Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Hrúturinn ætti nú fremur að einbeita sér að því að afla fjár en eyða því. Ef hann leggur aukalega á sig verður uppsker- an eftir því. Hann á í deilum við einhvem út af peningamál- Naut (20. apríl - 20. maí) irffi Maki nautsins lætur undir höf- uð leggjast að mæta því á miðri leið. Það stundar útivist og sinnir áhugamálum sínum, en ætti að gæta þess jafnframt að vanrækja ekki skyldustörf- in. Tvtburar (21. maí - 20. júní) 1» Eftirsókn samstarfsmanns tvíburans í völd fer ekki vel í hann. Hann finnur að eitthvað er að gerast á bak við tjöldin, en kemst ekki til botns í því fyrr en í kvöld. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Krabbinn er ekki sáttur við einn vina sinna og fer því út að skemmta sér með öðrum. Hann ætti að vera ákaflega varkár í orðavali í kvöld. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Ljónið ætti að fylgja eftir hug- myndum sínum, enda þótt ein- hver í ijölskyldunni hafi sínar efasemdir. Meyja (23. ágúst - 22. september) M Þó að meyjan eigi í erfiðleikum með að sannfæra aðra um ágæti sjónarmiða sinna ætti hún að vera sannfæringu sinni trú. Vog (23. sept. - 22. október) Dagurinn hjá voginni einkenn- ist af skriffmnsku og fjármála- garfi. Hún ætti að kynna sér málin í þaula áður en hún tek- ur bindandi ákvarðanir. Sporðdreki (23. okt. — 21. nóvember) ®)jj0 Sporðdrekinn og maki hans eru sammála um að vera ósam- mála. Eftir að þau hafa dvalist í hópi vina virðist sem skoð- anaágreiningurinn leysist sjálfkrafa. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) ^ 3 Bogmaðurinn er gjörsamlega strandaður með verkefni sem hann hefur með höndum núna. Hann ætti að ráðgast við þá sem bera ábyrgðina. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Steingeitin verður að þola af- brýðisemi einhvers í dag. Hún ætti að skipulegga ferðaiag sem stendur fyrir dyrum. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Vatnsberinn verður fyrir töf- um í vinnunni í dag. Honum tekst vel upp við það sem hann er að vinna að heima fyrir. Það er ekki heppiiegt fyrir hann að bjóða til sín gestum í kvöld. Fiskar ^ÚOr (19. febrúar - 20. mars) Það hlusta ekki allir á það sem fískurinn hefur að segja í dag, en hann er mjög sáttur við samstarfið sem honum tekst að koma á laggimar og undir- tektir maka síns. Stjömusþúna á aó lesa sem dœgradvól Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. nvdAr^i cmo U Y KAu LtlMo llllllllMIIU.alk TOMMI OG JENNI FERDINAND SMÁFÓLK PE66Y JEAM 15 60NE(LINUS.'5HE 60T MADlSHE 5AID I DIDN'T TRU5T HER Palla Jóns er farin, Lalli. Hún varð óð! Hún sagði að ég tre- ysti henni ekki. 1 L0VED HEK, LINU5, GOLF 15 A AND NOUI l'LL NEVER CRUEL 6AME, 5EE HER AGAlM... CHARLIE BROldN g fcW j W | C7^'1 lmmm Ég elskaði hana, Lalli, og Golf er grimmur nú sé ég hana aldrei aftur. leikur, Kalli Bjarna. Hvað kemur það Það var það eina málinu við? sem mér datt í hug að segja. f BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson „Það er álitamál á hveiju best er að opna með spil vesturs, en sjálfur myndi ég kjósa eitt grand,“ segir Omar Sharif í skýringum sínum við spil 3 úr EPSON-keppninni. Suður gefur; AV á hættu. Vestur Norður ♦ Á64 VD10 ♦ 976 ♦ ÁD872 Austur ♦ DG10 ♦ 98753 YKG863 V Á97 ♦ KD5 ♦ AG832 *KG Suður ♦ - ♦ K2 V 542 ♦ 104 ♦ 1096543 Vestur Norður Austur Suður - - - Pass 1 hjarta Pass 1 spaði Pass 2 tíglar Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Útspil: laufás I skýringarbæklingi sem um það bil 100 þúsund keppendur í 90 löndum fengu í hendur að spilamennsku lokinni, kemur Omar Sharif fram í hlutverki áhorfenda. Hann fylgir einu pari og rekur gang mála frá sínum sjónarhóli. Við spaðasvari aust- urs á vestur enga góða endur- sögn, sem er ástæðan til þess að Sharif og fleiri vilja frekar opna á grandinu. En kannski hefði Sharif átt að velja sér litríkara par til að fylgja. Til dæmis Gylfa Baldurs- son og Sigurð B. Þorsteinsson. Þá hefði ofangreind umræða verið með öllu óþörf: Vestur Noröur Austur Suður - - - 2 spaðar Dobl Pass Pass 3 lauf 3 hjörtu 5 lauf 5 hjörtu Pass Pass Pass Gylfí í suður opnar á Blakset- gambítnum, 2 spöðum, sem seg- ir frá 0-7 punktum og veikum langlit, láglitum eða 4-3-3-31 Lauffómin er mjög góð, svo AV gerðu rétt í því að reyna 5 hjörtu. Sigurður kom út með laufás, sem sagnhafí trompaði í blindum og lagði niður hjartaás. í skýr- ingarbæklingjum lét norður hjartatíuna í ásinn, en Sigurður var ekkert að spara drottning- una. Og var verðlaunaður fyrir hugrekkið þegar hann fékk næsta slag á hjartatíu. Gylfí hafði látið lauftíuna í fyrsta slag - hliðarkall í spaða - en Sigurð- ur vildi ekki vera of gráðugur og spiiaði spaðaás og meiri spaða. Það gaf NS 91 stig af 100 að taka 5 hjörtu einn niður. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á opnu móti í Wúrzburg í Þýzkalandi í vor kom þessi staða upp í viðureign þeirra Riebe, Danmörku, og ungverska stór- meistarans Ivans Farago (2.495), sem hafði svart og átti leik. reynir að loka skálínu svörtu drottningarinnar. 28. Dxf2 — Hxg3+, 29. Kfl - Dxf2+, 30. Kxf2 — Hxd3 var ennþá verra.) 28. - dxc5, 29. Dxf2 - h2+!, 30. Khl - Dg6, 31. Rf3 - f5! og hvítur gaf þessa vonlausu stöðu. Sigurvegari á mótinu varð búlg- arski alþjóðameistarinn Semko Semkov, sem hlaut 6‘A v. af 7 mögulegum, en næstir komu Ung- veijamir Farago og A. Schneider, Tékkinn Jurek og Sovétmaðurinn Arbakov. Langstigahæsti þátttak- andinn, litháíski stórmeistarinn Viktor Gavrikov, varð að sætta sig við 22. sætið með 5. vinninga. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.