Morgunblaðið - 08.12.1991, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1991
F.v., Vigdís Finnbogadóttir forseti, Gullveig Sæmundsdóttir ritstjóri og Sigrún Guðjónsdóttir, „Rúna”.
NYTT LIF
Vigdís kjörin kona ársins
Frú Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands var kjörin fyrsta „kona
ársins” af tímaritinu Nýtt líf fyrir skemmstu. Var kjör hennar
mjög afgerandi eftir því sem Gullveig Sæmundsdóttir ritstjóri
blaðsins segir, en valið var mjög viðamikið og voru margar nefnd-
ar og margar hendur unnu úr gögnum.
Að sögn Gullveigar fór kjörið
þannig fram, að lesendur
tímaritsins sendu inn tilnefningar
og enn fremur gafst hlustendum
Aðalstöðvarinnar tækifæri til að
stinga upp á konum. Mikill fjöldi
tilnefninga barst inn á borð og fékk
Gullveig þá fimm valinkunnar kon-
ur til að vinna úr hrúgunni, þær
Guðrúnu Agnarsdóttur, Helgu
Johnson, Láru V. Júlíusdóttur,
Ragnheiði Steindórsdóttur og
Steinunni Sigurðardóttur. Þegar
upp var staðið reyndust sjö konur
hafa hlotið áberandi flestar tilnefn-
ingar, þ_ær Vigdís Finnbogadóttir
forseti Islands, Guðrún Erlends-
dóttir forseti Hæstaréttar, Hanna
María Pétursdóttir prestur og þjóð-
garðsvörður, Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir Hagalín rithöfundur,
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra, Lára Halla Maack
réttargeðlæknir og Sigríður Snæv-
arr sendiherra.
Hér kom til kasta íslenskra
markaðsrannsökna sem tóku 1200
manna úrtak úr þjóðskránni og las
nöfnin sjö fyrir hvern og einn og
bað um að tvær yrðu nefndar öðr-
um fremur. Niðurstaðan var sú,
að Vigdís fékk yfirgnæfandi flestar
tilnefningar. Kjörinu var síðan lýst
í hófi og Vigdísi afhent listaverk
eftir Sigrúnu Guðjónsdóttur,
„Rúnu”. í reglugerð hins nýja kjörs
er kveðið á um að sama konan
geti ekki tvisvar verið útnefnd
„Kona ársins.”
Sf..
BRAUÐ H.AXDA Hl'NGRUÐl’M HELMI
ir sc-m |)j;ís( híða hjálpar þinnar.
ramlag fjitt getur ráðið úrslitum.
Lítil upphioð kemur lika að gagni.
1
fGL- HJÁLPARSTOFNUN
^ KIRKJUNNAR
VISA ísland styrkti landssöfnunina
með því aó kosta birtingu þessarar auglýsingar.
KNATTSPYRNA
Framarar kvöddu
sinn mann
ÁSGEIR Elíasson tók við þjálfun landsliðs íslands í knattspyrnu á
þessu keppnistímabili, leysti þar af hólmi Svíann Bo Johannson.
Ásgeir hefur allar götur frá 1985 þjálfað Fram og náð frábærum
árangri með liðið þegar hann nú kveður og heldur á vit nýrri verk-
efna þar sem fyrstu handtök hans hafa lofað góðu. Stjórn knatt-
spyrnudeildar Fram tók sig til fyrir skömmu, gerði boð eftir Ás-
geiri og eiginkonu hans Soffíu Guðmundsdóttur. Þau mættu í félags-
heimilið þar sem þeirra beið hópur prúðbúinna Framara. Snæddur
var kvöldverður og Ásgeiri síðan færður gripur til minja í þakklæt-
isskini frá knattspyrnudeildinni fyrir velunnin störf. Var um glæsileg-
an kristalsknött að ræða.
Ferill Ásgeirs hjá.Fram hefur
verið nánast dans á rósum.
Á sjö árum vann liðið 18 titla af
ýmsum toga undir stjórn hans. I
1. deild lék liðið 126 leiki og náði
72 prósenta árangri með því að
vinna þar af 79 leiki, gera 23 jafn-
tefli og tapa 24 leikjum. Enn betri
árangur náðist í bikarkeppninni
þar sem liðið lék 20 leiki á þessum
árum, vann 16 og tapaði aðeins
4, eða 80 prósent árangur. Þetta
gera alls 146 leiki, 95 sigra, 23
jafntefli og 28 töp. Á síðasta
keppnistímabili gerðist það, að
enginn hinna eftirsóttari titla féllu
í hendur Fram. í síðustu umferð
íslandsmótsins var þó svo naumt
á mununum í einvígi Fram og
Víkings, að sagt var að Fram
hefði haldið með annarri hendi í
bikarinn í 57 mínútur, eða þar til
að Víkingar tóku við sér suður í
Garðinum og skelltu sínum mót-
herjum, en Fram var á sama tíma
að gersigra lið IBV. Hefði Viking-
ur tapað stigi eða stigum hefði
titillinn verið Framara.
F.h. Ásgeir Elíasson með kristalsknöttinn, eiginkona hans Soffía
Guðmundsdóttir og Halldór B. Jónsson formaður knattspyrnudeildar
Fram.
ARFUR
Vilja láta milljarða
Mercurys í rannsókna-
og forvarnarstarf
Breska rokkstjarnan Freddy
Mercury var fyrir nokkru bor-
inn til grafar, eitt af þekktari fórn-
arlömbum eyðniveirunnar síðustu
misserin. Freddy var afar litríkur
söngvari rokkhljómsveit-
arinnar Queen sem hefur
verið ein af forystusveitum
rokksins um árabil. Vinsæl
með afbrigðum og liðs-
menn sveitarinnar orðnir
fyrir löngu vellauðugir.
Erfðarskrá Mercurys verð-
ur lesin innan fárra daga
og er mikil umræða ytra
um hvað verður um auð-
inn, því hann hafði farið
vel með fé sitt þrátt fyrir
að hafa lifað hátt. Freddy
skilur eftir sig 2,5 millj-
arða í traustum fjárfest-
ingum, fasteignum og lausafé
þannig að af nógu er að taka.
Foreldrar Mercurys, fyrrum kæ-
rasta hans og besti vinur Mary
Austin og hárskeri hans Jim Hutton
eru sögð hljóta mest, en ungfrú
Austin og foreldrar Mercurys hafa
komið sér saman um að láta megn-
ið af því sem þau bera úr býtum
renna til rannsókna og forvarnar-
Freddy Mercury og Mary Austiu. Alltaf
bestu vinir þrátt fyrir sambúðarslit.
starfi til að hefta ágang eyðniveir-
unnar. „Besti vinur minn er mér
horfinn. Með þessum hætti get ég
hvað best heiðrað minningu hans,”
sagði Austin nýverið.