Morgunblaðið - 21.01.1992, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 21.01.1992, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992 37 Minning: Páll Kristinsson Fæddur 20. nóvember 1911 Dáinn 13. janúar 1992 Elskulegur vinur okkar, Páll Kristinsson, er fallinn frá. Páll var kvæntur Kristínu Guðmundsdóttur, en hún lést árið 1979. Kristín og Páll, eða „Pallistína" eins og þau voru oft kölluð, voru einstaklega samhent og samhuga. Líf þeirra einkenndist fyrst og fremst af óþijótandi hjálpsemi og höfðings- skap við aðra, sama hvort verið var á Iðu eða á heimili þeirra hér í borg. Orð mega sín lítils, en margar eru minningarnar. Minningar um samverustundir þar sem ætíð ríkti gleði, ánægja og einstakt trygg- lyndi. Fátt er meira virði en að kynn- ast góðu og heiðarlegu fólki, og því þökkum við fyrir þann heiður að fá að hafa verið vinir Palla og hans fjölskyldu. Með þessum fátæklegu orðum kveðjum við Palla með virðingu og þökk. Helgu, Þóri og öðrum að- standendum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Hanna, Anna og Eyvindur. En þú sem undan ævistraumi flýtur sofandi að feigðarósi, lastaðu ei laxinn sem leitar móti straumi sterklega og stiklar fossa. (Bjarni Thorarensen) Þannig var Páll Kristinsson, mað- ur sem leitaði ávallt á brattann, og lét ekki undan síga, hvernig sem lífsbaráttan gekk á hverjum tíma. Páll var góður og traustur vinur, enda minnumst við ánægjulegra heimsókna til þeirra hjóna Páls og Kristínar, hvort heldur var á heim- ili þeirra hér í bænum, eða í sumar- bústað að Iðu í Biskupstungum, því þar átti hann sínar bestu stundir ásamt fjölskyldu og vinum, á þeim fræga veiðistað við Hvítá. Það voru margir vinirnir, sem áttu ánægjulega daga hjá þeim hjónum í veiðihúsinu, enda höfð- ingjar heim að sækja, var Páll hrók- ur alls fagnaðar, vinmargur og traustur heimilisfaðir. Páll rak um áratugaskeið Raf- geymahleðsluna í Síðumúla, þar sem margir bíleigendur nutu ein- stakrar þjónustu og leiðbeininga, enda var honum hjálpsemin í blóð borin, eignaðist hann því marga vini á löngum og farsæium starfs- ferli. Oft var vinnutíminn langur og strangur, var ekki fengist um það, öllum þurfti að hjálpa. Við sendum dótturinni Helgu og allri fjölskyldunni okkar innilegustu samúðarkveðjur, með þökk fyrir allt. Minningin lifir. Lára, Óli og fjölskylda. Asgerður Guðmunds- dóttir - Kveðjuorð Fædd 11. maí 1914 Dáin 23. desember 1991 Ásgerður Guðmundsdóttir frá Stóru-Giljá, búsett á Víðivöllum 14i á Akureyri, lést á Fjórðungssjúkra- húsi Akureyrar á Þorláksmessu. Ása var fædd á Stóru-Giljá í Austur-Húnavatnssýslu 11. maí 1914. Foreldrar hennar voru Guð- mundur Frímannsson frá Hvammi í Vatnsdal og Jósefína Erlendsdótt- ir frá Stóru-Giljá. Guðmundur veiktist af berklum og Ieiðir þeirra skilja upp frá því, en Ása var þá barnung. Af föðurnum átti hún einn bróður, Jóhann Guðmundsson, síðar póstmeistari á Akureyri, en hann er látinn. Hún ólst upp hjá móð- urömmu sinni, Ástríði Erlendsdótt- ur, og móðurbræðrum, Sigurði og Jóhannesi Erlendssonum á Stóru- Giljá. Jósefína giftist Friðrik Hans- en á Sauðárkróki og áttu þau sam- an átta börn, Emmu, Ragnar, Björgu og Guðmundj sem búsett eru í Reykjavík, og Astríði, Krist- ján, Erlend og Jóhannes, sem bú- sett eru á Sauðárkróki. Uppeldis- systir Ásu, Jóhanna Björnsdóttir, var síðan sú tíunda í systkinahópn- um. Á Stóru-Giljá ólst Ása upp við fjölbreytt mannlíf. Auk margra heimilismanna var þar mjög gest- kvæmt og heimilið rómað fyrir gest- risni og rausnarskap. Ása var í Húsmæðraskólanum á Blönduósi 1933 og ’34. Um 1940 fluttist Ása til Akureyrar og vann fyrst sem Fákafen 11 Opið 9-22 alla daga ‘Ðaíxd ráðskona og síðan lærði hún klæð- skerasaum. Á þeim tíma kynntist hún Hallgrími Vilhjálmssyni frá Torfunesi í Köldukinn, síðar trygg- ingafulltrúa á Akureyri. Þau Hall- grímur giftu sig 1944 og bjuggu fyrst í Fjölugötu 18 og síðan í Víði- völlum 22 á Akureyri. Á sínum fyrstu árum áttu þau og ráku sam- an ásamt fleirum Vinnufatagerðina á Akureyri. Ása vann ýmis störf samhliða heimilishaldinu, m.a. hjá þvottahúsinu Mjöll, en síðast vann hún hjá Útgerðarfélagi Akureyrar. Þau Hallgrímur eignuðust sjö börn, en tvö misstu þau við fæðingu. Börn þeirra eru: Erla Jósefína, El- ísabet, Hallgrímur Ásgeir og Jónas, öll búsett á Akureyri og Sigurður Jóhannes búsettur í Hafnarfírði. Bamabörnin eru þrettán og barna- bamabörnin þijú. Heimili þeirra Hallgríms og Ásu var gott heimili, þar var líf, þar var gestrisni og örlæti og þar var góð- vild. Raunar fannst mér oft furðu sæta hvað þar reyndist oft mikið pláss. Samband þeirra við „fólkið sitt" var óvenju mikið og gott og því mjög gestkvæmt á heimili þeirra. Ása var með afbrigðum laghent og vinnusöm. Hennar vinnudagur byijaði oftast snemma á morgnana löngu áður en annað fólk fór á fætur, en þá var gjarnan friður til að sauma föt á krakkana, smíða handa þeim leikföng, eða gera við bilaða rafmagnssnúm. Enga aðra konu hef ég séð gera við rafmagns- tæki og tól. Raunar var sama á hveiju hún snerti, allt lék í höndun- um á henni. Skapgerð Ásu ein- kenndist af glaðværð og jákvæðu hugarfari og meiningu sína sagði hún hreinskilnislega hveijum sem í hlut átti. Hallgrím missti Ása 1981 og var hans sárt saknað. Nú um jólin hafa þau getað rifjað upp sameiginlega öll skemmtilegu jólin í Víðivöllum. Ég kveð Ásu tengdamóður mína með þakklæti í huga fyrir að hafa fengið að kynnast henni. Það var eitt kvöld að mér heyrðist hálfveg- is barið, ég hlustaði um stund og tók af kertinu skar- ið, ég kallaði fram, og kvöldgolan veitti mér svarið: Hér kvaddi lífið dyra og nú er það farið. Óskar Þór Árnason. t HELGA GUÐJÓNSDÓTTIR LAXNESS píanókennari, veröur jarðsett fró Lágafellskirkju, Mosfellsbæ, fimmtudaginn 23. janúar kl. 2 e.h. Vinum hennar er bent á Minningarsjóð Krabbameinsfélagsins. Auður, Sigríður, Guðný, María, Einar og Halldór Laxness, Sigríður Helga og Ingunn Ásta Gunnarsdætur. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför GRÍMS MAGNÚSSONAR læknis. Hrönn Jónsdóttir, Jóna Pála Grímsdóttir, Magnús Sveinn Grimsson. t Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR M. JÓNSDÓTTIR, Langholtsvegi 2, verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtudaginn 23. janúar kl. 13.30. Þeim, sem vildum minnast hennar, en vinsamlega bent á að láta Áskirkju njóta þess. Ragnar H. Jónsson, Vilborg R. Schram, Friðrik Ó. Schram, Ragnhildur R. Engsbráten, Olaf Engsbráten, Jón Ragnarsson, Arndís Jósefsdóttir og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, LEIFUR EINARSSON, Hólmgarði 1, Reykjavík, lést á heimili sínu laugardaginn 18. janúar. Ragna Aradóttir, Kristinn Ingi Leifsson, Ósk Þórðardóttir, Guðgeir Leifsson, Angelika Leifsson, Ari Leifsson, Þuríður Lárusdóttir, Kristjana Jónsdóttir og barnabörn. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, AÐALHEIÐUR ÁRMANN, Álakvísl 96, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 22. janúar kl. 15.0Ó.' Árni Bjarnason, Kristín Árnadóttir, Stefán Melsted, Ágúst V. Árnason, Ingibjörg D. Kristjánsdóttir og barnabörn. t Okkar innilegustu þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför eigin- konu minnar, móður, dóttur, systur og tengdadóttur, SIGURBJARGAR BJÖRNSDÓTTUR, Byggðarholti 35, Mosfellsbæ. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks á deild 21A, Landspftala. Haraldur Magnússon, Unnur Ósk Haraldsdóttir, Helga Björk Haraldsdóttir, Magnús Már Haraldsson, Helga Ágústsdóttir, Björn T. Gunnlaugsson, Anna Ásdís Björnsdóttir, Sigurveig Björnsdóttir, Gunnlaugur A. Björnsson, Unnur Haraldsdóttir, Magnús B. Jónsson og aðrir vandamenn. \ t Hugheilar þakkir viljum við færa öllum þeim fjölmörgu, sem tekið hafa þátt í okkar miklu sorg við fráfall elskulegrar eiginkonu, dóttur, móður, tengdamóður og ömmu, HELGU GUÐMUNDSDÓTTUR, Klettahrauni 3, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir eru færðar presti og kór Fríkirkjunnar, sem og kennurum Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Guðs blessun megi fylgja ykkur öllum. Gunnlaugur Jón Ingason, Guðrún Ásbjörnsdóttir, Guðmundur Gunnlaugsson, Auður Leifsdóttir, Ingi Gunnlaugsson, Erla Eyjólfsdóttir, Gunnlaugur H. Gunnlaugsson, Hrund Eðvarsdóttir, Halldór Gunnlaugsson, Þorsteinn Gunnlaugsson, Sigríður Lárusdóttir, Guðrún I. Gunnlaugsdóttir, Ingi Már Ljótsson og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls eigin- konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, ERLU ALBERTSDÓTTUR, Háukinn 6, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir fá starfsfólk deildar 21-A, Landspítala. Einar Guðmundsson, Guðmundur Þórir Einarsson.Alma Alexandersdóttir, Reynir Einarsson, Bríet Einarsdóttir, Albert Einarsson, Ásdfs Reynisdóttir, Þröstur Einarsson, Einar Einarsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.