Morgunblaðið - 08.12.1991, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1991
Rækjudeilan á Bíldudal:
Auktu siyrk
þinn
með næmi og
skynjun
Sanaya Roman
kleift að skyggnast inn í ókunn svið, njóta handleiðslu æðri afla alheimsins,
glæða lífið birtu og kærleika.
NÝALDARBÆKUR
Laugavegi 66, sími 627700 og 627701
Auktu styrk þinn er sjálfstætt framhald metsölubókarinnar Lifðu í gleði.
Hér lærir lesandinn að virkja innsæi sitt, næmi og alla skynjun á einfaldan en
jafnframt áhrifaríkan hátt. Stig af stigi eru kenndar aðferðir til að auka skynjun
og skilning, lyfta hugsunum og tilfinningum á æðra stig og takast á við
hversdagslega hluti út frá nýjum gefandi sjonarhóli.
Hér er fjallað um hin æðri gildi og markmið lífsins, hvernig við stuðlum að fyllra
lífi okkar og þeirra, sem við erum samvistum við. Auktu styrk þinn er einnig
einstök kennsla í því að nálgast vitneskju eftir leiðum fjarskynjunarinnar og fá
upplýsingar um framtíðina. Lesandinn fær greinargóðar leiðbeiningar um
hvernig hægt er að skynja tilfinningar og hugsanir annarra og hvernig hægt er
að verjast neikvæðum orkus'traumum og áhrifum þeirra.
Auktu styrk þinn býr yfir mögnuðum, einföldum æfingum, sem gera fólki
Auktu
styrk þinn er handhæg en óvenjuleg bók
frá æðri sviðum, full af kærleiksríkri,
umvefjandi leiðsögn frá Orin - fræðsluafli
á öðru tilverustigi.
Hreppsnefndin lýsir stuðn-
ingi við tillögur ráðuneytisins
Bíldudal.
A FUNDI sem hreppsnefnd Bíldudalshrepps hélt þann 29. nóvember
sl. skorar hreppsnefndin á sjávarútvegsráðuneytið að beita sér fyrir
því að komið verði á fundi með Verðlagsráði, fulltrúum sjómanna
og framkvæmdasfjórn Rækjuvers hf. til að ræða frambúðarlausn á
rækjudeilunni sem nú stendur yfir á Bíldudal.
Ráðúneytið hefur gefið rækjusjó-
mönnum undanþágu frá 11. gr.
veiðileyfa og mega þeir nú landa
afla annars staðar en á Bíldudal
fram til áramóta. En sjþmenn vilja
fá leyfi til frambúðar. Á fundi sem
sjómenn áttu með Þorsteini Páls-
syni sjávarútvegsráðherra fyrir
rúmri viku var ákveðið að ráðuneyt-
ið leitaði eftir ályktun frá hrepps-
nefnd Bíldudalshrepp um málið.
Hreppsnefndin fundaði þann 29.
nóvember sl. og var eftirfarandi
ályktun samþykkt samhljóða:
„Hreppsnefnd Bíldudalshrepps lýsir
stuðningi við framkomna tillögur
sjávarútvegsráðuneytisins varðandi
11. gr. um að landa afla annars
staðar en á Bíldudal til áramóta og
taka þannig eitt skref í einu til
úrlausnar. Jafnframt skorar
hreppsnefnd Bíldudals á ráðuneytið
að beita sér fyrir því að komið verði
á fundi með Verðlagsráði, fulltrúum
Sveinn Björns-
son forsetaritari
SVEINN Björnsson sendiherra
tók hinn 1. desember síðastliðinn
við starfi forsetaritara.
Kornelíus Sigmundsson sendi-
fulltrúi, sem áður gengdi því starfi
forsetaritara, hefur tekið við störf-
um í utanríkisþjónustunni.
sjómanna og framkvæmdarstjórn
Rækjuvers hf. til að ræða frambúð-
arlausn. Ef samkomulag næst ekki
um áramót óskum við eftir að 11.
gi'. úr veiðileyfum verði felld út til
vors og auk þess veitt annað rækju-
vinnsluleyfi á Bíldudal ef eftir því
verði leitað.”
Einar Matthíesen sveitastjóri
sagði sagði í samtali að sjómenn
hefðu brugðist illa við ályktun
hreppsnefndarinnar. „Rækjusjó-
menn lásu ályktunina og voru mjög
óhressir yfir því að sala á rækju
hafi ekki verið gefin frjáls til vors
eða jafnvel til lengri tíma. Ef for-
sendur brejtast eftir áramótin og
Rækjuver hf. er tilbúið til að taka
á móti innfjai'ðarrækju á því verði
sem þá verður ríkjandi, þá er það
hið besta mál. En ég tel fyrst og
fremst að sveitarstjórnarmenn hafi
reynt að vera sjálfum sér sam-
kvæmir í þessu máli og hafi stigið
hvert skref af yfirlögðu ráði og
farið mjög varlega í sakirnar,” sagði
Einar í samtali við Morgunblaðið.
Rækjusjómenn á Bíldudal hafa
INNLENT
gert samning við Sölusamtök lag-
metis hf. sem leigir Niðureuðuverk-
smiðjuna hf. á Isafirði um kaup á
rækju til áramóta, en Niðursuðu-
verksmiðjan hf. er með greiðslu-
stöðvun. Byrjað er að flytja rækju
frá Bíldudal til ísafjarðar með
Fagranesinu og verður svo til ára-
móta tvisvar í viku. Verið er að
vinna frysta rækju í Rækjuveri hf.
og samkvæmt plaggi sem fram-
kvæmdastjóri Rækjuvers hf. hefur
sent starfsfólki verksmiðjunnar
verður vinnsla stöðvuð 13. desem-
ber um óákveðinn tíma vegna hrá-
efnisskorts. Starfsfólk Rækjuvers
hf. er því uggandi um sinn hag og
hafa farið fram starfsmannafundir
í fyrirtækinu um rétt þeirra í mál-
inu.
R. Schmidt
Jóhanna Á. Steingrímsdóttir
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
Verðlaunabók frá Björk
BOKAUTGÁFAN Björk hefur
gefið út barnasöguna Þytur eftir
Jóhönnu Á. Steingrímsdóttur
með myndum eftir Hólmfríði
Bjartmarsdóttur.
Bókin var til verðlauna í sam-
keppni sem Bókaútgáfan Björk
efndi til á fimmtíu ára afmæli út-
gáfunnar 1991.
í kynningu útgefanda segir:
„Þetta er sagan um síðborna hrein-
kálfinn Þyt á heiðum uppi og telp-
una Dögg niðri í bygðinni. Bókin
lýsir samskiptum hreindýrsins og
telpunnar á hugljúfan og skemmti-
legan hátt, nútíma lifnaðarháttum
í sveit og frelsi og harðrétti dýr-
anna sem lifa villt á öræfum lands-
ins. Þetta er einnig jólsaga og ævin-
týri sem fær óvæntan og nýstárleg-
an endi.”
Bókin er 48 blaðsíður.
Unglingabók eftir
Elías Snæland Jónsson
KOMIN ER út hjá Máli og menn-
ingu unglingabókin Davíð og
krókódílarnir eftir Elías Snæ-
land Jónsson.
í kynningu útgefanda segir
m.a.: „Sagan segir frá Davíð, 14
ára, sem leiðist heima hjá sér og
í skólanum. Hann sækist eftir fé-
lagsskap krókódílaklíkunnar sem
fæst við ýmislegt sem Davíð hefur
ekki kynnst áður. Hann tekur sér
ýmislegt fyrir hendur sem hann
veit að er ekki rétt en sér fram
úr erfiðleikunum í lokin.
í þessari fyrstu unglingabók
sinni lýsir Elías Snæland Jónsson
reykvískum unglingaheimi sem er
harðari en margan grunar. Sagan
einkennist af spennandi söguþræði
og hlýju í garð unglinga.”
Bókin, sem er 107 blaðsíður, var
unnin í Prentsmiðjunni Odda.
Elías Snæland Jónsson