Morgunblaðið - 04.07.1991, Qupperneq 39
ieei LIOl .L HUOAQUTMMH GIGAJaUUOHOM
MÖRGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JULl'T991
ROF
Glansbrúðkaupið
sem ekkert varð úr
Eitt umtalaðasta brúðkaup
Hollywood er nú brúðkaup
sem ekkert varð úr, samdráttur
þeirra Juliu Roberts og Kiefers
Sutherland. Dagurinn er liðinn,
tugir iðnaðarmanna höfðu breytt
upptökuskemmu í „aldingarð“ og
búið var að fjárfesta í brúðkaups-
búningum fyrir milljónir. Skart-
gripir, kjólar, blóm. Þau höfðu
verið saman í rúmt ár og fyrir
nokkrum vikum var tilkynnt að
þau yrðu gefin saman nú um
mánaðamótin. En á síðustu
stundu aflýsti Roberts öllu saman
og stakk af til Dyflinnar með
öðrum manni, leikaranum Jason
Patric, sem er jafnaldri Suther-
lands, 24 ára gamall og upprenn-
andi stórstjarna í Hollywood.
Engar skýringar voru gefnar
þannig að blöð ytra spáðu í spilin.
Menn töldu hugsanlegt að fram-
hjáhald Kiefers hefði leikið rullu,
en nánir vinir Juliu báru það til
baka. Kiefer hélt um tíma við
fatafellu nokkra að nafni Amanda
Rice, en þau Julia munu hafa af-
greitt það mál endanlega. Þetta
var í febrúar og atvikið átti sér
stað í kjölfarið á ósætti milli Kie-
fer og Juliu. í mai bar ungfrú
Rice hins vegar salt á sárin með
því að gefa slúðurblaði færi á
mjög „nákvæmu" viðtali við sig
um samband sitt og Kiefer en
bæði hann og blaðafulltrúi hans
báru þá til baka að nokkuð sam-
band hafi verið annað en að þau
Kiefer og Rice hafi stundum leik-
ið billjarð saman á knæpunni þar
sem Rice fækkaði fötum á kvöldin.
Hvort að ungfrú Rice gerði út-
slagið eða ekki liggur ekki fyrir,
samstarfsfólk Juliu segir hana
óútreiknanlga, hún sé bæði ró-
matísk og áhrifagjörn. Hún verði
gjarnan ástfanginn af þeim karl-
leikara sem hún leikur á móti
hveiju sinni. Samband þeirra Kie-
fers byijaði einmitt þannig, þau
léku saman í „Flatliners“. Hún
er einnig sögð afar viljasterk,
þannig að ef hún ætlar sér eitt-
hvað eða vill eitthvað þá stöðvi
hana ekkert og hún sýni þá full-
komið miskunarleysi til þess að
hennar vilji nái fram að ganga.
Varðandi samdrátt Juliu og Ja-
sons Patric er margt á huldu.
Hann kom eiginlega inn í myndina
eins og skrattinn úr sauðaleggn-
um. Þeir Kiefer og Jason kynnt-
ust er þeir léku báðir blóðsugur
í kvikmyndinni „Lost boys“ árið
1987, en það var ein af mörgum
Jason Patric ásamt leikkonunni
Robin Wright sem síðar varð
eiginkona og barnsmóðir leik-
arans Sean Penn.
b-myndum í betri kantinum sem
loðað hafa við Kiefer. Þeim varð
vel til vina í þá daga og nafn
Jasons var á gestalistanum fyrir
brúðkaupið sem ekkert varð úr.
Vinir þeirra Juliu og Kiefers segja
að dag einn, skömmu fyrir vænt-
anlegan brúðkaupsdag hafi Kiefer
skyndilega krafist þess að Jason
yrði ekki boðinn. Enginn veit
hvers vegna, en Julia var aldeilis
ekki á því og varð mikið rifrildi
vegna þessa.
Julia og Jason héldu sum sé til
Dyflinnar, en þau fengu lítinn frið
þar, enda vel þekkt andlit.beggja
vegna hafsins. Þar létu þau í veðri
vaka að á milli þeirra væri einung-
is saklaus vinátta, Julia ætti bágt
með sig og Jason væri einungis
að hugga hana eins og góðum
vini sæmdi. Þau pöntuðu sitt hvort
herbergið á hótelinu til þess að
draga úr umtali sem mest þau
máttu. En það dugði varla til og
nú velta menn því fyrir sér hvort
að Jason Patric fær stóra hlut-
verkið í stórkostlegum vestra sem
tekinn verður upp í byrjun næsta
árs með Juliu Roberts í aðalkven-
hlutverkinu. Búið var að orða það
við Kiefer Sutherland að hann
tæki að sér hlutverkið og hann
hafði tekið því líklega, enda hefur
hann lengi verið óánægður með
þau hlutverk sem hann hefur
fengið og talið hefur verið að öf-
und í garð Juliu hafi verið ein
ástæða af ef til vill mörgum að
upp úr slitnaði á milli þeirra.
Julia og Kiefer.
rÓDYRÁR sumárvorur 1
Bakpoki
kr. 990.-
Bolur
kr. 1190.-
Gallabuxur
kr. 2.990.-
PÓSTKRÖFU-
ÞJÓNUSTA
Sportjakki
kr. 4.900.-
Svefnpoki
kr.. 4.900.-
Einnig: 0 Kakhibuxur 0 Flónelsskyrtur 0 Herropeysur 0 Sportúlpur 0 Vindsett 0 Regnsett 0 Hettubolir 0 Terylinebuxur
0 Sokkar 0 Húfur 0 Rifflaðor flauelsbuxur 0 WAX jakkar 0 Stígvéi 0 Bakpokar 0 Töskur 0 Útilegugræjur 0 O.m.fl.
AILT Á FRÁBÆRU VIRPI
OPNUNARTÍMI Mónudag — föstudag fró kl. 13—18. Laugardag frá kl. 10—14.
I . HLmnQKAmii
0 NtUTLAVbUUH
V. ’ SKODA k^DALBREKKA TOYOTA
L
Hagvöxtur iramtíðar er í lækkuðu vöruverði á hagkvæmum góðum vörum
Nýbýlavegi 4 (Daibrekkumegin), Kópavogi, símar 91-45220
39
Shmsælt
JACOB’S tekex
Ekki bara tekex
j keídur JACOB'S tekex
ilmur karlmannsins,
sem veit hvað hann vill.
Ilmur velgengni
DUGGUVOGI 2 SÍMI 686334