Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 42
félk í fréttum ....MORGUNBLAÐIÐ' FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ-1 Rebecca og Damon. BRÚÐKAUP Raquel Welch sá af syni í hnapphelduna Börnin læra um Afríku. NAMSKEIÐ Rauði krossinn með fjölþætta kynningu Börnin á sumarnámskeiðum Rauða krossins sem nefnderu- „Mannúð og menning" em ánægð með lífið. A þeim tveimur vikum sem hvert námskeið hefur staðið yfir er marg fróðlegt og spennandi að gerast fyrir börnin. Farið er í leiki og sungið, farið í gróðursetn- ingarferð í Gunnarsholt, spjallað er um umhverfi okkar og gerð verk- efni í tengslum við það, sagt frá Rauða krossinum, kennd grunnatr- iði í skyndhjálp, fjallað um vináttu, stríðni, einelti og fleira. Þegar myndin sem hér fylgir var tekin stóð yfir „Afríkudagur" en þá var rætt um ólíka menningarheima, líf Afríkubúa, dansaðir afrískir dansar og útbúin afrísk hljóðfæri. Þessi námskeið eru haldin í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfírði og á Akur- eyri. Þau eru fyrir börn á aldrinum 8 til 10 ára og mun enn vera hægt að bæta við börnum í sum nám- skeiðin. Leikkonan og kynbomban Raquel Welch sá á eftir syni sínum í hnapphelduna fyrir skömmu og kom það brúðkaup fjölskyldum hjónanna í opna skjöldu. Damon Welch, 32 ára sonur Raquel, sem átti drenginn aðeins 19 ára gömul, gekk að eiga Rebeccu Trueman, en hún er dóttir Freddie Trueman, eins frægasta krikketleikara Breta fyrr og síðar. Óhætt er því að segja að þau komi úr ólíku umhverfi. Sagt er að Raquel og Rebecca nái sérstaklega vel saman og hlýtur Damen að vera himinlifandi vegna þessa. Damen og Freddie tengda- faðir hans hafa einnig náð vel sam- an og Freddie hefur árangurslaust reynt að kenna Damen krikket og er Deman þó íþróttamaður, er m.a. heilsuræktarráðunautur. Þau skötuhjú ætla að freista þess það sem ýmsum hefur mislukkast, þ.e.a.s. að eiga heimili beggja vegna Atlantshafsála. Damen dreymir um stór kvikmyndahlútverk, en þau láta á sér standa enn sem komið er. Athöfnin var borgaraleg og lát- laus. Hún gekk heldur ekki áfalla- laust fyrir sig, því Damen teptist í umferð og mætti allt of seint. Og þegar hann loks rak inn nefið þá reyndist hann hafa gleymt hringun- um. Allt fór þetta því úr böndunum um hríð þótt úr rættist um síðir. Þegar lýðnum var ljóst að þetta fræga fólk var búið að gifta sig, var leyfi veitt til þess að ijölskyld- Raquel þótti hafa viljandi eða óviýandi stolið senunni frá tengdadóttur sinni... umar blésu til stórveislu á ættar- setri Truemanfjölskyldunnar. Þar vakti mikla athygli hversu myndar- legt par þau Rebecca og Damen reyndust vera. Það var einnig tekið eftir því, að Raquel, sem stendur nú á fimmtugu þótti freista þess að stela senunni frá tengdadóttur sinni með því að klæðast bæði stutt- um og afar flegnum kjól. Veltu menn því fyrir sér hvrot að um herkænskubragð hafi verið að ræða, þar eð hún hjálpaði Rebeccu að velja sér brúðarkjól, en fyrir valinu varð mjög fallegur, en látlaus kjóll. STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN Símar 18519 og 689212 BRUNO MAGLI Höfum einnig margar tegundir af hvítum leðurskóm HAFNARFJÖRÐUR Táknræn vígsla í höggmyndagarðinum Morgunblaðið/Arni Sæberg Táknræna vígsla fór fram I nýja höggmyndagarðinum á Víðistaðatúni í Hafnarfirði um helgina að frum- kvæði erlendu listamannanna, sem gefið hafa verk í garðinn. Sverrir Ólafsson myndhöggvari var bor- inn um í hásæti með kórónu og veldissprota og eru listamennirnir hér við skjöld með áritun allra þeirra sem gefið hafa verk í garðinn. Fremst til vinstri eru Elisabet Thoenen frá Sviss og Barbara Tieaho frá Finnlandi. I annarri röð eru Sonja Renard frá Frakklandi, Sverrir Ólafsson og Rowena Morales frá Mexikó. 1 þriðju röð eru Volker Schowart frá Þýskalandi, Jurg Altherr frá Sviss, Brynhildur Þor- geirsdóttir og Magnús Kjartansson. Garðurinn verður formlega opnaður 13. júlí næstkomandi og verða verkin sem sett hafa verið upp í miðbæ Hafnarfjarðar í tilefni listahátiðar sett þar upp en þau eru öll gefin með því skilyrði að vera þar til frambúðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.