Morgunblaðið - 08.12.1991, Side 60
Bögglapóstur
um ollt lund
PÓSTUR OG SÍMI
ittgtmfrliiifrft
VZterkurog
k J hagkvæmur
auglýsingamióill!
MORGUNBLADID, ADALSTRASTI 6. 101 REYKJAVlK
SlMI 691100, FAX 601181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Annríki hjá
lögreglunni:
Glóðglað-
ir ökumenn
teknir víða
ALLS voru 10 ökumenn teknir
grunaðir um ölvun við akstur
víða um borgina aðfaranótt
laugardagsins og einn áberandi
ölvaður ökumaður varð valdur
að umferðarslysi á mótum
Snorrabrautar og Miklubrautar
um nóttina. Einn af þeim sem
teknir voru grunaðir um ölvun
við akstur tók það sérstaklega
fram að hann hafi verið að
koma úr jólaglóðarveislu en
lögreglan býst við að glóðin
valdi svipuðum vandræðum í
ár og í fyrra.
Umferðarslysið var skömmu
eftir klukkan 2 um nóttina. Hinn
ölvaði ók aftan á kyrrstæðan bíl
við gatnamótin. Við höggið hrökk
einn farþega bflsins út úr honum
og var fluttur á slysadeild. Meiðsli
hans reyndust minniháttar. Eftir
ákeyrsiuna reyndi hinn ölvaði að
flýja af vettvangi en leigubílstjór-
um, sem sáu til mannsins, tókst
að stöðva hann á Grettisgötunni
og var honum komið í hendur lög-
reglunnar.
Reykjavík:
Svipaður fjöldi fæð-
inga og undanfarin ár
FÆÐINGAR á Landspítalanum voru 2.418 fyrstu ellefu mánuði
ársins en reiknað er með um það bil 160 fæðingum í desember.
Fyrir helgi höfðu 438 konur fætt börn sín á Fæðingarheimilinu. ,
2.732 árið þar áður en árið 1988
var metár, 2.800 fæðingar.
Fæðingar á Fæðingarheimilinu
voru orðnar 438 fyrir helgi, allt
einburafæðingar. Tölur um fæð-
ingar annars staðar á landinu en
í Reykjavík berast Hagstofunni í
lok ársins.
Af 2.418 fæðingum á Land-
spítalanum átti 41 kona tvíbura.
Börnin eru því samials 2.459 fyr-
ir utan desembermánuð en þá er
reiknað með 160 fæðingum. Flest-
ar fæðingar voru í maí og mars,
243 hvom mánuð. 2.783 fæðingar
voru á Landspítalanum í fyrra,
Sjúkraþjálfun fyrir ellilífeyrisþega:
Borgin hefur ákveðið
að hætta greiðslum
FÉLAG íslenskra sjúkraþjálfara hefur ritað heilbrigðisráðherra bréf
þar sem félagið lýsir áhyggjum sínum vegna niðurfellingar á kostnaðar-
hlutdeild Reykjavíkurborgar í sjúkraþjálfun ellilífeyrisþega um næstu
áramót, sem samþykkt var í borgarráði 12. nóvember síðastliðinn.
Markús Örn Antonsson borgarstjóri sagði að þetta væri gert á grund-
velli laga frá 1989 um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Trygginga-
stofnun hefur greitt 60% af kostnaði ellilífeyrisþega vegna sjúkraþjálf-
unar og Reykjavíkurborg 40%. Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri í heil-
brigðisráðuneytinu segir Ijóst að Reykjavíkurborg sé að skera niður
þjónustu og að lög um verkaskiptingu séu fyrirsláttur.
Hulda Ölafsdóttir, formaður Fé-
lags íslenskra sjúkraþjálfara, sagði
að félagið hefði farið fram á það við
dómsmálaráðuneytið að þessi kostn-
aðarhlutur yrði tekinn inn í lög um
almannatryggingar, en verið væri
að fjalla um breytingar á þeim lögum
núna. „Það eru allir mjög áhyggju-
fullir vegna þessa máls innan stjórn-
arinnar. í raun er það ekki mikill
kostnaður sem sveitarfélögin hafa
borið af þessu. í Reykjavík eru þetta
Sigurvon ÍS fékk á sig brot og þurfti í land:
Faríð strax út aftur að ná í
fisk til vinnslu í Freyjunni
Suðureyri.
SIGURVON IS 500, 200 tonna
línubátur frá Suðureyri, fékk á
sig brot út af Skálavík síðdegis
á föstudag. Báturinn varð að
fara inn til Bolungarvíkur til
viðgerða en hélt til veiða að
nýju skömmu fyrir miðnætti og
kom á laugardagsmorgun inn
til Suðureyrar með afla þann
sem þá var unninn í frystihúsi
Freyju.
Brotið kom á síðu bátsins og
fór sjór inn um lúguna þar sem
línan er dregin. Spil fór úr sam-
bandi og var afráðið að fara inn
til Bolungarvíkur til viðgerða, sem
tóku skamma stund og var þá
haldið út að nýju til að draga lín-
una og koma að landi afla svo
vinnsla gæti hafist í Fiskiðjunni
Freyju eftir hlé á „laugardegi til
lukku” eins og að hafði verið
stefnt.
Sturla Páll
á milli 10-11 milljónir kr. á þessu
ári, sem er ekki há upphæð miðað
við það sem þessi þjónusta sparar
af annarri dýrari heilbrigðisþjón-
ustu,” sagði Hulda. Gísli K. Péturs-
son, yfirmaður fjármála- og rekstrar-
deildar Reykjavíkurborgar, staðfesti
þessa tölu.
Hópur sjúkraþjálfara sem starfa
við öldrunarþjónustu hefur einnig
lagt drög að bréfí til dómsmálaráðu-
neytisins vegna þessa máls. Hulda
sagði að kæmi ríkið ekki til móts við
þessa einstaklinga yrðu þeir að
greiða 40% af þessari þjónustu eins
og aðrir. „Iðulega þurfa þessir ein-
staklingar að taka leigubíl á staðinn.
Fyrir fólk sem hefur lítið umleikis
yrði þetta töluverður baggi. Ég er
sannfærð um að þetta leiddi til þess
að fólk færi sjaldnar til sjúkraþjálf-
ara og það gæti haft þær afleiðingar
að það þyrfti á dýrari heilbrigðisþjón-
ustu að halda,” sagði Hulda. „Við
óttumst að þó svo vel verði í erindi
okkar tekið í dómsmálaráðuneytinu
myndist alltaf eitthvert gat þarna á
milli eitthvert tímabil meðan málið
gengi í gegnum þingið.”
Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri
sagði að ráðuneytinu hefði ekki bor-
ist erindi um ákvörðun Reykjavíkur-
borgar. Lagabreytingu þyrfti til þess
að ríkið tæki á sig þennan umfram-
kostnað. Hann sagði að Reykjavíkur-
borg væri með þessu að minnka þá
þjónustu sem hún hefði haft. Þetta
væri ekki í samræmi við lög um
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga, því þarna hefði Reykjavíkur-
borg tekið á sig meiri skyldur en
henni bar samkvæmt lögum. „Lög
um verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga hafa verið í gildi í tvö ár þann-
ig að ég myndi líta svo á að Reykja-
víkurborg sé bara að minnka þá þjón-
ustu sem hún hefur veitt. Það er
engin ástæða fyrir Reykjavíkurborg
að breyta þessu núna, hún hefði þá
átt að breyta þessu í ársbyrjun
1990.”