Morgunblaðið - 28.06.1991, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991
*
Rekstrarfélag Alafoss:
Rætl um að vinna verði
lögð fram sem hlutafé
STARFSMANNARÁÐ Álafoss og
bæjarráð Akureyrar héldu fund
í gær þar sem rætt var um skil-
yrði væntanlegs rekstrarfélags
Grenivíkursókn:
Séra Pétur
Þórarinsson
sækir um
EIN umsókn barst um stöðu
sóknarprests í Grenivíkur-
sókn, en umsóknarfrestur er
nýlega runninn út. Sr. Pétur
Þórarinsson fyrrverandi sókn-
arprestur í Glerárprestakalli
sótti um stöðuna.
Björn Ing-
ólfsson for-
maður sóknar-
nefndar sagði
að væntanlega
yrði boðað til
kjörmanna-
fundar innan
skamms þar
sem rætt yrði
um ráðningu nýs prests í sókn-
inni. Sr. Bolli Gústavsson gegndi
stöðu sóknarprests í 25 ár, en
hann var sem kunnugt er nýlega
vígður til embættis vígslubiskups
á Hólum í Hjaltadal.
Sr. Pétur Þórarinsson var um
skeið sóknarprestur í Glerárpre-
stakalli á Akureyri, en sat þar á
undan á Möðruvöllum í Hörgár-
dal og á Hálsi í Fnjóskadal.
Sóknarprestur í Grenivíkur-
sókn situr að Laufási, en sinnir
þremur kirkjum, auk Laufás-
kirkju, Svalbarðsstrandarkirkju
og Grenivíkurkirkju.
fyrirtækisins. Rætt hefur verið
um það meðal starfsfólks að
leggja fram vinnu í rekstrarfé-
laginu sem hlutafé.
„Starfsfólk leggur þunga áherslu
á að leitað verði til allra sem hags-
muna eiga að gæta svo þessi starf-
semi leggist ekki af. Það hafa kom-
ið fram efasemdir frá forráðamönn-
um Akureyrarbæjar um hvort bæj-
arfélagið eigi að taka beinan þátt
í rekstri, en við lögðum á fundinum
ríka áherslu á að aðilar sem eiga
þarna hagsmuni ræði málið og skoði
frá öllum hliðum,“ sagði Þórarinn
Magnússon sem sæti á í starfs-
mannaráði starfsfólks Álafoss hf.
eftir fund með bæjal’ráði Akureyrar
í gær.
Þórarinn sagði það viss vonbrigði
að allt útlit væri fyrir að ríkisvaldið
hafi nánast ákveðið að fara fram á
leigu vegna afnoýa af húsnæði, vél-
um og tækjum Álafoss af væntan-
legu rekstrarfélagi. Menn hefðu
vonast til að fyrst í stað yrði ekki
krafist leigu vegna þess á meðan
verið væri að byggja nýtt fyrirtæki
upp úr rústum þess gamla.
Hann sagði liggja á að þoka
málinu fram, of miklir hagsmunir
væru í húfi, hætta væri á að t.d.
viðskiptasambönd gætu glatast yrði
mikill dráttur á að eitthvað gerð-
ist.„Það er verið að vinna að þessu
máli af miklum velvilja á ýmsum
stöðum og við treystum því að á
því verði tekið af alvöru, enda um
mikið alvörumál að ræða,“ sagði
Þórarinn.
Á meðal starfsfólks hefur verið
rætt um að leggja fram vinnu í
væntanlegu rekstrarfélagi sem
hlutafé og sagði Þórarinn það sýna
hug fólksins til málsins, því flest
starfsfólkið væri á lágum launum.
Sr. Pétur.
Þórarinsson
Breytingar á Ráðhústorgi:
Umferð verður lögð af
UMFERÐ verður væntanlega lokað um Ráðhústorg eftir að búið
verður að leggja lagnir og hellur á torgið næsta haust. Nauðsynleg
umferð vegna verslana verður þó leyfð.
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti endurskoðaða teikningu af
Ráðhústorgi á fundi í vikunni, en
að sögn Guðmundar Guðlaugssonar
yfírverkfræðings hjá Akureyrarbæ
Ný dönsk í 1929
HLJÓMSVEITIN Ný dönsk leik-
ur á skemmtistaðnum 1929 um
helgina, í kvöld, föstudagskvöld
og einnig annað kvöld.
Hljómsveitin hefur leikið á fjölda
dansleikja og hefur einnig sent frá
sér nokkrar hljómplötur. Nú ný-
verið var gefinn út geisladiskurinn
„Kirsuber" og er dansleikurinn í
1929 sá fyrsti sem hljómsveitin leik-
ur á eftir útkomu disksins.
Ur fréttatilkynningii
felast breytingar í því að miðhring-
ur torgsins verður minni er gerí var
ráð fyrir í fyrstu. Þannig verður
bifreiðum gert mögulegt að aka
umhverfis torgið, en væntanlega
verður í framtíðinni einungis leyfð
nauðsynleg umferð um torgið í
tengslum við verslunarrekstur.
Framkvæmdir við Ráðhústorg
hafa staðið yfir í sumar, jarðvegs-
skiptum er að ljúka, en þá verða
lagðar hitalagnir og síðan hellur,
þannig að torgið hækkar um 15-20
sentímetra frá því sem nú er. Tæp-
lega 20 milljónum króna verður
varið á fjárhagsáætlun þessa árs
vegna framkvæmda við Ráðhús-
torg, en það fé dugar til að ljúka
að mestu því sem gera þarf í ytri
hring þess.
(—:---------------]----------------N
Utvegsmenn á Noróurlandi
Utvegsmannafélag Noróurlands
heldur fund á Hótel KEA sunnudaginn
30. júní kl. 16.00.
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráð-
herra, og Sveinn Hjörtur Hjartarson,
hagfræðingur LIU, koma á fundinn.
Stjórnin.
BUSLAÐIGOÐA VEÐRINU
Sorphaugar Akureyrarbæjar:
Bifhjóla-
slys á Olafs-
fjarðarvegi
BIFHJÓLASLYS varð á Ólafs-
fjarðarvegi um kl. 19 á þriðju-
dagskvöld. Stúlka sem var farþegi
á bifhjólinu slasaðist mikið á fæti
og var flutt með sjúkraflugi til
Akureyrar. Ökumaðurinn slasað-
ist minna.
Slysið varð í krappri beygju
skammt frá afleggjaranum að
Skeiðsfossi. Svo virðist sem ökumað-
urinn, piltur fæddur 1969, hafi misst
stjórn á bifhjólinu og það kastast
út fyrir veginn. Stúlkan sem var
farþegi er talin lærbrotin auk þess
sem hún hlaut aðra áverka. Þau
voru á leið til Olafsijarðar þaðan sem
þau eru. Þau voru flutt á sjúkrahú-
sið á Siglufirði og þaðan var flogið
með stúlkuna í sjúkraflugi til Akur-
eyrar um kl. 23.
------------
Gúmmívinnslan:
Fyrirtækið og
framleiðslu-
vörm’ til sýnis
Sýningin „Sumar í Réttarhvammi"
verður haldin tvær næstu helgar,
29.-30. júní og 6.-7. júlí næstkom-
andi við Gúmmívinnslunna hf.
Gúmmívinnslan hlaut fyrir
skömmu viðurkenningu Norræns
umhverfisárs fyrir brautryðjenda-
starf í endurvinnslu. 1 tilefni þess
verður almenningi gefinn kostur á
að skoða fyriríækið og á sýningar-
svæði utanhúss verða framleiðslu-
vörur þess til sýnjs.
Gúmmívinnslan framleiðir m.a.
utanhússgólfefnið GV-reitinn og
gúmmímottur sem nota má t.d. í
bása, skip, á vinnustaði og sem dyra-
mottur. Einnig verða til sýnis garð-
húsgögn og leiktæki frá Höldi hf.
og Nissan-jeppar frá Bifreiðaverk-
stæði Sigurðar Valdimarssonar.
Börnum verður boðið á hestbak á
tímabilinu frá kl. 14-16 um helgina.
Samið við Eyjafjarð-
arsveit um sorplosun
BÆJARSTJÓRN Akureyrar hef-
ur samþykkt samning við Eyja-
fjarðarsveit um sorplosun á sorp-
haugum Akureyrarbæjar í Gler-
árdal. Þetta er fyrsti samningur-
inn sem bærinn gerir við annað
sveitarfélag uin sorplosun, en
flest sveitarfélög í nágrenninu
liafa farið þess á leit að slíkir
samningar verði gerðir.
Sveitarfélög í nágrenni Akur-
eyrar hafa um árabil losað heimil-
issorp á sorphaugum Akureyrar-
bæjar í Glerárdal, ofan bæjarins.
Guðmundur Guðlaugsson yfirverk-
fræðingur hjá Akureyrarbæ sagði
að eðlilegt hefði þótt að gera samn-
inga þar um. Gert er ráð fyrir að
þau sveitarfélög sem undirrita slíka
samninga muni greiða tæplega 800
krónur fyrir hvern íbúa sveitarfé-
lagsins vegna sorplosunarinnar, en
Guðmundur sagði að sú tala hefði
verið fundin á þann hátt, að fjár-
hagsáætlun vegna rekstrar sorp-
hauganna hefði verið deilt niður á
íbúafjölda sveitarfélaganna.
Guðmundur sagði að nægt rými
væri til staðar á sorphaugunum á
Glerárdal, „um einhveija ótiltekna
framtíð," eins og hann orðaði það.
Fyrir liggur að gera mengunarmæl-
ingar vegna sorphauganna og m.a.
verða efni í sigvatni mæld í sumar
og jafnfram er í ráði að gera jarð-
fræðilega úttekt þar efra.
Hvað flokkun sorps varðar, sagði
Guðmundur að þegar væri farið að
flokka gras- og garðaúrgang, auk
timburs frá öðru sorpi og þá væri
til staðar sérstakur gámur hvar
mönnum er gert að losa sig við
rafgeyma, auk þess sem í nokkrum
verslunum í bænum væri tekið á
móti rafhlöðum.
Gjöf til Verkmenntaskólans
íslensk forritaþróun hefur gefið Verkmenntaskólanum á Akureyri
Opus Alt-viðskiptahugbúnað sem fyrirtækið hefur hannað. Myndin
var tekin við afhendingu gjafarinnar, en á henni eru Hálfdán Örn-
ólfsson, Haukur Jónsson, Sveinn Sigurðsson, Adam Óskarsson og
Leifur Brynjólfsson.