Morgunblaðið - 08.12.1991, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1991
37
Minning:
Fjóla Gísladótt-
ir frá Háagerði
Fædd 5. júlí 1918
Dáin 5. nóvember 1991
Kemur ekki andlát vina og ætt-
ingja okkur ávallt að óvörum. Þegar
vík er á milli vina, fjörður á milli
frænda, elur maður þá von í bijósti
að við fáum að hittast aftur. Fregn-
in um að hún Fjóla frænka mín
væri dáin var eins og kaldur gustur
en minningarnar streyma fram í
hugann um þessa indælu og góðu
frænku mína sem var mín fyrir-
mynd. Flest börn velja sér ein-
hveija sem þeir vilja líkjast taka
sér til fyrirmyndar, Fjóla var mín.
Hún hafði alltaf nógan tíma til að
hlusta á smá kvabb og vandkvæði
lítillar stúlku, þurrka tár af vöng-
um. Ég man þegar Fjóla og Krist-
ján fluttu heim á Harrastaði í litlu
íbúðina sem var búið að byggja í
austurbænum, bæ foreldra minna
sem ekki var stór fyrir. En þraungt
mega sáttir sitja, samheldnin og
samkomulagið voru alltaf mjög góð
þrátt fyrir barnafjöldann og
þrengslin, enda Fjóla og móðir mín
systur og vinkonur. Fjölskyldan
Fjólu og Kristjáns stækkaði fljótt
og nokkrum árum seinna fengu þau
jörðina Háagerði til ábúðar, keyptu
hana svo síðar. Stutt var á milli
bæjannav og héldu fjölskyldunar
saman, ef eitthvað bjátaði á hjá
annarri kom hin ævinlega til hjálp-
ar.
En leiðir skildu, börnin frá Háa-
gerði og Harrastöðum fluttu í burtu,
stofnuðu eigin fjölskyldur.
Foreldrar mínir fluttu suður,
Fjóla og Kristján til Skagastrandar.
Þegar ég svo kom norður með mína
íjölskyldu var jafnan sjálfsagt að
heimsækja Fjólu og Kristján sem
tóku börnunum mínum með sama
ástríki og þau höfðu sýnt mér. Fjóla
giftist Kristjáni Guðmundssyni 26.
nóvember 1940. Eignuðust þau
saman sex börn: Guðnýju, Jóhönnu
Guðrúnu, Sigurbjörgu, Jónu, Gísla
ög Önnu Margréti, en Kristján átti
einn son fyrir, Guðmund, sem er
látinn.
Og nú er hún kæra frænka mín
ekki einmana lengur. Hún er lögst
við hlið manns síns, sem var henni
allt í þessu lífi ásamt börnunum
þeirra. Ég þakka fyrir að hafa átt
samleið með þessum kæru vinum.
Bið blessunar börnum þeirra og
veit að minning um góða foreldra
lifir.
Jóhanna Davíðsdóttir
Á hátíð Ijóssins
Bókin „Taiað inn í dimman dal trá iinssins veldi”.
Umsögn Mbl. 14/11: „Hér eru birt boð ög bréf
fró fólki sem farið er yfir um. Meðal bréfritara
er Roosevelt Bandaríkjoforseti. Fleiri frægðorper-
sónur koma hér við sögu og það er síður en
svo jarðbundið. Hugurinn er miklu fremur bund-
inn við ríki Ijóssins. Mikil mælskubók. Myndir
og likingar óþrjótandi. Það eru víða tilþrif í
stíl þessarar bókar.”
STEINARIKIÐ
Opið
lau.kl. 10-18
sun. kl. 11-18
• Steinvörur frá Álfasteini
• Ljósastikur frá Smíóagalleríi
• llmker og keramik frá Glit
• Lyklahringir - eyrnalokkar - nisti - klukkur
- pennastatíf - fígúrur - úr íslenskum steinum
• Silkiskartgripir - kerti - ullarvörur - o.fl.
Sleinaríkió — Hafnarstræti 3 v/Naustin, s. 22680.
í
Nostradamus var einn mesti spámað-
ur sem uppi hefur verið og í fyrsta sinn
birtist hér nýtt kerfi sem vinnur á skipu-
legan hátt úr upplýs-
ingum sem faldar
eru í torræðum
.. textum Nostra-
damusar.
Verkið er unn-
ið af mikilli
nákvæmni, en
niðurstöður eru
settar fram á
einfaldan og hrífandi hátt. Nostra-
damus taldi að síðustu ár þessarar
aldar myndu marka tímamót i sögu
okkar. Við sem nú lifum,
stöndum við upphaf
nýrrar aldar sem
gæti boðað nýtt :
og betra lif fyrir
allt mannkyn.
Bókin kemur út
samtímis í sam- FORLAGIÐ
vinnu útgefenda laugavegi is
umallanheim. SÍM' 25,88
nn sainn
amtíoina
u
iviiMLir m
SJÁLFUR KJARNI
LÍFSINS
Það er hvorki óþægileg nauðsyn né
skammarleg iðja. í þessari fallegu bók
er hulunni svipt af gömlum feimnismál-
unh. Hún er hafsjór af fróðleik og
eykur skilning á listinni að
elska, takmörkum hennar
og tækni.
Fjallað er um samspil
líkama og sálar og hvernig
hægt er að vinna bug á
vandamálum sem upp koma í ástarlifinu
og geta auðveldlega spillt ástríkustu
samböndum. Hér er rætt um öll stig kyn-
lífsins frá því að kynhvötin
vaknar til þess er við náum
valdi á leikjum ástarinnar.
Prýdd miklum fjölda Ijós-
mynda og teikninga.