Morgunblaðið - 08.12.1991, Qupperneq 59
18.30 Auglýsingar. Dánaríregnir.
18.45 Veðurfregnir. Auglýsingar.
KUOLDUTVflBPKL. 19.00-0100
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Um daginn og veginn. Magnús Finnbogason
talar.
19.50 íslenskt mál. Umsjón: Jón Aðalsteinn Jóns-
son. (Áður útvarpað laugardag.)
20.00 Hljóðritasafnið.
- Þrir þættir úr „ Plánetunum" eftir Gustav
Holst og.
- „Gosbrunnar Rómaborgar”, sinlónisk Ijóð eft-
ir Ottorino Respighi. Sinfóníuhljómsveit æskunn-
ar leikur; Paul Zukofsky stjórnar.
- Garðar Cortes syngur þrjú lög eftir Richard
Strauss. Eric Werba leikur með á pianó.
21.00 Kvöldvaka. a. Af Brciðfirðingum. Málmfriður
Sigurðardóttir segir frá. b. Úr „íslandsklukkunni"
eftir Halldór Kiljan Laxness; c. Úr „Síðasta skipi
suður" eftir Jökul Jakobsson. d. „Rautt blóð".
Frásögn eftir Sigurð Magnússon. Umsjón: Amdís
Þorvaldsdóttir. Lesari ásamt umsjónarmanni:
Kristín Jónsdóttir. (Frá Egilsstöðum.)
22.00 Fréttir. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Dagskrá morgundagsins.
22.30 Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins. Rætt við
Hannes Hólmstein Gissurarson, lektor i sjóm-
málafræði við Háskóla íslands. Hannes hefur
skrifað bók um sfjórna rskrá rmálið svonefnda þar
sem hann vegur og metur hugsanlegar breyting-
ar á stjórnarskránni og endurskoðun hennar.
Umsjón: Ágúst Þór Ámason.
23.10 Stundarkom í dúr og moll. Umsjón: Knútur
R. Magnússon. (Einnig útvarpað á sunnudags-
kvöld kl. 00.10.)
24.00 Fréttir.
0.10 Tónmál. (Endurtekinn þáttur úr Árdegisút-
varpi.)
1.00 Veðurfregnir.
1.10 Næturútvarp á báðum rásum til morguns.
RÁS2
FM 90,1
7.03 Morgunútvarpið — Vaknað til lífsins. Leifur
Hauksson og Eiríkur Hjálmarsson hefja daginn -
með hlustendum. - Fjármálapistill Péturs Blön-
dals.
8.00 Morgunfréttir. - Morgunútvarpið heldur
áfram. - lllugi Jökulsson i starfi og leik.
9.03 9 - fjögur. Ekki bara undirspil i amstri dags-
ins. Umsjón: Þorgeir Ástvaldsson, Magnús R.
Einarsson og Margrét Blöndal. '
9.30 Sa§an á bak við lagið.
10.15 Furðufregnir utan úr hinum stóra heimi.
11.15 Afmæliskveðjur. Siminn er 91 687 123.
12.00 Fréttayfirlit og veður.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 9 — fjögur heldur áfram. Umsjón: Margrét
Blöndal, Magnús R. Einarsson og Þorgeir Ast-
valdsson.
12.45 Fréttahaukur dagsins spurður út úr.
13.20 „Eiginkonur I Hollywood" Pere Vert les
framhaldssöguna um fræga fólkið i Hollywood i
starfi og leik. Afmæliskveðjur klukkan 14.15 og
15.15. Siminn er 91 687 123.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagskró: DægurmálaúNarp og fréttir. Starfs-
menn dægurmálaútvarpsins, Anna Kristine
Magnúsdóttir, Bergljót Baldursdóttir, Katrin Bald-
ursdóttir, Þorsteinn J. Vilhjálmsson, og fréttaritar-
ar heima og erlendis rekja stór og smá mál. -
Kristinn R. Olafsson talar frá Spáni.
17.00 Fréttir. Dagskrá heldur áfram, meðal annars
með móli dagsins og landshomafréttum. - Mein-
hornið: Óðurinn til gremjunnar Þjóðin kvartar og
kveinar yfir öllu þvi sem aflaga fef.
18.00 Fréttir.
18.03 Þjóðarsálin - Þjóðfundur í beinni útsend-
ingu. Sigurður G. Tómasson og Stefán Jón Haf-
stein sitja við simann, sem er 91 — 68 60 90.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Ekki fréttir. Haukur Hauksson endurtekur
fréttimar sinar frá þvi fyrr um daginn.
19.32 Rokkþáttur Andreu Jónsdóttur. (Einnig út-
varpað aðfaranótt laugardags kl. 02.00.)
21.00 Gullskifan: „Santana" með Santana. frá 1969
- Kvöldfónar.
22.07 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson
spjallar við hlustendur til sjávar og sveita. (Úr-
vali útvarpað kl. 5.01 næstu nótt.)
0.10 í háttinn. Gyða Dröfn Tryggvadóttir leikur Ijúfa
kvöldtónlist.
1.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns.
Fréttir kl. 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00, 10.00,
11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00,
17.00, 18.00, 19.00, 22.00 og 24.00.
Samlesnar auglýsingar laust fyrir kl. 7.30, 8.00,
8.30, 9.00, 10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00,
15.00, 16.00, 17.00, 18.00, 19.00, 19.30, og
22.30.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.00 Sunnudagsmorgunn með Svavari Gests.
(Endurtekinn þáttur.)
2.00 Fréttir. Þáttur Svavars heldur áfram.
3.00 í dagsins önn - Á flæðiskeri stödd. Erfiðleik-
ar erlendra barna i grunnskólum Reykjavikur.
Umsjón: Ásgeir Eggertsson. (Endurtekinn þáttur
frá deginum áður á Rás 1.)
3.30 Glefsur. Úr dægurmálaútvarpi mánudagsins.
4.00 Næturlög.
4.30 Veðurfregnir. Næturlögin halda áfram.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
5.05 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson
spjallar við hlustendur til sjávar og sveita. (Endur-
tekið úrval frá kvöldinu áður.)
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
6.01 Morguntónar. Ljúf lög I morgunsárið.
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2
8.10-8.30 og 18.35-19.00. Útvarp Norðurland.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9 / 103,2
7.00 Útvarp Reykjavik, Þingmenn stýra dag-
skránni. Umsjón Ólafur Þórðarson.
9.00 Morgunhænur. Umsjón Hrafnhildur Halldórs-
dóttir og Þuríður Sigurðardóttir.
11.00 Vinnustaðaútvarp.
12.00 Hádegisfundur. Umsjón Hrafnhildur Hall-
dórsdóttir og Þuriður Sigurðardóttir.
13.00 Lögin við vinnuna. Umsjon Erla Friðgeirsdótt-
ir og Bjarni Arason.
14.00 Hvað er að gerast. Svæðisútvarp frá Sel-
fossi. Opin lína i síma 626060.
MORGUNBLAÐIÐ
UTVARP/SJÓNVARP sunnudagur s.
DESE^BER 1991
59
15.00 Tónlist og tal.
17.00 islendingafélagið. Umsjón Jón Ásgeirsson.
19.00 Lunga unga fólksins. í umsjón 10. bekkinga
grunnskólanna.
21.00 Á vængjum söngsins. Umsjón Óperusmiðj-
an.
22.00 Blármánudagur. Umsjón PéturTyrfingsson.
ALFA
FM 102,9
7.00 Morgunþáttur. Eriingur Nielsson.
9.00 Jódís Konráðsdóttir.
9.30 Bænastund.
13.00 Kristbjörg Jónsdóttir.
13.30 Bænastund.
17.30 Bænastund.
18.00 Sverrir Júlíusson.
20.00 Margrét Kjartansdóttir.
22.00 Hafsteinn Engilbertsson.
23.50 Bænastund.
24.00 Dagskrárlok.
Bænalínan er opin alla virka daga frá kl. 7.00-
24.00, s. 675320.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 Morgunútvarp Bylgjunnar. Eirikur Jónsson
og Guðrún Þóra. Fréttir kl. 7 og 8. Fréttayfirlit
kl. 7.30.
9.00 Anna Björk Birgisdóttir. Hlustendalina er
671111. Fréttir kl. 9 og 12. Mannamál kl. 10
og 11, fréttapakki i umsjón Steingrims Ólafsson-
ar og Eiriks Jónssonár.
13.00 Sigurður Ragnarsson. jþróttafréttir kl. 13.
Jólaleikur Bylgjunnar verður einhvern timann fyr-
ir fjögur. Mannamál kl. 14 i umsjón Steingríms
Ólafssonar.
16.00 Reykjavík síðdegis. Hallgrímur Thor-
steinsson og Steingrímur Ólafsson. Topp tíu
listinn frá Hvolsvelli. Fréttir kl. 17 og 18.
18.05 Símatimi. Bjarni Dagur Jónsson tekur púlsinn
á mannlifinu og ræðir við hlustendur. Síminn er
671111.
19.30 Fréttir.
20.00 Kristófer Helgason. Óskalög, síminn er
671111.
23.00 Kvöldsögur. Umsjón Eiríkur Jónsson.
24.00 Eftir miðnætti. Björn Þórir Sigurðsson.
4.00 Næturvaktin
EFFEMM
FM 95,7
7.00 Jóhann Jóhannsson í morgunsárið.
9.00 Ágúst Héðinsson á morgunvakl.
12.00 Hádegisfréttir.
15.00 jþróttafréttir.
Kl. 15.05 Anna Björk Birgisdótlir.
19.00 Kvölddagskrá FM.
21.00 Ragnar Már Vilhjálmsson.
21.15 Pepsi-kippa kvöldsins.
24.00 Haraldur Jóhannesson á nætun/akt.
HUÓÐBYLGJAN
Akureyri
FM 101,8
16.00-19.00 Pálmi Guðmundsson fylgir ykkur með
góðri tónlist sem á vel við á degi sem þessum.
Tekið á móti óskalögum og afmæliskveðjum í
sima 27711. Þátturinn Reykjavík siðdegis frá
Bylgjunni frá 17.00-18.30. Fréttir frá fréttastofu
Bylgjunnar/Stöð 2 kl. 17.17. Tónlist milli kl, 18.30
og 19.00.
STJARNAN
FM 102/104
7.30 Sigurður Ragnarsson.
10.30 Sigurður H. Hlöðversson.
14.00 Arnar Bjarnason.
17.00 Felix Bergsson.
19.00 Grétar Miller.
22.00 Ásgeir Páll.
00.00 Halldór Ásgrímsson.
ÚTRÁS
FM 104,8
16.00 FB.
18.00 Framhaldsskólafrétfir.
18.15 IR.
20.00 Kvennó.
22.00 MR.
1.00 Dagskrárlok.
■$■
Lof heímskunnar
ÞRJAR BÆKUR
SEM LEIFTRA AF ORÐSNILLD
OG SKARPRI HUGSUN
✓
I bókinni Manngerðir eftir Þeófrastos
(372-287 f. Kr.), er Ijallað um 30 sérkenni í siðum
manna sem hljóta að teljast vafasöm s.s. smjaður,
illmælgi og blaður, stimamýkt, fruntaskap og
dindilmennsku. Manneðlið breytist ekki og þótt
2000 ár séu liðin frá ritun bókarinnar er ekki
ólíklegt að margur kannist við persónur í þessum
skemmtilegu mannlýsingum. Bókin er ríkulega
skreytt lyndislestrarmyndum.
Hver er heimssýn heimskunnar og hvaða
hlutverk ætlar hún sjálfri sér? í bókinni Lof
heimskunnar eftir Erasmus frá Rotterdam (1469-
1536), lætur höfundurinn heimskuna rausa
gáleysislega um alvarleg efni. Hún sér margt
kyndugt í fari manna og skopast að áráttu þeirra til
að sýnast merkilegri en þeir eru.
Stephen W. Hawking er einn af fremstu
eðlisfræðingum samtímans og í bókinni Saga
tímans bregður hann upp heimsmynd nútíma
eðlisfræði og setur fram frumlegar tilgátur um
uppruna, þróun og eðli alheimsins. Hann gerir sér
grein fýrir takmörkum eðlisfræðinnar og spyr
áleitinna spuminga s.s. „Hvað blæs líísanda í
jöfnumar og fær þeim heim til að lýsa?“. Bókin er
metsölubók um víða veröld.
HH) ÍSLENZKA BÓK1V1ENNTAFÉIAG
SfDUMÚU 21 • PÓSTHÓLF 89.15 • 128 REYKJAVÍK • SfMI 91-679060
M.
1816^1991
■$■
Gárur
eftir Elínu Pálmadóttur
Landakynning
Endur fyrir löngu gerðu
norrænir víkingar
strandhögg á írlandi,
Skotlandi og bresku eyjunum.
Hjuggu þar mann og annan.
íslenskir fornmenn höfðu heim
með sér konur og gerðu að
ambáttum. Eftir víkingaöld létu
íslendingar þessar þjóðir að
mestu í friði. Þar til nú að ann-
að strandhögg er hafið. Nú hef-
ur innrásarliðið með sér til síns
heima góss úr magasínum.
Fommenn virðast vart hafa litið
við ófínni stöðum en konungshí-
býlum. írsku ambáttirnar þeirra
vora samkvæmt íslendingasög-
um ekkert minna en konungs-
dætur. Nútíma innrásarlið er
ekki svoddan gikkir. Hefur
einfaldan smekk og kýs að
gera innrás í ódýru mag-
asínin. Ekki fara sögur
af því að víkingamir
hafi borgað fyrir sig-.
Nútímainnrásarliðið
raunar ekki heldur í
peningum. Það fram-
vísar krítarkortum.
Ekki svo fáum.
Verslun íslendinga
með Visakortum erlend-
is í nóvembermánuði
einum nam tæpum 576
milljónum króna og má fá býsna
mikið af ódýra góssi fyrir þá
upphæð. Sé október bætt við fer
úttektin upp fyrir milljarð. Er
þá ótalið það sem tekið var á
Eurokort, borgað með tékkum
eða reiðufé og eitthvað hefur svo
bæst á í desember. Mannskapinn
{ þessu síðara strandhöggi má
marka á því að yfir 15 þúsund
íslenskir ferðamenn vora að
koma heim aftur í nóvember,
hefur fjölgað um þriðjung frá í
fyrra. Svo þetta er ekki ómerk
herför eða óverulegt herfang.
Ekki fara líklega margir ís-
lendingar í jólaköttinn í ár. Fá
að minnsta kosti nýja flík að
fara í. Kannski hittast einhveijar
konurnar í jólaboðunum í eins
kjólum úr fjöldaframleiðslu stór-
markaðanna í sömu borgum.
Það ætti engan að angra leng-
ur, sýnir bara að flíkin er fengin
í innkaupaferð í útlandinu.
Gamla íslenska trúin um að
braki í óborguðum skóm þegar
gengið er inn eftir kirkjugólfinu
er víst fyrir bí. Hún er frá þeim
tíma þegar skömm þótti að
skarta því sem maður átti ekki
— ennþá. Annars yrðu jólamess-
urnar líklega eins og bíósýning-
ar, þegar allt liðið bryður popp-
korn í takt með tilheyrandi
brestum.
Verslunarstrandhögg hið nýja
beinist aðallega á fornar
víkingaslóðir um norðanverðar
Bretlandseyjar. Samtímis sækj-
um við líka sunnar með
menningarinnrás í London. Bít-
um í skjaldarrendur og betjum
bumbur, enda ku ekki duga
minna en láta dólgslega til að
ná sjónum sjónvarpsmanna í
þvísa landi. Var því mikið snjall-
ræði að láta liðið beija sér. Og
sjá mátti og heyra að mest og
best buldi í hausum. Ku hvort
tveggja, að beija sér og sýna
hausa sem bylur í, þjóðlegt
mjög. Kannski er rétt að það sé
hin besta kynning á landanum,
enda segir gamall og góður háís-
lenskur málsháttur: Bylur hæst
í tómri tunnu. Semsagt afbragðs
landkynning eða öllu heldur
landakynning. Hlýtur nú að fara
að líða að því að Bretar viti að
hér norður á þessari eyju býr
fólk — og það fólk með höfuð
sem bylur í. Kynni að vera að
svoleiðis höfuð verði notadijúg
í samningaslagnum mikla suður
í Evrópu.
Það hefur Víst sína kosti og
ókosti að vera fjarlæg eyja í
Atlantshafinu. Hvílík ósköp sem
fyrir því þarf að hafa að vekja
á okkur athygli og kynna land-
ið. Til kostanna má svo telja fjar-
lægðina frá öðrum þjóðum. Það
fannst mér a.m.k. stundina sem
ég sl. vor sat með glas með
nokkr- um alþjóðleg-
um
starfs-
mönn-
um
flótta-
mannahjálpa í hótelnefnu í sýr-
lensku eyðimörkinni í nánd við
írak, þar sem eðlilega vora til
umræðu öll þessi stríðsátök víðs
vegar um heiminn. Með glas er
raunar orðum aukið, því flestir
komu frá löndum þar sem trúar-
brögð banna slíkt. Einhver af
fjarlægum slóðum spurði af
umhyggju fyrir landi mínu um
okkar næstu nágranna, hveijir
ættu með okkur sameiginleg
landamæri. Þegar þeim hafði
verið sagt að Island væri eyja
og landamærin 200 mílur á hafi
úti allt í kring, engir ágengir
nágrannar, luku þau upp einum
munni: Þið eruð svei mér hepp-
in! Öll komu þau frá löndum sem
höfðu orðið illa úti í nágranna-
eijum og styijöldum út af landa-
mærum. Læðist að sá grunur
að það hafi sína kosti að vera
ekki alltof mikið kynnt og þekkt.
Þá mátti að minnsta kosti bjóða
í samningapúkkið við Evrópu-
löndin fisk, sem við vitum ekki
sjálf hvort til er í sjónum okkar.
Það tókst að vísu ekki. En það
mátti að minnsta kosti reyna
það. Og það hefði getað heppn-
ast. Og nú eram við sármóðguð
yfir því að þeir vita svona mikið
um okkur og okkar fisk þama
suður í Brussel. Landkynningin
getur líklega verið dulítið tvísýn.
Senn fer strandhögginu í
magasínin í Bretlandi að ljúka
og hefst fjölskylduútflutningur-
inn til suðlægra landa fyrir há-
tíðarnar. í blöðum má lesa að
300 manns ætli að eyða jólunum
á Kanaríeyjum einum. Alltaf
finnst mér börnin sem ekki fá
að kynnast íslensku jólunum
eiga svolítið bágt. í öllum við-
tölum við brottflutta íslendinga
hafa þeir orð á því að þeir sakni
mest jólanna heima. Þá óski
þeir sér að vera komnir til Is-
lands. Börn sem aldrei fá að
kynnast íslenskum jólum í stór-
fjölskyldunni sakna að vísu
einskis. Það er gaman í hótel-
sundlauginni. Þau eiga einfald-
lega ekki þessar sterku jóla-
minningar. En hætt er við að
þar með sé skorið á enn einn
rótarangann sem í heldur í rót-
lausum heimi. Gæti orðið obbo-
lítið hald í honum seinna.