Morgunblaðið - 04.07.1991, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÍMMTUDAGUR 4" 'JÚLÍ ’l991
31
12 nýu- tannlækiiar
ÞAÐ SEM af er árinu 1991 hafa 12 nýir tannlæknar bæst við ís-
lensku tannlæknastéttina. Sjö þeirra útskrifuðust 29. júní frá tann-
læknadeild Háskóla Íslands. en fimm frá tannlæknaháskólanum í
Osló, Gautaborg og Stokkhólmi.
Myndin er tekin í móttöku í Tann-
læknafélagi íslands, þegar tann-
læknarnir gengu í félagið og undir-
rituðu félagsheit TFI. Þeir sem
gátu verið viðstaddir eru frá vinstri:
Hraðskák hjá
TR 14. júlí
ÞAÐ sem af er árinu hafa sex
mánaðarleg hraðskákmót verið
haldin hjá Taflfélagi Reykjavík-
ur og eru sex eftir.
Sigurvegarar í ár hafa verið:
Janúar: Sölvi Jónsson, febrúar:
Helgi Áss Grétarsson, mars: Helgi
Áss Grétarsson, apríl: Hannes F.
Hrólfsson, maí: Einar Trausti Ósk-
arsson, júní: Magnús Öm Úlfars-
son.
Næsta mánaðarhraðskákmót
verður haldið sunnudaginn 14. júlí
kl. 20.00 í Faxafeni 12.
Úlfar Guðmundsson, Ólafur Árni
Thorarensen, Sigríður Axelsdóttir,
Héðinn Sigurðsson, Hólmfríður Th.
Sigurðardóttir og Sólveig Þóarins-
dóttir. Á myndina vantar: Ágúst
J. Gunnarsson, Birgi Ólafsson,
Helgu Ágústsdóttur, Kristínu Sig-
urðardóttur, Oddgeir Gylfason og
Vilhjálm H. Vilhjálmsson. Flestir
þessara nýju tannlækna munu hefja
störf úti á landsbyggðinni.
--------------
Leiðrétting-
í FRÉTT um æðarvarp á Sveins-
eyri í Tálknafirði 30. júní sl. var
rangft með farið að stærsta æðar-
varp landsins væri á Læk í Dýra-
firði.
Hið rétta er, að í Æðey í ísafjarð-
ardjúpi er talið vera stærsta æðar-
varp landsins. Hlutaðeigendur em
beðnir velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Um antikomma áróður
eftir Björn E.
Hafberg
Tilefni þessara skrifa er að svara
skrifum Björns Bjarnasonar al-
þingismanns í Morgunblaðið 23.
júní síðastliðinn þar sem hann seg-
ir m.a. um undirritaðan:
„Er ótrúlegt að blaðamaður í
fijálsu og kristnu landi skuli telja
það ámælisvert í prédikun prests
að hann vari við kommúnismanum.
Ef þeir sem búið hafa við ok komm-
únismans kynntust þessu óvenju-
lega íslenska máli myndu þeir hik-
laust draga þá ályktun að blaða-
maðurinn væri fulltrúi hinna örg-
ustu harðlínusjónarmiða, sem nú
eru á hröðu undanhaldi, jafnvel
innan Kremlarmúra.“
Það er ljóst af skrifum Björns
Bjarnasonar áð hann eins og dygg-
ur sjálfstæðismaður lætur einskis
ófreistað að veija klerkastéttina í
landinu. Enda er það eitt af höfuð-
markmiðum Sjálfstæðisflokksins
að landsmenn skuli vera kristnir
hvað sem það kostar eins og svo
eftirminnilega var ítrekað á síðasta
landsfundi flokksins.
Tilefni þessarar ályktunar
Björns er grein sem ég ritaði í
Alþýðublaðið 14. júní þar sem ég
geri m.a. grein fyrir skoðun minni
varðandi dóm yfir Halli Magnús-
syni blaðamanni vegna skrifa hans
um antikommaáróður séra Þóris
Stephensens fyrrum dómkirkju-
prests. I grein minni segir m.a: „En
aftur að máli Halls, hans sök er
m.a. að gera athugasemdir við það
að klerkur nokkur notar predikun-
arstólinn til að koma á framfæri
pólitískum skoðunum og lætur sig
ekki muna um að dæma pólitíska
Björn E. Hafberg
„Er athyglisvert að
hugleiða hvort það er í
raun stefna frjáls-
hyggjuaflanna í Sjálf-
stæðisflokknum að hér
á landi sé rekin þjóð-
kirkja þar sem ríkis-
launaðir umboðsmenn
drottins setja sig í dóm-
arasæti.“
hugsjón og lífsstefnu sem er hon-
um ekki að skapi sem mannfjand-
samlega og hættulega.“ Það er
þessi klausa sem Björn Bjamason
byggir málflutning sinn á.
í greininni sem vitnað er til gerj.
ég ekki síst að umræðuefni þá ein-
kennilegu þróun sem svo oft á sér
stað í fjölmiðlum, þ.e. að athyglin
beinist oftar en ekki fyrst og
fremst að afleiðingum en ekki or-
sökum hlutanna. Það hefur orðið
raunin í máli Halls. Fæstir vita
lengur hvað það var sem að lokum
leiddi til þess að blaðamaðurinn
var leiddur fyrir dóm og sakfelld-
ur. Björn reynir á þennan hátt að
dreifa athyglinni frá kjarna máls-
ins, þ.e. antikommaáróðri prestsins
með því að gera mig tortryggilegan
sem fulltrúa hinna örgustu harðlín-
usjónarmiða eins og hann kemst
að orði. Ef einhver hefur haldið
að kaldastríðsáróður á síðum
Morgunblaðsins væri liðin tíð þá
er það hinn m*esti misskilningur.
I framhaldi af þessu er athyglis-
vert að hugleiða hvort það er í
raun stefna frjálshyggjuaflanna í
Sjálfstæðisflokknum að hér á landi
sé rekin þjóðkirkja þar sem ríkis-
launaðir umboðsmenn drottins
setja sig í dómarasæti, og kveða
upp úrskurð í málum sem á engan
hátt falla undir starfssvið kirkjunn-
ar, svo ekki sé talað um trúfrelsið.
Nema ef vera skyldi að Sjálfstæðis-
menn teldu það náttúrulögmál acf^*
klerkastéttin liggi flöt fyrir auð-
valdinu, eins og sagan hefur oft
sýnt fram á.
Um þýðingu kristindómsins hef
ég í sjálfu sér engar efasemdir, en
ég vildi sannarlega sjá prestana
vinna að göfugri málum en að
standa í áróðurssnatti fyrir anti-
komma, aðrir eru fullfærir um það.
Höfundur er blaðamaður hjá
Alþýðublaðinu.
'AUGL YSINGAR
HÚSNÆÐIÓSKAST
ÝMISLEGT
TILBOÐ - ÚTBOÐ
4ra herbergja íbúð
eða stærri eign í Hafnarfirði óskast til leigu
fyrir 5 manna fjölskyldu.
Upplýsingar í síma 620254.
HÚSNÆÐIÍBOÐI
Vesturbær
Nýleg 2ja herb. íbúðtil leigu íVesturbænum.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
9. júlí merkt: „H - 7897“.
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Aðalfundur Hraðfrystihúss Stokkseyrar hf.
verður haldinn í samkomuhúsinu Gimli,
Stokkseyri, föstudaginn 5. júlí kl. 15.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál. Stjórnin.
Orlof húsmæðra
Útboð
verður dagana 15.-21. júlí að Héraðskólanum
á Laugarvatni.
Upplýsingar veita:
Kjósarhreppur, Steinunn, s. 667032,
Kjalarneshreppur, Oddný, s. 668033
og Bessastaðahreppur, Margrét, s. 650842.
Nefndin.
Úó;_____ ÞJÓNUSTA
Húsasmíðameistari
Húsasmíðameistari getur bætt við sig verk-
efnum við hvað sem er, einnig við smíði á
innréttingum. Hef frábæra smiði.
Upplýsingar í síma 45075 á daginn og 45487
á kvöldin.
Karl Ómar Jónsson,
húsasmíðameistari.
Húsfélagið Hásteinsvegi 60-64, Vestmanna-
eyjum, óskar eftir tilboðum í steypuviðgerð-
ir, endumýjun eða viðgerð á gluggum og
svalahandriðum, vinnupalla og almálun.
Helstu magntölur eru: Steypuviðgerðir og
málun 620 rrú . Gluggar og gler 270 m2 .
Tilboðin skulu miðast við að verktaki leggi
til alla vinnu og allt efni.
Væntanlegum bjóðendum er bent á að panta
útboðsgögn á teiknistofu Páls Zóphónías-
sonar, ráðgjafaverkfræðiþjónusta FRV,
Kirkjuvegi 23, Vestmannaeyjum, sími
(98)12711. Útboðsgögnin verða afhent þar
frá og með fimmtudeginum 4. júlí nk. gegn
10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á Teiknistofu Páls
Zóphóníassonar, Kirkjuvegi 23, Vestmanna-
eyjum, eigi síðar en kl. 10.45 þann 17. júlí
1991 og verða opnuð þar kl. 11.00 í viður-
vist þeirra bjóðenda er þess óska.
Teiknistofa Páls Zóphóníassonar.
FÉLAGSLÍF
KFUK
KFUM
Bænastund í dag kl. 18.00 á
Holtavegi.
fámhjálp
Almenn samkoma í kapellunni í
Hlaðgerðarkoti í kvöld kl. 20.30.
Umsjón: Reynir Einarsson.
VEGURINN Kristið samfélag Túngötu 12, Keflavik Samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir. FERÐAFELAG © ÍSIANDS ÖLDUGÖTU 3 S. 11798 19533 Helgarferðir 5.-7. júlí 1) Þórsmörk/Langidalur. Gist i Skagfjörðsskála. Gönguferðir um Mörkina. 2) Hagavatn - Jarlhettur. Gist í húsi/tjöldum. Gönguferðir um Hlöðuvelli. Gengið á laugardag til Hlöðuvalla og á sunnudag að Geysi. Forvitnilegt landslag, þægileg gönguleiö. 3) Landmannalaugar - gist í sæluhúsi FÍ. HÚTIVIST
Gönguferðir um nágrenni Lauga. Brottför i helgarferðirnar er kl. 20.00, föstudag. Upplýsingar og- farmiðasala á skrifstofunni, Öldugötu 3. Helgarferð með Ferðafélaginu er hvíld fró amstri hversdags- ins - allir velkomnir, félagar og GRÓFINNI1 - REYKJAVÍIC • SÍMI/SÍMSVARI14606
Helgarferðir 5.-7. júlí: Básar á Goðalandi Fararstjóri: Anna Soffía Óskars-
Skipholti 50b Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir innilega velkomnir. Jarlhettudal og að Hagavatni. 3) Hagavatn - Hlöðuvellir - Geysir, bakpokaferð. Gist í sæluhúsum FÍ v/Hagavatn og aörir. Ferðafélag íslands. Fimmvörðuháls - Básar Fararstjóri: Reynir Sigurðsson. Hindfsvík - Hvítserkur -
Borgarvirki
Fararstjóri: Fríða Hjálmarsdóttir
og Jóhanna Sigmarsdóttir.
Hjólreiðaferð
Tveggja daga ferð um Þingvöll
og Grafning. Brottför kl. 09 laug-
ardag, 6. júlí, frá Árbaejarsafni.
Fararstjóri: Ósk Róbertsdóttir.
Landmannalaugar - Básar
Undirbúningsfundur fyrir ferðina
9.-14. júli verður á skrifstofu
Útivistar í dag, 4. júlí, kl. 17.30.
Mikilvægt að allir mæti.
Sjáumst!
Útivist.