Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 15
MQRGlJNfiLAÐlD FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ. .19,91 15 Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir Fijálsíþróttakappar leggja tartanbraut fyrir stökkgreinar. Hvolsvöllur: íþróttahátíð HSK um þeim sem lífeyrissjóðirnir ann- ast. Þó ekki einum sem er býsna mikilvægur og hann er sá að tryggja hinum langlífustu tekjur, eftir að greiðslum úr eftirlaunasjóð- unum sleppir. Þá kemur ekkert fram um það hvemig fara skuli með áunnin réttindi í lífeyrissjóðun- um en að sjálfsögðu yrðu þeir að halda áfram starfsemi sinni og standa við áunnin lífeyrisloforð vegna liðins tíma eftir því sem íjár- hagur þeirra leyfir. Fáar þingsályktunartillögur hafa öðlazt jafnmiklar vinsældir og þessi tillaga Guðna og félaga hans. Hinn almenni borgari virðist þar sjá lausn á vanda lífeyriskerfísins. Menn leggja meira segja til á þingi BSRB að taka undir þessi sjónarmið. Illu heilli fyrir ríkissjóð og hinn almenna skattþegn var komið í veg fyrir samþykkt tillögu um að hverfa að slíku kerfí fyrir opinbera starfs- menn. Hvað veldur þessum vinsældum tillögunnar? Er það vantrú almenn- ings á lífeyrissjóðunum og stjóm- endum þeirra eða er það einstakl- ingshyggjan sem ræður mestu? Morgunblaðið tekur undir sjón- armið þingsályktunartillögunnar og staðhæfír í leiðaranum 15. júní, að ávöxtun virðist miklu meiri á hinum fijálsa íjármagnsmarkaði en í al- mennum, lífeyrissjóðum. Þetta er alvarleg fullyrðing og ekki væri óeðlilegt að hún væri studd gildum rökum, en svo er ekki. Ég leyfí mér að staðhæfa að ávöxtun ijár í hinum almennu lífeyrissjóðum sé ekki lak- ari en almennt gerist í verðbréfa- sjóðum og á þeim bankareikning- um, sem bezta ávöxtun gefa. Lífeyrissjóðimir hafa orðið að kaupa skuldabréf Byggingarsjóðs ríkisins fyrir um 4Ö% af ráðstöfun- arfé sínu til þess að tryggja sjóðfé- lögum sínum fullan lánsrétt úr hús- næðiskerfínu. Bréf þessi bera nokkru lægri vexti en almennt ger- ist en þrátt fyrir þessa staðreynd mun raunávöxtun fijálsu lífeyris- sjóðanna vera um 6-7% og hefur þá kostnaður við rekstur verið dreg- inn frá vaxtatekjum. Vandi lífeyrissjóðanna á rót sína að mestu að rekja til stórlega nei- kvæðrar ávöxtunar á fyrri tíð og sama mundi að sjálfsögðu hafa gilt um eftirlaunareikninga, sem stofn- að hefði verið til á sama tíma og lífeyrissjóðimir vom að hefja starf- semi sína. Hvaða innstæða mundi í dag vera á bankareikningi t.d. í Búnaðarbanka íslands, sem alþing- ismaður hefði lagt inn á 10% af þingfararkaupi sínu frá 1956, mælt í þingfararkaupi dagsins í dag? Hvað mundi hann fá mörg % af þingfararkaupinu greitt út á ári næstu 20 árin? Það er auðvelt að reikna út býsna háar tölur með því að gefa sér tilteknar forsendur um raunávöxtun. En að bera niðurstöð- ur slíkra útreikninga saman við þann lífeyri, sem lífeyrissjóðir munu geta greitt eftir hremmingar 7. og 8. áratugarins, er ekki aðeins út í hött heldur beinlínis heimskulegt. Lífeyrissjóðimir hafa einnig verið gagnrýndir fyrir, að kostnaður við rekstur þeirra væri of hár. Ég tek undir þá gagnrýni að vissu marki en vil engu að síður halda því fram að svigrúm til sparnaðar er ekki ýkja mikið. Einstakir minni sjóðir hafa reynst of dýrir í rekstri og ná má nokkrum spamaði með sammna sjóða en þegar litið er á heildar- myndina emm við ekki að tala um fjárhæðir sem skipta sköpum. Áætl- aður rekstrarkostnaður allra lífeyr- issjóðanna á árinu 1990 er 564 millj. kr. samkvæmt Hagtölum mánaðarins í maí 1991. Sem hlut- fall af iðgjöldum er kostnaðurinn um 4% og af eign um 0,5%. Ég er hræddur um að verðbréfasjóðir geri ráð fyrir hærri kostnaði en hér er nefnt. Þá er þessi kostnaður innan við einn tíundi hluti kostnaðarins í bankakerfínu í krónum talið en sem hlutfall af eign er kostnaður þar 2-3% og er þá ekki tekið tillit til afskrifta vegna tapaðra útlána. Að sjálfsögðu er ekki unnt að gera neinn samanburð á kostnaði í þess-’ um tveimur kerfum þar sem starfs- svið þeirra er mjög ólíkt. Það virðist, sem ýmsum fínnist það óbærileg hugsun, að öll þau iðgjöld, sem þeir hafa greitt til lífeyrissjóðs á starfsævinni, „falli lífeyrissjóðnum í skaut" við fráfall hans, ef enginn aðstandenda hans á rétt til lífeyris. Ef mönnum er það svo mikils virði ,að vita af því að iðgjöld þau, sem greidd eru til lífeyrissjóðs, falli örugglega til hans eða'erfíngja hans er auðvelt að fara aðra leið heldur en að umbylta líf- eyriskerfínu. Líftryggingarfélögin ættu að bjóða þeim, sem þess óska, upp á sérstaka tryggingu í þessu skyni. Tryggingarupphæðin væri iðgjöldin að viðbættum verðbótum og vöxtum, sem væru vegið meðal- tal af hæstu bankavöxtum á hveij- um tíma, • að frádregnum þeim lífeyri, sem sjóðfélaginn, maki hans eða börn hefðu fengið greidd frá lífeyrissjóðnum. Hún yrði greidd til erfíngjanna við lok lífeyrisgreiðsln- anna en í mörgum tilvikum kæmi ekki til greiðslu, þ.e.a.s. ef lífeyris- greiðslurnar nema hærri íjárhæð en iðgjöldin. Slíkt kerfí er vissulega framkvæmanlegt og það hefði miklu minni röskun í för með sér heldur en tillaga Guðna gerir ráð fyrir. Þessari hugmynd er hér með komið á framfæri til umræðu. Ég mundi hins vegar ráða vinum og kunningjum frá því að taka slíka tryggingu. Lokaorð Stjómvöld verða nú þegar að taka á þeim vanda sem blasir við í lífeyrismálum landsmanna. Þau mega ekki skerða rétt sjóðfélaga lífeyrissjóða til bóta frá almanna- tryggingum frekar en orðið er, held- ur verða þau að snúa þeirri þróun við sem átt hefur sér stað með sí- auknu vægi tekjutryggingarinnar. Tillaga Guðna Ágústssonar, sem Morgunblaðið hefur tekið undir, þýðir einfaldlega, að við stæðum uppi með þijú hliðsett kerfi í stað eins í dag til viðbótar við almanna- tryggingarnar. Skyldi nokkur ætla, að slíkt muni leiða til spamaðar eða skilvirkara kerfís! Mín tillaga er sú, að þeim sem endilega vilja vita af iðgjöldunum með verðbótum og vöxtum í höndum erfingjanna verði gefínn kostur á sérstakri líftrygg- ingu í þessu skyni. Lífeyrissjóðir verða að sjálfsögðu eins og aðrar stofnanir í landinu að kappkosta að bæta rekstur sinn og auka ávöxtun þess fjár, sem þeir varðveita fyrir sjóðfélaga sína. Það er engin ástæða til þess að ætla annað en, að þeir geti starfað á samkeppnisgrundvelli við aðrar fjármálastofnanir á landinu enda tel ég að þeir hafí þegar sýnt það. Grein þessi er orðin lengri en í fyrstu var ætlað en engu að síður hefur mörgum atriðum verið sleppt. Þau munu því bíða betri tíma. Höfundur er tryggingastærðfræðingur og starfar sem framkvæmdastjóri Islenzkrar endurtryggingar. Hvolsvelli. ÍÞRÓTTAHÁTÍÐ HSK verður haldin helgina 29.-30. júní nk. Að þessu sinni verður hún hald- in á Hvolsvelli og er allt útlit fyrir að þátttaka verði mjög góð. Að sögn Valgerðar Auðunsdótt- ur formanns frjálsíþróttadeildar HSK miðar undirbúningi fyrir mótið vel. „Vinnu við íþróttavöll- inn á Hvolsvelli er að mestu lokið en þar hefur m.a. verið lögð tart- anbraut fyrir stökkgreinar. Að- staða fyrir fijálsar íþróttir er góð og þama er einnig góður grasvöll- ur og fín sundlaug. Á síðasta ári kepptu 700 manns á mótinu og er útlit fýrir að keppendur verði ekki færri í ár. Keppt verður í mörgum greinum s.s. frjálsum iþróttum, sundi, starfsiþróttum, iþróttum fatlaðra og knattspymu 6. flokks. Sýningargrein verður að þessu sinni golf. Við leggjum áherslu á að sem flestir geti verið með í þessu móti, en þetta er fjöl- mennasta íþróttamót sem haldið er árlega á íslandi. Mótið hefst laugardagsmorgun kl. 10 en við reiknum með að mótsgestir og keppendur fari að drífa að strax á föstudagskvöldið, í tjaldbúðir sem verða vestan við sundlaugina. Á laugardagskvöld verður kvöldvaka, grillveisla og diskótek. Þá reynum við að vekja upp einskonar landsmótastemmn- ingu. Mótinu lýkur síðan undir kvöld á sunnudag," sagði Valgerð- ur og vildi að lokum fá að koma því á framfæri að Sláturfélag Suð- urlands væri styrktaraðili mótsins i tilefni af flutningi SS á Hvol- svöll og væri það mikilvægur stuðningur fyrir héraðssambandið. Íþróttahátíð HSK er arftaki Þjórsársmótanna svokölluðu sem haldin vom fyrir ofan bæinn Þjórs- ártún. Voru þau helsti mannfagn- aður Sunnlendinga og minnast margir þeirra með söknuði. Þeir sem eldri eru segjast hlakka til þeirra allt árið enda var mannlífíð þá fábreyttara en nú er. SÍMINN ER 689400 BYGGT & BÚIÐ KRINGLUNNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.