Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991 Bæjarstjórinn hefur lofað að hjálpa þeim að endurbyggja húsin þeirra. Frá Basra. Blaðamaður Morgnnblaðsins í Irak, 3. grein „Ég átti heima þarna.“ Lítill strákur í Karbala. Lífið í suðrinu er byijað að ganga sinn gang enn á ný. Blóðslettur hafa ekki verið hreinsaðar af veggjum moskunnar. „Við sátum o g báðum til guðs og allt í kríug heyrð- um við sprengjumar fallau 1 % Snarlega hafði verið málað yfir svívirðingar um Saddam á Husseini moskunni. beija á. Jú, það er óhætt að segja að við erum reið.“ Við vorum niðursokknar í samræð- urnar þegár tjaldinu var svipt frá og kunnuglegt andlit fylgdarmanns míns birtist. „Þetta er varasamt," sagði hann án teljandi áherslu. „Það bjargar málinu að bílstjórinn er ekki í þjónustunni. Annars hefði ég feng- ið fyrir ferðina að missa af þér.“ „Þú verður fyrir vonbrigðum, það er ekkert að gerast, ekkert að sjá. Allir eru komnir heim til sín. Þú sérð nokkur sprengd hús sem írönsku þorpararnir sprengdu og svívirtar moskur," var sagt í ráðuneytinu. Ég hafði fengið loforð fyrir Mósulferð en þvi var breytt klukkutíma áður en ég lagði af stað. Leyft að fara suður í sárabætur eins og þeir orð- uðu það. Maður þarf ekki að vera sérlega klókur né næmur né hafa verið lengi í írak til að vita hvað það þýðir ef leyfi fæst ekki að fara á einhveija staði. Við renndum inn i Karbala þegar var farið að halla degi. Og hvarvetna blasti eyðileggingin við. Karbala og Najef eru heilagar borgir iröskum shítum, í Najef er moska tileinkuð Ali og í Karbala moskur helgaðar sonum hans. Shítar innan sem utan Iraks streyma þangað í pílagríms- ferðir. Eins og greint var frá í fréttum í marsbyijun hófst þá uppreisnartil- raun íraskra shíta og byijaði að því er talið er í Basra. Þetta var aðeins nokkrum dögum eftir uppgjöf íraka gagnvart fjölþjóðahernum. Harðvít- ugir bardagar voru háðir í Basra og síðan breiddist uppreisnin út áleiðis til Bagdad. Ég hafði fjarri gert mér grein fyrir að frá Karbala til Bagdad eru ekki nema 200 kílómetrar. Á tímabili var ekki vafi á því að upp- reisnarmennirnir - sem ekki höfðu aðeins shíta innan'vébanda sinna - ætluðu sér að halda ótrauðir áfram til Bagdad. Bardagar stóðu að því er talið var það er auðveldara að staðhæfa að íranskir shítar hafi verið þar kjarni hersins sem barðist við íraska stjóm- arherinn. „Það er tilfinningalegs eðlis,“ hvíslar hún að mér. „Basra var hvort sem er ónýt borg eftir íran-írak- stríðið. Það er alvarlegra með Karb- ala. Og þú verður hissa þegar þú áttar þig á hvað Karbala og Najef eru stutt frá Bagdad og hvað mjóu munaði að hermenn Saddams biðu ósigur.“ Þessi kona er kennari og ættuð frá Bagdad en hafði búið í Básra í mörg ár. Hún hnippti í mig þegar ég var að reika um rústir í Basra og bflstjórinn og vörðurinn minn höfðu farið að kaupa vatn fyrir heim- ferðina. Hún býr í leirkofahverfi í útjaðri borgarinnar og inni voru dýn- ur og slitin og hrein teppi á gólfínu. Það var yndislega svalt inni og við sátum á góifínu og hún sendi krakk- ana sína eftir vatni handa mér. „Við vonuðum að bandamenn kæmu uppreisnarmönnum til hjálpar. Það urðu margir reiðir þegar sú hjálp barst ekki. Hvað var Bush að belgja sig út um að við ættum að steypa manninum sem ræður og svo þegar við reyndum það sneri hann sér á hina hliðina og sagðist ekki blanda sér í innanríkismál íraks! Hvort á ég að hlæja eða gráta þegar ég heyri svona! Hann bjóst við að nokkur þúsund menn gætu ráðið við her sem hann hafði sjálfur talið að þyrfti mörg hundruð þúsund manns til að - Litlir strákar í Basra. Fólk í sprengjuregni o g ferð suður Texti og myndir: Jóhanna Kristjónsdóttir I hitanum sem er um 50 stig í skugganum - sem fyrirfinnst hvergi - strita sólbarðir menn við viðgerðir. Þeir hamast eins og þeir eigi lífið að leysa, við að end- urbyggja brýrnar, malbika vegi sem spændir voru upp, hreinsa sprengd og moluð hús, hanga uppi í rafmagns og símastaurum að laga línur. Uti á ökrum eru konur og börn að puða, en áburð vantar því leyfi fæst ekki til að flytja hann inn svo þau segja að upp- skeran verði rýr. Oft keyrum við langar krókaleiðir þar sem enn hefur ekki tekist að ljúka við- gerðum eða jarðsprengjur ekki verið hreinsaðar svo Ieiðin er ekki örugg. Það er engin loft- kæling í bílnum og sjóðandi heitt og rykmettað loftið, skellur á okkur eins og stanslaus hríð. Ég er á leiðinni frá Basra í suðri og með leyfí upp á vasann að koma við í Karbala og Najef, tveimur helgum borgum shíta. Einhverra hluta vegna var erfíðara að fá leyfi þangað en vitja Basra. Kennslu- kona sem ég hitti í Basra gaf mér skýringu á því sem gæti eins stað- ist og hver önnur. Basra er svo nærri landamærunum að íran að U

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.