Morgunblaðið - 08.12.1991, Qupperneq 5
víiiu>y
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1991
5
Kúaskítur og
norðurlj ós
„Sál mín var dvergur á dansstað í gær“ - þannig hefst þessi nýja og
myndauðuga ljóðabók Steinunnar Sigurðardóttur, rithöfundar og
ljóðskálds. Bókin nefhist Kúaskítur og norðurljós, og þar kveður við
nýjan, sáran tón. Þetta er persónuleg og fjölþætt bók sem án
efa má telja bestu ljóðabók Steinunnar til þessa. Ljóð
Steinunnar bera sömu stíleinkenni og skáldsögur hennar
og þar fléttast saman sterkir þættir visku, frumleika og
afvopnandi einlægni.
IÐUNN
Lendar
ans
Vigdís Grímsdóttir hefur hlotið lof fýrir hnitmiðaðar og djúpsæar sögur
sínar og ljóð; verk gædd stíltöfrum ofnum af orðkynngi, fegurð og
miskunnarleysi. Hún reynir á tilfinningar lesenda sinna, gengur nærri þeim,
hrífur þá með sér, heillar þá.
Bókin Lendar elskhugans er heitur og seiðandi skáldskapur
sem geymir sterkar, fágaðar myndir, þrungnar trega og þrá;
ramman galdur eða draumkennt ævintýri þar sem „allt er
reikul vísan á eitthvað sem var“. ji
IÐUNN
Felustaður tímans
Sviðið er vítt í fjórðu ljóðabók Sveinbjörns I. Baldvinssonar, Felustaður
tímans. í henni er ljóðabálkur þar sem hugur skáldsins reikar um afkima
og breiðstræti Los Angeles. En hann leitar einnig heim á leið og
skáldið finnur hálfgleymdan felustað tímans á bernskuslóðum í
gömlu Reykjavíkurhverfi. Hlý og stundum
brosmild íhygli Sveinbjörns, sem hlotið hefur
viðurkenningar og lof fyrir smásögur sínar og
leikrit, nýtur sín vel í þessari bók.