Morgunblaðið - 08.12.1991, Síða 39
1
Gísla. Barnabörnin eru fjögur.
Hjónaband þeirra Ágústar og Júl-
íönu var farsælt og ekki var nafn
annars þeirra nefnt í fjölskyldunni
án þess að hitt fylgdi með. Þau
voru miklir áhugamenn um skíða-
og skautaíþróttir og munu margir
eldri Reykvíkingar minnast þeirra
hjóna er þau svifu um Reykjavíkur-
tjörn í skautadansi samtaka eins
og ævinlega. Það eru ekki svo mörg
ár síðan að mynd birtist af þeim
svífandi á svelli þá komin á efri ár.
Frændi minn var mikill fjöl-
skyldumaður, góður faðir og afi.
Hann var mér og systkinum mínum
góður móðurbróðir og minnumst við
öll rausnarlegra gjafa og skemmti-
legra jólaboða hjá þeim hjónum.
Þau bjuggu um árabil í sama húsi
og afi okkar og amma, Una og
Guðlaugur, og var mikill samgang-
ur og gagnkvæm hjálpsemi á báða
bóga í því húsi.
Og nú er komið að leiðarlokum.
Góður maður er genginn. Maður
sem vann þjóðfélagi sínu mikið og
gott starf af einstakri samviskusemi
og trúmennsku. ■
Við hjónin og börn okkar sendum
Júlíönu og sonunum og þeirra
skylduliði innilegar samúðarkveðj-
ur. Megi minningin um bjartan
æviferil góðs manns létta þeim
söknuðinn.
Blessuð sé minning Ágústar Guð-
laugssonar.
Victor Ágústsson
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGARsunnudáöM 8
DESEMBER W9Í
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR ÓFEIGSSON,
Gnoðarvogi 34,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Langhöltskirkju mánudaginn 9. desember
kl. 13.30.
Aðalheiður Þóroddsdóttir,
Hólmfríður Daviðsdóttir, Fritz Bjarnason,
Ófeigur Sigurðsson, Jónfna M. Þórðardóttir,
Þórey Sigurðardóttir, Hafliði Sævaldsson,
Sigríður Sigurðardóttir, Grétar Óskarsson,
Svanhildur Sigurðardóttir, Borgþór Yngvason,
Auður Margrét Sigurðardóttir, Magnús Magnússon,
og barnabörn.
Njóttu jólanna í faémi vina
og vandamanna á Norðurlöndum.
Pex -fargjöíd* Helgatfargjöld**
Kaupmannahöfn
Stokkhólmur
Ósló
Gautaborg
33.750 kr.
39-630 kr.
32.380 kr.
33.750 kr.
26.690 kr.
30.630 kr.
24.980 kr.
26.690 kr.
Hafðu samband við þína ferðaskrifstofu, söluskrif-
stofur okkar og umboðsmenn um allt land eða í
síma 690300 (svarað alla 7 daga vikunnar).
FLUGLEIDIR
ol á Norðuriöndum
sLágmarksdvöl - aðfaranón sunnudags. Hámarksdvöl - cinn mánuður. Barnaafsláttur 50%. ,:tLágmarksdvöl - aðfaranótt sunnudags. Hámarksdvöl - fjórir dagar. Flugvallarskattur ekki innifalinn. IJfcJ mmmm
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓNAS HÖGNI INGIMUNDARSON,
Hjarðarholti 13,
Akranesi,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju þriðjudaginn 10. desember
kl. 11.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Sjúkrahús Akraness og
Hjartavernd.
Ebba Magnúsdóttir,
Lilja Högnadóttir, Haraldur Friðriksson,
Magnús Högnason
og barnabörn.