Morgunblaðið - 08.12.1991, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1991
55
Bergþór Pálsson óperusöngvari tók nokkur lög við undirleik Jónasar Þóris.
MJÖÐUR
Enn bætist í bjórflóruna
Gosan og Viking brugg
blésu til hófs fyrir stuttu
og kynntu þar það nýjasta frá
sér í bjórmálum: Löwenbrau
premium sem bruggaður er
hérlendis eins og sá Löwen-
brau sem fyrir er á markaðin-
um. „Þessi er firnagóður,
bruggaranum Alfred Teufeí
hefur tekist vel upp, enda
sprenglærður maður á sínu
sviði,” sagði Gísli Blöndal
markaðsfulltrúi Gosans/Vik-
ing brugg í samtali við Morg-
unblaðið.
Gísli sagði enn fremur, að
hófið hefði tekist hið besta og
flestir eða allir á einu máli um
ágæti þess sem allt snerist um,
hins nýja Löwenbrau. „Þetta
er ólikur drykkur þeim sem
fyrir er. Hann er veikari og
ljúfari á bragðið, minnir nokk-
uð á Becksbjórinn og er af
sama styrkleika, eða um 5
prósent,” sagði Gísli Blöndal.
MorgunblaOið/KUA
F.v.Alfred Teufel bruggmeistari, Werner Rasmussen stjórnarform-
aður Gosans/Viking bruggs og Björgólfur Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri.
VERSLUNARFERÐIRNAR
Lága verðið stafar
af magnafslætti
ÓHÆTT ER að segja að svokallaðar innkaupaferðir íslendinga til
Edinborgar, Dyflinnar og Glasgow, jafn vel víðar, hafi verið óvenju-
Iega mikið til umræðu þetta árið. Þetta er ekki nýtt fyrirbæri, en
ástandið í þjóðfélaginu er nú slíkt, að kaupmenn hér heima sprikl-
uðu ákafar en áður og voru nefndar háar prósentutölur um hlut-
fallslega minni verslun innanlands. Mitt í hringiðunni hefur verið
maður að nafni Guðni Þórðarson, kenndur við ferðaskrifstofuna
Sunnu á árum áður, en nú forstjóri Flugferða - Sólarflugs sem hef-
ur flutt bróðurpart hinna verslandi Islendinga yfir Atlantsálana og
þá einkum til Edinborgar. Verðin er boðin hafa verið eru ótrúlega
lág, sérstaklega þegar tekið er mið af gæðum hótelanna sem gist er
á. Morgunblaðið spurði Guðna hvernig á þessu stæði, hvort að svona
lagað væri ekki dæmt til að fara á höfuðið.
Guðni svaraði því af
og frá, „Það er rétt,
þetta eru hótel í háum
gæðaflokki og fólk er
ákaflega ánægt með
dvölina. Ástæðan fyrir
því að við getum boðið
svona lágt verð, er að
við kaupum 5.000 gisti-
nætur á einu bretti. Það
er sem sagt magnafslátt-
urinn. Fólk skilur þetta
ekki þegar það sér þess-
ar lágu tölur, enda eru
þær ótrúlegar þegar'að
er gáð að það kostar á
fimmtánda þúsund að
fljúga til Egilsstaða og
er þá flugvallarskattur
ekki meðtalinn,” segir
Guðni. En er þetta þá
ef til vill tími árs að hót-
elin ytra eru í vandræð-
um að nýta rými sitt?
„Nei, alls ekki,” svarar
Guðni, þetta er þvert á
móti mikill annatími. Öll
hótel eru full á þessum
tíma og mikið um að
vera.”
Hefur það komið niður á að-
sókn í ferðirnar að farið var að
tala um hámarkseyðslu einstakl-
inga í slíkum ferðum, 24.000
krónur á mann, er þær stóðu sem
hæst. „Nei og aftur nei. Þessar
tölur eru ekki ný bóla. Þetta er
standard- regla sem hefur lengi
verið við lýði og breytir engu.
Það eru að fyllast síðustu ferðirn-
ar okkar þrátt fyrir að farið sé
að viðra þessar reglur á nýjan
leik og eftirspurnin er slík að við
verðum trúlega með nokkrar
Guðni Þórðarson
ferðir í janúar,” svarar Guðni.
Ekki verslar fólk til jólanna í jan-
úar?
„Nei, en þá eru útsölur og það
lága verð sem menn kynnast fyr-
ir jólin er þá skorið niður um allt
að helming! Við höfum hreinlega
verið beðin um að koma á janúar-
ferðum, því vinnustaðir og fé-
lagasamtök hafa áhuga á að
komast á þessar útsölur og slá
svo tvær flugur í einu höggi, að
halda árshátíðina úti í leiðinni,”
segir Guðni að lokum.
Verslanir
við
Garðatorg
verða opnar á sunnudögum
frá hádegi til jóla.
Garðatorg, Garðabæ
VINNUSTOFA
Rúnu Gisladóttur
listmálara
Selbraut 11, Seltjarnarnesi verður opin alla daga
kl. 13-19 til 16. desember.
Sýndar verða litlar myndir sem fást með
eða án ramma.
Sími611525.
Glugginn auglýsir
Pils, peysur, peysujakkar,
blússur og toppar.
Munið gjafakortin.
Glugginn, Laugavegi 40.
Suomi
borðbúnaður
Porzellan-Stírvice ‘ Suomi'
Design: Tir.io Sarpaneva
,,Lifslistin“
í postulíni frá Ros-
enthal. Fagur borð-
búnaóuráyðareigið
borð. " f, ý'x .
/\l u //■ a\\v\\
Nýborg c§3
Ármúla 23, s. 813636