Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991 Er gróði sjávarút- vegsins vandamál? eftir Halldór Asgrímsson Inngangur Mikil umræða hefur orðið um það undanfarið, hvort rétt sé að sjávarút- vegurinn greiði endurgjald fyrir veiðiheimildir. Ritstjórar Morgun- blaðsins hafa haldið uppi linnulausri gagnrýni á skipulag fiskveiðanna, án þess að benda á hvað skuii koma í staðinn. Þeir hafa þó að undan- fömu komist að þeirri niðurstöðu, að lausnin felist í því að skattleggja sjávarútveginn sérstaklega vegna nýtingar fiskimiðanna. Alþýðuflokk- urinn hefur tekið í sama streng og benda ummæli þeirra tii þess að eitt af því sem samið var um í Viðey sé álagning slíks gjalds.“ Greiðslur vegna notkunar náttúruauðlinda Við íslendingar eigum ekki fjöl- breyttar, nýtanlegar náttúruauðlind- ir. Þær sem eru mikilvægastar eru fískimiðin, orka fallvatnanna, hitinn í iðrum jarðar og landið, ásamt gæðum þess. Við lítum svo á að fiski- miðin, hitinn í iðrum jarðar og orka fallvatnanna sé sameign þjóðarinn- ar, sem beri að nýta með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. Ef taka ætti gjald af nýtingu auðlinda, væri eðlilegt að taka það jafnt af nýtingu orkulindanna og auðlinda sjávar. Talsmenn auðlindaskatts og veiði- leyfasölu hafa eingöngu beint spjót- um sínum að sjávarútvegi, en minn- ast aldrei á arðinn af nýtingu orku- lindanna. Fyrirtæki eins og Lands- virkjun og HitaVeita Reykjavíkur eru rekin með miklum hagnaði á ári hverju. Þessi fyrirtæki borga ekkert gjald fyrir notkun hinna sameigin- legu auðlinda. Orkufyrirtækin borga enga tekju- og eignaskatta til ríkis- ins. Þessi staðreynd er ein helsta ástæða þess að Reykjavíkurborg býr við mjög góða fjárhagsstöðu. Ef minnst er á að rétt sé að orku- fyrirtækin greiði tekju- og eigna- skatt til samræmis við önnur fyrir- tæki í landinu, þá er litið á það sem beina árás á hagsmuni þeirra sem þar eiga hlut að máli. Eg tel það eðlilegt jafnræði að þessi fyrirtæki greiði skatta og skyldur í samræmi við annan atvinnurekstur í landinu. Ef orkufyrirtækjunum væri janf- framt gert að greiða gjöld fyrir nýt- ingu auðlindanna til viðbótar við eðllega skattlagningu, þætti það sjálfsagt fólskuleg árás á viðkom- andi atvinnugrein. Fróðlegt væri að fá fram hjá talsmönnum veiðileyfa- sölu, hvað þeim finnst um skattaleg forréttindi þessara fyrirtækja og hvort þeim finnist ekki að nú þegar beri að leggja á þau orkunýtingar- gjald. Sterkari staða sjávarútvegs Sjávarútvegurinn hefur verið að ganga í gegnum miklar skipulags- breytingar á undanförnum árum. Þessar breytingar hafa styrkt stöðu hans og hag þjóðarinnar allrar. Ef menn hafa úthald til að viðhalda þeirri stefnu, sem mörkuð hefur ver- ið, á það eftir að skila sér enn betur í bættri afkomu þjóðarinnar og ör- uggari vemdun fiskistofna. Það er rétt að minna á að mikil hætta var á að eigið fé sjávarútvegsins tapað- ist með tilheyrandi gjaldþrotum og atvinnuleysi. Þessari þróun var snúið við og á hveijum degi er verið að vinna að endurskipulagningu í grein- inni. Nú heyra menn ekki lengur um endalausar taptölur, heldur jafn- framt hagnað viðkomandi fyrir- tækja. Því miður er það svo að sum fyrirtæki eru rekin með tapi og nokkrar greinar sjávarútvegsins standa frammi fyrir verulegum vandamálum, s.s. loðnu- og rækju- vinnsla. Fyrirtækin sem rekin eru með hagnaði hafa verið að styrkja stöðu sína, greiða skuldir sínar og auka umsvif sín. Er þetta vandamál? Er hagnaður einhverra þessara fyrir- tækja svo mikill, að það beri að draga úr honum með sérstakri skatt- lagningu? Eru laun fólksins sem vinna hjá þessum fyrirtækjum svo mikil, að það sé rétt að draga úr tekjum viðkomandi fyrirtækja til að hamla gegn þeirri þróun? Flestir myndu sjálfsagt svara þessum spumingum neitandi. Menn myndu svara því til að það væri alls ekki hugmyndin að draga úr möguleikum fyrirtækjanna til að styrkja eiginfj- árstöðu sína og borga fólki sínu mannsæmandi laun, heldur væri svarið, að það yrði að koma til sann- gjarnt endurgjald fyrir nýtingu auð- lindanna, þannig að þjóðin gæti not- ið arðsins. Þjóðin nýtur arðsins Nýtur þjóðin ekki arðsins af vel reknum sjávarútvegsfyrirtækjum nema í gegnum skattlagninguna? Er það ekki hagur fólksins á Akur- eyri, Neskaupstað, Yestmannaeyj- um, Akranesi, Isafirði, svo einhveijir staðir séu nefndir, að þar séu rekin vel stæð sjávarútvegsfyrirtæki? Er ekki veik staða fyrirtækja á mörgum stöðum aðaláhyggjuefni fólksins, en ekki of góð staða? Þá segja menn gjarnan að það sé nú ekki hugmyndin að rýra neitt hag fyrirtækjanna, því jafnhliða auðlind- askattinum og sjávarútveginum eigi að breyta genginu. Sú gengisbreyt- ing myndi koma fram í kostnaðar- hækkunum og ekki getur staðið til að hækka laun samfara því, því þá Halldór Ásgrímsson „Gjöld á veiðileyfi hafa því ekkert með hag- kvæmni að gera. Það sem tryggir hagræð- ingu innan sjávarút- vegsins er rétturinn til að framselja afla milli skipa og verður þess vart að þeir sem hæst tala um hagræðingu eru andvígir slíku braski, eins og það heit- ir.“ myndi samkeppnisstaða sjávarút- vegsins versna til muna. upptaka veiðileyfisgjalds ásamt gengisbreyt- ingu myndi því leiða til kjararýrnun- ar almennings. Sterk staða sjávarút- vegsins tryggir afkomu fólksins sem við hann vinnur og þjóðin nýtur arðs- ins með einum eða öðrum hætti. Aukin hagkvæmni Því er haldið fram að álagning gjalds á sjávarútveginn stuðli að meiri hagkvæmni í greininni. Þetta er alls ekki rétt, nema við það sé átt að slíkt gjald myndi tryggja að þeir sem eru veikastir fyrir í dag færu örugglega á hausinn. Það á því ekki að gefa þeim tækifæri til að aðlaga rekstur að nýjum aðstæð- um, heldur á gjaldið að koma því til leiðar að útgerð leggist af hjá viðkomandi aðilum. Sjálfsagt væri hægt að finna ein- hveija aukna hagkvæmni í slikum aðgerðum. Jafnframt verða menn að gera sé það ljóst, að líklegt er að ljöldi fólks mun missa eignir sín- ar við slíkar ráðstafanir, ekki aðeins þeir sem í útgerðinni standa, heldur allir sem hafa lífsviðurværi af sjávar- útvegi í viðkomandi byggðarlagi. Fyrirtækin í sjávarútvegi eru ekkert einkamál þeirra sem þau reka, held- ur sameiginlegt hagsmunamál allra sem hafa af þeim tekjur. Sumir eru að vísu þeirrar skoðunar að það verði bara að ráðast og koma í ljós, en ég get ekki tekið undir þau sjónarm- ið. Gjöld á veiðileyfi hafa því ekkert með hagkvæmni að gera. Það sem tryggir hagræðingu innan sjávarút- vegsins er rétturinn til að framselja afla milli skipa og verður þess vart að þeir sem hæst tala um hagræð- ingu eru andvígir slíku braski, eins og það heitir gjarnan. Iðnaðarráðherra og sanngirnissjónarmið Er það sanngjamt að Útgerðarfé- lag Akureyringa greiði gjald fyrir afnot fiskimiðanna, svo dæmi sé tek- ið um eitt vel stætt fyrirtæki á lands- byggðinni. Ég er viss um að þetta fyrirtæki á eftir að færa út kvíarnar í framtíðinni. Ekki aðeins á þeim starfssviðum sem það er í núna, heldur mun það taka þátt í atvinnu- þróuninni á Éyjafjarðarsvæðinu. Það mun áreiðanlega fjárfesta í full- vinnslu sjávarafurða, verða stór rekstraraðili í eldi sjávarfiska og hugsanlega mun það taka þátt í öðrum iðnaði á svæðinu. Það að skattleggja það sérstaklega núna mun koma í veg fyrir slíka þróun. Það væri að hamla gegn framförum að grípa til slíkra ráðstafana. Að mínu mati væri það hins vegar sann- gjarnt að leggja tekju- og eignar- skatt á orkufyrirtækin, en alls ekki auðlindaskatt. Það er hins vegar rétt að tekju- og eignaskattur á orkufyrirtækin myndi hefta mögu- leika þeirra til að taka þátt í þróun Við erum í sumarskapi og bjóðum öllum til A o UTILEGUVEISLU I DAG KYNNINGAR Á ÝMSUM ÚTILEGUVÖRUM UPPLÝSINGAR FYRIR FERÐALANGA HUNDRAÐASTI HVER VIÐSKIPTAVINUR FÆR GJÖF TJÖLDIN ERU ÖLL UPPSETT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.