Morgunblaðið - 08.12.1991, Side 14
SÍ4
teei ítaaMagao .8 flitOAayiíHU8 aiöAJa/tUOHOM
MORGUNtíLAWirSUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1991
mum
Nýjar uppfyndingar gera mönnum lífið létt
ívar Guðmundsson skrifar frá Washington
MEST af þeim pósti sem borið er til manna í þessu landi gengur
undir nafninu „ruslpóstur” og ber nafn með réttu og rentu. Þarna
er að finna betlibréf allskyns og gylliboð, loforð um gullið og
skógana sígrænu. Milljónum dollara er heitið í happadráttum, sem
ekki kosta þátttakendur neitt NEMA að gerast áskrifandi að bókar-
skruddu eða skrautlegu íþróttatímariti og borga áskriftina fyrir-
fram fyrir árið allt. „Látið nú ekki happ úr hendi sleppa til að
auðgast fyrirhafnarlaust . . .
Flestum er vafalaust farið líkt
og. þeim er þetta ritar, að
megnið af ruslpótinum fer
beina leið, og ólesið, í körfuna þar
sem hann á heima. Þangað til dag
nokkurn fyrir skömmu að ég rakst
á fnyndskreyttan verðlista eða
„prískúrant” eins og þess háttar
bókmenntir voru kallaðar á reyk-
vískri dönsku í mínu ungdæmi.
Úr þessum verðlistum getur fólk
pantað, fengið varninginn sendan
heim með pósti og vitanlega greitt
fyrir með greiðslukorti sem má
teljast algengasti gjaldmiðillinn
hér um slóðir. Hér fara á eftir lýs-
ingar á nokkrum þessara nýju
uppfyndinga, galdratækjum ýms-
um og sem ég hef í huganum kall-
að „perlurnar í ruslpóstinum.”
leiki úr sögu spilamennskunnar á
þessari tölvu. Hér eru sýndir og
kenndir bridsleikir en gefnir eru
þeir ekki. Tölvan kostar nærri 400
dollara eða 24.000 íslenskar krón-
Dugir tæpast gegn KGB og CIA
en tæki þetta gefur til kynna
ef einhver er á hleri.
ur.
Margs konar sjálfvirkni
atriðið birtist á skjánum. Verð á
þessu tæki er 60 dollarar eða sem
svarar 3.600 íslenskum krónum.
Brids-tölvan
Brids-tölvan er sögð vera nýj-
asta nýtt. Þetta er. keltutölva
(128K) sem er sögð hentugt þarfa-
þing fyrir brids-fólk, bæði byijend-
ur sem og sérfræðinga í greininni.
Tölvuna geta menn tekið með sér
í ferðalög í léttri tösku. í tölvunni
má finna fræg brids-spil sérfræð-
inga og brids-meistara. Þarna er
og saga bridsins í stórum dráttum
og hægt er spila nafnkunna brids-
Margs konar tæki sem taka
sjálfvirkt upp sjónvarpssendingar
eru nú á boðstólum í Bandaríkjun-
um. Þessi tæki eru m.a. auglýst á
eftirfarandi hátt: „Loksins þarf
ekki lengur tvöfalda doktorsnafn-
bót til að taka upp sjónvarpsþætti
á myndband. Nú getur þú tekið
upp sjónvarpsþátt, sem þú hefir
áhuga á, eða hvað annað sem er
úr sjónvarpinu þótt það séu gestir
heima hjá þér sem þú þarft að
annast. Engu skiptir hvort þú ert
heima eður ei þegar sjónvarpsþátt-
urinn sem þú hefur beðið eftir
kemur á skjáinn.”
Þetta tæki sem orðið hefur ein-
staklega vinsælt hér vestra er
mesta þarfaþing ekki síst fyrir það
að nú hafa dagblöðin, sem birta
sjónvarpsdagskrárnar, bætt við
fimm stafa númeri fyrir hvern
dagskrárþátt sem birtur er.'Þetta
númer er sett inn á sjálfvirka upp-
tökutækið sem fer í gang þegar
Einkasamtöi tryggð
Þá er komið á markaðinn tæki
sem tryggir að óviðkomandi getur
ekki hlustað á símtöl án þess að
sá er símar fái vitneskju þar um.
Þegar þetta tæki er sett í samband
við símtólið kviknar rautt ljós á
tækinu ef samtalið er hlerað.
Grænt ljós þýðir hins vegar að
menn geti masað áfram áhyggju-
laust. Hugsanlegir kaupendur eru
varaðir við að tækið sé ekki ör-
uggt séu útsendarar njósnastofn-
ana á borð Við CIA, bandarísku
leyniþjónustuna og KGB, þá so-
vésku, á línunni. Tækið kostar um
3.000 íslenskar krónur en þeir sem
sérlega varir um sig og kaupa tvö
fá afslátt.
Þessu skylt er annað tæki sem
bætir úr vandræðum er notendur
símsvara og faxtækja reka sig á.
Tækið kemur í veg fyrir að sam-
bandið rofni ef t.d. svarað er í síma
Tali börnin í gegnum þetta tæki
þekkir móðir þeirra ekki mál-
róm þeirra, segir í auglýsingu
framleiðandans.
á öðrum stað í húsinu þegar fax
eða sjálfvirkur símsvari er í gangi.
Þessi tæki kosta um 3.000 krónur
hvort.
Sími við hverja rafstungu
Málróm breytt í símtölum
rödd barna sinna er þau tala í
gegnum tæki þetta,” segir í aug-
lýsingunni. Þeir sem hafa þörf fyr-
ir tæki þetta þurfa að vera tilbún-
ir til að sjá á bak 90 dollurum,
5.400 íslenskum krónum.
Rafhlöðuvinurinn
Flestir bifreiðaeigendur hafa
orðið fyrir því að koma að bílum
sínum þegar mest reið á' með
óvirka rafhlöðu. Nú er hægt að
koma í veg fyrir slík óþægindi með
tæki sem framleiðendur nefna
„rafhlöðuvininn”. Bílaraflilöður
missa um eitt prósent af hleðslu
sinni á éinum sójarhring í eðlileg-
um herbergishita én meira í köldu
veðri. „Rafhlöðuvinurinn” sér um
að nægur straumur sé fyrir hendi
hversu lengi sem bíllinn stendur
ónotaður. Séð er fýrir því að engin
hætta er á ofhleðslu sem gæti
skemlht raflilöðuna. Hér vestra er
tæki þetta gert. fyrir 110 volta
straum. Verðið ér um 1.800 krón-
ur.
Hákarlstennur
Þá er komið á markaðinn enn
eitt tækið hér vestra sem gerir
auðveldara en áður að flytja sím-
tæki úr einu hérbergi í annað án
þess að leggja nýja símalínu innan
húss. Það er gert á þann einfalda
hátt að tækið er sett rafstungu
hvar sem er í húsinu og símaþráð-
urinn settur í þetta tæki. Áhuga-
sömum skal bent á að rafstraumur
er annar hér vestra en á Islandi.
Til að eignast þetta tæki þurfa
menn að reiða fram um 7.500 ISK.
Enn er ótalin ein nýjung í sam-
bandi við símtöl, sem auglýst er í
verðlistum, en það er sérlega at-
hyglisvert og vafalaust nytsamt
tæki sem gjörbreytir málróm þess
er í símann talar. Þetta tæki breyt-
ir málróm manna í kven- eða karl-
rödd, æpandi skræka eða bassa
og vilji notandinn ganga í bamdóm
getur hann valið rödd við hæfí.
Alls eru 16 mismunandi raddir
fyrir hendi í þessu tæki og nota-
gildið er að mati auglýsandans
ótvírætt. „Móðir getur ekki þekkt
Annað til þæginda fyrir bíleig-
endur er nýkomið á markaðinn hér
í Bandafíkjunum en það eru „há-
karlstennur” sem koma að góðu
gagni í snjó eða aurfestu. „Tönn-
unum” er smeygt undir annað hjól-
ið'til að losa ökutækið úr snjó eða
aurfestu. Þær eru léttar og sagðar
spara fé, fyrirhöfn og tíma sem
annars færi í að bíða eftir dráttar-
vagni. Einar tennur kosta sem
svarar 1.200 krónum. „Stöðvar-
inn” er annað apparat sem kemur
sér vel í bílskúrnum þegar menn
vilja bakka inn án þess að skemma
ökutækið.
Og svo mætti lengi telja. . .
„Æ góði, lokaðu fyrir þetta sjón-
varpskjaftæði!” Þegar heimilis-
friðnum er ógnað með þessum
hætti er gott að hafa við hendina
hlustunartæki sem boðið er fyrir
2.400 krónur. Með slíkt tæki á
höfði getur maður setið og notið
dásemda sjónvarpsins án þess að
aðrir í herberginu heyri og jafnvel
athugað hvort einhveijar periur
leynist í ruslpóstinn sem barst
þann daginn.
F
a
I
NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ
áZZS BARBARA ^
Cartland
Ást að Iðni
Barbara
Cartland
ÁSTAÐ LÁNI
Gilda neyðist til að leika
hlutverk hinnar vinsœlu
systur sinnar, Heloise, í
samkvœmislíti Lundúna.
En fljótlega dregst hún
inn í njósnamdl og fleiri
atburðir gerast, sem hún
hafði ekki fyrirséð.
Eva Steen
í LEITAÐ ÖRYGGI
Flestar ungarstúlkur líta
björtum augum fram ó
veginn, en það gerir
húnekki. Húnhorfirtil
baka — til hinnar glötuðu
bernsku sinnar, þegar
hún ótti félaga, sem hún
hafði samskipti við, og
þegar foreldrar hennar
höfðu tíma fyrir hana.
Erik Nerlöe
SIRKUSBLÓÐ
Hún elskaði líf sitt sem
listamaður og var dóð
sem sirkusprinsessa. En
dag einn dróst hún inn í
annars konar heim og
varð að velja á milli
þess að vera sirkus-
stjarna áfram eða
gerast barónessa á
stóru herrasetri.
Theresa Charles
ÖNNUR '
BRÚÐKA UPSFERÐ
Maura hafði þráð þennan
dag, þegar ungi maður-
inn, sem hún hafði gifst með
svo litlum fyrirvara,kœmi
heim eftir sex ára fangavist í
erlendu fangelsi. En sá
Aubrey, sem nú vildi endi-
lega fara með hana í „aðra
brúðkaupsferð" til fiskiþorps,
þar sem þau höfðu fyrst
hitst, virtist gersamlega
breyttur maður.
Else-Marie Nohr
AÐEINSSÁSEM
ELSKAR ER RÍKUR
Þegar Anita var fimmtán
ára gömul samdi Lennart
Ijóð handa henni, sem
hann nefndi „Aðeins sá
semelskar erríkur’.
Mörgum árum seinna
fékkLennarttœkifœri
til að minna Anitu á
þessi orð.
Bókabúð Olivers Steins sf
NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ