Morgunblaðið - 09.07.1991, Page 11

Morgunblaðið - 09.07.1991, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1991 11 Mikil afskipti ríkisvaldsins af at- vinnulífínu. hér heima hafa haft áhrif á afstöðu manna til atvinnu- rekstrar á ýmsan hátt. Við íslend- ingar eigum vissulega mörgum úr- valsathafnamönnum og færum stjórnendum fyrirtækja á að skipa - mönnum, sem myndu sóma sér mjög vel í viðskiptalífi stórþjóð- anna. Þrátt fyrir það hefur hópur manna vanizt því á undanförnum árum að reka fyrirtæki á ramm- skökkum grundvelli og þekkir varla annað af eigin raun. Þess vegna meðal annars ráku sumir stjómend- ur fyrirtækja upp ramakvein, þegar þeir þurftu loksins að greiða lánsfé til baka, eftir að vísitölubinding lánsfjár var leidd í lög á sínum tíma, en það var gert til að rétta hlut almennings, sem var búinn að tapa stjamfræðilegum fjárhæðum á við- skiptum sínum við bankana vegna verðbólgu. Og þess vegna meðal annars hefur það reynzt jafnerfitt og raun ber vitni að draga úr ítökum stjóm- málamanna í bönkum og sjóðum, að ekki sé talað um einkavæðingu ríkisbankanna, fækkun og samein- ingu fjárfestingarsjóða og erlenda samkeppni á peningamarkaði. Sum- um stjómendum fyrirtækja virðist hrjósa hugur við því að þurfa að keppa um lánsfé á frjálsum mark- aði án milligöngu stjórnvalda eða vinveittra stjórnmálamanna. Höf- uðkostur fijálsrar og heilbrigðrar samkeppni á peningamarkaði er hins vegar einmitt sá, að hún bein- ir lánsfé að þeim verkefnum, sem skila mestum árangri og tryggja eigendum fjárins, fólkinu í landinu, mestan ávinning með því móti, og hún dregur jafnframt úr freistingu stjórnmálamanna og embættis- manna til að mismuna atvinnu- greinum, fyrirtækjum og einstakl- ingum. IV Vald spillir, hefur vitur maður sagt, og algert vald gerspillir. Þessi gömlu sannindi eru ein mikilvæg- asta röksemdin fyrir markaðsbú- skap og meðfylgjandi valddreifingu í lýðræðisríkjurn nútímans. Vald- dreifing er óaðskiljanlegur hluti lýð- ræðis. An hennar geta sterkir hags- munahópar sölsað undir sig auð og völd á kostnað almennings. Öllum þykir það sjálfsagt á okkar dögum, að dómsvaldi sé haldið aðskildu frá framkvæmdavaldi og að dómstólar séu óháðir stjómvöldum, því að dómstólamir eiga meðal annars að gæta réttar almennings gagnvart yfirvöldum. Samt eru ekki nema nokkrir áratugir síðan íslenzkir dómsmálaráðherrar gátu beitt ákæruvaldi ríkisins til að ofsækja Á að gefa gjöf ? , Farðu til Ljósmyndara 3 ÓDÝRASTIR Ljósmyndastofa Kópavogs sími 4 30 20 Barna og fjölskylduljósmyndir sími 1 26 44 Ljósmyndastofan Mynd simi 5 42 07 stjórnmálaandstæðinga sína til dæmis. Það er ekki síður mikilvægt að mínum dómi, að fjölmiðlar og bankar séu óháðir stjómvöldum og stjórnmálaflokkum. Ein alvarleg- asta meinsemdin í kommúnistaríkj- um Austur-Evrópu, sem nú em öll liðin undir lok nema Sovétríkin og Albanía, var einmitt fólgin í forrétt- indum valdastéttarinnar, sem hafði alla þræði þjóðlífsins í hendi sér og komst þannig í aðstöðu til að eyði- leggja efnahagslífið í þessum lönd- um og leggja líf heillar kynslóðar í rúst. Fijáls og heilbrigður markaðsbú- skapur er laus við þennan galla, sé þess gætt að búa svo um hnútana í lögum og reglum, að fjársterkir einstaklingar og fyrirtaéki komist ekki í einokunaraðstöðu og að hag- ur hinna verst settu í samfélaginu sé tiyggður með sanngjömum hætti. Markaðsbúskapur er ekki takmark í sjálfum sér, heldur tæki til að tryggja velferð almennings og viðunandi þjóðfélagsréttlæti. (Þetta er þriðja grein Þorvald- ar Gylfasonar um veldi stjórn- málaflokkanna. Þau mistök hafa orðið við birtingu að grein númer 2 birtist á undan grein númer 1. Eru lesendur vinsamlegast beðnir að athuga það. Blaðið biðst velvirðingar á þessu.) Höfundur er prófessor íhagfræði við Háskóla íslands. Dregið í Baululeik í SÍÐASTA mánuði dreifði MBH-Baula hf. þar til gerðum eyðublöð- um og óskaði eftir tillögum um nöfn á kýrnar sem skreyta jógúrtdós- ir fyrir Baulubros. Rúmlega 2.000 tillögur bárust og nöfnin sem stungið var upp á voru um 200 talsins. Þau nöfn sem þóttu hæfa best þessum kúm vom: Jarðarbeija-Rauðka, Banana-Baula og Karamellu-Klara. Margir vom með þessi nöfn í tillögum sínum og var dregið um það hveijir hlytu verðlaunin sem eru reiðhjól að eigin vali frá Erninum fyrir allt að 30.000 kr. Karen Gylfadóttir, Kristín Rúnars- dóttir, Lilja Björk Ásgrímsdóttir, Lilja Rut Kristófersdóttir, Sandra Mjöll Magnúsdóttir, Sigrún Björk Sigurðardóttir, Sigurrós Hanna Magnúsdóttir, Sonja B. Frehsmann, Stella og Vera, Sturla Reynisson, Tómas Garðarsson, Valgerður Guð- mundsdóttir og Ævar Þór Böðvars- son. (Fréttatilkynning) Hin heppnu vom: Þorgerður Guð- mundsdóttir, Völvufelli 24, Reykjavík, og Sigrún Ella Meldal, Hafnarstræti 18b, Akureyri. Auk reiðhjólanna unnu 30 þátttakendur til aukaverðlauna fyrir fmmleg og skemmtileg nöfn og þeir vom: Agn- es Tiyggvadóttir, Ámi Þór Láms- son, Ámi Már Valmundsson, Baldur Gunnarsson, Birgir Öm Jónsson, Birna Baldursdóttir, Brynjar Már Guðmundsson, Davíð Hilmarsson, Davíð Ársælsson, Egill Eydal, Einar Valur Másson, Elvar Öm Aronsson, Eyrún Björk Einarsdóttir, Friðrik Ársælsson, Hilda og Katrín Áma- dætur, Hildur Droplaug Pálsdóttir, Hólmfríður Sylvia Traustadóttir, Lofta- plötur og lím Nýkomin sending Þ.ÞORGRlMSSON&CO Ármúla 29, Reykjavík, sími 38640 t Heílsuvörur nútímafólks HITACHI HJÓLSÖG 185 mm blað • • Aðeins 4 kg • • 1.150 Wmótor* • 5000 snúninga • •Verð 17.900.-* VÖLUSTEINNh, Faxafen 14, Sími 679505 Umboðsmenn um allt land. — „Við hjá Hótel Leifi Eiríkssyni kappkostum að gera dvöl þína þægilega og eftirminnilega. Hvort sem þú ert í skemmtiferð eða viðskiptaerindum bíður þín hlýlegt og heimilislegt viðmót. Við bjóðum þig hjartanlega velkominn." Starfsfólk Hótels Leifs Eiríkssonar. Hótelið verður almenningi til sýnis miðvikudaginn 10. júlí milli kl. 16 og 19. H OT E L LE I FU R E I R í KSSON SKÓLAVÖRÐUSTÍG 45, REYKJAVÍK, SÍMI 620800, EAX 620809 nun HÓTEL LEIFUR EIRÍKSSON SKÓLAVÖRÐUSTÍG 45, REYKJAVÍK, SÍMI 620800, FAX 620800 Opnum í dag nýtt og glæsilegt hótel á Skólavörðuholtinu Björt og falleg herbergi með baði. Morgunverðarhlaðborð og léttar veitingar í hlýlegu umhverfi við óm kirkjuklukkna. Fagurt útsýni til allra átta. Staðsetning í sérflokki, stutt í verslanir, þjónustu og veitingastaði miðborgarinnar. Sérstakt kynningarverð í sumar EINS MANNS HERBERGI með morgunverði pr. nótt kr. 6.900,' 2JA MANNA HERBERGI með morgunverði pr. nótt kr. 7.900,'

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.