Morgunblaðið - 28.06.1991, Page 50
50
GOLF
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991
PRESSAN
Hallgrímur Þ.
Magnússon læknir
klagaður vegna
meðferðar á sjúklingi
LANDLÆKNIR
LOKADI
STQFDNNI
OG OSKAÐI
Hvaða
ríthöfundar hafa
fengið hæstu
styrkina?
Stöð 2
EIGIfl FÉ NEIKyÆTT UM
230 MILLJQNIR OG
NYJU HLUIAFE HAFNAÐ
Má gera 'ða
fyrir leik?
Er kynlíf og knattspyrna eins
og olía og vatn?
Ríkisábyrgðasjóður
ALMENNINGUR
BORGADI60
MILLJONIR VEGNA
GULLSKIPSINS
Fólkið sem gaf okkur
kiwiinn, skelfiskinn,
krárnar, krítarkortið,
léttvínið og grófa
brauðið.
*
Os-málið
HLlílAfffl
(&J1 3 ÞUSUND KRONUR
! SKULDIRNAR
350 MILLJONIR i
Fullt blað af slúðri
John Garner
landsliðsþjálfari:
Sé miklar
framfarir
íhvert
sinn sem
égkem
„ÉG sé miklar framfarir hjá
flestum í hvert skipti sem ég
kem og við höfum sett stefn-
una á að vera meðal átta bestu
í lokakeppninni á Evrópumeist-
aramótinu," sagði John Garner
landsliðsþjálfari í golfi. Garner
var staddur hér á landi við
kennslu og leiðbeinendastörf
áður en hann hélt til Spánar.
Þetta var þriðja ferð hans til
íslands á þessu ári og jafn-
framt hefur landsliðið dvalið
hjá honum í viku í Englandi í
vetur viðæfingar.
Garner hefur farið víða um
landið og leiðbeint við æfingar
og þjálfun. Hann sagði að áhugi
fyrir golfi væri geysimikill hér á
landi og að hér væri
Björn nægur efniviður í
Blöndal góða kylfinga.
tkrí!arf,rá Vandamálið væri
hversu timinn væn
stuttur sem hægt væri að æfa og
leika golf á íslandi.
„Ég tel ákaflega þýðingamikið
að hér verði komið upp upphituðum
æfingavelli sem gerði mönnum
kleyft að æfa sig allt árið. Þetta
kostar vissulega fjármuni, en ég er
líka viss um að næg aðsókn yrði
að slíkum velli.“
Þetta er fjórða árið sem Garner
þjálfar íslenska kylfinga og leið-
beinir hann öllum aldurshópum.
Hann sagðist strax hafa tekið eftir
því að hér hefðu menn nær ein-
göngu hugsað um slá boltann. Þess-
ari hugsun hefði hann verið að
breyta, því í golfi yrðu menn að
taka allar aðstæður með í reikning-
inn og haga leik sínum samkvæmt
því.
„Ég segi oft að höfuðið sé 15.
kylfan í golfpokanum," sagði Garn-
er.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
John Garner leiðbeinir ungum og efnilegum kylfíngi, Emi Hjartarsyni úr
Golfklúbbi Suðumesja.
FRJALSIÞROTTIR
Helgi setti met
í kringlukasti
Helgi Þór Helgason, kringlukastari úr ungmenna-
félaginu Fram á Skagaströnd setti nýtt héraðs-
met í kringlukasti, er hann kastaði 57,34 metra á
kastmóti FH í Kaplakrika í Hafnarfirði fyrir helgi.
Helgi Þór bætti árangur sinn um rúman metra og
náði fimmta besta árangri íslendings í greininni frá
upphafi.
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna:
KRÍ2. sæti
KR-stúlkur eru í 2. sæti í 1. deild
kvenna en ekki UBK og ÍA eins
og stóð í blaðinu í gær. Staðan er
annars þessi fyrir leik KR og Þróttar
frá Neskaupstað í kvöld á KR-velli:
Fj. leikja u j T Mörk Stig
VALUR 5 4 1 0 20: 3 13
KR 5 4 0 1 17: 7 12
ÍA 5 3 1 1 17: 3 10
BREIÐABLIK 5 3 1 1 9: 6 10
ÞRÓTTUR N. 4 1 0 3 6: 9 3
ÞÓR 4 1 0 3 3: 16 3
TÝR 4 0 1 3 2: 21 1
KA 4 0 0 4 4: 13 0
FELAGSLIF
Knattspyrnuskóli KR
Næsta námskeið í knattspyrnu-
skóla KR hefst á mánudag, 1. júlí.
Skólinn er fyrir stráka og stelpur
á aldrinum 6-12 ára og fer kennsl-
an fram kl. 9 - 12 alla virka daga,
en kennarar eru Ivan Sochor, Geir
Þorsteinsson og Óskar Þorvaldsson.
Næstu námskeið hefjast síðan 15.
og 29. júlí, en innritun fer fram á
skrifstofu knattspymudeildar alla
daga (s. 27181).
fotírn
FOLK
I ÞRIR frjálsíþróttamenn náðu
besta árangri ársins á móti í Heng-
elo í Hollandi í gær. Richard Che-
limo frá Kenýa og breska stúlkan
Liz McColgan { 10.000 m hlaupi
— Chelimo hljóp á 27:11.18 mín.
og McColgan á 30:57.07 mín. —
og Philip Barkutwo frá Kenýa
hljóp síðabn 3.000 m á 8:17.79 mín.
■ DRAGAN Stojkovic, landsliðs-
maður Júgóslava í knattspyrnu,
var á þriðjudag seldur frá Mar-
seille til Verona á Ítalíu. Stoj-
kovic, sem er 26 ára, gekk til liðs
við franska liðið Marseille eftir
HM á Italíu í fyrra, en var meiddur
mestan hluta síðasta keppnistíma-
bils og lék því lítið. Verona greiddi
6,5 milljónir dollarar, eða um 400
milljónir ÍSK fyrir Stojkovic.
■ GAETAN Huard, varamark-
vörður Marseille, hefur skrifað
undir tveggja ára samning við
Bordeaux. Huard er ætlað að taka
stöðu Joseph-Antonine Bell,
landsliðsmarkvarðar Kamerún,
sem hefur fengið fijálsa sölu frá
félaginu.
■ JÚRGEN Kohler, leikmaður
Bayern Miinchen, skrifaði undir
samning við Juventus á mánudags-
kvöld. Kohler, sem er 25 ára, var
keyptur til Bayern frá Köln fyrir
120 milljónir ISK árið 1989. Ju-
ventus greiðir um 400 milljónir ÍSK
fyrir kappann. Thomas Berthold,
sem lék með Roma, tekur stöðu
Kohlers hjá Bayern.
■ ALEXEJ Míkhaílíchenko,
landsliðsmaður Sovétríkjanna í
knattspyrnu sem leikið hefur með
Sampdoria á Italíu, skrifaði undir
samning við skoska liðið Glasgow
Rangers á dögunum. Skosku
meistaramir þurfa að greiða um
300 milljónir ISK fyrri Sovétmann-
inn, sem er 28 ára. Hann verður
dýrasti leikmaður skosku deildar-
innar. Míkhaílíchenko leikur vænta-
lega við hlið lands síns, Oleg Kuz-
netsov, sem kom til Rangers í fyrra.
■ BRÖNDBY varð um síðustu
helgi danskur meistari í knatt-
spymu eftir jafntefli, 1:1, gegn
næst efsta liðinu Lyngby. Bröndby
hlaut 26 stig, Lyngby 24 stig og
AGF hafnaði í 3. sæti með 20 stig.
■ IFK Gautahorg og Örebro eru
efst í sænsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu eftir 14 umferðir með
26 stig. Malmö FF er í 3. sæti
með 24 og Norrköping og AIK
með 19 stig.
■ KATOWICE varð um síðustu
helgi póslkur bikarmeistari í knatt-
spymu í annað sinn í sögu félags-
ins. Katowice vann Legia Varsjá
1:0 í úrslitum.
Ikvöld
KNATTSPYRNA
2. deild kl. 20
Akranesvöllur..........í A - Fylkir
Hvaleyrarholtsvöllur.Haukar - ÍR
Akureyrarvöllur......Þór - Selfoss
Keflavíkurvöllur..ÍBK - Grindavík
Þróttarvöllur..Þróttur - Tindastóll
1. deild kvenna kl. 20
KR-völlur.........KR - Þróttur N.
3. deild karla kl. 20
Grenivikurvöllur......Magni - KS
4. deild karla kl. 20
Valhúsavöllur.....Grótta - Hafnir
Melar, Hörgárdal..SM - UMSE b
GOLF
SÚ-mótið i Leirunni
Opna skipstjóra- og útgerðamanna-
mótið i golfi verður hjá Goifklúbbi
Suðurnesja í Leirunni í dag og hefst
kl. 14.
Öldungamót á Hellu
Opna öldungamótið Hauks- og Her-
mannsmótið verður haldið á vegum
Golfklúbbs Hellu á Strandarvelli
laugardaginn 29. júní og hefst kl.
10. Keppt verður í flokki 65 ára og
eldri karla og 55 ára og eldri kvenna
og leiknar 18 holur með forgjöf.
Skráning í golfskálanum í dag kl.
13:30 - 20 (s. 98-78208).