", sem voru afrakstur 11 ára starfs nefndarinnar, en lítt hafa þær aðhafst enn. Vonir standa þó til að nú fari að rætast úr enda ekki vonum seinna. Engu að síður er sinnuleysi stjórnvalda í þessu sambandi mjög gagnrýnivert og þeim til vansa að hafa ekki tekið hér afgerandi forystu. „Tekjutenging ellilífeyris" Morgunblaðið gerði það að tillögu sinni í Reykjavíkurbréfi því, sem fyrr var nefnt, að allur ellilífeyrir almannatrygginga yrði ákvarðaður með hliðsjón af öðrum tekjum lífeyrisþegans (blaðið talar um tekjutengingu ellilífeyris, en mér finnst það óheppilegt orðalag því að það er oft notað um ellilífeyri, sem tekur mið af þeim tekjum, sem lífeyrisþeginn aflaði áður en hann hóf töku lífeyris). í dag skiptist elli- lífeyrir (og örorkulífeyrir) almanna- trygginga í tvo hluta, annars vegar fastan lífeyri sem allir fá án tillits til tekna og hins vegar uppbót á ellilífeyri sem almennt er nefnd tekjutrygging. Ef tekjur lífeyris- Langholtskirkja: Kveðjumessa Sigurðar Hauks Guðjónssonar SERA Sigurður Haukur Guðjóns- son kveður söfnuð sinn í messu í Langholtskirkju, Kirkju Guð- brands biskups, sunnudaginn 30. júní klukkan 11. Kór Langholtskirkju frumflytur Messe Basse eftir Cabriel Faur <d útsetningu Anders Öhrwall og Ólöf Kolbrún Harðardóttir, óperusöng- kona, og Lárus Sveinsson, trompet- leikari, flytja verk eftir Handel. Org- anisti er Jón Stefánsson. Ritningar- lestra flytja sóknarnefndarmennirnir Ragnheiður Finnsdóttir og Ólafur Örn Árnason. Messunni lýkur með altarisgöngu. Séra Sigurður Haukur Guðjóns-/ son kom til starfa við Langholts- kirkju 1. janar 1964. Hann hefur því þjónað söfnuðinum í 27 ár og leitt fijótt, fjölbreytt og þróttmikið safnaðarstarf. Og í hans preststíð lauk smíði Langholtskirkju, sem var vígð 16. september 1984. Eftir messuna á sunnudaginn býð- ur safnaðarnefndin til léttrar máltíð- ar í safnaðarheimilinu og eru allir kirkjugestir velkomnir. Þar mun for- maður sóknarnefndarinnar, Sigríður Jóhannsdóttir, ávarpa séra Sigurð Hauk Guðjónsson og frú Kristínu Gunnlaugsdóttur og flytja þeim þakkir safnaðarins. (FréttatilkynninR frá Langholtssiifnuði) þegans eru undir t.ilteknu marki greiðist hún að fullu, en skerðist um 45% af þeirri Ijárhæð, sem tekj- ur fara umfram þetta mark og fell- ur síðan niður. Þeir Hrafn Magnús- son og Sigurgeir Jónsson fjölluðu ítarlega um þessa tillögu blaðsins í greinum sínum 8. júní og í sjálfu sér ekki ástæða til að orðlengja um það frekar hér, enda virðist blaðið hafa dregið nokkuð í land í leiðurun- um tveimur. Þó er rétt að greina stuttlega frá tilurð ákvæðanna um tekjutrygg- inguna í lögum um almannatrygg- ingar. Á árinu 1971 tóku gildi ný lög um almannatryggingar og með- al nýmæla í þeim lögum voru ákvæði um sérstaka tekjutrygg- ingu. Hlutverk þessarar tekjutrygg- ingar var m.a. að leysa vanda ákveðins hóps, sem hafði öðlast engin eða rýr réttindi með löggjöf um eftirlaun aldraðra félaga í stétt- arfélögum. Þau lög höfðu tekið gildi í ársbyijun 1970 og tengdust þeim samningum sem aðilar vinnumark- aðarins höfðu gert um almenna aðild launþega að lífeyrissjóðum. Mun hafa verið get ráð fyrir að vægi tekjutryggingarinnar færi minnkandi þegar fram liðu stundir og menn mundu ávinna sér aukin réttindi í lífeyrissjóðum. Reyndin hefur orðið á annan veg. Vægi tekjutryggingarinnar hefur vaxið og nú síðast hefur verið aug- lýst að hún muni hækka um 18% um næstu mánaðamót og er sú hækkun umfram almennar hækk- anir á bótum almannatrygginga. Árið 1972 nam tekjutryggingin um 55% af ellilífeyrinum, árið 1982 110% og eftir hækkunina 1. júlf nk. verður hún 217% af honum (tvöföld- unartíminn í þessu sambandi er um 10 ár!). Gildandi reglur um tekjutrygg- ingu rýra mjög gildi þess lífeyris, sem menn frá greiddan úr lífeyris- sjóðum. Samanlögð áhrif þessarar skerðingar á tekjutryggingunni og staðgreiðslu skatta valda því að um 67 aurar af hverri krónu, sem lífeyr- issjóðurinn greiðir lífeyrisþeganum, rennur beint til ríkisins á ný (þetta á við á allbreiðu tekjubili frá því að samanlagðar tekjur fara yfir skattleysismörkin og þar til búið er að éta tekjutrygginguna upp til agna). Þegar tillit er tekið til þess að launþeginn greiðir skatt af því iðgjaldi, sem hann greiddi til þess að afla réttindanna, er ljóst að skil- virkni sparnaðarins verður harla lítil. Enn verri er staða sjálfstæðra atvinnurekenda en skattyfirvöld heimila þeim nefnilega ekki að líta á 6% iðgjaidshluta atvinnurekand- ans sem útgjöld við atvinnurekstur- inn. Þeir greiða því tekjuskatt og útsvar af öllu iðgjaldinu. Lögum samkvæmt ber þeim skylda til að greiða iðgjöld til lífeyrissjóðs, sem öllum launþegum. Þessi þrefalda sköttun þess ijár, sem rennur um farvegi lífeyriskerfisins, er slík hneisa að við svo búið má ekki leng- ur standa. Eigin eftirlaunasjóðir Nú verður vikið nánar að tillög- um blaðsins í leiðaranum 15. júní, en þar er blaðið að taka undir þings- ályktunartillögu Guðna Ágústsson- ar, alþingismanns og fomanns bankaráðs Búnaðarbanka íslands, og félaga hans um að „skipa nefnd sem fái það hlutverk að móta regl- ur um eigin eftirlaunasjóði allra landsmanna og gera tillögur um hvernig hægt væri að gera upp réttindi launþega í núverandi lífeyr- issjóðum." I greinargerð er að finna upptaln- ingu á ýmsum atriðum, sem höfð skulu til hliðsjónar við starf nefnd- arinnar, m.a. skulu eftirlaunasjóð- irnir verðtryggðir og ávaxtaðir á bankareikningum eða með verð- bréfum skráðum á opinberu verð- bréfaþingi, allar greiðslur úr sjóð- unum skulu skattfijálsar og ríkið skal stofna tryggingasjóð, sem taki við tryggingaþætti lífeyrissjóðanna (örorkubótum, barna- og maka- lífeyrisgreiðslum). I tillögunni felst að afnema nú- verandi tryggingakerfi lífeyrissjóð- anna og setja í staðinn upp nýtt skyldusparnaðarkerfi. Síðan á að setja upp nýtt tryggingarkerfi til að taka við hluta af tryggingaþátt-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.