Morgunblaðið - 08.12.1991, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1991
Bragi Hún-
fjörð Zop-
aníasson
Sigurður Öfeigs
son - Minning
Fæddur 3. maí 1926
Dáinn 30. nóvember 1991
Við viljum með fáum orðum
kveðja pabba okkar, tengdapabba
og afa, Braga Húnfjörð Zopanías-
son, sem fór snögglega frá okkur.
Við vitum að hans bíða stærri verk-
efni á æðri stöðum.
Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glaður,
og þú munt sjá, aðeins það, sem valdið
hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur
hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur
vegna þess, sem var gleði þín.
(K. Gibran)
Pabba þökkum við þær stundir
og þau ár sem hann gaf okkur.
Við viljum þakka starfsfólki gjör-
gæsludeildar Landskotsspítala fyrir
hlýhug og styrk sem það veitti okk-
ur.
Elsku mamma, megi Guð styrkja
þig á þessum tímum.
Börn, tengdabörn
og barnabörn.
Kveðja frá eiginkonu
Hvil nú í guðsfriði_ gullið míns hjarta.
Gröfin þín bíður. Ég vil ekki kvarta,
þó titrandi finnst mér taugarnar slitna
og tárin á brennandi himnum hitna.
Það er ekki um of fyrir þig.
Svo kveð ég þig síðast með kossi í anda
og kærleika endurtek bandi í handa.
Ég þakka þá blómstráðu braut, sem er gengin
og blessaðan hópinn sem laun okkar fengin,
þær stoðir, sem styrkja mig best.
(Halla frá Laugabóli)
Helga
Fæddur 13. október 1919
Dáinn 3. desember 1991
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka
Guði sé loft fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Guð blessi elsku afa. Hafí hann
þökk fyrir allt.
Kveðja frá barnabörnum.
Mánudaginn 9. desember kveðj-
um við hinstu kveðju tengdaföður
minn Sigurð Ófeigsson. Sigurður
fæddist að Randversstöðum í
Breiðdal 13. október 1919. Foreldr-
ar hans voru Sigríður Pálsdóttir og
Ófeigur Snjólfsson, bóndi og kenn-
ari. Börn þeirra voru, auk Sigurð-
ar, Sigurpáll, f. 1910 d. 1985, Odd-
ur, f. 1912 og Fanney, f. 1914.
Sigríður lést árið 1923 þá aðeins
32 ára að aldri. Ófeigur hélt þá
áfram búskap ásamt sonum sínum
fyrst á Randversstöðum en síðar í
Flögu en Fanney var send í fóstur
að Þorgrímsstöðum í Breiðdal.
Eftir að Ófeigur lést árið 1944
bjó Sigurður í Flögu þar til hann
fluttist til Reykjavíkur 1947. Þegar
til Reykjavíkur kom stundaði hann
hin ýmsu verkamannastörf.
í Reykjavík kynntist hann eftir-
lifandi konu sinni Aðalheiði Þór-
oddsdóttur og eignuðust þau 5 börn:
Þau eru: Ófeigur Sigurður, f. 1953,
rafmagnsfræðingur, kvæntur Jón-
ínu M. Þórðardóttur og eiga þau 3
börn. Þórey, f. 1954, sjúkraliði gift
Hafliða Sævaldssyni eiga þau 2
böm. Sigríður, f. 1956, húsmóðir
gift Grétari Óskarssyni eiga þau 3
börn. Svanhildur, f. 1957, verslun-
armaður gift Borgþóri Yngvasyni,
eiga þau 2 syni. Auður Margrét,
f. 1961, viðskiptafræðingur gift
Magnúsi Magnússyni, eiga þau 2
börn. Einnig ól hann upp Hólmfríði
dóttur Aðalheiðar. Hennar maður
er Fritz Bjarnason og eiga þau 3
börn. Öll eru börnin búsett í Reykja-
vík nema Svanhildur sem býr í
Vestmannaeyjum.
Sigurður og Aðalheiður ólu upp
þennan stóra barnahóp af miklum
dugnaði og vannst lítill tími til að
sinna öðrum áhugamálum enda átti
velferð þeirra huga þeirra allan. Á
þeim tíma þegar börnin voru að
vaxa úr grasi var oft á tíðum at-
vinnuleysi ■ en með fyrirhyggjusemi
og ósérhlífni tókst honum að sjá
svo um að aldrei skorti neitt í búið.
Þrátt fyrir að Sigurður hafi búið
í Reykjavík mestan hluta ævi sinnar
voru sveitastörfin honum ávallt
hugleikin og átti Breiðdálurinn ætíð
sterkar rætur í hjarta hans.
Hin síðari ár átti hánn landskika
fyrir utan borgina þar sem hann
stundaði ýmsa ræktúh og naut úti-
vistar í friðsælu umhverfi.
Þegar barnabörnin fæddust eitt
af öðru urðu þau stór þáttur í hans
lífí og hafði hann mikla ánægju af
að njóta samvista við þau og laum-
aði þá oft góðgæti í litla lófa.
Nú þegar ég kveð Sigurð hinstu
kveðju vil ég þakka honum sam-
fylgdina og margar ógleymanlegar
samverustundir á liðnum árum.
Guð blessi minningu Sigurðar
Ófeigssonar.
Magnús Magnússon
JOLATILBOÐ
Staðgreitt m/VSK.
kr.28.835/-
Hreinlego ollt til hreinlætis
REKSTRARVÖRUR
Réttartiálsi2 -110R.vík - Simar31956- 685554
KEVK
HOBBY
HÁÞRÝSTIDÆLAN
Á auðveldan hátt
þrífur þú:
Bílinn, húsið,
rúðurnar,
,veröndina O.fl.
Úrval aukahluta!