Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 25
MORGUNBLABIÐ FÖSTUDAGUR 28..JÚNÍ 1991 25 Hnattflugá tvíþekju Flugvélin „Norðurljós" („Northern Light“), sem er tvíþekja af gerðinni Stearman, hefur sig hér til flugs frá bænum Hemet í Kaliforníu og var ætlunin að fljúga umhverfis hnöttinn. í gær, tæpum sólarhring eftir að lagt var upp, brot- lenti vélin hins vegar í Colorado-ríki. Flugmenn- irnir sluppu ómeiddir og ætla að halda hnatt- fluginu áfram á Cessna-185 flugvél. Þeir sjást á innfelldu myndinni, Victor Smolin frá Sov- étríkjunum (t.v.) tfg Carl Hays frá Bandaríkjun- um (t.h.). Þeir félagar lögðu upp á þriðjudaginn og munu hafa viðkomu í Reykjavík þann 1. júlí. Reuter Evrópska efnahagssvæðið: Fyrsti samninga- fimdiu’ Norðmanna með EB í Brussel Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. FYRSTI óformlegi samningafundur Norðmanna með fulltrúum framkvæmdastjórnar Evrópubandalagsins (EB) fór fram í Brussel í gær. Fundurinn er haldinn í beinu framhaldi af tilboði í sjávarútvegi sem Norðmenn lögðu fram á sam- eiginlegum ráðherrafundi Fríversl- unarbandalags Evrópu (EFTA) og EB í Lúxemborg 18. júní. Samkvæmt heimildum í Brussel voru báðir aðilar sammála um að fundurinn í gær hefði verið gagn- legur. Engar nýjar tillögur voru lagðar fram, hvorki af hálfu EB né Norðmanna, en Norðmenn skýrðu tilboð sitt frá Lúxemborg- arfundinum og svöruðu spurning- um EB um það. í frétt norska dagblaðsins Aft- enposten um fund ráðherra EFTA og ráðherra EB í Salzburg á þriðju- dag er greint frá viðbrögðum nor- rænna ráðherra við niðurstöðum hans. „Margir hlutir, sem við héld- um að væru á hreinu í Lúxem- borg, eru óljósir. Smáatriðin eru óljós í nær öllum málum,“ sagði viðskiptaráðherra Finnlands, Pertti Salolainen, í samtali við norska dagblaðið Aftenposten fyrr í vikunni. Þá sagði Anita Gradin, viðskiptaráðherra Svíþjóðar, að hún hefði orðið fyrir miklum von- brigðum með að EB-menn hefðu bakkað með allt það sem samist hefði um í Lúxemborg. Reiknað er með því að annar fundur Norð- manna og EB verði haldinn á mánudaginn kemur en á þeim fundi verður framhaldið ákveðið. Eftir því sem næst verður komist hefur ekkert verið ákveðið um fundahöld fulltrúa íslands og Evr- ópubandalagsins. Höfum fengiö fyrstu sendingu af hinum frábæra sportfatnaði frá H2O sem bæði er mjög vandaður og hreint út sagt ómótstæðilegur m.a. jogginggallar, hettubolir, stuttermabolir, stuttbuxur, sundfatnaður og fl. EURO VlSA Laugavegi 62 Simi 13508 Jí: i*' SENDUM í PÓSTKRÖFU HÁGÆÐA SPORTFATNAÐUR Jyllands-Posten: Pólverjar áttu að taka Danmörku DANSKA dagblaðið Jyllands- Posten skýrði nýlega frá því að pólskum hermönnum hafi sam- kvæmt áætlunum Varsjárbanda- lagsins verið ætlað að hernema Danmörku í „þriðju heimsstyrj- öldinni", örfáum dögum eftir að innrás bandalagsins í Vestur- Evrópu hæfist. Blaðið segir að þetta komi fram í skjölum, sem leyniþjónusta þýska hersins hafi komist yfír eftir sam- einingu Þýskalands í október í fyrra. Þar sé fjaliað um stríðsáætl- un, sem samin hafi verið að undir- lagi Sovétmanna. Hún sé ótvíræð sönnun þess að Varsjárbandalagið hafi ætlað að gera innrás í Vestur- Evrópu. Jyllands-Posten hefur eftir bandaríska dagblaðinu Wall Street Journal að skjölin hafi fundist í austur-þýskum herstöðvum aðeins nokkrum mínútum eftir að þýsku ríkin sameinuðust 3. október sl. Embættismenn þýska varnannála- ráðuneytisins vilji ekkert láta hafa eftir sér um málið. Blaðið hefur ennfremur eftir þýskum sérfræðingum að Sovét- menn hafi að öllum líkindum ekki viljað veita bandamönnum sínum í Varsjárbandalaginu aðgang að áætiuninni í heild en skjölin gefi þó vísbendingar um hvernig hún hafi verið í meginatriðum. „Enginn vafi leikur á því að Varsjárbandalagið var reiðubúið að beita hervaldi, eins og Atlantshafs- bandalagið hafði áætlað. Herehöfð- ingjarnir í Austur-Evrópu gerðu ráð fyrir að kjarnorkuvopnum yrði beitt þegar á öðrum degi. Efna- og sýklavopnum átti einnig að beita í miklum mæli,“ segir blaðið. „Sovétmenn höfðu skipt hinum ýmsu svæðum Vestur-Evrópu milli bandamanna sinna. Hersveitir þeirra sjálfra áttu þó einnig að taka þátt og þá ekki síst til að tryggja að bandamenn þeirra gættu þess að halda sig „á réttri braut“. Þannig var austur-þýskum og pólskum hersveitum ætlað að sækja fram í átt að Kílarskurði á ijórum dögum. Pólsku hersveitirn- ar áttu síðan að hertaka þýska svæðið norðan skurðsins og Dan- mörku á meðan þær austur-þýsku biðu við skurðinn. Austur-þýskir herforingjar, sem starfa nú fyrir þýska sambandsher- inn, hafa staðfest þessa túlkun. Aðrir Austur-Þjóðverjar hafa enn- fremur upplýst að þeir hafi vitað nákvæmlega hvaða hlutverki þeim var ætlað að gegna á hernumdu svæðunum. Þannig hafa margar af kenningum sérfræðinga NATO verið staðfestar." Fjórir skiptinemar í Júgóslavíu FJÓRIR íslenskir skiptinemar hafa undanfarið ár dvalist í Júgó- slavíu á vegum skiptinemasam- takanna AFS á íslandi en eftir því sem næst verður komist eru engir íslenskir ferðamenn í land- inu. Þrír skiptinemanna eru á heim- leið í dag en síðustu dagana voru þeir á hóteli í höfuðborg landsins, Belgrad, þar sem allt var með kyrr- um kjörum. Nemarnir fljúga heim í gegnum París og eru væntanlegir til Islands seint í kvöld. Fjórði skiptineminn hefur ákveðið að dvelja lengur í Júgóslavíu á eigin vegum. þakrennur ryðga ekki! Einfaldar í samsetningu, þarf ekki að líma. #ALFABORG" BYGGINGAMARKAÐUR KNARRARVOGI 4 — SÍMI 686755

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.