Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991 Viður o g fúasveppir Hugleiðing um orsök og afleiðingar fúa og viðhorf til hans f SPP! ■ w M '. Ir •.rf. : Smásjármynd af þráðum fúasveppa (Gloephyllum sp.) í viði. Morgunblaðið/Sigurbj. Einarsson eftir Sigurbjörn Einarsson Að hafa í höndum ilmandi og skínandi kjörvið í skapandi smíða- verki er jafn gleðiaukandi og það er raunalegt að handfjatla fúaspýtu. Á þess háttar stundum lítum við viðinn augum nytjahyggjunar. Við leiðum hugann síður að því að hann er í hendur okkar kominn fyrir það að honum hefur í raun verið veitt fram hjá hringrásarfarvegi í stórvirku vist- kerfi, skóginum sem umfram önnur vistkerfi byggist á hringrás efna. Hringrásin byggist á uppbyggingu og niðurbroti efna og getur hvortugt án hins verið. Sólarljósið knýr ljóst- illífunina er myndar lífmassann en örverur annast niðurbrot hans. Fúasveppir Örverur er samheiti yfir bakteríur og sveppi, lífverur sem eru svo smá- ar að þær sjást ekki með augunum berum. Þess vegna eru þær mörgum óáþreifanlegar og sumum gleymist í fljótu bragði tilvist þeirra þó þær séu til staðar nánast hvar sem borið er niður • í umhverfi okkar. Ummerki verka þeirra eru aftur á móti oft áþreifanleg og svo er um fúann. Hugtakið fúi er safnkista fyrir ýmis tilbrigði af niðurbroti viðar fyrir til- verknað sveppa. Hreinn viður er býsna rýr fæða fyrir lífverur og ekki að allar smekk vegna fábreyttrar efnasamsetningar. Töluverður hópur sveppa gerir sér hann þó að góðu, sá hópur nefnist einu nafni fúasvepp- ir. Innbyrðis er sá hópur fjölbreyttur og rúmar hundruð tegunda. Hvað er fúi? Það sem fer forgörðum í viðnuin þegar hann fúnar er styrkurinn, burðarþoíið. Víkjum í fáum orðum nánar að því. í einfaldaðri mynd má segja að viður sé byggður upp af keðjum sellulósaeininga er mynda margþætta þráðlaga efnisþætti sem gefa viðnum styrk. Holrúmin sem eru á milli þeirra eru fyilt formlaus- um efnismassa sem nefnt er lignin. Viður er því að vissu leyti líkur jám- bentri steinsteypu að uppbyggingu. Stærsti hópur sveppa seni veldur fúa í byggingum nærist einmitt á sellu- lósanum, burðareiningunum í viðn- um. Mygluþræðir sveppanna bregð- ast út um viðinn, skilja út meltingar- hvata er brýtur sellulósann niður í frumeiningar sem þeir síðan nærast á. Að sama skapi minnkar styrkur viðarins. Eftir stendur fyllimassinn sneyddur burðarþoli og gefur viðnum brúna litaráferð og hefur það afbr- gði fúa því verið nefnt brúnfúi. Ann- ar hópur sveppa ræðst bæði á sellu- lósann og ligninið. Fær viðurinn við það hvíta litaráferð, léttist verulega „ Allar götur frá því að nytjaviður er höggvinn ræðst ending hans að verulegu leyti af því hve vel tekst til við að hindra fúasveppina í að sinna endurnýtingar- hlutverki sínu, að brjóta viðinn niður í frumþætti.“ en heldur forminu. Slíkt afbrigði fúa er nefnt hvítfúi og ræðst oft á bolv- ið af lauftijám þegar ekki hefur ver- ið vandað til verkunar hans st-'"'. eftir skógarhögg. Varnir gegn fúa Allar götur frá því að nytjaviður er höggvinn ræðst ending hans að verulegu leyti af því hve vel tekst til við að hindra fúasveppina í að sinna endurnýtingarhlutverki sínu, að btjóta viðinn niður í frumþætti. Líkt og guðlegur andi er trúuðum manni, eru þeir ávallt nálægir og býða einungis þess að þeim skapist góð lífsskilyrði, hæfilegt rakqstig (20-40%) og hitastig (5-40°C). Það á bæði við um tré sem stendur á rót og hefur orðið fyrir skakkaföllum s.s. ef rætur særast eða greinar brotna og svo tré sem búið er að höggva. Þegar tré er fellt er kapp- kostað að halda bolviðnum nægilega rökum þar til hann er tekinn og unnin til að fyrirbyggja að súrefni berist inn í viðinn er gefi fúasveppum færi á uð blómstra. í skógarhöggi sem fram fer að sumarlagi vili oft verða misbrestur á að það takist. Yfirleitt er sprautað vatni yfir viðar- staflann eða vax borið á endatréð eftir fellingu og þar fram eftir götun- um. Aftur á móti er unninn viður að mestu varinn gegn fúasveppum með þeirri eingöldu aðferð að halda hon- um nægilega þurrum þannig að vatnsskortur hamli sveppavexti. Að- ferðin er einföld en að sama skapi oft erfið í framkvæmd. Dæmi eru um að mönnum hafi tekist með hug- vitsamri úrvinnslu reynslunnar að reisa hús úr viði þar sem byggingar- tækni og húsagerðarlist er snilldar- lega aðlöguð þessari einföldu reglu að halda viðnum þurrum. Þar er umað ræða stafkirkjurnar sem víða er að finna í Noregi sem virðast nánast geta staðið að eilífu. Eftir að fram komu efni til að þekja yfirborð viðarins og vinna gegn því að vatn komist í viðinn, hafa menn fjarlægt byggingarhefðir sem spruttu af alda- gamalli samræmingu forms og þeirri einföldu viðmiðun að halda viðar- þætti bygginga þurrum. Afleiðingar þess eru viðnum sem byggingarefnis í óhag. Önnur árangursrík leið til að hindra fúasveppina við niðurbrotið og færst hefur í vöxt hin ár, er hrein- lega að eitra fyrir þeim. Inn í viðinn en þá þrýst upplausn efna sem hindra að sveppir nái sér á strik. Með tíman- um þvæst efnið úr viðnum og taka sveppirnir þá til við starfa sinn. Viður á Islandi í hugleiðingum um við og varð- veislu hans er freistandi að velta vöngum yfir hveijum augum fólk á hinu viðarsnauða landi íslandi hefur litið viðinn gegnum aldirnar, efni sem seint og snemma var torsótt og gerði með öðru líf hér vandasamt. Má ætla að í vitund fólks hafi hann líkt og snærið verið efni sem bar að virða en ekki forsmá með gáleysislegri umgengni. Framan af öldum var við- ur ekki fluttur inn nema til sérstakra verkefna svo sem ef stórhugar byggðu kirkjur. Timbur var ekki á boðstólum í verslunum fýrr en um miðja síðustu öld eftir að versiun var gefin frjáls kringum 1870. Fram að þeim tíma var rekaviður þjóðinni drýgst uppspretta viðar. Húsagerð á íslandi Landnámsmenn og næstu kyn- slóðir fram á þjóðveldistímann reistu sér híbýli sem einkenndust af einni stórri meginbyggingu sem nefnd var skáli. Sú tilhögun hefur vísast átt rætur að rekja til þess sem tíðkaðist í þeirra fýrri heimkynnum í Noregi þar sem viður var nærtækt bygging- arefni. Ærinn munur hefur verið á aðdrætti viðar til bygginga þegar til íslands var komið og er sennilegt að viðarferðir hafi verið æði slarks- amar þegar drösla þurfti langar leið- ir gildum máttarröftum í grind í stór hús. Smæri viði til bygginganna hafa menn að líkindum höggvið í birki- skógunum. Innblásnir frelsiskrafti létu þeir erfiða aðdrætti þó ekki draga úr sér kraftinn, hvorki til byggingar stórra skála né andlegra stórverka. Þegar á leið, eftir þjóð- veldistímann, minnkuðu byggingarn- ar verulega sem aðlögun að aðstæð- um. Torfbærinn í þeirri mynd sem menn þekkja kom til sögunnar, þyrp- ing missmárra húskofa þar sem þátt- ur viðarins fór þverrandi. Hinn mikli eldur sem kynti undir fyrri kynslóð- um til andlegra stórverka kulnaði í lágreistum vistarverum af torfi og gijóti og andinn dróst saman, uns hann féll að þeirri umgjörð. Nýting rekaviðar Þó rekafjörur væru misgjöfular fullnægðu þær brýnustu þörfinni. Ferðir voru gerðar út eftir viði frá öllum landshlutum í góð rekapláss s.s. á Strandir og víðar. í bókinni íslenskir sjávarhættir (Lúðvík Kristj- ánsson, 1980) er yfirgripsmikil og fróðleg lýsing á nýtingu rekaviðar og hugtökum er henni tengdust. Þar segir að örðugt hafí verið að dæma tré eftir útlitinu sem lýst sé með orðtakinu „vandséður er rekabútur- inn“. Fyrir kom að tré sem ekkert sá á að utan reyndist þegar til kom tómt frauð að innan. Til þess að komast að því var barið með hamri á annan enda trésins og eyra lagt við hinn. Ef hvellt og óslitið hljóð barst eftir trénu var það vottur um að það væri óskemmt að innan, hvorki í þvi rifur né sjómeyra. Sjó- meyra var viður gegnsósa af sjó, mergfúinn og maðksmoginn. Hvað olli misjöfnu ásigkomulagi rekaviðarins hefur trúlega verið mönnum rágáta. Vísast hafa menn litið á þessa auðlegð sem guðsgjöf eins og fram kemur í orðum Odds Einarssonar biskups er hann lýsir viðarskortinum að „guð bæti hann upp með því frábæra undri sem öld- ur hafsins bera þráfaldlega að ströndum vorum allt umhverfis ey- landið“. Fúinn rekaviður gæti því hafa verið einungis túlkaður sem eitt birtingarform forgengileikans í til- verunni og flokkun hans frá kjörviðn- um verkefni í hinu eilífa prófi mann- anna fyrir guði að greina hismið frá kjamanum. Fúi í torfbæjum í húsbyggingum var viðurinn fyrst og fremst notaður í grindina í torfbæ- ina, til að bera uppi þakhlutann og mynda skilrúm í takmörkuðum mæli. Slík samþætting viðar og jarðefna mynda aðstæður sem eru viði einkar andsnúnar því þær ýta mjö'g undir að hann verði fúa að bráð. Fúi í burðarvirki híbýla hlýtur mikið að hafa gert vart við sig frá upphafi vega hér á landi og er því rökrétt að spytja hvort sú reynsla hafi leitt af sér bætt byggingarlag, byggingar- tækni sem sá við fúanum og stuðlaði að því að viðurinn varðveittist sem best f því hlutverki sem honum var falið. Þess sér ekki merki og svo virð- ist sem sú mótsagnakennda stað- reynd eigi við, að þar sem aðstæður eru erfíðar og þörfin fyrir hugvit og kunnáttusemi er brýnust einkennir vankunnátta og kæruleysi oft verk- lagið. Fúi - Nútímabyggingar Nú eru breyttir tímar. Þjóðin er stigin út úr torfbænum, þekkingin, velmegunin vex og andinn með og tök okkar á efnisheiminum virðast engin takmörk sett. Kaupmátturinn geri okkur ftjáls að því að endurnýja það sem rýrnar, henda því gamla og kaupa nýtt. Þó ber að hafa í huga að gagnrýnið viðhorf og vitsmunaleg nýting efnislegra gæða samræmist gróandi siðmenningu gagnstætt bruðli og ofrausn sem oft eru barna- sjúkdómar nýríkidæmis. Híbýli manna hér á landi hafa nánast tekið stökkbreytingum á skömmum tíma en viðurinn gegnir þar enn mikil-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.