Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991 21 5%stsr.aísl. 4-3 Roimill (1.5.000) Na'lon (12.900) í viku, þá hafði stjórnarherinn sprengt nánast alla miðborg Karbala svo að ekki stóð steinn yfir steini. Langflestir íbúar flýðu úr borginni, sumir vestur á bóginn og allmargir í norður. Enginn fæst til að nefna hversu margir uppreisnarmenn hafi verið en það er auðheyrt að uppreisn shítanna í suðrinu, einkum að þeir skyldu komast alla leið til Karbala, hefur vakið meiri ugg og reiði en nokkurn tíma það sem gerðist í norðrinu, „enda var það blásið upp af fjölmiðlum í ríkara mæli en það 1 sem gerðist fyrir sunnan. Það leit verulega illa út á tímabili," sagði ír- askur foringi við mig gegn nafn- leynd. Þegar verulega kreppti að upp- reisnarmönnum leituðu þeir skjóls í moskunum tveimur í Karbala og þar voru þeir brytjaðir niður. En áður hafði þeim að sögn írösku hermann- anna sem gæta moskanna tekist að kveikja í bænabókum og rústa allt sem rústað varð innandyra. Ég setti klút á höfuðið og fékk að fara inn í Husseinimoskuna í Karbala en þar voru síðustu upp- reisnarmennirnir drepnir. „Hvernig getur nokkur trúaður múslimi gert þetta?“ sagði Naji sem fylgdi mér um og benti mér á skemmdirnar sem var raunar síst þörf á; þær skáru í augun. Eðalkristalljósakrónur brunnar, bænaherberbergi sundur- skotin, brennd eða sprengd. Gullplöt- um hafði verið flett af turnspírum. Blóðslettur höfðu enn ekki verið hreinsaðar af veggjunum. „Ef ekki múslimi, hver þá?“ spurði ég. „Barð- ist þú héma?“ Hann hristi höfuðið. „Yið komum fyrir nokkrum vikum þegar allt var um garð gengið. Ja, hver ég held að hafi gert þetta. Ég trúi því ekki heldur á kristna menn. Ég held það hafi verið íranskir villu- trúarmenn sem rugluðu nokkra öfga- menn enn meira ... Ég hef enga aðra skýringu á því.“ Ég mátti taka myndir en þegar út kom og ég beindi vélinni að svört- um málningarklessum sem hafði í flýti verið skellt yfir svívirðingar um Saddam bað Naji mig að láta ógert að taka myndir. „Það gæti gefið rangar hugmyndir. Fólk gæti haldið að það hefði verið einhver alvara í þessu.“ Ég horfði á hann dolfallin. „Við vorum að skoða skemmdir og svínarí, eftir hveija sem það nú er,“ sagði ég. „Fjöldi manns lét lífið. Þú getur ekki búist við öðru en ég taki því í alvöru. Auðvitað tek ég mynd- ir. Þeir sem skrifuðu þessar svívirð- ingar hafa sannarlega goldið fyrir þær gerðir sínar.“ Á leiðinni til Bagdad sagði Ak- með bílstjóri - sem er eðlisfræðingur að mennt, ekkjumaður og fimm barna faðir, mér frá fyrstu nóttunum þegar sprengjurnar féllu á Bagdad. Hann sagðist ekki hafa trúað því að ráðist yrði á Bagdad. „Við vissum öll að fresturinn sem Bush hafði sett var útrunninn _en við höfðum líka fregnir af því að írakar væru að undirbúa brottför frá Kú- veit. En Kanarnir vissu víst ekki af því frekar en þeir vissu af því þegar við fórum inn í landið. Svo voru börn- in mín sofnuð og ég var að lesa og það var óhugur í mér en ég sagði alltaf að það yrði ekki stríð. Svo heyrði ég fyrstu drunumar. Hvort ég stirðnaði ekki upp! Og börnin mín komu hlaupandi fram og litla stelpan mín veinaði og veinaði af skelfingu. Við bjuggumst við því að sprengjur féllu á okkar hús, þetta virtist allt mjög nálægt. Við sátum og héldum utan um hvert annað og báðum til guðs alla nóttina. Þannig liðu marg- ar nætur og oft sváfum við ekki dúr og stundum lagði ég mig í mikla hættu á daginn að fara út og ná í brauð. Það var ekkert rafmagn og enginn sími. Þó voru núvdagamir skárri. En þegar fór að dimma komu krakkarnir og við hnipruðum okkur saman og báðum til guðs. Börnin voru alltaf hrædd og grétu. Ég var hræddur, ég bað til guðs. En ég var líka svo reiður. Þú trúir því aldrei hvað ég var reiður! Og þó hélt ég áfram að biðja guð því við vorum hrædd Ýið að þeir hentu ekki bara venjulegum sprengjum heldur myndi okkar bíða það sama og gerðist í Hiroshima. Én guð er góður. Hann fyrirgaf mér reiðina og verndaði okk- ur.“ Fiskeldi og þröngsýni eftir Gunnlaug Þórðarson Mér hefur oft verið hugsað til þess, að Kínveijar hafa stundað fiskeldi í meira en 2000 ár með góðum árangri og að þessi millj- arðsþjóð skuli vera sjálfri sér nóg í hvers konar fæðuöflun. Fyrir rúmum aldarfjórðungi lét ég hugann reika í útvarpserindi um fiskeldi og spáði því að um aldamótin 2000 gættu kafarar fisktorfa í Hvammsfirði og stór- virk veiðarfæri yrðu með búnaði sem rækju fiskinn í vörpurnar eft- ir stærð. Auðvitað voru þetta draumsýnir. Hitt er annað mál, að með ís- lendingum ætti fískeldi að vera auðveld búgrein, ef vel er á haldið vegna þess hve aðstaðan er víða ■ Náttúruverndarféla Suð- vesturlands gengst fyrir náttúru- skoðun og söguferð út í Engey í kvöld, föstudag klukkan 20 í sam- vinnu við Sjóferðaþjónustuna. Far- ið verður frá Miðbakka við Grófar- bryggju með mb. Guðrúnu Her- manns. Gengið verður um eyna ágæt bæði til hafbeitar í kvíum og eldis í keijum, en þar kemur jarðhiti að góðu gagni. Góðvinur minn einn stakk upp á því við mig fyrir áratug, að við færum saman út i fiskeldi. Mér varð þá að orði, að ég teldi hyggi- legast að bíða a.m.k. í áratug, ef við ættum að leggja í slíkt heill- andi ævintýri. Best væri að leyfa öðrum að gera mistökin, sem hlytu að fylgja byijunarörðugleikunum. í fyrri viku var ég að lögmanns- starfi úti á landi vegna fjárná- msaðgerðar hjá dugmiklum og framtakssömum fiskeldismanni. Hjá honum hefur eins og hjá öllum öðrum í sömu starfsgrein verið á brattan að sækja. Hann átti eins og flestir, sem lagt hafa útá þessa háskabraut, eitthvert fé, en hann þurfti að sjálfsögðu líka lán til að geta byijað. Landsbankinn sýndi og skoðuð hin fjölbreytta náttúra hennar og margvíslegar minjar. Ferðin tekur tvær til þijár klukku- stundir og er öllum heimil þátt- taka. Verð er kr. 1.000 fyrir full- orðna en 500 krónur fyrir börn yngri en 12 ára í fylgd með full- orðnum. mikinn áhuga á málinu og voru lán auðfengin. Nú þegar bankinn stendur illa á öðrum sviðum, hefur bankastjórinn í blindni neitað allri frekari fyrirgreiðslu við fiskeldi og ákveðið að öll lán skuli greidd upp. Fiskeldi skal útskúfað úr bankakerfmu, líkt og væri það hið mesta glapræði eða glæpur. Hitt gleymist að einmitt ríkis- valdið og bankarnir hvöttu menn til þess að fara í fískeldi, það var töfraorð fyrir fáum árum, eins og loðdýrarækt þar á undan. Því geta hvorki ríkisstjórn né þjóðbanki nú snúið svona kyrfilega bakinu við þessari merku búgrein. Landsbankinn, sem er þjóðbanki, hefur meiri skyldur en aðrar lána- stofnanir og þó hann verði fyrir skakkaföllum í bráð vegna þess að margir voru offarar í athafna- gleði sinni, þá réttlætir það ekki að bankinn taki þá afstöðu að af- skrifa þá búgrein, sem með réttum tökum ætti að geta skapað þjóð- inni miklar tekjur í gjaldeyri. Miklu líklegra er að með vissu aðhaldi megi bjarga málum við, en ekki með blindu offorsi, sem gerir alls engan mun á vel reknu fyrirtæki og illa reknu. Tjón bank- ans yrði vafalaust miklu minna, Gunnlaugur Þórðarson ef reynt væri að leysa mál þessara dugmiklu manna með neyðar- samningum heldur en með mörg- um uppgjörum og gjaldþrotum, þá er og víst að sú reynsla, sem fengist hefur af þessu framtaki fer síður í súginn. Bankar mega alltaf búast við að tapa einhveiju af lánsfé, það er hin heillandi áhætta, sem hlýtur að fylgja nýj- um tilraunum í atvinnulífi þjóðar- innar. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. OPIÐ ALLAR HELGAR í SUMAR SEGLAGERÐIN ÆGIR TJALDVAGNAR og allt í útileguna: Tjöld, svefnpokar, himnar, gönguskór, allur útilegufatnaður, stólar, grill, borð, sólskýli og margt margt fleira. <> 'ocsfnon Vatnsheldir með útöndun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.