Morgunblaðið - 15.01.1992, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1992
Morgunblaðið/Sverrir
Edda Kristjánsdóttir, flautuleikari, Hildur Þórðardóttir, flautuleikari, og Þórhildur Halla Jónsdótt-
ir, sellóleikari.
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands:
Þrír ungir hljóðfæraleik-
arar taka einleikarapróf
TÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveitar íslands og Tónlistarskólans í
Reykjavík verða haldnir í Háskólabíói á morgun, fimmtudaginn 16.
janúar, kl. 20. Þá taka þær Edda Kristjánsdóttir, flautuleikari, Hild-
ur Þórðardóttir, flautuleikari, og Þórhildur Halla Jónsdóttir, selló-
leikari, fyrri hluta einleikaraprófs, en í vor halda þær sína tónleik-
ana hver og verður það seinni hluti prófsins. Sljórnandi tónleikanna
í Háskólabíói er Bernharður St. Wilkinson.
Edda Kristjánsdóttir hóf flautu-
leikaraferil sinn átta ára gömul í
Svíþjóð og síðar í Hafnarfirði. Síð-
ustu sjö árin hefur hún stundað
nám hjá Bernharði St. Wilkinson í
Tónlistarskólanum í Reykjavík.
Á tónleikunum leikur Edda verk-
ið Euridice eftir Þorkel Sigur-
björnsson. „Mig langaði til að spila
íslenskt verk og þetta varð fyrir
valinu. Það er samið um grísku
goðsögnina Orfeus og Evridís. Þor-
kell segir söguna útfrá sjónarhomi
Evridísar, sem er skilin eftir í undir-
heimum. Það er mjög skemmtilegt
að í nótunum eru fyrirmæli um það
hvemig lýsingin á sviðinu eigi að
vera og einnig stend ég ekki alltaf
á sama stað á sviðinu. Það er auk
þess skemintileg hljóðfæraskipan
en til dæmis er rafmagnsbassi
með,“ segir Edda.
Hún segist stefna að því að fara
til útlanda næsta vetur og miðar
við að vera í einkatímum í stað
þess að fara í nám í tónlistarskóla.
„Ég er búin að sækja um í málvís-
indum í háskóla í Bandaríkjunum,
en ég hef verið í samskonar námi
hér í Háskóla íslands síðan ég lauk
stúdentsprófi í fyrra, jafnframt
flautunáminu." Edda segir að þar
sem ekki sé boðið upp á kennslu á
hærra stigi hér á landi, fari flestir
til útlanda til frekara náms í flautu-
leik. „Það eru litlir atvinnumögu-
leikar fyrir flautuleikara og því
heldur óöruggt. Þess vegna stefni
ég á eitthvað háskólanám til að
hafa eitthvað annað í bakhönd-
inni,“ segir Edda Kristjánsdóttir.
Hildur Þórðardóttir hóf nám sitt
í flautuleik í Neskaupsstað sem
krakki og sautján ára gömul í Tón-
listarskóla Reykjavíkur. Þar var
hún fyrst hjá Guðrúnu Birgisdóttur
og síðar hjá Martial Nardeau. Hild-
ur leikur á tónleikunum konsert
fyrir flautu og hljómsveit í h-moll
op. 30 eftir Bernhard Romberg og
er þetta frumflutningur verksins
hér á landi. „Romberg var Þjóð-
veiji, sem var klassískt og róman-
tískt tónskáld. Þessi konsert er
klassískur en hefur svolítinn róm-
antískan blæ,“ segir Hildur.
Hún segir alveg óráðið hvað hún
taki fyrir í framtíðinni, en hún
kennir nú við Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar annan veturinn í
röð.„Það fer svolítið eftir því hvem-
ig prófið gengur en að sjálfsögðu
íhugar maður að fara til útlanda.
Ef af því yrði býst ég við að ég
færi þá til einkakennara," segir
Hildur.
Þórhildur Halla Jónsdóttir, selló-
leikari, hóf nám sitt hjá Pétri Þor-
valdssyni sjö ára gömul. Fimmtán
ára fór hún í Tónlistarskólann í
Reykjavík og hefur haft Gunnar
Kvaran sem kennara síðan. Á tón-
leikunum leikur Þórhildur konsert
fyrir selló og hljómsveit í D-dúr op.
101 eftir Joseph Haydn. „Þetta er
dæmigerður klassískur konsert,
sem Haydn samdi árið 1783. Þetta
er annar af tveimur sellókonsert-
um, sem hann samdi," segir Þór-
hildur.
Hún segist vera að hugsa um
að fara utan næsta vetur til frek-
ara náms í sellóleik. „Ég hugsa að
annað hvort verði Bretland eða
Bandaríkin fyrir valinu. Ég býst
við að byija á því að fara í tónlistar-
skóla en það er að sjálfsögðu mjög
mikilvægt að fínna einkakennara,
sem manni líkar vel við.“
Þórhildur hefur verið að kenna
í Tónlistarskólanum í Hafnarfirði
síðan hún lauk stúdentsprófi í
fyrra. Hún segir að mikil streita
fylgi tónleikum sem þessum og þar
sem þær fái ekki endanlega útkomu
úr einleikaraprófinu fýrr en að
hafa lokið öðrum tónleikum í vor,
verði að koma í ljós hvað framtíðin
beri í skauti sér þegar þar að kem-
ur.
Gaf tvö Kjarvalsmálverk
VIÐ opnun Kjarvalssýningar á Kjarvalsstöðum sl. laugardag færði
Kristín Björnsdóttir, fyrrverandi alþjóðastarfsmaður hjá Sameinuðu
þjóðunum, Kjarvalssafni tvö olíumálverk eftir Jóhannes S. Kjarval.
Las Gunnar Kvaran listráðunautur upp úr gjafabréfi er fylgdi
málverkunum, sem höfðu verið hengd upp á sýningunni. Hulda
Valtýsdóttir, formaður menningarmálanefndar Reykjavíkur, þakk-
aði Kristínu fyrirTiönd safnsins fyrir hlýhug og þessa ómetanlegu
gjöf.
Málverkagjöfin er til minningar
um elskaða foreldra Kristínar, eins
og segir í gjafabréfinu, þau Söru
G. Þorleifsdóttur, sem fædd var í
Fremrihúsum í Arnardal 5. desem-
ber 1871 og dáin 18. desember
1942, og Björn Sigurðsson, sem
fæddur var í Gröf 9. mars 1871
og varð úti í Húnavatnssýslu 28.
febrúar 1911. Hann var bóndi og
kennari. Sara hafði stundað nám í
Kvennaskólanum í Reykjavík í 2
ár, 1991-1992. Þau gengu í hjóna-
band 19. febrúar 1899 og bjuggu
á Húnsstöðum það ár, á Bjarnar-
stöðum 1900-1904 og á Litlu-Giljá
1904-1911. Foreldrar Söru voru
Þorleifur bóndi í Fremrihúsum í
Arnardal, fæddur 16. október 1832
og dáinn 15. mars 1882, og Kristín
Benediktsdóttir kona hans, fædd
20. nóvember 1830 og dáin 11.
mars 1883. Foreldrar Bjöms voru
Sigurður Bárðarson bóndi í Gröf,
fæddur 5. apríl 1834 og dáinn 5.
mars 1901 og Guðrún Jónasdóttir
kona hans, fædd 23. mars 1832
dáin 1906.
Kristín segir að minna málverk-
ið, sem er af rauðhærðum dreng,
hafi verið í hennar eigu síðan 1929,
þá gefið henni á tvítugsafmæli
hennar af Jóni Sigurðssyni frá
Kaldaðamesi. En stærri myndina
gaf Kjarval henni sjálfur 6. ágúst
1954 í Reykjavík, er hún var stödd
í heimsókn á íslandi frá störfum
sínum hjá Sameinuðu þjóðunum í
New York. Það var nýmálað og
ekki fullþornað er hann færði henni
það, áður en hún við brottförina
fór um borð í skipið. Hún kvaðst
þakklát þessum tveimur mönnum,
sem voru vinir hennar og hún mat
mikils.
Möguleiki á stofnun
hlutafélags um
Iðnó þegar kannaður
- segir Inga Bjarnason leikstjóri
INGA Bjarnason leiksljóri og for- menningarhús, þar sem hægt yrði
svarsmaður undirskriftasöfn- að halda tónleika en ekki endilega
unar meðal listamanna um björg- reka þarna leikhús, nóg er af þeim.“
un Iðnó, segir að oft hafi verið
kannaður möguleiki á stofnun
hlutafélags um kaup og rekstur
á Iðnó en án árangurs. Þeir sem
eru vel fjáðir séu ekki menning-
arlega sinnaðir auk þess sem það
sé hlutverk ríkisins og Reykjavík-
urborgar að eiga og endubæta
Iðnó. Markús Örn Antonsson
borgarstjóri, leggur til að kann-
aður verði möguleiki á stofnun
hlutafélags um kaup og rekstur
hússins.
„Þetta mál er búið að velkjast
um í kerfinu í fimm ár,“ sagði Inga.
„Það eru allir sammála um að varð-
veita húsið en það vill enginn borga.
Þessi hugmynd um almenningshlut-
afélag, þeir halda að það sé eitthvað
töfra orð. Fólk sem á peninga í dag
er ekki það menningarlega sinnað
að það vilji kaupa svona. Þessi al-
menningshlutafélög eru til og það
eru ríki og borg.“
Inga sagði að baráttunni fyrir
varðveislu hússins yrði haldið áfram.
„Þetta er vagga okkar menningar,"
sagði hún. „Það þýðir ekki að byggja
hallir en gleyma rótunum. Lista-
menn þessarar þjóðar eru færir um
að reka svona hús en þeir geta ekki
keypt það. Ég tel að ríki og borg
beri skylda til að kaupa húsið, eiga
það og lagfæra. Síðan munu lista-
menn reka húsið sem fjölnota
Lán sj ávarútvegsfyrirtækj a
í Atvinnutryggingardeild:
Skuldbreytingin
nær ekki til vaxta
Færanleg
leikskóla-
deild við
Ægisborg
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt tillögu stjórnar Dag-
vistar barna um kaup á færan-
legri lcikskóladcild, sem sett
verður á lóð Ægisborgar við
Ægissíðu. Áætlaður heildar-
kostnaður er 10 til 11 milljón-
ir króna.
í bréfi Bergs Felixsonar fram-
kvæmdastjóra Dagvistar barna,
til borgarráðs, segir að tillagan
sé fram komin vegna vanda sem
upp er kominn við rekstur Val-
hallar við Suðurgötu.
„Húsið Valhöll er í eigu ríkis-
sjóðs og hefur ekki verið viðhald-
ið sem skyldi. Það er ekki hent-
ugt sem leikskóli, er á þremur
hæðum, lóð lítil og stendur við
mikla umferðargötu. Af þeim
sökum fæst ekki menntað
starfslið til að reka Valhöll í
óbreyttu formi.“
Skuldbreyting lána sjávarút-
vegsfyrirtækja í Atvinnutrygg-
ingardeild Byggðastofnunar tek-
ur hvorki til vaxta áranna 1992
og 1993 né til afborgana og vaxta
sem féllu í gjalddaga á árinu
1991 eða fyrr, samkvæmt reglum
sem forsætiráðherra og fjár-
málaráðherra hafa kynnt Byggð-
astofnun.
Ríkisstjórnin ákvað í desember
að skuldbreyta þessum lánum og
heimila sjávarútvegsfyrirtækjum að
færa afborganir áranna 1992 og
1993 aftur þannig að lánsstíminn
lengist um fjögur ár. Samkvæmt
frumvarpi til lánsfjárlaga er ríkis-
stjórninni heimilt að taka að láni
1.650 milljónir króna til að Atvinnu-
tryggingardeildin geti staðið við
skuldbindingar sínar í kjölfar þessa.
í reglunum sem settar hafa verið
um skuldbreytinguna segir að sú
aðgerð nái til sjávarútvegsfyrir-
tækja, og einstaklinga og lögaðila
sem hafi fengið lán til hlutabréfa-
kaupa í sjávarútvegsfyrirtækjum.
Aðgerðin nái ekki til vaxta nema á
þann hátt sem af tilfærslu afborg-
ana leiðir, og ekki til afborgana og
vaxta sem fallið hafi í gjalddaga á
árinu 1991 eða fyrr. Þar sem það
eigi við, skuli skuldarar semja við
Atvinnutryggingardeild um endur-
greiðsluhlutfall eða aflaverðmæti
með það fyrir augum að gera upp
vanskil og vexti áranna 1992 og
1993.
Morgunblaðið/KGA
Kristín Björnsdóttir við myndirnar tvær sem hún afhenti Kjarvals-
safni að gjöf á sýningnnni sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum.