Morgunblaðið - 04.07.1991, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.07.1991, Blaðsíða 12
MÖRÍÍUNaÍLAÍDÍÍ) ÉÍMlÍf UJ3ÁÖCK 4.:ÍULÍ11901 ' Lögðum málið alveg hlutlaust fyrir valinkunna lögfræðinga -segir Jón Steinar Gunnlaugsson hrl., verjandi í máli Þýsk-íslenska JÓN Steinar Gunnlaugsson hrl. og verjandi Ómars Kristjánsson- ar í máli Þýsk-íslenska, vísar á bug þeim ummælum Atla Gísla- sonar hrl. og saksóknara í málinu, sem fram komu í viðtali Morgunblaðsins á sunnudag, að verjendur hafi lagt rangar eða ónákvæmar forsendur fyrir þá lögfræðinga sem leitað var álits hjá í málinu. „Við lögðum málið, að mínu mati, alveg hlutlaust fyrir, enda hefði annað verið gagnslaust," segir hann. Þá segir hann rangt að saksóknari hafi lagt nýjar og mildandi ástæður fyrir í Hæstarétti sem hafi horft til refsilækkunar. Þvert á móti hafi ákæruvaldið krafist refsiþyngingar Jón Steinar segir að eftir að dómur sakadóms gekk í desember sl. hafi hann og Jónatan Sveins- son hrl., sem var annar verjandi í málinu, talið að í niðurstöðu sakadóms hefðu verið brotnar grundvallarreglur réttarfars í op- inberum málum, bæði hvað varð- aði málsmeðferð og sönnunar- færslu. „Það var sakfellt fyrir skattaundandrátt öll árin 1981- 1984, þó að einungis hefði verið ákært fyrir undandrátt árið 1984. Það fór auk þess engin rannsókn fram á skattskilum fyrri áranna þriggja, heldur bjó dómurinn sér til reiknimódel og reiknaði út eft- ir því hve stór hluti af hinum ætluðu, undandregnu sköttum til- heyrðu fyrri árum og sakfelldi fyrir það,“ segir hann. Akademískar spurningar „í þessu máli var deilt um skilning á úrskurði ríkisskatta- nefndar. Skilningur á þeim úr- skurði skipti grundvallarmáli fyr- ir lögtaksmálið. Við ákváðum að afla lögfræðilegra álita um þessi veigamestu lagaatriði, sem á reyndi í málunum. Lögðum við akademískar spurningar fyrir nokkra valinkunna lögfræðinga. Þessar spurningar voru ekki um dóm Sakadóms Reykjavíkur eða úrskurð fógetaréttar. Raunar kom nafn fyrirtækisins aldrei fyr- ir í spurningum okkar, enda eru lögfræðileg álit óháð því, hvaða aðili á hlut að máli. Við lögðum málið, að mínu mati, alveg hlut- laust fyrir enda hefði annað verið gagnslaust. Tveir eða þrír lög- fræðingar báðu um gögn úr mál- inu en hinir ekki. Svörin voru síðan lögð fram í réttinum. Við vorum í rauninni ekki að gera neitt annað en gert er í öllum dómsmálum, að vitna í skoðanir fræðimanna á lögfræðilegum álitaefnum sem reynir á í málinu. Algengast er að það sé gert með tilvitnunum í fræðirit en svo get- ur staðið á að fræðimenn hafi lítið skrifað um nákvæmlega þau atr- iði sem á reynir. Öll þessi við- leitni gengur ekki út á neitt ann- að en að fá fram lögfræðilega rétta niðurstöðu í dómsmáli og tel ég að íslenskir lögfræðingar geri allt of lítið af þessu. Öll við- leitni sem gengur út á að auð- velda dómstólnum að komast að réttri lögfræðilegri niðurstöðu er af hinu góða,“ segir hann. Forsendum rétt lýst Jón Steinar segist vísa því alf- arið á bug að forsendur spurning- anna um úrskurð ríkisskatta- nefndar hafi verið rangar eða ónákvæmar eins og hann segir Atla gefa í skyn. Vísar hann þar bæði í forsendur ríkisskatta- nefndar og spurningar veijenda. í úrskurði ríkisskattanefndar segir m.a., að ljóst sé að ríkis- skattstjóri hafi endurákvarðað kæranda að nýju opinber gjöld eingöngu á grundvelli nýs skatt- framtals kæranda 1985. Þar seg- ir einnig að rétt hefði verið af ríkisskattstjóra, að hann færi fram á rannsókn skattrannsókn- arstjóra á nýju skattframtali kær- anda árið 1985, áður en hann tók fyrir að endurákvarða gjöld kær- anda eða hann krefði skattrann- sóknarstjóra um skýrslu um at- hugun rannsóknardeildar ríkis- skattstjóra. Hafi það verið sér- staklega brýnt með tilliti til þess að bókhald kæranda árið 1984 hafði ekki verið endurskoðað af löggiltum endurskoðanda og því lýst yfir í bréfi stjórnar kæranda að ágallar væru á bókhaldi hans rekstrarárið 1984 og eldri rekstr- arára. Segir ríkisskattanefnd að nýja framtalið og ársreikningar hafi bersýnilega ekki verið byggt á viðhlítandi grundvelli. Með hlið- sjón af þessu verði hvorki kröfur kæranda né ríkisskattstjóra tekn- ar til greina og þeim vísað frá vegna vanreifunar. Jón Steinar Gunnlaugsson hrí. Jón Steinar og Jónatan Sveins- son segja um þetta atriði, í bréf- inu til þeirra lögfræðinga, sem álits var leitað hjá að í forsendum fyrir úrskurði ríkisskattanefndar hafi því verið lýst, að kærandinn hafi ekki lagt fram viðhlítandi framtalsgögn til að hægt sé að taka kröfur hans til efnislegrar umijöllunar. Síðan sé því lýst að ríkisskattstjóri hafi við endurá- lagningu sína ekki farið rétt að samkvæmt lögum nr. 75/1981. Hafi þau gögn sem hann lagði til grundvallar viðbótarálagning- unni bersýnilega ekki verið við- hlítandi. Síðan hafi lokaorð úr- skurðarins um vanreifaðar kröfur aðila og frávísun verið tekin orð- rétt upp í bréfið. „Þetta er hárrétt lýsing,“ segir Jón Steinar. „Enda mikið kapps- mál að þær forsendur _sem lagðar eru fyrir séu réttar. Eg vísa því alveg á bug að þetta hafi ekki verið rétt lagt fyrir lögfræðing- ana miðað við mál Þýsk- íslenska," segir hann. Hann bend- ir ennfremur á að á því sé enginn vafi að Hæstiréttur hafi komist að öðrum niðurstöðum lögfræði- lega en þeir aðilar sem gáfu lög- fræðileg álit. Það eigi við um nær öll þau atriði, sem þeir gáfu álit um. Krafist var refsiþyngingar Jón Steinar mótmælir því einn- ig að ákæruvaldið hafi lagt fram nýjar og mildandi ástæður fyrir Hæstarétti, sem hafi valdið því að dómur Hæstaréttar er vægari en dómur sakadóms, eins og fram kom í viðtalinu við Atla Gíslason. „Yfirlætislegar athugasemdir Atla um þetta gætu bent til þess, að hann hefði einn flutt.málið og þá bæði í sókn og vörn. Yfirlæti af þessu tagi er ekki sæmandi málflutningsmanni, sem vill láta taka sig alvarlega," segir hann. Jón Steinar segir að í dómkröf- um ákæruvaldsins í Hæstarétti hafi þvert á móti verið krafist refsiþyngingar. „Það er því ekki rétt, sem Atli segir að hann hafi borið fram nýjar eða mildandi ástæður í Hæstarétti og því hafi Hæstiréttur mildað viðurlögin. í sakadómi var tekið fram að það sé ákærða til málsbóta að hann hafi áður en mál þetta kom upp ráðið sérfróða menn til að endur- skipuleggja sölukerfi félagsins og leitast við að upplýsa málið,“ seg- ir hann. „Ég get hins vegar tekið undir að gagmýni á dómstóla á að vera rökstudd og mér þætti ekkert verra að hrós um dómstólana væri það líka,“ segir Jón Steinar. Afar góð reynsla af }>ví að senda skiptmema til Islands - segir Ebbe Skovdal, varaforseti alþjóðlegu skiptinemasamtakanna AFS „Við höfum afar góða reynslu af því að senda skiptinema til ís- lands. Nemarnir, sem hér hafa dvalist, hafa borið fólkinu góða sögu og líkað mjög vel. Af þessum sökum er unnið að því að fá fleiri fósturfjölskyldur á íslandi en þess má geta að nú er einmitt rétti timinn til að ákveða að taka við ársskiptinemum sem koma í sum- ar,“ segir Ebbe Skovdal, varaforseti alþjóðasamtaka AFS, í stuttu samtali sem átt var við hann er liann sótti íslendinga heim. Hann leggur áherslu á hversu fræðandi og skemmtilegt geti verið fyrir fjölskyldu að fá einstakling af öðru þjóðerni til dvalar á heimilinu. Ebbe kemur til íslands til þess að kynna sér starfsemi skrifstofunn- ar og félagsins á íslandi og undirbúa fjárhagslegt sjálfstæði þess. Tímasetninguna segist. hann hafa valið með tilliti til komu víkinga- skipsins Gaiu 17. júní. í tilefni af siglingu skipsins efndu AFS samtök- in á viðkomustöðum skipsins á leið þess frá Noregi til Banda- ríkjanna til ritgerðasamkeppni og voru verðlaun í samkeppninni á íslandi veitt við komu skipsins til landsins. Þau fengu Liesbeth Van den Eyden (belgískur skiptinemi á íslandi) og Hanna Vilhjálmsdóttir. Sigfríður Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri AFS á íslandi, og Ebbe Skovdal, varaforseti alþjóðasamtakanna AFS. Starfsemi AFS miðar að því að efla kynni einstaklinga af ólíkum þjóðernum og stuðla þannig að því að minnka bilið milli þjóða og auka skilning þeirra á milli. Henni er að mestu leyti haldið uppi af sjálfboðal- iðum og eru samtökin ekki rekin í ágóðaskyni. AFS Stofnun samtakanna má að sögn Ebbe rekja til bandarískra sjálfboð- aliða sem óku sjúkrabílum í fyrri og seinni heimsstyijöldinni. „Þegar átökunum lauk voru bílarnir seldir og sjálfboðaliðarnir ákváðu að helga sig starfi í þágu friðar. Þeir ákváðu að taka á móti ungu fólki frá Evrópu en sendu Bandaríkja- menn í staðinn til Evrópulanda. Með því að senda ungmennin til þessara landa vildu þeir leggja sitt af mörkum til þess að græða sár sem styijöldin hafði skilið eftir sig,“ segir Ébbe. „Samtökin efldust og nú starfa þau í 54 löndum víðs vegar um heiminn. Starfsemi þeirra byggist fyrst og fremst á ungmennaskiptum sem felast í því að ungt fólk á aldr- inum 16 til 18 ára flyst úr sínu venjubundna umhverfi til annars lands til þess að dvelja hjá annarri fjölskyldu, ganga í annan skóla, og venjast ólíkum lífsháttum. Yfirleitt aðlagast ungmennin vel breyttum aðstæðum og sjóndeildarhringur þeirra víkkar. í þessu sambandi er gaman að geta þess að þegar ég kom til Bras- ilíu ekki alls fyrir löngu tók á móti mér Brasilíubúi sem hafði verið skiptinemi á Islandi og var ótrúlega vel inni í því sem hér var að gerast þó hann hefði ekki komið til lands- ins í nokkur ár. Sjálfum þótti mér líka skemmtilegt að hann hafði ekki einungis lært íslensku meðan á dvöldinni stóð heldur einnig norsku og gat talað við mig á því máli. Ungi maðurinn var sannfærð- ur um að reynsla hans á íslandi hefði hjálpað honum í starfi hans sem sjónvarpsfréttamaður við sjón- varpsstöð í Brasilíu." Umfang AFS samtakanna á ís- landi er ekki mikið á alþjóða vísu. „Ef við aftur á móti miðum við fjölda íbúa er starfsemin hvergi meiri en á íslandi. Við erum alltaf að fá fleiri fósturfjölskyldur á ís- landi en reynslan af því að senda skiptinema hingað er svo góð að við viljum senda enn fleiri og þess vegna vantar fleiri fjölskyldur," segir Ebbe en viðurkennir að fæstir muni eftir íslandi þegar komi af því að velja land. „Fólk nefnir venju- lega lönd eins og Bandaríkin, Þýskaland, Frakkland og Ástralíu vegna þess að það þekkir þessi lönd en við frekari kynningu á öðrum löndum verður fólk forvitið og yfir- leitt tilbúið til að fára annað. Á skrifstofu AFS á íslandi vinna 3 starfsmenn. Einn þeirra er Sigfríður Gunnlaugsdóttir, fram- kvæmdasjóri, en að hennar sögn munu íslendingar hýsa_50 skipti- nema á þessu ári. 130 íslendingar munu dveljast eriendis á vegum samtakanna á árinu en af þeim eru 40 farnir af landi brott. Starfsmenn og sjálfboðaliðar AFS sjá um alla pappírsvinnu varðandi nemenda- skiptin og halda sérstök undirbún- ingsnámsskeið fyrir skiptinemana. „Við reynum að undirbúa þá, sem eru að fara, undir að yfirgefa fjöl- skyldu sínar og þjóð en hina, sem hingað koma, undir að vera á Is- landi og dveljast hjá íslenskri fjöl- skyldu. Þá reynum við að kenna þeim svolítið í íslensku," segir Sigfríður og bendir á að yfirleitt séu skiptinemarnir afar fljótir að komast upp á lagið með að bjarga sér á íslensku. „Ég hef fundið fyrir því að sumt fólk sem vill taka skipti- nema hefur áhyggjur af því að eng- inn í fjölskyldunni tali ensku en slíkar áhyggjur eru óþarfar. Okkur finnst jafnvel betra að fólk tali ekki ensku því þá eru skiptinemarnir fljótari að læra íslensku."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.