Morgunblaðið - 08.12.1991, Side 43
£í
43
ieei aaaMagaa
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMIIMGAR sunnudagur 8
(HGAJaUUOHOM
8. DESEMBER 1991
íslenska búninginn og þær eru
margar konurnar sem eiga handar-
verkin hennar í glæsilegum klæðn-
aði.
Frá því ég man fyrst eftir mér
var heimili Helgu mér jafn opið og
mitt eigið. Þær verða aldrei taldar
máltíðirnar, sem ég neytti af henn-
ar borði eða næturnar sem ég naut
gistivináttu henanr, bæði á Sauðár-
króki og Akureyri.
Nú þegar komið er að leiðarlok-
um er söknuðurinn ofarlega í huga
en þó er mér efst í huga þakklæti.
Helga Pétursdóttir auðgaði líf
þeirra sem henni kynntust og ég
var svo lánsamur að vera einn af
þeim.
Börnum hennar, tengdabörnum,
barnabörnum og þeirra börnum
votta ég mína dýpstu samúð.
Sigurjón Pétursson
Ný iátin er í Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri, fyrrverandi tengda-
móðir mín, frú Helga Pétursdóttir,
á áttugasta og sjöunda aldursári,
en hún var fædd 26. maí 1905.
Hafði Helga hin síðari ár vistast á
öldrunardeild sjúkrahússins, að
mestu rúmliggjandi hin síðari miss-
eri. Fór andlegri og líkamlegri
heilsu hennar smá hrakandi síðustu
mánuði og kom því andlát hennar
engum á óvart sem til þekktu. Er
hér gengin merk dugnaðarkona,
sem átti ekki alltaf sjö dagana
sæla á lífsbraut sinni, en lét aldrei
bugast þótt á móti blési og stormur-
inn væri í fangið og stóðst flestar
raunir með reisn hinnar íslensku
alþýðukonu.
Helga fæddist á Gauksstöðum á
Skaga. Foreldrar hennar voru Ingi-
björg Bjarnadóttir og Pétur Björns-
son, búendur þar. Sú jörð er, eftir
því sem ég best veit, komin í eyði
fyrir all löngu, en var í þann mund
setin af þeim hjónum með töluverð-
um myndarbrag. Ung að árum
dvaldist Helga í húsmæðraskóla við
nám og lærði þar til ýmissa verka,
sem komu henni síðar á lísleiðinni
að góðum notum, er hún ein og
óstudd sá fjölskyldu sinni farborða
með saumaskap sínum. Helga var
nefnilega frábær saumakona og lék
allt er að saumaskap laut í höndum
hennar, hvort sem um vað að ræða
flíkur á karla eða konur. Ung var
hún gefin Bjama Sigurðssyni for-
manni á Sauðárkróki og flutti hún
þá til Sauðárkróks. Bjarni reisti þar
ijölskyldu sinni myndarlegt íbúðar-
hús. Þau hjón eignuðust 4 börn, en
eitt þeirra, Guðrún Sigurlaug lést
á unga aldri og var öllum harm-
dauði er til þekktu. Hin börnin,
Alda, Sigrún og Bjarni syrgja nú
móður sína og þakka alla þá um-
hyggju sem hún sýndi þeim, jafnt
í móður- sem föðurhlutverki.
í blóma lífsins verður Helga fyr-
ir þeirri þungu raun að missa mann
sinn, aðeins þrítug að aldri, þegar
mótorbáturinn Aldan fórst með allri
áhöfn við Kolkuós í Skagafirði í
fárvirði miklu í desembermánuði
1935, en Bjarni var þar formaður.
Hófst þá hörð lífsbarátta ekkjunnar
ungu að sjá börnum sínum íjórum
farborða ásamt öldruðum foreldrum
sínum, er höfðu þá nýlega brugðið
búi og flust til hennar á Sauðár-
krók. Kom sér nú vel hversu hög
hún var í höndum og viljasterk.
Saumavélin góða og kunnátta
hennar í saumaskap urðu bjarg-
vættir fjölskyldunnar. Var nú unnið
oft myrkranna á milli við gerð alls
kyns fatnaðar á karla, jafnt sem
konur, en sakir þess leið enginn
nauð þar í húsi, hvorki börnin né
aldraðir foreldrar. Á þennan máta
fleytti þessi harðgerða alþýðukona
fjölskyldu sinni klakklaust gegnum
kreppuárin, sem voru svo mörgum
alþýðuheimilum þung í skauti jafn-
vel þótt fyriiVinna væru tvær en
ekki ein, eins og í þessu tilviki.
Stuttu eftir stríð flytur svo Helga
búferlum með börn sín, ásamt öldr-
uðum föður, til Akureyrar og sest
að á Norðurgötu 33. Bjó hún þar
í all mörg ár, eða þar til öll börn
hennar höfðu stofnað sitt eigið
heimili, að hún kaupir sér litla íbúð
í Víðilundi 14. Dvaldist hún þar í
allmörg ár, eða svo lengi sem heils-
an leyfði, en henni tók þá brátt að
hraka og vistaðist hún síðustu 2-3
árin á öldrunardeild Fjórðungs-
sjúkrahússins, þar sem hún lést 2.
þessa mánaðar.
Þetta er í grófum dráttum saga
dugmikillar alþýðukonu, sem brotn-
aði aldrei fyrr en í bylnum stóra
seinast, þrátt fyrir all mikið mót-
læti í einkalífi.
I rúman áratug reyndist þessi
góða kona, mér sem besta móðir.
Fyrir það vil ég nú þakka. Aðstand-
endum sendi ég innilegar samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning Helgu Pét-
ursdóttur.
Stefán Skaftason
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið 61l kvöld
til kl. 22,- elnnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
Legsteinar
Framleiðum allar stœrðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
um
S
SS.HELGASONHF
SKEMMUVEOI 48-SIMt 76677
nýjan og afar hlýlegan veitingasal
LINDINA, að Rauðarárstíg 18.
Á aðventunni bjóðum við upp á glæsilegt
íslenskt jólahlaðborð með þjóðlegum réttum
Verðkr. 1490,-
Taktu þér frí frá jólaönnunum og njóttu
frábærrar máltíðar í hádeginu eða að
kvöldinu í glæsilegum, skreyttum
veitingasal Lindarinnar.
Við tökum vel á móti gestum okkar með
ilmandi, heimalagaðri glöggog piparkökum
WiÉé""' "* ItllP j; Á
Starfsmannafélög og hópar, munið að panta
tímanlega.
Verið velkomin
RAUÐARARSTIG 18, SIMI: 62 33 50
320 viðbótarsæti á Bönus-verðum okkar 1992
Vegna þess hve margir urðu frá að hverfa, er fullbókað varð í 680 sæti í Bónus-flugferðir okkar næsta sumar, getum við nú, vegna íjölda
áskorana, bætt við 320 sætum á sömu Bónus-kynningarverðunum. Peir sem bóka fyrstir og staðfesta, fá þessi sæti meðan þau endast.
K0BEN AMSTERDAM
GLASGOW
LONDON
Kr. 11.900OTKr. 13.900 HKr. 15.800MKr. 15.800
Alla miðvikudaga frá maí
út sept.
Alla föstudaga og þriðjudaga
frá maí út sept.
Alla föstudaga og mánudaga
frá maí út sept.
Frjálst val um gististaði, bílaleigur og framhaldsferðir með
20-70% samningsafslætti okkar.
I^Öl verð eru stað9reiasluve:6 míðað va gengi 1. okU99.1 án nugvallagjalda og forfallatrygainaar.
Alla sunnudaga frá maí út sept.
FLUGFERÐIR
wammsmtamm
SGLRRFLUG
Vesturgata 17, Sími 620066 (5 línur)
□Ij
Ul