Morgunblaðið - 28.06.1991, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGÍJR: ;28Í JÚNÍ 1991
Indland:
Herskáir múslim-
*
ar ræna Israelum
Srinagar. Reuter.
EINN ísraelskur ferðamaður lét lífið, annars er saknað og þrír særð-
ust í átökum við liðsmenn lítt þekktra samtaka múslima frá Kasmír
á Indlandi í gær. Samtökin, sem kalla sig „Verði íslömsku byltingar-
innar“, halda þvi fram að ferðamennirnir hafi verið félagar í hrað-
sveitum Israela.
Reuter
Sérsveitir sovéska innanríkisráðuneytisins reyna að hindra úkrainska þjóðernissinna í því að komast
að þinghúsinu í Kíev til þess að mótmæla nýjum sáttmála fyrir sovésk ríkjasambandið sem þar var til
umræðu.
Það var um miðnætti á aðfara-
nótt fimmtudags sem tólf herskáir
múslimar réðust til inngöngu í hús-
bát á Dal Lake vatninu í Srinagar
og höfðu á brott með sér ísraelana
sex auk tveggja kvenna. Konunum
var fljótlega sleppt en ekið var burt
með karlmennina. Þeir snerust þó
fljótlega gegn árásarmönnunum og
fjórum þeirra tókst að komast und-
an eftir að hafa hrifsað til sín riffla
og handsprengju. Einn ísraeli lét
þó lífið og annars er saknað. Þeir
sem komust undan eru þess fullviss-
ir að þeim hafi tekist að særa
að fresta umræðum um nýjan
sambandssáttmála fyrir sovéska
ríkjasambandið þar til í septem-
ber og fela sérfræðingum að
ganga úr skugga um það í milli
tiðinni hvort ákvæði hans stöng-
uðust á við fullveldissamþykkt
lýðveldisins frá í fyrra. Hefur
þar með verið gert út um vonir
Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétfor-
seta um að sáttmálinn yrði undir-
ritaður í þessum mánuði eða
næsta.
Að sögn blaðamanna í Kíev, höf-
uðborg Ukraínu, samþykkti þingið
með miklum meirihluta tiilögu frá
Leoníd Kravtsjúk, forseta Úkraínu,
um að fresta umræðunni til hausts.
Forsetinn mun hafa lagt þetta til
svo finna mætti málamiðlun milli
íhaldssamra kommúnista er vildu
samþykkja sáttmálann og þjóðem-
issinna sem töldu hann óaðgengi-
armið fram svo ég geti skýrt raun-
verulega afstöðu þingsins," var
haft eftir Kravtsjúk.
Meðan á umræðunni í þingsölum
stóð kom til ryskinga milli um 2.000
þjóðernissinna sem reyndu að kom-
ast að þinghúsinu til þess að mót-
mæla sáttmálanum. Alíka margir
liðsmenn sérsveita sovéska inn-
anríkisráðuneytisins lokuðu öllum
aðkomuleiðum. Á 'endanum fóru
nokkrir þingmenn til liðs við mót-
mælendurna og fylgdu þeim inn á
torgið fyrir framan þinghúsið en
lengra komst fólkið ekki vegna
öflugrar varðstöðu hersveita við
innganga í þinghúsið.
Gorbatsjov hefur sagt að sam-
bandssáttmálinn yrði staðfestur í
júlí, eða jafnvel júní. Með ákvörðun
þings Úkraínu er úr sögunni sá
möguleiki að hann yrði undirritaður
áður en forsetinn hittir leiðtoga sjö
helstu iðnríkja heimsí London í
næsta mánuði. Með sáttmálanum
er ætlunin að veita stjórnum lýð-
veldanna aukin áhrif í eigin málum
en mörkin milli valdsviðs lýðveld-
anna og Moskvustjórnarinnar eru
ekki skilgreind. Úkraínskir aðskiln-
aðarsinnar segja sáttmálann festa
lýðveldið í sovéska ríkjasambandinu
og hófsamir þjóðemissinnar segja
hann gera ráð fyrir of miklum ítök-
um Kremlarstjórnarinnar.
a.m.k. tvo árásarmannanna, en
vissu ekki hversu alvarlega.
Að sögn indverskra embættis-
manna dvelja um þessar mundir um
60 ísraelar á húsbátum í Kasmír
og Jamma, sem eru einu héruðin á
Indlandi þar sem múslimar eru
meirihluti íbua.
Þing Úkraínu frestar af-
greiðslu sambandssáttmála
Kemur í veg fyrir áætlanir Gorbatsjovs um að staðfesta sáttmálann í júlí
Moskvu. Reuter.
ÞING Úkraínu samþykkti í gær legan. „Það verður að fá öll sjón
■ LONDON - Nýjustu rann-
sóknaniðurstöður frá Bandaríkjun-
um benda til þess að Lýbíumenn
hafi átt þátt I sprengingunni sem
grandaði flugvél bandaríska flugfé-
lagsins Pan Am yfir bænum Loc-
kerbie í Skotlandi árið 1988.
Breska útvarpsstöðin BBC greindi
frá þessu í gær, fimmtudag. Að
sögn BBC gæti þetta verið ástæða
þess hversu Bretar voru tregir til
að taka upp stjórnmálasamband
við Lýbíu þegar Lýbíumenn fóru
þess á leit við þá nýlega. 270 manns
fórustí sprengingunni og enn hefur
ekki verið upplýst svo óyggjandi
þyki hver bar ábyrgð á henni.
■ KAUPMANNAHÖFN -
Þorskstofninn í Eystrasalti og
Norðursjó er nú svo illa á sig kom-
inn að fískifræðingar Alþjóðahaf-
rannsóknaráðsins, IECS, hafa mælt
með 30% niðurskurði á veiðikvótan-
um. Útlitið að því er aðrar fiskteg-
undir varðar er einnig slæmt -
aðeins síld og rauðspretta virðast
ætla að spjara sig.
Forsætisráðherra Yíetnams verður
formaður kommúnistaflokksins
Hanoi. Reutcr.
FLOKKSÞINGI kommúnistaflokks Víetnams lauk í gær. Forsætisráð-
herra landsins, Do Muoi, var kjörinn flokksformaður og hið 13 manna
stjórnmálaráð flokksins yngt upp. Þá sagði utanríkisráðherra lands-
ins, Nguyen Co Thach, af sér embætti.
Do Muoi sagði þingfulltrúum að í
Víetnam yrði áfram haldið á braut
sósíalisma, áhersla yrði lögð á efna-
hags- og stjórnmálalegar umbætur
auk þess sem Víetnamar myndu
reyna að vingast við fleiri þjóðir.
Utanríkisráðherra Víetnams,
Nguyen Co Thach, sem tókst í emb-
ættistíð sinni að skapa stjómvöldum
í Hanoi jákvæðari ímynd en forverum
hans hafði tekist, tilkynnti í gær
afsögn sína. Nguyen Co Thach, sem
er 68 ára gamall, var þekktur fyrir
að hafa ávallt svör á reiðum höndum
og hann talaði ensku og frönsku reip-
rennandi.
Á fréttamannafundi lagði hann
áherslu á að hann léti af embætti
forsætisráðherra og störfum í stjórn-
málaráðinu af fúsum og ftjálsum
vilja. Hann lét þess einnig getið að
hann hefði ekki óskað eftir því að
taka við embættinu þegar hann var
skipaður í það árið 1980.
Slóvenar og Króatar
eiga við ofurefli að elja
Lundúnum. The Daily Telegraph.
Hernaðarsérfræðingar segja að reynslulitlar hersveitir Slóvena
og Króata eigi enga möguleika á að geta veitt Júgóslavíuher
verulega mótspyrnu ef honum yrði beitt að fullu til að brjóta þær
á bak aftur.
Herlid fer inn í Slóveníu
138.000 manna herliS Júgóslavíu-
hers er skipaS aS ná yffirráSum yfir
öllum lanaamærastöðvum viS landa-
mæri Austurríkis. Yfirstjórn hersins
heitir aS berja niSur alla mótspyrnu.
Slóvenía aetur
kallaS út 68.000
manna varaliS, en hefur
aSeins vopn handa 40.000.
SkriSdrekar sendir inn í bór-g-'
ina þegar þrír látast í átökum
Slóvaka og Serba.
BOSNÍA-HERZEGÓVÍNA
REUTEfl
„Það verða engar skipulegar
og vel undirbúnar orrustur. Her-
inn grípur að öllum líkindum til
lögregluaðgerða og í einstaka til-
vikum kynnu að bijótast út bar-
dagar,“ sagði John Zametica, sér-
fræðingur í málefnunK.Baíkan-
skaga hjá Alþjóðaherfræðistofn-
uninni í Lundúnum. „Sióvenar og
Króatar hafa einfaldlega ekki
nógu öflugar hersveitir til að geta
komið vömum við gegn her Júgó-
slavíu. Ég álít að þeir stefni að
því að halda þetta út með þraut-
seigju og koma umheiminum til
skilnings um að ekki verður aftur
snúið,“ bætti hann við.
Væri brjálæði að berjast
Heimavarnarliðið í Slóveníu
hefur yfír fleiri vopnum að ráða
en aðrar hersveitir Slóvena og
Króata. Liðið er skipað 73.000
hermönnum og þrátt fyrir að
Júgóslavíuher hafí reynt að gera
vopn þess upptæk hefur því tekist
að halda 40% af vopnum fót-
gönguliða sinna. Þar á meðal eru
fallbyssur, sem hægt er að beita
gegn brynvögnum og skriðdrek-
um og voru keyptar á svörtum
markaði. Herforingjar heimavarn-
arliðsins eru langflestir Slóvenar.
í Slóveníu er einnig 56.000
manna heimalið, sem að sögn
Zametica gengur ekki til liðs við
júgóslavneska herinn þótt það
verði kallað út heldur við 8.000
manna lögreglusveitir Slóveníu.
Þá hafa slóvensk yfírvöld ný-
lega hafíð tilraunir til að koma
upp vísi að her í tveimur æfínga-
stöðvum, sem hvor um sig hefur
250 hermenn og 30 herforingja.
„Það væri bijálæði af Slóvenum
að beijast og ég býst ekki við að
þeir geri það. Þeir vita að þeir
eiga enga möguleika,“ sagði Zam-
etica.
Króatar ver settir en
Slóvenar
Júgóslavneska hernum tókst
að ná því sem næst öllum vopnum
heimavamarliðsins í Króatíu. Auk
þess eru flestir herforingjar liðsins
Serbar og lítt hrifnir af sjálfstæð-
isbaráttu Króata. „Króatar eru
ver settir en Slóvenar en samt tel
ég líklegt að þeir veiti mótspymu,
einkum lögreglan," sagði Zam-
etica.
Króatíska lögreglan er skipuð
25.000 mönnum og hefur yfír
vopnum að ráða. Króatísk yfirvöld
keyptu 80.000 Kalashníkov-riffla
frá Ungveijalandi fyrr á árinu,
fengu léttvopn frá Singapore og
sagt er þau hafí komist yfír
bandarísk flugskeyti af Stinger-
gerð, sem hægt er að beita gegn
flugvélum. Króatar eiga einnig
flutningaþyrlur búnar vélbyssum.
Vígreifir Serbar
Júgóslavíuher stafar lítil ógn
af herafla Slóvena og Króata.
Herinn hefur 138.000 menn undir
vopnum, einkum Serba og Svart-
fellinga, og 70% herforingjanna
em Serbar sem hafa engan hag
af því að Króatía og Slóvenía öðl-
ist sjálfstæði.
„Herinn er helsta vígi títóism-
ans, þar ráða kommúnistar af
gamla skólanum ríkjum og þeir
eru á móti því að Júgóslavía liðist
í sundur,“ sagði Zametica.
Hann bætti við að Júgóslavíu-
her hefði 20.000 hermenn í Slóv-
eníu. Yfirmaður þeirra væri
Konrad Kolsek, Slóveni sem ekki
væri talinn líklegur til að neita
að grípa til hernaðaraðgerða gegn
eigin þjóð.
Júgóslavíuher hefur um 1.850
skriðdreka, auk 1.934 stórskota-
tækja, flugskeytaskotpalla og
sprengjuvarpna. Flugherinn er
skipaður 32.000 mönnum og hef-
ur 455 orrustuþotur og 198 þyrl-
ur. Flotinn hefur 10.000 hermenn,
fimm kafbáta, fjórar freigátur og
59 strandgæsluskip.
Zametica segir að þótt Slóvenar
og Króatar hafi neitað að gegna
herþjónustu eigi allir Serbarnir
og Svartfellingamir, sem herinn
getur reitt sig á, að nægja til að
hann geti haldið Júgóslavíu sam-
an með valdi.