Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 11
nwr íív'h. n- n\('r --------------------------------------MQRGUNBLADI& -FÖSTUDAGUR 28: JÚNÍ199I Gífurlegur munur á útbreiðslu eyðni í Norður-Evrópu og annars staðar eftir Ólaf Ólafsson Nú eru þekkt 334.000 eyðnitil- felli í heiminum og þar af eru 85% í Afríku, Norður- og Suður- Ameríku. Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunin telur að í raun séu tilfell- in um 650.000 og 50% þeirra sé að finna í Afríku, tæp 40% í Banda- ríkjunum, Mið- og Suður-Ameríku en um 7% í Evrópu. Milli 77-87% eyðnitilfella á Vest- urlöndum eru meðal samkyn- hneigðra, tvíkynhneigðra og fíkni- efnaneytenda. Útbreiðsla meðal gagnkynhneigðra eykst nokkuð í Miðjarðarhafslöndunum og á Norð- urlöndum. Á Norðurlöndum smitast meirihluti gagnkynhneigðra (ungt fólk) í ferðum til suðrænna landa og til Suður-Asíu (kynlífsferðir). Ber að vekja athygli ungs fólks á þessu. Niðurstöður: Lág smittíðni frá móður til barna og meðal blæðara á Norðurlöndum gæti bent til að betra eftirlit sé með þessum málum þar en annars staðar. Tíðni eyðni í Bandaríkjunum er meiri en 10 sinnum hærri en á Norðurlöndum og 4-5 sinnurn hærri í Mið- og Vestur-Evrópu. Island var 9. í röðinni í Evrópu 1987 en var 14. í röðinni 1989. Um þróun sjúkdómsins í framtíð- inni er erfitt að spá vegna þess að veiran er „sein í svifum". Um 10 árum eftir HlV-sýkingu hafa um 50% fengið einkenni um lokastig sjúkdómsins, (rannsóknir á sam- kynhneigðum í San Francisco og blæðurum í London). Nýgengi sjúkdómsins á undan- förnum 4 árum (1985-1989) er hæst í þeim löndum þar sem fjöldi fíkniefnaneytenda (sprautusjúkl- inga) er mikill miðað við fjölda sýktra samkynhneigðra. Til þessara landa má telja m.a. Ítalíu, Spán og Frakkland. Því ber m.a. sólar- landaförum að vera sérstaklega á verði við heimsóknir til þessara landa. Smitið breiðist mjög ört út á meðal sprautusjúklinga. I sumum borgum, t.d. Dublin, Edinborg og Útbreiðsla eyðni í Evrópu og Bandaríkjunum Vestur- Norður- lönd Saman- söfnuð tíðni á 100.000 íb. og Mið- Evrópa Saman- söfnuð tíðni á 100.000 íb. Banda- ríkin Saman- söfnuð tíðni á 100.000 íb. Ítalía/ Spánn Saman- söfnuð tíðni á 100.000 íb. Samkynhneigðir/ tvíkynhneigðir 4,31 5,93 33,45 2,52 Sprautusjúklingar 0,21 1,40 15,78 8,57 Gagnkynhneigðir 0,52 0,91 2,80 0,74 Blóðgjafar 0,26 0,41 1,33 0,20 Smit móðir/barn 0,05 0,15 0,96 0,31 Blæðarar 0,18 0,33 0,50 0,36 Aðrir 0,16 0,45 1,92 0,58 Samtals 5,69 9,58 56,8 13,28 „Við verðum að efla uppfræðsluna en hún er öflugasta vörnin gegn eyðni og mörgum öðrum sjúkdómum. Við megum ekki sofna á verðinum gegn þesum lífshættulega sjúk- dómi.“ Varsjá, hefur tíðnin aukist úr örfá- um prósentum í yfir 50% á 2-3 árum. í sumum löndum í Mið- Afríku er ástandið hrikalegt en þar eru allt að 30% 20-40 ára fólks smitað. Sömu sögu er að segja frá Brasilíu, Mexico og af löndum í Suður-Asíu. Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunin áætlar að ú’öldi HlV-smitaðra í heiminum verði um 30 milljónir árið 2000 og eyðni- veikra 10 milljónir. Tíðni (nýgengi) lokastigs sjúk- dómsins jókst í ölíum löndum vest- urheims árin 1986-1989. En at- hyglisvert er að dregið hefur úr veldisaukningu sjúkdómsins (exponential incidence) sérstak- lega á Norðurlöndum og nokkr- um löndum á meginlandinu en þar fjölgar nýjum tilfellum á lokastigi ekki sem áður. Fyrst urðu menn varir við þessa þróun 1989, sem síðar staðfestist 1990, samkvæmt upplýsingum frá Al- þjóðaheilbrigðisstofnuninni í París. Trúlega hafa lyfin haft veruleg áhrif og mest þar sem allir HIV- sýktir hafa möguleika á að fá lyfin. Þetta eru fyrstu „batamerkin" og vekur vonir. Vonin er að vísu létt i fangi en afar styrkjandi. Fólk verður þó að hafa í huga að sjúkdómurinn verður meðal okkar um langa framtíð. Við verðum að efla uppfræðsluna en hún er öflug- asta vörnin gegn eyðni og mörgum öðrum sjúkdómum. Ólafur Ólafsson Við megum ekki sofna á verð- inum gegn þessum lífshættulega sjúkdómi. Heimildir: WHO Collaborating Center, Paris 1990. Höfundur er landlæknir. Þroskaþjálfaskóla Isíands slitíð ÞROSKAÞJALFASKÓLA Is- lands var slitið að viðstöddu fjöl- menni í Bústaðakirkju 27. maí s.l. Við athöfnina voru 19 þroska- þjálfar brautskráðir úr grunn- námi. Einnig luku 25 starfandi þroskaþjálfar framhaldsprófi í vor og voru þeir brautskráðir sama dag. Yfirstjórn skólans hefur frá upp- hafi verið hjá heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu en sam- kvæmt ákvörðun Alþingis flyst yfír- stjórnin til menntamálaráðuneytis- ins sumarið 1991. Ráðherrar heil- brigðis og menntamála, Sighvatur Björgvinsson og Ólafur G. Einars- son, voru báðir viðstaddir athöfn- ina. Veitti menntamálaráðherra skólanum formlega viðtöku fyrir hönd ráðuneytis síns. Ráðherrarnir og formaður skólastjórnar, Haraid- ur Ólafsson, fluttu ávörp. Fulltrúar útskriftarnema og fulltrúar 10 og 20 ára þroskaþjálfa ávörpuðu einn- ig samkomuna og færðu skólanum árnaðaróskir og gjafir. Guðni Guðmundsson organisti Bústaðakirkju flutti tónlist ásamt hópi söngvara. Hópur heimilis- manna á sambýlum í Reykjavík og nágrenni flutti frumsaminn leikþátt sem þeir nefna „Veggi“. Stjórnandi verksins var Kristín Á. Ólafsdóttir kennari í leikrænni tjáningu við Þroskaþjálfaskóla ísiands. Skólastjórinn, Bryndís Víglunds- dóttir, ávarpaði nemendur og hvatti þá til að standa vörð um þau við- horf gagnvart fötluðum sem haldið er á loft í skólanum, fara að þeirn fræðum sem þeir hafa numið við skólann og stunda frið við sjálfa sig og aðra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.