Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991
VALDHROKI
eftir Kjartíin
Norðdahl
Fyrrverandi og núverandi vald-
hafar á íslandi hafa sýnt alveg ótrú-
legan hroka í sambandi við samn-.
inginn um hið evrópska efnahags-
svæði (EES). Það er slegið fram
fullyrðingum um ágæti þess að við
gerumst aðilar, án þess að því fylgi
nokkur rökstuðningur, sem almenn-
ingi er ætiað að skilja. Því er slegið
föstu, að fylgi Islendingar ekki með
í þeirri „þróun“, sem nú á sér stað
í Evrópu, fari hér allt í kalda kol.
Þeir, sem efast og hvetja til vark-
árni, eru sakaðir um einangruna-
rstefnu og jafnvel uppnefndir á nið-
randi hátt. Hrokinn er slíkur, að það
hvarflar ekki að þeim valdhöfum
sem fylgjandi eru aðild að svara
heiðarlegum spurningum hins venj-
ulega þjóðfélagsþegns, enda þótt
þessir sömu menn hafi marglýst því
yfir, að þessir samningar séu þeir
þýðingarmestu frá upphafi lýðveldis
á íslandi. Svo þýðingarmiklir, að
þeir eigi eftir að snerta hvert ein-
asta mannsbarn í landinu um ókom-
in ár.
Það er langt síðan utanríkisráð-
herra lýsti því yfir, að búið væri að
semja um 98% af því, sem semja
ætti um. Tvö prósentin sem eftir
væru vörðuðu hina vanheilögu
þrenningu, sem ráðherra kallar svo,
þ.e. fiskveiðar, landbúnað og
greiðslur í þróunarsjóð. Fréttamenn
standa gapandi upp í valdhafa og
drekka í sig hvert orð af þeirra vör-
um og hafa varla rænu á að spyrja
nokkurra spurninga um níutíu og
átta prósentin vegna síbyljunnar um
fiskveiðimál, og þegar þeir þó gera
það, með hangandi hendi, fá þeir
annað hvort engin syör, sbr. nýleg
dæmi í sjónvarpinu, eða þá að svo
lítið er eftir af tíma þáttarins að
sama og ekkert gagn er í umfjöllun-
inni.
Þessir menn, þessir fuiltrúar
fólksins, vilja alls ekki upplýsa al-
menning um fjórfrelsið. Þeir vilja
ekki svara spurningum um það,
hvernig íslendingar geti varið sjálf-
stæði sitt, eftir að þeir hafa undir-
gengist reglugerðarfarganið frá
Brussel. Það eru blekkingar að
halda því fram, að þetta sé nú ekk-
ert nýtt því við séum aðilar að ýms-
um alþjóðasamningum nú þegar,
t.d. mannréttindasamningnum. Hér
er ólíku saman að jafna, því hann
hefur alls ekki enn verið tekinn inn
í löggjöf íslendinga, en þessir 1.400
lagabálkar, sem um er rætt, verða
hins vegar hluti af löggjöf íslands
og munu hafa forgang fram yfir
landslög. Þar er mikill munur á.
Hvað á að hindra þegna EES-
svæðisins í að kaupa hér upp lönd
—, ekkert liggur fyrir um það, eng-
in svör fást. Við breytum bara lög-
unum (hér), segir ráðherra, en
hvaða gagn er í því, þegar nýjar
lagasetningar EES verða nánast
sjálfkrafa lög á Islandi og hafa for-
gang umfram íslenzk lög. Annars
væri líka ekkert gagn í þessu fjór-
frelsi EES, sem er grundvallaratriði
í samningunum. Þegnar EES eiga
allir að hafa sama rétt á öllu svæð-
inu. Þetta er staðreyndin.
Hvað gætum við gert, ef fjölda-
fólksflutningar hingað til lands ættu
sér stað? Það þýðir ekkert að segja
— en hver vildi svo sem flytja hing-
að? í því felst engin trygging. Var
ekki verið að fullyrða í DV um dag-
inn, að hér á landi væru ein beztu
lífskjör í heimi.
Takið nú á ykkur rögg, ráðherr-
ar, og svarið spurningum fólksins.
Hvers vegna er það svona áríðandi
að gerast aðilar að þessum samn-
ingi? Ef við verðum svona mikið á
eftir hinum Evrópuþjóðunum, ef við
skrifum ekki undir samninginn,
hvað ætlið það þá að gera, þegar
nánast allar hinar EFTA-þjóðirnar
eru gengnar í EB, með öllu því af-
sali fullveldis sem í því felst?
Hvernig er uppsagnarákvæðum
samningsins háttað? Eða á samn-
ingurinn að binda ókomnar kynslóð-
ir? Hvers vegna er ekki rætt um
þetta atriði?
Er alveg víst, að forsprakkar EB
þróunarinnar hafi rétt fyrir sér? Er
það örugglega af hinu góða, að þjóð-
ir Evrópu afsali sér sjálfstæði sínu
og gangi inn í hreinan samruna
og gerist Bandaríki Evrópu? En
það er lokamarkmiðið, segja frum-
kvöðlar EB. Til hvers voru menn
að berjast fyrir frelsi og sjálfstæði
og færa fórnir, sem kostuðu ólýsan-
legar þjáningar, til þess eins að
kasta síðan árangrinum í þetta fer-
lega bákn, sem stjórnun Evrópu
stefnir í að verða?
En það má ekki tala svona, þá
er maður á eftir, skilur ekki hinn
óhjákvæmilega gang mála. Skilur
ekki að ef við viljum teljast með
alvöruþjóðfélögum verðum við að
skrifa undir.
Kjartan Norðdahl
„Það er óbifanleg sann-
færing mín, að göngum
við í EES er það jafn-
víst og að jörðin snýst,
að innganga í EB fylgir
á eftir, en það er nokk-
uð sem enginn sljórn-
málaflokkur hér á landi
hefur lýst sig fylgj-
andi.“
Sem dæmi um fyrrnefndan óskilj-
anlegan hroka vil ég nú tilfæra eft-
irfarandi, og bið menn vinsamlegast
að hugleiða rétt aðeins, hvaða hug-
arfar búi að baki hjá þeim mönnum,
sem dæmin eiga við.
Kaldar kveðjur
„Sá tími er liðinn að hin íslenska
þjóð geti látið sér nægja að standa
álengdar og horfa með heimóttar-
svip á það sem gerist með öðrum
þjóðum." (Leturbr. mín, KN.) Skv.
Orðabók Menningarsjóðs þýðir orðið
— heimótt: feiminn og klaufalegur
maður, löðurmenni, mannleysa,
rola, gunga, bjálfi. Viðkunnanleg
orð, ekki satt.
Hver skyldi það nú vera, sem
finnst svip íslenzku þjóðarinnar bezt
lýst skv. ofangreindri skilgreiningu?
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
Í1.FL. B.1985
Hinn 10. júlí 1991 er þrettándj-fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl.B. 1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 13 verður frá og með 10. júlí n.k. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 5.000,-kr. skírteini = kr. 511,90
" " 10.000,-kr. " = kr. 1.023,80
" " 100.000,-kr. " = kr. 10.238,00
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. janúar 1991 til 10. júlí 1991 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006
hinn 1. janúar 1985 til 3121 hinn 1/júlí 1991.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða nr.13 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. júlí 1991.
Reykjavík, 28. júní 1991.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Maður gæti helzt látið sér detta í
hug einhver hrokafullur erlendur
embættismaður, sem liti stórt á sjálf-
an sig og niður á aðra, einkum ís-
lendinga, en svo er þó ekki. Þessar
hugrenningar í garð þjóðarinnar
'opinberaði enginn annar en sjálfur
forsætisráðherra íslands, Davíð
Oddsson.
En á hvaða stað og stundu fannst
hinum nýbakaða forsætisráðherra
við hæfi að gera þessa afstöðu sína
til fólksins í landinu heyrinkunna?
Staðurinn var Austurvöllur og
stundin var 17. júní, þjóðhátíðardag-
ur Islendinga.
Hrokinn og lítilsvirðingin sem lýs-
ir sér í þessum orðum ráðherrans
er slíkur, að menn í hans eigin flokki
hrukku í kút, er þeir hlýddu á ræð-
una. En ekki er allt búið enn. Næst
dundu á landsmönnum aðvaranir
um, að ef nú ekki yrði farið að
hlutsta á taut og raul annarra þjóða
manna myndum við, íslendingar,
lenda í einangrun og verða að ís-
lenskum „Palla“, — einum í heimin-
um!
Því miður er forsætisráðherra
ekki einn um þessa skoðun. Svo
rammt kveður að þessum hugsunar-
hætti hjá sumum sjálfstæðismönn-
um, að nafn flokksins fer bráðum
að verða öfugmæli og væri þá nær
að kalla flokkinn — ósjálfstæðis-
flokkinn.
Kotungar á kúskinnsskóm
Þegar stjórnarandstaðan flutti
vantrauststillögu á ríkisstjórn Stein-
gríms Hermannssonar haustið
1989, komst flutningsmaður, Þor-
steinn Pálsson, núverandi sjávarút-
vegsráðherra, m.a. svo að orði: „Og
utanríkisráðherra á að fara á sam-
eiginlegan ráðherrafund EFTA og
Evrópubandalagsins án þess að hafa
formlegt umboð frá Alþingi um
stefnu íslands í þessum efnum.
Veganesti hæstv. utanríkisráðherra
er bókun sem gerð var í pukri og í
skyndi í ríkisstjórn án samráðs við
Alþingi (var einhver að nefna Við-
ey?, innskot mitt, KN.) og utan á
þá bókun eru hengdar yfirlýsingar
Alþb. um allsheijarfyrirvara."
Svar utanríkisráðherra við þess-
um athyglisverðu orðum voru m.a.
á þessa leið: „Eru það hugmyndir
Sjálfstæðisfl. að breyta íslandi í ein-
hvers konar Árbæjarsafn á meðal
þjóða á sama tíma og múrar ófrelsis-
ins eru að hrynja um þvera og endi-
langa Evrópu? Eru það hugmyndir
sjálfstæðismanna að breyta íslandi
í einhvers konar Albaníu norðursins?
Er þetta framtíðarsýn þessara
manna? Hver hefur gefið Þorsteini
Pálssyni umboð til þess að gera
Sjálfstæðisflokkinn að málsvara ein-
angrunar og kotungssjónarmiða?
Ætla sjálfstæðismenn að fylgja Þor-
steini Pálssyni á kúskinnsskóm
Kvennalistans út í þessa vitleysu?“
Ja, hvað sem annars má segja
um þennan helzta foringja alþýð-
unnar- á íslandi, Jón Baldvin
Hannibalsson, verður hann ekki
beinlínis sakaður um að líta upp til
hennar.
Sem sagt, þið, sem eruð e.t.v.
óviss um, að með inngöngu íslands
í EES sé verið að fara út á alls
kostar heillavænlega braut, eruð
einangrunarsinnar og kotungar,
sem gangið á kúskinnsskóm og
horfið með heimóttarsvip til ann-
arra þjóða.
Eg ætla ekkert að fara út í það
hér hvers konar hugarfari það lýsir
í sjálfu sér að vera að hæðast að
klæðnaði forfeðra og formæðra okk-
ar, en hitt vil ég segja, að það er
til háborinnar skammar að kenna
Islendinga, hvort heldur er liðna eða
núlifandi, við einangrunarstefnu eða
að þeir séu með einhvern heimóttar-
svip varðandi útlönd, því þeir hafa
verið, eru og munu verða manna
víðförlastir og einmitt sýnt mikinn
áhuga á öllu því er erlendis gerist
og haft skilning á gildi góðra sam-
skipta við önnur lönd og aðrar þjóð-
ir.
Örlög þjóðar
Ég geri mér Ijóst, að sannfæring
eins þarf ekki að vera neitt sannfær-
andi fyrir aðra, en ég segi það samt,
að það er óbifanleg sannfæring mín,
að göngum við í EES er það jafn-
víst og að jörðin snýst, að innganga
í EB fylgir á eftir, en það er nokkuð
sem enginn stjórnmálaflokkur hér á
landi hefur lýst sig fylgjandi. Það
þarf ekki annað en líta yfir þróunar-
ferilinn í Evrópu til þess að sjá að
þetta verður hinn óhjákvæmilegi
endir. Eina vonin er að einhver
Norðurlandaþjóðanna þori að taka
aðra stefnu.
Höfundur er flugstjóri og
lögfræðingur.
Gurudev og kripalujóga
eftir Kristínu
Norland
Kripalumiðstöðin, ein stærsta
jóga- og heilunarmiðstöð Bandaríkj-
anna, er Islendingum að góðu kunn.
Þangað sækja þeir árlega ásamt
þúsundum manna víðs vegar að úr
heiminum til þess að taka þátt í
námskeiðum og hlýða á kenningar
jógaheimspekingsins Gurudevs, en
hann heldur einmitt fyrirlestur og
námskeið hér á landi 27.-30. júní nk.
Gurudev er einn af fáum er tekist
hefur með útfærslu sinni á jóga,
kripalujóga, að taka fornar austræn-
ar jógakenningar og aðlaga þær
vestrænum lífsháttum og hugsun.
Kripalujóga einskorðast alls ekki
við ákveðnar jógastöður þótt þær séu
mikilvægt tæki til þess að uppgötva
og nýta lífsorkuna er í okkur býr.
Kripalujóga felur þess í stað í sér
samspil líkama, huga og sálar.
Gífurlegt orkutap hlýst oft af við-
brögðum okkar við aðstæðum sem
við kjósum að vera óánægð með.
Þegar okkur mislíkar við einhvern,
óskýrist hugsun okkar mjög fljótlega
og við hegðum okkur í ósamræmi
við vilja okkar. Einnig getum við oft
spillt aðstæðum-sem annars væru
orkugefandi. Skokk til að mynda
gefur að öllu jöfnu þol og orku. En
sú manneskja sem skokkar með
óánægju að förunaut er fljót.að tapa
þeirri orku er hún á annað borð hefði
getað öðlast við hreyfinguna.
Við ástundun kripalujóga vekjum
við ekki einungis upp orku okkar
heldur náum við einnig að varðveita
hana. Gurudev bendir okkur á að
horfa hlutlaust og án væntinga eða
ótta á allt sem gerist. Við getum lit-
ið á okkur sjálf sem vitni í vitna-
stúku. Við sjáum veikleika okkar en
dæmum þá ekki, greinum hæfileika
okkar en ofmetnumst ekki. Við erum
samsafn af kostum og göllum þar
sem hver hluti hefur jafnmikið lær-
dómsgijdi.
Við berum fulla ábyrgð á lífi okk-
ar. Við erum sjálf orsök allra okkar
vandamála og skoðana, þ.e.a.s. það
er hvernig við upplifum vandamálin
sem veldur okkur hugarangri, ekki
vandamálin sem slík. Erfiðleikar hjá
einum manni eru öðrum smámunir.
Allar okkar venjur, skoðanir og kenn-
ingar eru því okkar eigið sköpunar-
verk. Það eru einungis við sjálf og
enginn annar sem getur breytt þeim.
Breytingin kemur alltaf innan frá.
Kripalujóga er jóga umbreyting-
anna. Sú orka er vaknar við ástund-
un jóga, og orka sú er varðveitist
við það að kyrra hugann og horfa
'með fullri meðvitund á hveija ein-
ustu stund, nýtist okkur á leið til nýs
og auðugra lífs.
Höfundur er félagi i Heimsljósi,
félagi áhugafólks um kripalujóga.