Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 52
- svo vel sétryggt SJÓvÆiSyjVIENNAR FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. Mikil eftirspurn eftir húsbréfum: Ávöxtunarkrafan lækkar í 8,7% á verð- bréfamörkuðunum ÁVÖXUNARKRAFA húsbréfa lækkaði í gær á öllum verðbréfamörk- uðum, kaupkrafan var skráð 8,7%, en var áður hjá flestum 8,8%. Þessi ávöxtunarkrafa þýðir að afföll á nýjasta flokki húsbréfa við kayp lækka úr 21,7% í 21,03%, auk 0,75% sölulauna. Ástæða lækkun- arinnar er mikil eftirspurn eftir bréfunum, samfara minna fram- boði en verið hefur, að sögn Sigurbjörns Gunnarssonar deildarstjóra hjá Landsbréfum hf., viðskiptavaka húsbréfa. Sigurbjörn sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að gífurlega mikil sala hefði verið á húsbréfum undanfarið og framboð tiltölulega lítið. Hann sagði að sem dæmi um framboðið mætti nefna að aðeins hefðu verið afgreidd þrjú fasteigna- veðbréf í síðustu viku. Þó hafi farið út á markaðinn meira af húsbréfum en þessi tala gæfi tilefni til að ætla. I síðustu viku hefðu þannig farið út húsbréf fyrir um 170 milljónir króna. Það sagði Sigurbjörn að væri þó tiltölulega lítið, þar sem algengt hefði verið að út færu hús- bréf fyrir um 1.000 milljónir króna og upp í um 1.200 milljónir í einum mánuði. Hann sagði að hin mikla eftir- spurn nú kæmi einkum frá lífeyris- sjóðunum, en þó væru allmargir einstaklingar farnir að fjárfesta í húsbréfum, jafnvel fyrir milljónir króna. Sigurbjörn sagði að þetta ástand, ef það heldur áfram, gæti þýtt enn frekari lækkun ávöxtunarkröfunnar og þar með affallanna. MorgunDlaðið/Bjarni Þorvarður Alfonsson, formaður Germaníu, sýnir Brandt og eiginkonu hans, Brigitte Seebacher- Brandt, minnisvarða um Leif Eiríksson í Flugstöð Leifs Eiríkssonar við komu þeirra til landsins í gær. „Það var hann sem fann Ameríku og ekki einhver Kólumbus," sagði Brandt við konu sína. Á myndinni er einnig Gottfried Pagenstert, nýskipaður sendiherra Þýskalands á íslandi. Ovíst um hækkun vaxta á næstunni „SPÁ Seðlabankans um hækkandi lánskjaravísitölu er vissulega ekki neitt gleðiefni," segir Björn Björnsson bankastjóri Islandsbanka, en eins og fram hefur komið er nú spáð 17,2 % árshækkun lánskjaravísi- tölunnar í ágúst í stað 13,5 %, sem spáð var að yrði á þessum árstíma í maí. Björn segir að ekki hafi verið fjall- að um spána innan bankans ennþá, en hún bendi til þess að vaxtahækk- anir sem tóku gildi í júnímánuði hafi verið í lægri kantinum. Björn segir að breytingar á vöxtum innlána til Olíufélögin: Gasolía lækki um 13,8% o g bensín hækki um 2,3% OLÍUFÉLÖGIN hafa lagt til við Verðlagsráð að útsöluverð 92 oktana bensíns hækki um 2,3% í 58,70 krónur lítrinn og útsöluverð gasolíu lækki um 13,8% í 18,60 krónur litrinn. Gert er ráð fyrir að Verð- lagsráð fjalli um tillöguna eft- ir helgina. 92 oktana bensín kostar nú 57,40 krónur lítrinn og hækkar því um 1,30 krónur, ef farið verður að tillögunni. Gasolía kostar nú 21,50 krónur lítrinn og lækkar um 2,90 krónur. Gert er ráð fyrir að bensínið hækki að lokinni ákvörðun Verðlags- ráðs, en verðlækkun gasolíunnar taki gildi frá mánaðamótum að telja. Búist er við hlutfallslega sömu verðbreytingum á 95 og 98 okt- ana bensíni. Áætlaðar birgðir í landinu um næstu mánaðamót eru um 18 þúsund tonn af 92 oktana bens- íni, um 51 þúsund tonn af gasol- íu og um 17 þúsund tonn af svartolíu, en ekki er lagt til að breyting verði á verði svartoiíu að þessu sinni. hækkunar eða lækkunar verði óveru- legar nú um mánaðamótin, en ákvörðun um vexti útlána verði tekin þegar kemur fram í júlí. Hagfræðingar Alþýðusambands- ins og Vinnuveitendasambandsins og hjá Seðlabanka meta spána svo að ekki sé tilefni til að búast við að verðbólgan sé að fara á skrið á ný. Þeir segja að spá um meiri hækkun lánskjaravísitölunnar í ágúst en áður hefði verið gert ráð fyrir megi skýra með einstökum hækkunarliðum framfærslu- og launavísitalna. Þá telja þeir að þessi spá gefi ekki sér- stakt tilefni til vaxtahækkana í bönk- um. Sjá viðtöl á miðopnu. Willy Brandt á íslandi WILLY Brandt, fyrrum kanslari Véstur-Þýska- lands, kom til Islands í gær. Hann er hingað kominn í boði Germaníu og heldur aftur utan síða- degis á sunnudag. Þetta er í þriðja skipti sem Brandt kemur til Island. Þriggja tíma seinkun var á flugi Brandts hingað til lands og var því blaða- mannafundi með honum, sem átti að halda í gær, frestað. Morgunblaðið náði tali af Brandt við komuna og spurði hvort honum væri eitthvað sérstaklega minn- isstætt úr fyrri Islands- heimsóknum sínum. Hann svaraði að í bæði skiptin hefði koma hans hingað tengst erfiðu ástandi í heimsmálunum. Hefði það komið honum þægilega á óvart hversu opnir menn hér hefðu verið gagnvart þeim málum sem efst væru á baugi í hugum „meginlands-Evrópubúa", Morgunblaðið/Árni Sæberg Brandt hélt frá Keflavík beint að ráðherra- bústaðnum þar sem hann sótti kvöldverðar- boð Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra. Á myndinni eru Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, Brandt og Davíð. m.a. skiptingu Þýskalands. Fundurinn árið 1968 hefði líka tengst því sem síðar hefði verið kennt við nafn Helsinki. „Og svo segi ég auðvitað líka það sem allir aðrir segja: „Þetta er mjög fallegt land,“ sagði Brandt. í dag flytur Willy Brandt fyrirlestur í Háskólabíói sem hann nefnir „European Challenges". í fyrirlestr- inum mun hann ræða um sameiningu Þýskalands, sameiningu Evrópu . síðan 1989, nauðsyn þess að út- víkka Evrópubandalagið í austurátt og loks um skyldu Evrópu til að bera með- ábyrgð á málefnum heims- byggðarinnar og í því sam- hengi nauðsyn þess að styðja endurskipulagningu á Sameinuðu þjóðunum. Fyrirlesturinn verður haldinn á ensku og er öllum opinn. Sjá grein á bls. 12-13. Ríkisábyrgðasjóður launa við gjaldþrot að verða tómur: Úm 180 millj. launakröfur í'alla á ríkið við gjaldþrot Álafoss hf. ÁÆTLAÐ er að launakröfur vegna gjaldþrots Álafoss hf. sem munu falla á ríkið vegna ríkisábyrgðar á launum við gjaldþrot geti numið um 130 milljónum króna. Er talið að laun vegna uppsagnarfrests starfs- manna geti orðið um 70 milljónir. Þá eiga tæplega 40 milljónir að koma til greiðslu um næstu mánaðamót vegna júnílauna og sumar- orlofsgreiðslna auk nokkurra tuga milljóna vegna lífeyrisgreiðslna en lífeyrissjóðirnir taka rúmlega þriðjung af greiðslum úr ábyrgðarsjóðn- um við gjaldþrot. Að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðlierra eru þær 260 milljónir sem eru til ráðstöfunar vegna rikisábyrgðar á launum og orlofi að verða uppurnar og fyrirsjáanlegur fjárskortur vegna gjaldþrota að undanförnu. Þarf að hennar sögn að sækja þær upphæðir með aukafjárveitingu. Nokkur verkalýðsfélög starfs- manna þrotabús Álafoss hafa sam- þykkt að leysa til sín launa- og orlofskröfur sem starfsfólk á inni hjá þrotabúinu. Um er að ræða laun fram til 20. júní þegar þrotabúið tók við rekstrinum. Að sögn fjár- málastjóra Álafoss má áætla að samanlagðar launa- og orlofsskuld- ir nemi nú tæplega 40 milljónum króna. Mun Iðja, félag verksmiðju- fólks, greiða út laun og sumarorlof næstkomandi þriðjudag til félags- manna sinna. Starfsfólk þrotabúsins og bæjar- stjórnir Akureyrar og Mosfellsbæj- ar hafa að undanförnu unnið að undirbúningi fyrir stofnun rekstrar- félags um áframhaldandi starfsemi og lýsti bæjarstjórn Mosfellsbæjar sig reiðubúna á miðvikudag að leggja fram fé og ábyrgðir vegna öflunar hlutafjár til væntanlegs rekstrarfélags ef skoðun og mat leiðir í ljós að slíkur rekstur sé raun- hæfur til frambúðar. Þá hefur verið leitað til forsvarsmanna fjárfest- ingarlánasjóða ríkisins um fjár- hagsfyrirgreiðslu, að sögn Þrúðar Helgadóttur,_ sem sæti á í starfs- mannaráði Álafoss í Mosfellsbæ, en engin svör borist. Er talið að framvinda málsins velti á Lands- bankanum sem er meðal stærstu kröfuhafa í þrotabúið og annast fjármögnun vegna sölusamninga Álafoss erlendis. Olafur Olafsson, fyrrverandi for- stjóri Álafoss, segir að stjórnendur félagsins hafi orðið við áskorun um að leita leiða til að endurreisa rekst- urinn. Hafa þeir lagt hugmyndir sínar um leiðir sem þeir telja raun- hæfar fyrir fulltrúa sveitarfélag- anna. Sjá einnig á miðopnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.