Morgunblaðið - 08.12.1991, Side 2
2 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1991
EFNI
Aurskríður loka veg-
um á Vestfjörðum
AURSKRIÐUR hafa lokað veg- I lokaðist vegna aurskriðu að-
um á tveimur stöðum á Vest- faranótt laugardagsins en við-
fjörðum um helgina. Vegurinn gerð hófst strax og tókst að
milli ísafjarðar og Hnífsdals I opna veginn eftir skamma
stund.
Á laugardagsmorgun kom í ljós
að aurskriður höfðu einnig lokað
veginum í Mjóafírði, skammt frá
bænum Hörgshlíð. Hafist var
handa við að ryðja veginn fyrir
hádegi á laugardag og samkvæmt
upplýsingum frá Vegagerðinni á
Vestfjörðum var áætlað að því
verki yrði lokið síðdegis þann dag.
Jakob Þorsteinsson, starfsmað-
ur Vegagerðarinnar, segir að þess-
ar aurskriður séu til komnar vegna
óhemjumikilla leysinga á þessum
slóðum að undanfömu. „Hér hefur
verið allt að 8-9 stiga hiti að degin-
um og hafa leysingar orsakað
þessar aurskriður. Þar að auki
hefur gengið á með skúrum,” seg-
ir Jakob. „Um tíma var útlit fyrir
að mikill vatnsflaumur af völdum
leysinga myndi loka Breiðdalsheið-
inni en það tókst að bjarga því
máli. Fyrir utan þessi tvö óhöpp
er allt í besta lagi hjá okkur og
allar heiðar færar.”
Vakað og bakað í Fellahelli
Þessir knáu unglingar úr diskótekaraklúbbi félagsmiðstöðvarinnar
Fellahellis í Breiðholti hófu Maraþonbakstur um hádegisbil á föstu-
dag og bökuðu piparkökur án afláts í heilan sólarhring. Tilgangurinn
með bakstrinum var að safna gjöfum og áheitum til að bæta hljóm-
tækjakost félagsmiðstöðvarinnar. Að loknum sólarhringsbakstri hafði
diskótekaraklúbburinn bakað sex þúsund piparkökur og ætti því
ekki að skorta góðgæti í Fellahelli á jólunum.
Fiskvinnslufyrirtækin í Vestmannaeyjum:
Nær öll fyrirgreiðsla
banka verið stöðvuð
- segir Arni Johnsen alþingismaður
ÁRNI Johnsen, J)ingmaður Sunnlendinga, sagði í ræðu á Alþingi
fyrir nokkru að Islandsbanki hefði stöðvað nær algjörlega alla fyrir-
greiðslu til stærstu fiskvinnslufyrirtækja og útgerða í Vestmannaeyj-
um. Tryggvi Pálsson, bankastjóri íslandsbanka, sagði í samtali við
Morgunblaðið að af þessum orðum Árna mætti ætla að bankinn
hefði gripið til einhverra afdrifaríkra aðgerða en svo væri ekki.
meðvitund og var fluttur á
sjúkrahús en er ekki talinn alvar-
lega slasaður.
Ökumaður hins bílsins ók af
vettvangi. Lögreglan á Akureyri
hóf þegar leit að honum og fann
bílinn í gærmorgun við skemmu
á Oddeyri. Eigandi hans var
ekki fundinn þegar síðast fréttist
en hann liggur undir grun um
að hafa valdið árekstrinum í
ölvunarástandi.
Borgarkringlan:
Opið í dag-
Allar verzlanir í Borgarkringl-
unni verða opnar í dag, sunnudag,
frá klukkan 13-18. Lifandi tónlist
verður flutt, höfundar árita bækur,
boðið er upp á tízkusýningu og fyr-
irtæki verða með vörukynningar. í
baksíðufrétt í gær mátti skilja að
lokað væri í dag í Borgarkringlunni
og leiðréttist þetta hér með.
í ræðu sinni sagði Árni Johnsen
m.a. að í Vestmannaeyjum væri nú
unnið að könnun á sameiningu á
nokkrum af stærstu fyrstihúsum þar
og útgerðum þeim tengdum en málin
væru erfið vegna mikillar skuldsetn-
ingar. „Skuldsetningin er svo mikil
að það er stórkostlegt vandamál að
skapa rekstrarhæfa einingu með all-
ar skuldirnar á bakinu og staðan svo
alvarleg að aðalbanki Eyjanna hefur
stöðvað nær algjörlega alla fyrir-
greiðslu sem að öllu jöfnu væri eðli-
leg við heilbrigðar aðstæður,” sagði
Ámi.
Tryggvi Pálsson bankastjóri sagði
að ástandið í Vestmannaeyjum væri
ekki verra en annars staðar í sjávar-
útvegi á landinu en vissulega væru
horfur í þessari atvinnugrein sem og
öllum öðrum greinum mjög dökkar.
„í afstöðu okkar til viðskiptavina í
Vestmannaeyjum er ekkert til staðar
sem ekki á við annars staðar og við
í íslandsbanka reynum eins og hægt
er að vinna að þessum málum á fag-
legum grundvelii,” sagði Tryggvi.
„Við teljum að slíkt þjóni okkar við-
skiptavinum best og við höfum hing-
að til talað milliliða- og tæpitungu-
laust við þá um þetta ástand. Við
vinnum með viðskiptavinum okkar
að lausnum en ekki í gegnum yfirlýs-
ingar í fjölmiðlum.”
Stakkaf
eftir að
hafa vald-
ið slysi
UNGUR maður slasaðist í
árekstri við Norðurgötu á
Akureyri um áttaleytið á
föstudagskvöld er bíl var ekið
á annan kyrrstæðan.
Slysið bar að með þeim hætti
að ungi maðurinn stóð hjá kyrr-
stæðum bíl sem hann hafði verið
farþegi í og var að kveðja bíl-
stjórann. Þá bar þar að bifreið
sem var ekið á horn og opna
framhurð farþegamegin á hinum
kyrrstæða. Maðurinn klemmdist
milli hurðar og bíls. Hann missti
meðvitund og var fluttur á
sjúkrahús en er ekki talinn alvar-
lega slasaður.
Ökumaður hins bílsins ók af
vettvangi. Lögreglan á Akureyri
hóf þegar leit að honum og fann
bílinn í gærmorgun við skemmu
á Oddeyri. Eigandi hans var
ekki fundinn þegar síðast fréttist
en hann liggur undir grun um
að hafa valdið árekstrinum í
ölvunarástandi.
Mál ættingja Andy Warhols gegn læknum og hjúkrunarfólki:
„Læknar hvorki ollu né
flýttu dauða Warhols”
- sögðu lögfræðingar sjúkrahússins í réttinum
LÖGMENN New York Hospital og læknanna Denton S. Cox og
Bjöms Þorbjarnarsonar sögðu fyrir rétti á Manhattan í fyrra-
dag, að Andy Warhol hefði verið á góðum batavegi eftir vel heppn-
aða skurðaðgerð þegar hann lést skyndilega af hjartaáfalli í
svefni. Banamein hans hefði verið þjartaflökt, sjúkdómur sem
árlega verður 400 þúsund Bandaríkjamönnum að aldurtila.
„Læknar og hjúkrunarlið The New York Hospital hvorki ollu,
áttu þátt í, né flýttu fyrir dauða hr. Warhols,” sagði Bruce G.
Habian, lögmaður sjúkrahússins í rétti í fyrradag, að sögn banda-
ríska dagblaðsins The New Yi
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu sl. föstudag hafa ættingj-
ar Warhols höfðað skaðabótamál
á hendur sjúkrahúsinu, fyrr-
greindum læknum og öðrum úr
starfsliðinu fyrir að hafa valdið
dauða listamannsins með því van-
rækja eftirlit með líðan hans og
gefa honum meiri vökva í æð en
líðan hans þoldi eftir að læknarn-
ir Björn og Cox höfðu með skurð-
aðgerð fjarlægt sýkta gallblöðru
listamannsins.
Fram kom í vitnisburði dr. Cox
að meinsemd í gallblöðru lista-
Times.
mannsins hefði greinst 1973 en
hann hefði aftekið að gangast
undir aðgerð allt þar til það var
orðið óumflýjanlegt. „[Warhol]
var sannfærður um að hann
mundi deyja ef hann yrði lagður
inn á sjúkrahús,” sagði hann í
vitnisburði sínum. Dr. Cox, sem
var vinur og læknir listamannsins
allt frá árinu 1960, rakti þennan
ótta Warhols til þess er hann
særðist hættulega í skotárás sem
hann varð fyrir árið 1968. Lækn-
irinn sagði að tii að bægja frá sér
vanlíðan hefði Warhol tekið þátt
í tilraunum með nýtt lyf og treyst
á óhefðbundin meðul eins og að
ganga með „lækningakristallá” í
vasanum og notá heftivír fyrir
eyrnalokka.
Dr. Björn Þorbjörnsson hefur
ekki enn borið vitni í málinu að
því er fram kom í samtali Morgun-
blaðsins við blaðamann The New
York Times, Ronald Sullivan, og
hefur ekki verið tilkynnt hvenær
hann ber vitni.
Lögmaður Bjöms og Dantons
Cox sagði að því er fram kemur
í frétt Reuters-fréttastofunnar í
ávarpi til kviðdómsins að það
væri álíka fjarstæðukennt að
halda því fram að dauða Warhols
mætti rekja til þess að honum
hefði verið gefinn of mikill vökvi
í æð og að segja að kýr hefðu
vængi og flygju um. I New York
Times segir að lögmaðurinn hafi
vitnað í skýrslu réttarlæknis, sem
framkvæmdi krufningu, og sagt
að læknarnir, sem skildu sjúkling-
inn eftir í umsjá hjúkrunarfræð-
ings sem sinnti honum einum, og
litu sjálfir á hann 8 og 12 stundum
áður en ástandi hans fór að hraka,
hefðu ekkert getað gert til að
koma í veg fyrir hjartaáfallið.
Ættingjar Warhols höfðuðu
málið á þeim grundvelli að tveir
aldraðir bræður listamannsins,
sem hann hefði ætlað að sjá fyrir
til dauðadags, hefðu orðið fyrir
tjóni við dauða listamannsins, en
þeirra var að engu getið í erfða-
skrá hans. Bandarísk skattayfir-
völd telja að eigur Warhols á dán-
ardægri hafi verið um 6 milljarðar
króna, um 100 milljóna dala, virði
en að sögn Reuíers-fréttastofunn-
ar telja aðrir sem til hefur verið
leitað að dánarbú hans hafi verið
allt að þrefalt verðmætara.
Skaðabótakröfum stefnendanna
mun ekki hafa verið nákvæmar
lýst í gærkvöldi en svo að tjón
bræðra Warhols væri metið á tugi
milljóna Bandailkjadala.
Fríathafnasvæði
►Mikil umræða hefur skapast um
það hvernig auka megi tengsl ís-
lands við erlenda markaði og aðild
útlendinga að atvinnurekstri hér-
lendis./lO
Við erum vongóð
►Rætt við Ragnar Þorgeirsson
og Kolbrúnu Pálsdóttur um Tour-
ette-sjúkdóm og glasafrjóvgun./18
Þriggja daga klúður
►Margt er enn á huldu um mis-
heppnað valdarán sovéskra harð-
línukommúnista í Sovétríkjunum í
ágúst síðastliðnum./22
Úkraína á útleið
►Úrslitjijóðaratkvæðagreiðsl-
unnar í Úkraínu kunna að hafa
gert tilraunir Míkhaíls Gorbatsjov
forseta til að bjarga sovéska ríkja-
sambandinu að engu./24
í sviptivindum
►Sigurður Helgason var í fylking-
arbijósti í íslenskum flugmálum í
nærfelltþijátíu ár./26
Staðið í ströngu
►Erlendur Einarsson var um
langt árabil í framvarðasveit ís-
lenskra samvinnumanna og for-
stjóri Sambands íslenskra sam-
vinnumanna í rúma þijá ára-
tugi./34
BHEIMILI7
FASTEIGNIR
► 1-28
Þjónustusvæði aldr-
aðra
►Uppbygging þjónustusvæðis
aldraðra að hefjast við Sólvang./14
Sálin verður svo *
íturhrein
► Stefán H. Magnússon hrein-
dýrafræðingur býr á frumbýli við
rætur Grænlandsjökuls, ásamt
grænlenskri eiginkonu oghrein-
dýrahjörð./lÞ og6-7
Heiðar
►Út er komin bók um Heiðar
Jónsson, þar sem hann ræðir opin-
skátt um sjálfan sig, líf sitt og
störf./4
Forríku Floridadverg-
arnir
►Rice-bræður fundust nýfæddir í
pappakassa fyrir utan munaðar-
leysingjahæli, en eru nú í hópi rík-
ustu manna Bandaríkjanna./lO
Heitirðu Ómar
►Ómar Ragnarsson kemur víða
við í æskuminningum sínum og
hér segir frá dvöl Ómars í sumar-
búðum KFUM í Kaldárseli./12
25 ára umhugsun
►Savannatríóið tekur upp þráðinn
þar sem frá var horfið - eftir 25
ára hlé./16
Hver dagur er tilraun
►Reykjavík með augum Ragnars
Axelssonar Ijósmyndara./18
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak
Dagbók 8
Hugvekja 9
Leiðari 30
Helgispjall 30
Reykjavíkurbréf 30
Fólk í fréttum 54
Útvarp/sjónvarp 56
Gárur 59
Mannlífsstr.. 8c
Fj'ölmiðlar 20c
Dægurtónlist 22c-3c
Kvikmyndir 25c
Minningar 24c
Myndasögur 28c
Grids 28c
Stjömuspá 28c
Skák 28c
Bíó/dans 30c
Á förnum vegi 32c
Velvakandi 32c
Samsafnið 34c
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4