Morgunblaðið - 08.12.1991, Síða 20
MORGlífíBLÍÁÖIÖ' SUNNIÍDAGÚR 8l DKSKMÍ5RR 1ÖI)1:
20^
Gunnar Harðarson, Sigfús Bjartmarsson og Magnús Gestsson.
Skáldsögur eft-
ir þrjá höfunda
BÓKAÚTGÁFAN Bjartur gefur
út bókina Tröllasögur - skáld-
sagnir eftir þá Gunnar Harðar-
son, Magnús Gestsson og Sigfús
Bjartmarsson.
í kynningu útgefanda segir:
„Tröllasögur þurfa ekki endilega
að fjalla um tröll, þær geta einfald-
lega verið einhvers konar ýkjusög-
ur, oftast nær upplognar eða ef
til vill ekki í fullu samræmi við
raunveruleikann. Gunnar Harðar-
son, Magnús Gestsson og Sigfús
Bjartmarsson hafa safnað saman
tröllasögum sem greina frá ýms-
um atvikum úr samtímanum, kyn-
legum jafnt sem hversdagslegum.
í þessum nútímaþjóðsögum er le-
sandanum skemmt með þjóðlegri
frásagnarlist og ísmeygilegri gam-
ansemi. Meðal þeirra sem koma
við sögu eru nátttröllið í Vestur-
bænum, ráðskonan í Álfheimum
27 og meðferðarráðgjafinn á Stað-
arfelli.”
ÚT ER komin hjá ísafold bókin
Stangaveiðin 1991.
í kynningu útgefanda segir
m.a.: „í bókinni eru þrír megink-
aflar. Fyrstan má telja frétta-
annálinn, en þar er að finna ná-
kvæma umfjöllun um allt það
helsta sem gerðist í heimi stanga-
veiðimanna á vertíðinni sem nýlið-
in er. Þá er farið á yfirreið um
landi þar sem komið er við á bökk-
um allra helstu áa landsins, skoð-
Þijú myiid-
bönd um
mjólk
MARKAÐSNEFND mjólkuriðn-
aðarins hefur í samráði við
Námsgagnastofnun Iátið fram-
leiða þrjú myndbönd um mjólk
og framleiðslu mjókurafurða.
Fyrsta myndin Mjólkin okkar
er ætluð til notkunar í leikskólum.
Myndin er án orða og henni er
ætlað að hvetja til umræðna um
gildi og hollustu mjólkumeyslu.
Önnur myndin, Hvaðan kemur
mjólkin?, er ætluð til notkunar á
miðstigi grunnskóla. Þar er fjallað
um kúabúskap og mjólkurvinnslu
á ýmsum stöðum á landinu.
Þriðja myndin, Mjólk og
mjólkurvinnsla, er ætluð unglinga-
stiginu. Þar er fylgst með nokkr-
um nemendum 9. bekkjar sem
fara í vettvangsferðir og kynna
aðar veiðitölur og greint frá því
helsta sem gerðist á hveijum stað.
Þriðji meginkafli bókarinnar fjall-
ar um silungsveiðina 1991.
Nokkrar magnaðar veiðisögur
krydda efnið og hátt í 200 mynd-
ir víðs vegar að af landinu gera
það einnig svo um munar. Eru
margar þeirra í lit.”
Höfundar bókarinnar eru
blaðamennimir Guðmundur Guð-
jónsson á Morgunblaðinu og
Gunnar Bender á DV.
Bókín um silungaveiðina
Frá fundi Námsgagnastofnunnar þar sem myndböndin um mjólk
voru kynnt.
sér kúabú og mjólkurframleiðslu.
Þessum myndböndum verður
dreift til allra leikskóla og gmnn-
skóla í landinu um næstu mánaða-
mót. Með myndunum fylgja verk-
efnablöð handa nemendum. Verk-
efnablöðin með myndinni Hvaðan
kemur mjólkin? verða send út til
allra gmnnskóla um svipað leyti
og myndböndin, en gert er ráð
fyrir að verkefnin með hinum
myndunum, Mjólkin okkar og
Mjólk og mjólkurvinnsla, verði
send út í janúar á næsta ári.