Morgunblaðið - 28.06.1991, Side 13
^IQPyGQNBLAPÍQ FftS-TVfi^GUff Q& JÚNÍ,^9^
l&t
Brandt ásamt
Walter Scheel,
utanríkisráð-
herra Vestur-
Þýskalands og
formanni Frjálsa
demókrata-
flokksins. Scheel
varð síðar forseti
Þýskalands.
„Skrílslæti kommúnista"
Herstöðvarandstæðingar efndu
til mótmælafundar vegna ráðherra-
fundarins 1968. Brandt lætur þessa
meira að segja getið í endurminn-
ingum sínum: „Eg fylgdist af at-
hygli með stúdentauppreisnunum
og varð líka oft var við þær utan
þýsku landamæranna: í Frakklandi
í byrjun maí 1968, svo í Belgrad,
í Bandaríkjunum, einnig í Ríó, og
meira að segja á íslandi."
Morgunblaðið skýrði frá mót-
mælunum undir fyrirsögninni
„Kommúnistar efndu til skrílsláta
við setningu NATO-fundarins.“
Hefst fréttin með þessum orðum:
„Skömmu áður en utanríkisráð-
herrafundur Atlantshafsbandalags-
ins var settur í gærmorgun um kl.
10 safnaðist hópur manna, um 100
manns, saman fyrir framan Há-
skólabíó, þar sem setningarathöfn-
in fór fram og vildi hópurinn mót-
mæla NATO og Varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli. Gerðu mótmæl-
endurnir, sem að hluta voru nor-
skir, sænskir og grískir, hróp að
ráðherrunum og öðrum gestum."
Alls voru um þijátíu manns hand-
teknir vegna óeirðanna.
Einn mótmælenda skar niður
NATO-fánann sem blakti við and-
dyri Hótel Sögu. Ungur piltur,
Ragnar Sigurðsson, sem vann á
hóteiinu sýndi að sögn Morgun-
blaðsins mikið snarræði og bjargaði
fánanum. Manlio Brosio, fram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbanda-
lagsins, kom á hótelið til drengsins
og þakkaði honum fyrir að hafa
bjargað fána samtakanna og færði
honum í viðurkenningarskyni litla
fánastöng með fána NATO.
Á flugvellinum að fundi loknum
sagði Brandt við blaðamann: „Þetta
er bara í annað skipti sem ég fæ
tækifæri tl að koma hingað og dvöl-
in var mjög stutt að þessu sinni.
Eins og í fyrra langar mig til að
vera hér nokkra daga í viðbót. Ég
vildi koma hingað aftur sem
óbreyttur gestur, ekki í sambandi
við opinber störf. En þessi stutta
viðdvöl var mjög ánægjuleg. Við
vorum umvafðir vináttu ..."
Leggjum okkur fram um að
ná samkomulagi
Ef til vill hefur gestrisni íslend-
inga verið Brandt í fersku minni í
nóvember 1972 þegar landhelgis-
deilan var á mjög viðkvæmu stigi
og blaðamaður Morgunblaðsins
sneri sér til hans. Forsaga málsins
var sú að íslendingar höfðu frá og
með 1. september fært fiskveiði-
landhelgi sína út í 50 mílur. Bretar
beittu eins og kunnugt er mikilli
hörku í málinu og sendu herskip á
íslandsmið togurum sínum til
verndar. Eins og búast mátti við
var þeim mjög í mun að Vestur-
Þjóðveijar stæðu með þeim og
stóðu þessar þjóðir saman að því
að stefna íslendingum fyrir Al-
þjóðadómstólnum í Haag. íslend-
ingar höfðu rætt málið sérstaklega
við Þjóðveija; Einar Ágústsson ut-
anríkisráðherra átti viðræður við
Walter Scheel, utanríkisráðherra
Vestur-Þýskalands. 22. nóvember
var blaðamaður Morgunblaðsins
staddur í Bonn vegna þingmanna-
fundar Atlantshafsbandalagsins.
Um viðskipti sín við Willy Brandt
og Walter Scheel segir Matthías
Johannessen í greininni Bréf til vin-
ar sem birtist í Morgunblaðinu 30.
janúar 1987: „Þegar ég kom auga
á Scheel gekk ég til hans og spurði
um landhelgisdeiluna. Karlinn varð
fúll við og engu líkara en ég hefði
sett nýblóðgaðan rígaþorsk í andlit-
ið á honum. Hann hrökk við, leit á
mjg, fór undan í flæmingi og sagði:
„Ég vil ekki tala um fisk. Þér ætt-
uð að tala við Ertl landbúnaðarráð-
herra. Ég vil ekkert segja um land-
helgisdeiluna.“
Þetta var kollrak. Gat verið að
fiskur væri einkamál landbúnaðar-
ráðherra Vestur-Þýzkalands? Eða
hafði utanríkisráðherrann, svo fínn
og pjattaður sem hann var, ímu-
gust á fiski? Ég stóð þarna ráð-
þrota og við horfðumst í áugu grá-
myglur tvær. Svo fauk í mig og
ég kvaddi í styttingi. Vinátta og
samskipti þjóðanna, einn af horn-
steinum utanríkisstefnu íslands, í
húfi — og allt útaf þessum yfir-
borðslega kalli sem hafði augsýni-
lega ógeð á duggarapeysum en
kunni þeim mun betur við sig innan
um fínt fólk í veglegum veizlum.
Ég vissi ekki þá að hann stefndi á
forsetaembættið og kom mér
reyndar ekki á óvart, þegar ég frétti
það síðar.
I þessum svifum var ég svo hepp-
inn að sjá Brandt þama skammt
undan og var asi á honum. Ég
gekk til hans, ávarpaði hann á
þýzku og sagði: „Herra kanslari,
ég er blaðamaður við stærsta blað
íslands, Morgunblaðið, og ætlaði
að tala við utanríkisráðherra yðar
um deilumál þjóðanna en hann
sagðist ekki hafa áhuga á fiski!“
Kanslarinn hrökk við: „Ha,“ sagði
hann dolfallinn, „hefur hann ekki
áhuga á fiski?“ „Nei,“ sagði ég,
„hann vísaði bara á Ertl.“ „Jæja,“
sagði kanslarinn og var nú hættur
að haska sér, „spurðu bara um það
sem þú vilt og ég skal reyna að
svara spurningunum.“
Við töluðum saman nokkra stund
og síðan hefur mér ávallt verið hlýtt
til Willy Brandts. Eftir honum hafði
ég fimm dálka frétt á forsíðu Morg-
unblaðsins fimmtudaginn 23. nóv-
ember þetta ár, Leggjum okkur
fram um að ná samkomulagi.
Þetta var bezta veganestið sem
ég tók með mér frá Bonn. íslend-
ingar áttu ekki að tala við neinn
nema kanslarann sjálfan."
Sauðárkrókur:
Leikskólanemar geta nú sótt sjóinn
Sauðárkróki.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Fleytunni var gefið nafnið Örkin með hefðbundnum hætti.
MIKIÐ var um dýrðir í leikskól-
anum Glaðheimum, laugardag-
inn 8. júní, þegar þar var opið
hús með tilheyrandi grillveislu
og gleði.
Þennan dag afhenti stjórn For-
eldrafélagsins skólanum að gjöf
hafskip sem komið hefur verið fyrir
á lóðinni og gert upp til útgerðar
á landi. Var auðséð að nemendur
skólans kunnu vel að meta þetta
nýja leiktæki.
Var fleytunni gefið nafn á hefð-
bundinn hátt með því að sprengdar
voru vatnsfylltar blöðrur á kinnungi
skipsins og því gefið nafnið Örkin.
Það var Bára Haraldsdóttir sem
gaf foreldrafélaginu bátinn til þess-
ara nota og var hún viðstödd af-
hendinguna. Var Báru færður
blómvöndur um leið og formaður
félagsins afhenti skipið og þakkaði
ágæta gjöf.
Helga Sigurbjörnsdóttir for-
stöðukona Glaðheima þakkaði einn-
ig gjöfina og öllum þeim sem lagt
höfðu hönd að því að búa skólann
þessu leiktæki og mörgum öðrum
sem skólanum hefðu hlotnast.
- BB.
Snmir bflar
WHONDA
Honda Accord er búinn
miklum góðum kostum.
Kostagripir liggja ekki alltaf á
lausu, en þessi er það og til-
búinn til þinnar þjónustu. Bíll
fyrir alla og við allra hæfi.
Greiðsluskilmálar fyrir alla.
Verðfrá kr. 1.432.000,- stgr.
Hhonda
/1CCORD
HONDA Á iSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, S-689900
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
símar 18519 og 689212
Vorum að fá nýja sendingu af skóm frá
iun