Morgunblaðið - 28.06.1991, Side 49
MORGUNBLÁÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991
Sé'
Vörur úr lífrænt ræktuðu komí
- betra getur það varla venð
Heildsöludreifíng: Faxafell hf. símí 51775
Veitum upplýsingar um útsölustaði
Kaupmannahöfn
KR. 17.400
Flogið alla miðvikudaga og föstudaga.
| Frjálst val um hótel, bílaleigur og
framhaldsferðir.
— fii mi=rani?i
= SOLRRFLUG
Vesturgata 12, Símar 620066, 22100 og 15331
^^JI^vö^^snjTstaÖgreiösluveröjrTiiöa^vi^^enigl^^eb^flugvsJlaglöl^otg^orfall^r^ggíng^kkiinnifaltr^veröurT^
Þesslr hringdu ..
Góð og tímabær grein
Halla Friðriksdóttir hringdi:
„Ég vil þakka fyrir góða og
tímabæra grein eftir Eggert
Jónsson, „Ríkið borgar tvisvar -
lækkum skattana", sem birtist í
Morgunblaðinu 26. júní. Það er
orðin svo mikil vitleysa í þessu
heilbrigðiskerfi að tími er til kom-
inn að taka þar til. Láglaunafólk
hefur ekki efni á að halda þessu
óhófskerfi uppi.“
Ágætar umbúðir
Kristín hringdi:
„Ég er ekki sammála Svövu,
sem skrifaði í Velvakanda fyrir
skömmu og sagði mjólkurumbúð-
ir Mjólkursamsölunnar lélegar.
Ég tel að þetta séu ágætar um-
búðir. Sjálf set ég aldrei fernurn-
ar á borðið heldur helli strax úr
þeim í könnu sem ég geymi í ís-
skápnum. Ég tel þessar umbúðir
ágætar og vil ekki fá stóru
tveggja lítra fernurnar aftur, því
það fer svo mikið fyrir þeim í
ísskápnum".
Lloyd-skór
Vegna fyrirspurnar í Velvak-
anda var haft samband frá versl-
un Steinars Waage og upplýst
að Lloyd-skór fengjust í verslun-
um Steinars Waage i Domus
Medica og í Kringlunni. Ný pönt-
un barst nýlega og er því mikið
til af þessum skóm i verslunun-
um.
Kona í Austurbænum hringdi:
„Það er fáránlegt að ætlast til
þess að almenningur flokki allt
sorp heima og komi því á gáma-
stöðvar. Það eru alls ekki allir
sem hafa aðstöðu til þess heima
og svo eiga heldur ekki allir bila.
Svo verða þetta, er ég hrædd um,
ansi margar ferðir á gámastöðv-
arnar fyrir flesta. Ef flokka á
sorpið verur einfaldlega að hafa
mislitar tunnur við hvert hús -
eina fyrir málm, eina fyrir papp-
ír, eina fyrir heimilissorp og ef
til vill fleiri flokka. Það er mikil
tilætlunarsemi að ætlast til að
við flokkum sorpið og komum
því á gámastöðvarnar fyrir ekki
neitt. Bílamir eiga að hirða sorp-
ið við húsin eins og þeir hafa
gert.“
Verndaðar þjónustuíbúðir?
Fokdýrar stein-og glerhallir í
Reykjavík eru seldar öldruðum
Breytingtil
batnaðar?
Það þótti kostnaðarsöm frám-
kvæmd þegar Austurstræti var á
sínum tíma breytt í göngugötu. Nú
er talað um að breyta götunni á
ný og heimila bflaumferð um hana
á ný. Sjálfur sé ég enga ástæðu til
að opna götuna fyrir bflaumferð og
þykir mér núverandi fyrirkomulag
ágæt. Talað er um að þessi breyting
muni kosta tugi milljóna. En spum-
ingin er hvort borgarbúar verði
nokkuð ánægðari þegar „rúntur-
inn“ opanar á ný. Verður þá ekki
strax farið a,ð tala um að breyta
Austurstræti í göngugötu á ný?
Þeir sem ráða skipulagi Miðbæarins
verða að sýna framsýni og ganga
þannig frá skipulaginu að það geti
verið endanlegt. Sífeldar breytinar
á þessum bæjarhluta eru alltof
kostnaðarsamar.
Reykvíkingur
undir nafninu „vemdaðar þjón-
ustuíbúðir".
Þama flyst inn lasburða fólk í
trausti þess að þar sé þjónustu og
öryggi að fá.
Þar sem ég þekki til er þjónust-
an fólgin í því að hádegisverður
er framreiddur í matsal 5 daga í
viku, er að vísu sendur í íbúðimar
í neyðartilvikum.
Starfsfólkið er mjög elskulegt
og sérlega hjálpsamt en ekki vildi
ég vera í þess sporum þegar skellt
er í lás á föstudögum um 5-leytið
og það veit að hjálparvana íbuar
geta árangurslaust hringt á
„hjálparhnappinn" til mánudags-
morguns. Reyndar gildir það sama
alla dag frá 5 e.h. til næsta morg-
uns. Ekki er gert ráð fyrir að íbú-
ar þurfí að „þjónustu" að halda
utan venjulegs skrifstofutíma.
Er þetta þjónusta?
Þessar gylliboðaíbúðir virðast
vera í byggingu víðsvegar um
borgina og er full ástæða til að
vara aldraða og aðstandendur við
þeim.
E.R.
(SS) Nú er TVÖFALDUR
[§£) 1 ■ vinningur
■ draumurinn gæti orðið að veruleika!