Morgunblaðið - 08.12.1991, Síða 44
MMMácau .8 auðAauK
nm ÁMSWVflXAMI/IIVTA öiqajmmuusöm
fNAmisiiMaMfe
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
ATVIN N U A UGL YSINGA R
Blaðberar óskast
Vesturbær
Morgunblaðið óskar eftir blaðbera í Aragötu.
Ártúnsholt
Iðnaðarhverfi - Hálsar
Iðnaðarhverfi - Árbær
Hótelstjóri
erlendis
Hótel á Norðurlöndum óskar að ráða hótel-
stjóra til starfa. Búseta í viðkomandi landi
er skilyrði. Einungis kemur til greina einstakl-
ingur, sem lokið hefur námi erlendis í hótel-
stjórnun, hefur starfsreynslu á þessu sviði
og er með góða tungumálakunnáttu (enska-
þýska-danska).
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu
okkar til 14. des. nk.
Guðni IÓNSSON
RÁÐCJÓF & RAÐNINCARHÓNUSTA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK. SÍMI 62 13 22
&
Tómstunda- og
íþróttafulltrúi
Hjá Mosfellsbæ er laust til umsóknar starf
tómstunda- og íþróttafulltrúa.
Starfið er fólgið í daglegri yfirumsjón með
þeirri tómstunda- og íþróttastarfsemi sem
fram fer í bæjarfélaginu á hverjum tíma.
Meginþættir starfsins fela í sér skipulagn-
ingu á tómstundastarfi fyrir unglinga, yfirum-
sjón með rekstri félagsmiðstöðvar og íþrótta-
mannvirkja, samskiptum við félög, félaga-
samtök og skóla vegna tómstunda- og
íþróttastarfs.
Starf þetta er nýtt, og því mun viðkomandi
starfsmaður taka þátt í mótun þess. Starfið
krefst þess að viðkomandi sé hugmyndaríkur
og framkvæmdasamur og sé tilbúinn að
takast á við uppbyggingu tómstunda- og
íþróttastarfs í bæjarfélaginu.
Viðkomandi þarf að hafa menntun og reynslu
við hæfi, s.s. á sviði æskulýðs-, íþrótta- eða
félagsmála.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
1. febrúar 1992.
Umsóknum, með sem gleggstum upplýsing-
um um menntun og fyrri störf, skal skila á
skristofu Mosfellsbæjar fyrir 22. desember
1991, merktum „Tómstundafulltrúi”.
Allar nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri
Mosfellsbæjar í síma 91-666218.
Bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
áb
Leikskólinn Hlíð
Fóstra óskast til starfa á deild með 14 börn-
um á aldrinum 4-6 ára.
Starfið er laust strax eða eftir nánara sam-
komulagi.
Starfsfólk óskast á sama stað, önnur upp-
eldismenntun eða reynsla af uppeldisstörf-
um æskileg.
Upplýsingar um störfin veitir leikskólastjóri
í síma 667375.
Félagsmálastjóri.
SKIPHOLTI 17 • 105 REYKJAVÍK
SIMI. 91-627333 FAX: 91-628622
aco---------
Skipholti 17.
Þjónustustjóri
Aco hf. hefur nú um 16 ára skeið veitt trausta
og góða tölvuþjónustu til viðskiptavina sinna.
Undanfarin ár hefur tölvudeild fyrirtækisins
vaxið hröðum skrefum, bæði hvað varðar
sölu á margs konar vélbúnaði, sem og hug-
búnaði.
Til þess að mæta þessum auknu umsvifum
leitar Aco hf. nú að þjónustustjóra til að
veita forstöðu þjónustudeild fyrirtækisins.
Þjónustustjóri hefur, auk þessa, umsjón
með gerð þjónustusamninga, skipuleggur
starfsemi þjónustudeildar og samhæfir
mannafla. Ennfremur tekur hann þátt í stærri
verkefnum söludeildar, svo sem tilboðsgerð
og uppsetningu tölvukerfa. Þjónustustjóra
er ætlað að halda uppi og efla þá góðu þjón-
ustuímynd sem fyrirtækið hefur þegar byggt
upp, og er þekkt fyrir.
Leitað er að einstaklingi sem hefur traust-
vekjandi framkomu, á auðvelt með að um-
gangast fólk og hefur góða, almenna tölvu-
þekkingu. Skilyrði er að viðkomandi hafi góða
þekkingu á PC tölvum og reynslu af notkun
þeirra. Einnig þarf að hafa þekkingu á net-
tengingu svo sem Novell, góða þekkingu á
Windows og notendahugbúnaði sem heyrir
undir Windows svo sem Excel, Word o.s.frv.
Æskilegt að viðkomandi hafi próf í tækni-
fræði eða verkfræði eða víðtæka reynslu á
þessu sviði.
Upplýsingar veitir Einar Páll Svavarsson
hjá ráðingaþjónustu Ábendis.
Laugavegi 178, s. 689099
(á mótum Bolholts og Laugavegar).
Opiðfrákl. 9.00-12.00og 13.00-16.00.
LANDSPITALINN
Reyklaus vinnustaður
Hjúkrunarfræðingar
Deildarstjóri - 5 daga deild
Vegna breytinga á rekstri handlækninga-
sviðs verður um áramótin opnuð 5 dagav
deild. Mjög áhugavert verður að taka þátt í
að þróa þá þjónustu sem þar verður veitt.
Á deildinni verður 21 sjúkrarúm.
Við deildina er laus staða hjúkrunardeildar-
stjóra. Umsækjandi þarf að geta hafið störf
sem fyrst. Reynsla af stjórnun nauðsynleg.
Umsóknum skal skila á skrifstofu hjúkrunar-
forstjóra.
Nánari upplýsingar gefur Anna Stefánsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, síma 601366 eða
601300.
Úrval-Útsýn auglýsir eftir
yfirfararstjóra í
Portúgal
Úrval-Útsýn hyggst ráða yfirfararstjóra til
að stjórna starfsemi skrifstofunnar í Álgarve
í Portúgal sumarið 1992.
í boði er sjálfstætt, krefjandi og ábyrgðarmik-
ið starf, sem jafnframt er lifandi og skemmti-
legt. Vinnutími getur verið langur og frítími
takmarkaður.
Starfssvið: Stjórnun og umsjón starfsemi
skrifstofunnar í Albufeira í samráði við stjórn-
endur Úrvals-Útsýnar.
Starfstími: 1. apríl - 1. nóv. 1992.
Umsækjendur skulu hafa víðtæka reynslu
af fararstjórn erlendis. Mjög góð enskukunn-
átta er áskilin. Kunnátta í portúgölsku (eða
spænsku) og þekking á Portúgal er æskileg
en ekki nauðsynleg. Reynsla af stjórnunar-
störfum er mikilvæg.
Launakjör: Skv. samkomulagi.
ítarlegar eiginhandarumsóknir skulu berast
Úrval-Útsýn, Álfabakka 16, 109 Reykjavík,
merktar: „Portúgal” í síðasta lagi 3. janúar
1992. Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál.
Öllum umsóknum verður svarað.
4 4
URVALIITSYN
Pósthússtræti 13, Álfabakka 16,
sími 26900 sími 603060