Morgunblaðið - 10.10.1991, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1991
Morgunblaðið/KGA
Hópur 12 ára nemenda afhenti Kára Arnórssyni blómvönd í tilefni
afmælis Fossvogsskóla.
Fossvogsskóli 20 ára
MIKIÐ var um dýrðir í Fossvogs-
skóla í gær er nemendur, kennarar
og foreldrar héldu upp á 20 ára af-
mæli skólans. Dagurinn byijaði á
skrúðgöngu um Fossvogshverfið,
sem leið þó fyrir úrhellisrigningu í
gærmorgun. Boðið var upp á tertur
í tilefni dagsins og elztu nemendurn-
ir afhentu skólastjóra Fossvogsskóla,
Kára Arnórssyni, blómvönd á þessum
tímamótum.
Gengið var fylktu
vogshverfið.
um Foss-
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 10. OKTÓBER
YFIRLIT: Um 400 km vestur af Reykjanesi er vaxandi 990 mb lægð
á leið norðaustur en hæðarhryggur milli fslands og Skotlands þok-
ast suðaustur.
SPÁ: Suðvestankaldi og skúrir vestanlands, en sunnanstrekkingur
eða hvassviðri og rigning austast á landinu. Síðdegis styttir upp
og léttir síðan smám saman til austanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Suðvestlæg eða breyti-
leg átt. Skúrir víða um land, einkum þó á sunnan- og vestanverðu
landinu. Hiti verður á bilinu 4-9 stig að deginum.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TÁKN:
Heiðskirt
LéttskýjaS
Hálfskýjaö
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
f * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■J 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
[T Þrumuveður
/ VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hKf veður Akureyri 6 alskýjað Reykjavík 6 rígning
Bergen 13 skýjað
Helsinki 11 þoka
Kaupmannahöfn 16 hálfskýjað
Narssarssuaq 4 rigning
Nuuk 1 slydda
Ósló 11 þokumóða
Stokkhólmur 17 þokumóða
Þórshöfn 7 skýjað
Algarve 17 háifskýjað
Amsterdam 14 þokumóða
Barcelona 23 þokumóða
Berlín 21 léttskýjað
Chlcago 11 téttskýjað
Feneyjar 18 léttskýjað
Frankfurt 13 þokumóða
Glasgow 12 skýjað
Hamborg vantar
London 16 mistur
Los Angeles 16 þoka
Lúxemborg 16 léttskýjað
Madríd 13 súld
Malaga 16 rigning
Mallorca 26 hálfskýjað
Montreal 9 hátfskýjað
NewYork 12 léttskýjað
Orlando 21 alskýjað
París 14 alskýjað
Madeira 19 skúr á s. ktst.
Róm 24 léttskýjað
Vfn 14 skýjað
Washlngton 10 skýjað
Winnipeg 4 léttskýjað
Framboðið á þrem-
ur fiskmörkuð-
um 28 tonn í gær
„Er að verða sjálfhætt hjá óháðum
verkendum,” segir Sigurður Garðars-
son, fiskverkandi í Vogum
„EINS og ástandið er á fiskmörkuðunum verður brátt sjálfhætt
hjá óháðum fiskverkendum. Aflamiðlun eða útvegsmenn senda
útlendingum fiskinn, það, sem þeir telja hæfilegt vegna verðsins,
en síðan má restin fara inn á fiskmarkaðina,” sagði Sigurður
Garðarsson, fiskverkandi í Vogunum, í samtali við Morgunblaðið.
Sigurður er með 25 manns í
vinnu og til að verða sér úti um
hráefni fór hann í gærmorgun á
þtjá markaði á suðvestursvæðinu,
fiskmarkaðina í Þorlákshöfn og
Hafnarfírði og á Faxamarkað.
„Á þessum þremur mörkuðum
voru boðin upp samtals rúmlega
28 tonn, 14 tonn á Faxamarkaði,
12 í Þorlákshöfn og 2,4 tonn í
Hafnarfirði. Um þetta bitust 50-60
kaupendur en á sama tíma var
verið að fylla sex eða sjö gáma
fyrir utan Faxamarkað. Það fara
13-15 tonn í gáminn þannig að
þetta hafa verið um 90 tonn. Vinn-
an er bara send til Hull °S
Grimsby. Hugsanlega hafa ein-
hverjir náð í fisk, sem dugir í hálf-
an dag, en það, sem kom í minn
hlut, voru 96 kíló. Þau komust
fyrir í tveimur plastpokum,” sagði
Sigurður.
Sigurður sagði, að ástandið á
mörkuðunum í gærmorgun hefði
ekki verið neitt einsdæmi og stað-
an hjá mörgum óháðum fiskverk-
endum þannig, að brátt yrði sjálf-
hætt. Fiskverkunarfólkið sæti
heima heilu og hálfu dagana og
hjá mörgum hefði ekkert verið
unnið þessa vikuna.
Ingi Ú. Magnússon
Sigurður Skarphéðinsson
Nýr gatnamálastj ó r i ráðinn
BORGARRÁÐ hefur samþykkt með fjórum samhljóða atkvæðum.
að ráða Sigurð Skarphéðinsson aðstoðargatnamálasljóra í stöðu
gatnamálastjóra frá og með næstu áramótum í stað Inga Ú. Magn-
ússonar gatnamálastjóra, sem óskað hefur eftir að láta af emb-
ætti vegna aldurs.
A fundi borgarráðs kom fram
tillaga frá minnihluta um að stað-
an yrði auglýst laus til umsóknar.
Tillagan var felld en jafnframt
samþykkt að auglýsa stöðu yfír-
verkfræðings við hönnunardeild
gatnamálastjóra lausa til umsókn-
ar.
Sjávarútvegsráðherra:
Hlutafélag um rekst-
ur Síldarverksmiðja
ríkisins um áramót
STEFNT er að stofnun hlutafélags um rekstur Síldarverksmiðja ríkis-
ins um næstu áramót. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra kynnti
frumvarp þessa efnis í ríkisstjórninni á þriðjudag.
Þorsteinn sagði í samtali við
Morgunblaðið að undirbúningurinn
að þessu máli hefði verið unninn
af nefnd skipaðri fulltrúum þriggja
ráðuneyta og nú lægi lagafrumvarp
þessa efnis fyrir. „Það er stefnt að
því að hægt verði að stofna hlutafé-
lag um rekstur Síldarverksmiðjanna
um næstu áramót,” sagði sjávarút-
vegsráðherra.
Sjávarútvegsráðherra gerði ríkis-
stjórninni jafnframt grein fyrir
stöðu á endurskipulagningu á
stjórnsýslu í sjávarútveginum.
Hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið. að - þsec-breytingar- sem -}>ar-
væru helstar í farvatninu væru að
ýmis veigamikil verkefni væru tekin
út úr sjávarútvegsráðuneytinu og
sett á lægra stjórnsýslustig. Réttar-
öryggi yrði tryggt betur en áður,
þar sem ekki yrðu sömu aðilar sem
úthluta réttindum og hafa eftirlit
með þeim og úrskurða síðan í
ágreiningsefnum.
„Við erum nú að hefja viðræður
við Fiskifélagið um hugsanlegt
samstarf um þessar breytingar, sern
varða framkvæmd á úthlutun veiði-
Ieyfa, veiðieftirlit, aflaskýrslur og
Ríkismat sjávarafurða,” sagði sjáv-
-arútvegsráiðherrar------------