Morgunblaðið - 30.10.1991, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B
247. tbl. 79. árg.________________________________MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1991_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Forseti Kazakhstans:
Kjamavopnin heyra
einnig undir okkur
London. Reuter.
NURSULTAN Nazarbajev, for-
seti Kazakhstans, sagði í gær
að stjórn sín vildi ráða yfir
kjarnorkuvopnunum í lýðveld-
inu ásamt miðstjórn Sovétríkj-
anna. Yfirvöld í Úkraínu settu
svipaðar kröfur fram í síðustu
viku.
Nazarbajev er nú í opinberri
heimsókn í Bretlandi. „Kazakhstan
Finnski fjármála-
ráðherrann:
Ríkisstarfs-
menn allt
of margir
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara
Morgunblaðsins.
IIRO Viinanen, fjármálaráð-
herra Finnlands, segir í viðtali
við dagblaðið Turun Sanomat
að hann vifli fækka ríkisstarfs-
mönnum um 200.000, eða um
þriðjung. Finnsk launþegasam-
tök brugðust ókvæða við þessari
yfirlýsingu.
Finnar búa við margfalt stjórn-
kerfi sem er arfur frá því þjóðin
var undir Rússakeisara. Pjármála-
ráðherrann segir að einkum þurfi
að draga úr skriffinnskunni en
ekki megi fækka starfsfólki í heil-
sugæslu og kennslu. Hann hefur
ekki lagt til að opinberum starfs-
mönnum verði sagt upp, en vill að
nýtt starfsfólk verði ekki ráðið í
stað þess sem fer á eftirlaun eða
lætur af störfum af öðrum ástæð-
um.
Viinanen hefur að undanfömu
átt í deilum við stéttarfélög ríkis-
starfsmanna vegna áforma ríkis-
stjómarinnar um að senda opin-
bera starfsmenn í launalaust leyfi
til að draga úr ríkisútgjöldum.
ætlar sér ekki að verða kjamorku-
veldi hvorki á heimsmælikvarða
né í okkar heimshluta,” sagði hann
í ræðu hjá Konunglegu bresku al-
þjóðamálastofnuninni. En samt
ætluðu stjómvöld í Kazakhstan
ekki að afsala sér stjóm kjarnorku-
vopnanna í hendur Rússum eða
miðstjórninni. Sagði hann að lausn
vandans fælist í því að ekki yrði
hægt að beita kjarnavopnunum í
lýðveldum Sovétríkjanna nema
bæði miðstjórnin og lýðveldis-
stjórnin ættu þar hlut að máli.
Bókstaflega yrði um tvo lykla að
ræða að stjórnbúnaðinum. Sagði
hann þetta sambærilegt við stjórn-
un bandarískra kjarnavopna í Evr-
ópu.
Jevgeníj Shaposníkov, vamar-
málaráðherra Sovétríkjanna, sagði
hins vegar í Moskvu í gær að
kjarnavopnin yrðu áfram undir
einni miðstjóm. Sagðist hann geta
fullvissað menn um að engin hætta
væri á að vopnin lentu í höndum
öfgamanna.
Reuter
George Bush Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov forseti Sovét-
ríkjanna heilsast á blaðamannafundi þeirra í Madrid í gær. Kom þar
fram að á hádegisverðarfundi þeirra hefði aðstoð við Sovétríkin
borið á góma en engin ákvörðun verið tekin. Bush hefði spurt mik-
ið um ástandið í lýðveldum Sovétríkjanna og hefði Gorbatsjov sagt
að Úkraína ætlaði að undirrita samkomulag um efnahagssamstarf.
Fyrrum kommúnistar
sigurvegarar í pólsku
kosningunum:
Lech Walesa
vill verða for-
sætisráðherra
Varsjá. Reuter.
LECH Walesa, forseti Póllands,
sagði í gær í samtali við Reuters-
fréttastofuna að réttast væri að
hann gegndi embætti forsætis-
ráðherra og stjórnaði landinu í
kjölfar kosninganna á sunnu-
dag.
Þegar einungis átti eftir að telja
örfá atkvæði í gærkvöld var Lýð-
ræðisbandalag vinstrimanna, arf-
taki kommúnista, komið fram úr
aðalfylkingu Samstöðu, Lýðræðis-
sambandinu, og útlit fyrir að það
yrði því stærsti flokkur landsins.
Ljóst er að atkvæði dreifðust svo
mjög að 23 flokkar verða í neðri
deild pólska þingsins og fékk eng-
inn þeirra meira en 13% atkvæða.
Það torveldar mjög stjómarmynd-
un og sagði Walesa að eina færa
leiðin væri sú að hann yrði forsæt-
isráðherra. Síðan væru ýmsir
möguleikar varðandi það hvaða
flokkar yrðu í ríkisstjórn með for-
setanum.
Ráðstefna um frið í Miðausturiöndum hefst í Madrid í dag:
Þvingum engan til sátta
nærvera okkar er hvatning
- sagði Bush Bandaríkjaforseti á blaðamannafundi með Gorbatsjov Sovétforseta
Madrid. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti
og Míkhaíl Gorbatsjov forseti Sov-
étrikjanna skoruðu í gær á þátt-
takendur í ráðstefnu um frið í
Miðausturlöndum sem hefst í
Madrid í dag að láta ekki sögulegt
tækifæri sér úr greipum ganga.
Forsetarnir snæddu saman hádeg-
isverð í gær og að honum Ioknum
héldu þeir sameiginlegan blaða-
mannafund. Gorbatsjov skoraði á
þá sem komnir eru til ráðstefn-
Öryggið í fyrirrúmi
Madrid. Frá Ragnari Bragasyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
SÉRSVEITIR lögreglu eru með mikinn öryggisviðbúnað í Madrid
vegna ráðstefnunnar um frið í Miðausturlöndum, enda er þar
margt þjóðarleiðtoga, auk samninga- og blaðamanna.
Götulífíð í borginni er gjör-
breytt. í stað digru lögregluþjón-
anna, sem venjulega gera sitt besta
til að greiða fyrir umferð um helstu
gatnamót eru komnir vígalegir
liðsmenn sérsveita, vopnaðir vél-
byssum og klæddir skotheldum
vestum.
Spænska stjórnin pantaði öll
herbergi í lúxushótelum borgarinn-
ar um leið og gert var opinbert
fyrir viku að ráðstefnan yrði hald-
in í Madrid. Blaðamennimir sem
fylgjast með ráðstefnunni eru
flestir frá Spáni, eða 2.700, en
næstir koma Bandaríkjamenn með
628, svo Bretar með 266. Banda-
ríska sjónvarpsstöðin CNN ein er
með 90 manns á staðnum.
Sendinefndimar og fylgdarlið
þeirra em einnig fjölmennar, til
að mynda em samningamenn
Jórdana og Palestínumanna 160
og Sýrlendinga 140. 10.000 lög-
regluþjónum hefur verið falið að
gæta 47 hótela, sem sendinefnd-
irnar og blaðamennirnir hafa lagt
undir sig, auk sendiráða og svo
konungshallarinnar, þar sem ráð-
stefnan fer fram.
unnar að leggja sig alla fram um
að vinna að friði, þeir skyldu „sýna
ábyrgð í verki og djúpan skiln-
ing.” Bush hafði þetta að segja:
„Við erum ekki komnir hingað til
að þvinga fram sættir, nærvera
okkar er hvatning.”
Gorbatsjov og Bush flytja ávörp í
dag við setningu ráðstefnunnar en
fyrsta lota hennar stendur í þrjá
daga. Orð þeirra á blaðamannfund-
inum í gær vom varfæmisleg. „Ég
ætla ekki með ummælum mínum hér
að gefa neinum átyllu til að hverfa
á braut eða setja fram nýja skil-
mála,” sagði Bush.
Ráðstefnan er haldin í skugga
átaka og hryðjuverka í ísrael og
Suður-Líbanon undanfama tvo daga.
Þrír ísraelskir hermenn og tveir
óbreyttir borgarar hafa fallið. í gær-
kvöldi var eldflaug skotið að banda-
ríska sendiráðinu í Beirút í Líbanon.
Engan sakaði. Talið er að árásum
þessum sé ætlað að spilla friðarráð-
stefnunni. Auk þess hafa borist
óstaðfestar fregnir um mannfall í
búðum Palestínumanna í Líbanon
eftir árásir Israela. Bush Bandaríkja-
forseti fordæmdi ofbeldisverkin í gær
og sagði að þau ættu að verða mönn-
um hvatning til að stuðla að árangri
í Madrid.
Við komuna til Spánar í gær sagði
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra
ísraels: „Þessar viðræður verða ekki
auðveldar en þær era grundvöllur
undir traustan og varanlega frið. En
til em þeir sem eru ekki gagnteknir
friðarástríðu heldur blóðþorsta.”
Yitzhíik Shamir, forsætisráð-
herra Israels, með ráðgjafa sín-
um á leið til Madrid.
Hann bætti því við að sumir kynnu
að hafa búist við að ísraelar myndu
hætta við þátttöku eftir árásir skær-
uliða á ísraelska borgara undanfarna
daga. „En þrátt fyrir ofbeldið, stefn-
um við ótrauðir að friði.”
Hanan Ashrawi, talsmaður pale-
stínsku sendinefndarinnar í Madrid,
sagði að yfirlýsingar ísraelskra ráða-
manna um að öll mál mætti ræða á
ráðstefnunni vektu vonir um sátta-
vilja þeirra. „Ég held að þetta sé
merki um meiri sveigjanleika og vilja
til að friðarferlið þróist í rétta átt,”
sagði hún. Hún vísaði þvíá bug að
hún hefði á nokkurn hátt hvatt til
ofbeldisverka á hernumdu svæðun-
um eins og ísraelski varnarmálaráð-
Hanan Ashrawi, talsmaður pal-
estínsku sendinefndarinnar, að
loknum fréttamannafundi í gær.
herrann hélt fram í gær. Hún sagði
ennfremur að Bandaríkjamenn væru
mjög hógværir þegar þeir segðust
ekki ætla að þvinga fram lausn mála.
Sagði hún að í raun yrði ekki hægt
að ná friði nema með alþjóðlegri
aðstoð.
Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis-
samtaka Palestínu (PLO), hvatti í
gær alla Palestínumenn til að standa
við bakið á fulltrúunum í Madrid.
Ekki ætti að leyfa öfgahópum hlið-
hollum írönum að spilla ráðstefn-
unni. Arafat er staddur í Túnis enda
á PLO ekki fulltrúa á ráðstefnunni.
Sjá fréttir á bls. 20-21 og grein
á miðopnu.