Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991 --■ 1 ' 1. '7 '—í; T i W í 1 Tl ! ■ I i' 1 U_Lj U-í-1 l..i .,1. m, Gunnar Ingólfs- son - Minning Fæddur 28. júlí 1943 Dáinn 18. júní 1991 Með söknuði kveð ég Gunnar Ingólfsson fyrrverandi mág minn. Þótt samskiptin hafi ekki verið mikil, voru þau ljúf. Ég minnist ferðar með Éddunni þar sem þeir bræður spiluðu saman og háttatím- inn dróst ótrúlega oft á langinn. Gunni var alltaf hress, en kannski er það einmitt hressileikinn sem blekkir, þannig að örvæntingin nær að grafa um sig og kemur manni í opna skjöldu. Hjá Gunna var ég alltaf elsku mágkona, skipti engu þótt formleg- heitin -væru fyrir bí í þeim efnum og í minningunni verður hann ætíð minn kæri mágur. Öllum ástvinum og aðstandend- um sendi ég samúðarkveðjur mínar og barnanna. Birna Þórðardóttir Elsku pabbi minn. Megi hans Guð styrkja elsku pabba minn og veita honum blessun sína. Megi trú hans og kærleikur verða honum leiðarljós fyrir það sem framundan er. Allar góðar minningar geymi ég í hjarta mínu og minnist með sökn- uði. Við sjáumst þó síðar verði. Guð blessi alla þá er minnast hans ög voru honum góðir. Sá sem eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson) Guðrún Nú er fallinn vinur minn og fóst- bróðir Gunnar Ingólfsson og bar brotthvarf hans úr þessu lífi brátt að. Gunnar var með betri og skemmtilegri mönnum sem ég hef þekkt og mun sú minning um hann Hfa jafn lengi og ég. Við áttum saman ótaldar ánægjustundir þegar við í mörg ár spiluðum saman í Haukunum ásamt Gumma bróður og fleiri úrvais mönnum og alltaf var hann hrókur alls fagnaðar. Undanfarin ár höfum við hist af og til og skemmt okkur konunglega í hvert skipti og því er söknuðurinn ekki varandi þessa dagana heldur átti Gunnar fastan sess í hjarta mínu og mun halda þeim stað í minningunni um ókomna framtíð. Ég votta eftirlifandi móður og bróður og öðrum aðstandendum hans mína einlæga samúð. Helgi Steingrímsson Sólu særinn skýlir, Síðust rönd er byrgð Hýrt á öllu hvílir, Heiðrík aftankyrð. Ský raeð skrúða Ijósum, Skreyta vesturátt, Glitra gulli og rósum Glampar Hafið blátt. Stillt með ströndum öllum, Stafar vog og sund, Friður er á fjöllum, Friður er á grund. Heyrist fuglakvak hinsta, Hljótt er allt og rótt, Hvíl nú hug minn insta, Himnesk sumamótt. (Steingríraur Thorsteinsson) t Konan mín og móðir okkar, HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR, Efstasundi 16, andaðist í Landspítalanum 24. júní sl. Guðmundur Gislason og börn hinnar látnu. _____________________________s__________________________ t Elskuleg systir mín, INGIBJÖRG J. HELGADÓTTIR, Miklubraut 50, lést í Borgarspítalanum 27. júní sl. Fyrir hönd systkina, Valgerður Helgadóttir. t Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, BJÖRN S. MARKÚSSON trésmíðameistari, Vogatungu 95, Kópavogi, lést á heimili sínu þann 26. júní. Sigríður Þórðardóttir og börn. t Faðir okkar. ÁRNI EINARSSON, Álfheimum 31, lést í Landakotsspítala 26. júní. / Fyrir hönd fjölskyldunnar. Hefga Árnadóttir, Guðrún Árnadóttir, Einar Árnason. t GUÐMUNDUR JÓNSSON, Syðra-Velli, verður jarðsunginn frá Gaulverjabæjarkirkju laugardaginn 29. júní kl. 14.00. Vandamenn. t Bróðir okkar, HELGI ÞÓRÐARSON, sem andaðist á Garðvangi 22. júní, verður Keflavíkurkirkju laugardaginn 29. júní kl. 14.00. jarðsunginn frá Systkinin. t GUÐMUNDUR JÓNSSON, Vesturgötu 15, Ólafsfirði, verður jarðsunginn frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 29. júní kl. 14.00. Sigríður Björnsdóttir, börn, barnabörn og barnabarnabörn. t Sonur okkar og bróðir, JÓHANN INGI SIGURGEIRSSON, lést 21. júní. Útförin verður gerð frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 29. júní kl. 14.00. Guðný Gísladóttir, Sigurgeir Guðmundsson og synir. t Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, JÓN H. GUÐMUNDSSON fyrrv. skólastjóri í Kópavogi, er lést í Landspítalanum 20. júní sl., verður jarðsunginn frá Kópa- vogskirkju í dag, föstudaginn 28. júní, kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minn- ast hins látna, er bent á að láta hinn nýstofnaða Málræktarsjóð, Aragötu 9, njóta þess. Sigriður M. Jóhannesdóttir og börn. t Ástkær sonur okkar og bróðir, ÍSAK FANNAR JÓHANNESSON, lést í Barnaspítala Hringsins 20. júní. Minningarathöfn fer fram í Laugarneskirkju í dag, föstudaginn 28. júní, kl. 16.00. Útförin verður gerð frá Búðarkirkju, Fáskrúðsfirði, mánudaginn 1. júlí kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Háaleitisbraut 11-13. Jóhanna Krístín Hauksdóttir, Jóhannes Marteinn Pétursson, Örvar Ingi, Pétur Haukur. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐBJARTUR JÓNSSON fyrrverandi skipstjóri, Hlíf II, ísafirði, sem lést í Sjúkrahúsi isafjarðar 22. júní sl., verður jarðsunginn frá ísafjarðarkapellu laugardaginn 29. júní kl. 14.00. Sigríður Ó. Jónsdóttir, Sveinn Árni Guðbjartsson, María Hagalinsdóttir, Benedikt E. Guðbjartsson, Edda Hermannsdóttir, Jón Kr. Guðbjartsson, Sigríður Símonardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Með þessum ljóðlínum langar mig að kveðja pabba, kveðjustund sem við vonuðum að væri langt undan. Núna þegar við syrgjum hann og söknum, veit ég að þótt við sjáum hann ekki, þá er hann hjá okkur, eins og hann var alltaf. Sveinbjörg Mig langar að kveðja hjartkæran ástvin minn Gunnar Ingólfsson með fáeinum orðum. Það er erfitt hlutskipti að þurfa að kveðja besta vin sinn á fegurstu og björtustu dögum sumarsins, þeg- ar allt líf er í blóma og nóttin og myrkrið ekki til. Samt sem áður er myrkur hjá mörgum, myrkur sem ekkert viðist vinna á. Ég kynntist Gunnari haustið 1988 og betri og yndislegri vin hef ég ekki eignast. Það streymdi frá honum kærleikur og styrkur að undrun var. Gunnar gaf og miðlaði svo ríkulega af sjálfum sér að ef til vill var ekkert eftir fyrir hann sjálfan. í vinahópi naut hann sín vel, gamansemi, orðheppni og allt hans viðmót varð til þess að allir löðuðust að honum. Alltaf var hann boðinn og búinn til að hjálpa öðrum, sjálfur bað hann þó ekki um hjálp þegar mest á reyndi. Eg trúi og vona að hann njóti nú friðar þar sem honum líður vel. í hjarta mínu er þakklæti fyrir minningar um samvistir svo nánar og yndislegar, þó auðn og tóm setj- ist nú að og myrkrið hnígi í brjósti. Margs er að minnast margt er hér að þakka Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast margs er að sakna Guð þerri tregatáin stríð. Grátnir tii grafar gongum vér nú héðan fylgjum þér vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi glaðir vér megum þér síðar fylgja í friðarskaut.’ (V. Briem) Móður, dætrum, bræðrum og öðrum aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Guð blessi minningu þessa góða drengs. Veiga Húmar að kveldi, hljóðnar dagsins ys, hnígur að Ægi gullið röðulblys. Vanga minn strýkur blærinn blíðri hönd, og báran kveður vögguljóð við fjarðarströnd. Á morgni lífsins, eru mönnum sköpuð þau örlög, að dauðinn kveðji dyra. Ef til vill er dauðinn aðeins inngangur á nýtt og æðra tilveru- stig. Enginn fær flúið þessi örlög sín, en með misjöfnum hætti eru þeir leiddir á vit örlaga þeirra, jafn- vel kvaddir til hinstu ferðar mitt í erli og önn dagsins. Slík breyting í hópi náinna samstarfsfélaga hefur jafnan mikil áhrif á þá sem eftir sitja. Ekki hvað síst þegar breyting- in verður með óvæntum og sorgleg- um hætti. Svo ber til með félaga okkar sem við kveðjum í dag. Gunnar Ingólfsson þandi strengi lífshörpu sinnar oft ótæpilega og þar kom að höfuðstrengurinn, lífs- strengurinn brast. Omar frá hörpu hans eru hljóðnaðir. Kom, drauma- nótt með fangið fullt af friði og ró. Gunnar hafði yndi af ljóðum og orðsins list, hann var tónlistarmað- ur góður, hljóðfæraleikari af guðs náð, félagsmál voru honum og hug- leikin, í þeim efnum dró hann ekki dul á sínar skoðanir, en virti og tók tillit til skoðana annarra. Hann var félagslyndur, léttur og hress í skapi og með góða kímnigáfu. Gunnar hafði starfað á Vörubíla- stöðinni Þrótti síðastliðin 10 ár, hafði áður starfað við eigið fyrir- tæki, Vélaleiguna Þórshamar. Við þökkum honum samfylgdina og sendum eftirlifandi ættingjum hans samúðarkveðjur. Syngdu mig inn í svefninn, ljúfí blær. Sorgmæddu hjarta er hvíldin jafnan vær. Draúmgyðjan ijúfa ljá mér vinar hönd, og leið mig um þín töfraglæstu friðarlönd. (Jón frá Ljárskógum) Félagar og starfsfólk á Vörubílastöðinni Þrótti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.