Morgunblaðið - 30.10.1991, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1991
7
Fjögur ný tónverk frum
flutt eftir Askel Másson
FJÖGUR tónverk eftir Áskel
Másson tónskáld verða frum-
flutt í fyrri hluta nóvember-
mánaðar á íslandi og í Sviþjóð.
Einnig verður eitt eldri verka
Áskels endurflutt á sex tónleik-
um í Svíþjóð og Danmörku á
sama tímabili.
Verk Áskels, Októ Nóvember,
verður flutt á tónleikum í fimm
borgum Svíþjóðar í fyrri hluta
nóvember. Verkið verður einnig
flutt í Louisiana safninu í Dan-
mörku og hljóðritað af Danska
ríkisútvarpinu.
Sjöunda nóvember frumflytur
Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar
verkið Marimbu konsert eftir
Áskel. Tónleikunum stjórnar jap-
anski hljómsveitarstjórinn Juníchi
Hirokami og einleikari verður
Roger Carlsson. Verkið verður
hljóðritað í nóvember og síðar
gefið út á geisladiski. Um svipað
leyti verður annað tónverk eftir
Áskel frumflutt á alþjóðlegri slag-
verkshátíð í Stokkhólmi. Það er
samið upp úr Marimbu konsertn-
um fyrir einleiksmarimbu.
Tvö tónverk eftir Áskel verða
síðan frumflutt í Reykjavík hinn
tólfta nóvember. Annað er þrjú
smálög fyrir klarinettu en hitt er
fantasía fyrir klarinettu og semb-
al.
Verkið Októ Nóvember fyrir
strengjasveit var flutt tvisvar
sinnum í liðinni viku í Háskóla-
bíói. „Aðrir tónleikarnir voru hluti
Morgunblaðið/KGA
Áskell Másson tónskáld.
af menningarátaki Háskóla ís-
lands og ég hef sjaldan séð þakkl-
átari tónleikagesti. Það var greini-
legt að þeir voru að upplifa eitt-
hvað nýtt og þeir sýndu svo sann-
arlega að þeir kunnu vel að meta
flutning Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands,” sagði Áskell í samtali við
Morgunblaðið.
Síðastliðin átta ár hefur Áskell
eingöngu unnið við tónsmíðar og
hefur hann fengið mörg verkefni
utan frá. „Um þessar mundir er
ég að ljúka við blásarakvintett
sem er pöntun frá Svíþjóð og verð-
ur væntanlega frumfluttur í jan-
úar. Það liggur ekki ljóst fyrir
hvað ég tek mér fyrir hendur þá
en ég tel mig vera búinn að sanna
að það er ómögulegt að lifa ein-
göngu af tónsmíðum hérlendis,”
sagði Áskell að lokum.
Patrcksfjörður:
Seljum Patrek
til að minnka
skuldirnar
- segirfram-
kvæmdastjóri Odda
HIÐ nýstofnaða útgerðarfyrir-
tæki á Stöðvarfirði og Breiðdal-
svík hefur fest kaup á Patreki BA,
172ja tonna frystiskipi frá Pat-
reksfirði. Oddi hf. sem gerir út
Patrek er með sölunni að minnka
skuldir fyrirtækisins en kvóti fyr-
irtækisins minnkar um fjórðung
við söluna.
„Við leitum auðvitað að hentugum
vertíðarbát fyrir Patrek, en það er
ekkert í hendi í staðinn fyrir hann
enn sem komið er. Patrekur er of
dýr og við völdum þá leið að selja
þetta góða skip til að draga úr skuld-
um á meðan vextir er svona háir.
Við ætlum að vinna okkur niður og
vinna okkur síðan upp aftur,” sagði
Sigurður Viggósson framkvæmda-
stjóri Odda hf. á Patreksfirði.
Kvótinn er seldur með Patreki til
hins nýja fyrirtækis á Stöðvarfirði
og Breiðdalsvík og kvóti Odda hf. á
Patreksfirði minnkar um fjórðung í
vinnslu við það, en skipið var með
508 þorskígilda kvóta.
„Það er ljós að rekstuirnn dregst
eitthvað saman við þetta. Það er
full atvinna hjá okkur og talsvert að
aðkomufólki, en við munum aðeins
halda frystingunni í gangi í vetur,
ætlum ekki að salta. Það er ekkert
spennandi að verka fisk á íslandi
núna. Það má í rauninni segja að
því minna sem unnið er því minna
verður tapið,” sagði Sigurður.
-----♦-♦-4----
Sameining Borgar-
spítala og Landspítala:
Gengur þvert
gegn stefnu
stjórnvalda
„ÞESSI skýrsla gengur þvei-t á
þá stefnu, sem heilbrigðisráðu-
neytið hefur markað, að kanna
hugsanlega sameiningu Borgar-
spítalans og Landakotsspítala, en
ég tel ekki rétt að tjá mig um
efni skýrslunnar að öðru leyti á
þessu stigi máls,” sagði Jóhannes
Pálmason, framkvæmdasljóri
Borgarspítalans.
Eins og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu á laugardag leggur erlent
ráðgjafarfyrirtæki til að Borgarspít-
ali verði sameinaður Landspítala.
Fyrirtækið, Moret, Earnst and Yo-
ung, telur sameiningu Borgarspítala
og Landakotsspítala óhagkvæma.
Heilbrigðisráðuneytið hefur hins veg-
ar ákveðið, að stefna beri að samein-
ingu síðastnefndu sjúkrahúsanna.
Jóhannes Pálmason baðst undan að
tjá sig um skýrsluna, en benti á að
niðurstaða hennar gengi þvert á
stefnu íslenskra stjórnvalda. „Fólk
hefur rétt á að hafa sína skoðun, en
ég er ekki tilbúinn að tjá mig um
efni skýrslunnar á þessu stigi máls,”
sagði hann.
79.900
stgr.
Innifalið 80286 örgjörvi, 1 MB minni,
1,44 MB disklingadrif, 60 MB
seguldiskur, 8513 litaskjár, Dos 5.0
og vélritunar-KORN
;g
m/vsk.
,/nRM
F'árha9^,Us-KOBH meö
, afs\a6tt'
ðlaert
SÉ,S?tK«i
-sSSSL
ktaPrenta«snu>f'
iér\kJ?erS kl-
l99.900
Brautarholti 8 • 108 Reykjavík
Sími: 615833 • FAX 91 -621531
SAMEIND se****^
Nú á lægra
verði en
eftirlíkingar
Aðeins kr.