Morgunblaðið - 21.01.1992, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.01.1992, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANUAR 1992 Stefna Alþýðu- sambands íslands iHttgtmfyUifri Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Rannsóknir, þróun, nýsköpun Eitt af brýnustu verkefnum landsmanna á líðandi stundu er aðlögun íslenzks þjóð- arbúskapar að efnahagsþróun- inni í umheiminum, einkum í öðrum Evrópuríkjum. Mikilvæg- asti þáttur þeirrar aðlögunar er að tryggja stöðugleika í verðlagi og framleiðslukostnaði, sem stefnt var að með þjóðarsáttinni í febrúar 1990. Það verður ekki gert án þess að draga verulega úr halla ríkis- sjóðs og opinberri lánsfjáreftir- spurn, sem eru meginorsakir hárra vaxta í landinu. Það verður ekki gert án þess að tryggja nokkurn veginn stöðugt gengi gjaldmiðils okkar. Það verður ekki gert án þess að ákvarðanir um kaup og kjör í landinu á næstu misserum verði byggðar á raunsæju mati á efnahagslegum veruleika sem við blasir. Þjóðarsáttin, sem nefnd hefur verið tilraun sem verður að tak- ast, hefur þann megintilgang, að skapa atvinnuvegunum viðun- andi rekstrar- og samkeppnis- skilyrði við umheiminn. Það er í senn forsenda þess að hægt verði að tryggja almennt atvinnuörygi í landinu í fyrirsjáanlegri framtíð og að þjóðarbúskapurinn fái risið undir þeim lífskjörum, sem þjóðin býr við. Það er með öðrum orðum sagt forsenda kostnaðarlegrar undirstöðu velferðarinnar í land- inu. Jafnframt verður að huga að nýsköpun í atvinnulífinu. Sú ný- sköpun hlýtur m.a. að felast í því að búa íslenzkum atvinnuveg- um sams konar starfsumhverfi og atvinnugreinar í helztu sam- keppnisríkjum okkar búa við. Hún felst jafnframt í því að efla rannsóknir og þróunarstarf í þágu íslenzkra atvinnuvega. Meðal annars rannsóknir á helztu auðlindum okkar til lands og sjávar, sem og grunnrann- sóknir og þekkingarleit á sviði hvers konar raunvísinda. Það er engin tilviljun að þær þjóðir, sem bezt hafa búið að hvers konar vísinda-, rannsóknar- og þróun- arstarfi á liðnum áratugum, búa jafnframt við bezt lífskjör og mest afkomuöryggi á líðandi stundu. Sem dæmi um mikilvægi rann- sóknar- og þróunarstarfs fyrir íslenzka atvinnuvegi má nefna nýja tækni við tölvustýrða kæl- ingu og loftblöndun í gámum, sem ásamt fiskkössum með tvö- földum botni, gerir kleift að halda físki ferskum í allt að 17 daga, án þess að til vökvataps eða gæðarýrnunar komi, svo nokkru nemi. Þessi tækni gerir •það mögulegt að- flytja -físk mun lengri leiðir, til dæmis til Austur- landa, auk þess sem hægt verður að flytja fískgáma með lestum um gjörvalt evrópska meginland- ið. Þessi tækni auðveldar og flutning á ýmsum varningi, svo sem ávöxtum, til landsins. Hún skapar nýja möguleika, ný tæki- færi, og er talandi dæmi um mikilvægi vísinda og þróunar- starfs fyrir atvinnulífíð. Þetta er hins vegar dæmi um árangur rannsóknarstarfs, sem er unnið annars staðar en á Islandi. Þorsteinn I. Sigfússon, pró- fessor og stjórnarformaður Raunvísindastofnunar Háskóla íslands, víkur að svipuðu efni í grein hér í blaðinu síðastliðinn laugardag. Hann rekur ýmis dæmi þess, hvern veg rannsókn- ar- og þróunarstarf í helztu vís- indastofnunum okkar hefur stuðlað að nýjum störfum og meiri verðmætasköpun. Meðal dæma um nýja og mögulega starfsemi, sem hann nefnir, eru fyrirtæki og framleiðsla á sviði rafeindafræði (aukin sjálfvirkni í frystihúsum, fiskteljarar í eldis- stöðvum), fyrirtæki í ritvinnslu og skráningartækni (alíslenzkt ritvinnslukerfí), fyrirtæki sem byggist á nýrri þekkingu á geisl- un og geislunarmælingum við Raunvísindastofnun, fyrirtæki sem byggist á sérstöku verkefni hugbúnaðarsérfræðinga Raun- vísindastofnunar og síðast en ekki sízt rannsóknar- og þróun- arverkefni á sviði líftækni, en „sérfærðingar RH hafa sérhæft sig á sviði kuldavirkra ensíma úr fískslógi og örverum“. Þorsteinn I. Sigfússon segir í grein sinni að þau fyrirtæki, sem stofnuð hafí verið á grundvelli þessara rannsókna „velti nær hálfum milljarði á ári hveiju. Það er fimmfalt framlag ríkisins til Raunvísindastofnunar, sem er rekin að hálfu leyti með ríkis- framlagi og að hálfu leyti með sértekjum, aðallega styrkjum til rannsókna ... Ef heppnin verður með okkur er þess ekki langt að bíða að gjaldeyrisveltan í fyrir- tækjum, sem spretta af rann- sóknum og þróun á Raunvísinda- stofnun, nálgist milljarðinn á hveiju ári“. Mikilvægi vísinda, rannsókna og þróunar fyrir atvinnulífíð — og þar með lífskjör þjóðarinnar í næstu framtíð — er óumdeilt. Aðstæður hafa og batnað til að flytja þekkingu og þróunarverk- efni út í atvinnulífið. Það er rík ástæða til að vígbúast á þessum vettvangi til að styrkja stöðu þjóðarinnar í lífsbaráttu á kom- andi árum. eftir Ásmund Stefánsson Leiðarahöfundar Morgunblaðsins njóta að jafnaði mikils trausts fyrir málefnalega umfjöllun. Undanfarin tvö ár hafa þeir verið meðal ötul- ustu talsmanna stefnu Alþýðusam- bands íslands í kjara- og efnahags- málum. Það hefur sannarlega mun- að um stuðning þeirra við að fylgja eftir kjarasamningnum frá 1990. Þess vegna kemur það á óvart að Morgunblaðið skuli í leiðara sl. laug- ardag spyija um stefnu Alþýðusam- bandsins í kjara- og efnahagsmál- um. Stefna ASÍ hefur ekki breyst. Markmiðin sem ASÍ og BSRB settu sér við gerð kjarasamninganna 1990 eru enn þau sömu. í tvö ár hefur stefna okkar ráðið ferðinni — ekki aðeins formlega, heldur fyrst og fremst við framkvæmd þeirrar efna- hagsstefnu sem hefur flutt íslenskt efnahagslíf úr farvegi hárrar verð- bólgu til stöðugleika. Rifjum þetta upp í stuttu máli. Stefna í framkvæmd Fyrir tveimur árum gerðum við kjarasamning með það að markmiði að stöðva kaupmáttarhrapið, sem á skömmum tíma hafði rýrt mjög rauntekjur launafólks, og jafnframt að auka atvinnuöryggi. A þessum tíma var ekki deilt um það að við þjóðinni blasti fjöldaatvinnuleysi og enn meiri rýrnun kaupmáttar ef ekkert yrði að gert. Til þess að koma í veg fyrir þetta varð að ná verð- bólgu niður og koma á stöðugleika í efnahagslífinu. Samningarnir í febrúar 1990 voru áhættusamir fyrir verkalýðs- hreyfinguna. Það ríkti mikil vantrú á að þeim árangri yrði náð sem að var stefnt. Með nánu samstarfi stærstu sam- taka launafólks, fjölþættum sam- skiptum við atvinnurekendur, ríkis- stjórn, bændasamtök og fleiri aðila í þjóðfélaginu, tókst að ná víðtækri samstöðu um að fylgja málinu eftir. Stefnumótun samningsaðila var hvort tveggja í senn, leiðaríjós fyrir stjórn og stjórnarandstöðu á þeim tíma. Leiðarahöfundar Morgun- eftir Sverri Hermannsson Það er auðvitað að bera í bakka- fullan lækinn að auka við orðum í síldarsölufarsa ríkisstjómar og Seðlabankans, þar sem viðskiptaráð- herra fer með aðalhlutverk í kassa- stykkinu. En hjá því verður ekki komist, þar sem ýmsu hefur verið hallað í málinu, svo ekki sé meira sagt. Milli undirritaðs og framkvæmda- stjóra Síldarútvegsnefndar, Einars Benediktssonar, fóru þær umræður fram fyrir margt löngu, að Einar taldi að síldarsölu til Sovétríkjanna yrði naumast komið á, nema með lánafyrirgreiðslu af íslands hálfu. Eg tjáði honum áhuga minn á mál- inu. Það næsta sem skeður og máli skiptir er frágangur viðskiptasamn- ings við hið nýja Rússland, en til er mynd af utanríkisráðherra við þá iðju frá 2. desember sl. Hinn 9. desember sendir Síldar- útvegsnefnd Landsbanka Islands blaðsins veittu málinu öflugt liðsinni allan samningstímann. Tímabil stöðugleika, trausts at- vinnulífs og uppbyggingar átti ekki að ljúka þegar samningurinn rann út. í september sl. Allan tímann var um það rætt af okkar hálfu að samningstímabilið væri sá grund- völlur sem unnt yrði að byggja á nýja sókn í atvinnulífi og lífskjörum. Það var því mikilvægt að ráðherrar í nýrri ríkisstjórn hefðu skilning á því uppbyggingarstarfi sem unnið hafði verið og það traust sem byggt hafði verið upp milli launafólks og atvinnurekenda annars vegar og stjórnmálamanna hins vegar yrði ekki eyðilagt. Ég skil vel að leiðarahöfundur Morgunblaðsins skuli hafa áhyggjur af fljótfærnislegum og lítt undirbún- um ákvörðunum stjórnvalda sem stefna samstöðunni í hættu. Reynsl- an sýnir að ríkisstjórnir sem fara fram af tillitsleysi gagnvart þegnum sínum ná sjaldan árangri til lang- frama. Ég álít hins vegar óþarft að spyija um stefnu ASI vegna þess að um tveggja ára skeið hefur Al- þýðusambandið verið einn áhrifa- mesti mótandi efnahagsmálanna hér á landi. Skoðanir okkar og stefnu- mörkun þekkir fólkið í Iandinu. Rök- rétt spurning er þessi: Hvernig kemst á sátt milli ríkisstjórnarinnar og þegnanna? Þeirri spurningu er eðlilegt að beina til ríkisstjórnarinn- ar. Ég mun engu að síður vegna spurninganna í leiðara Morgun- blaðsins fara nokkrum orðum um afstöðu mína til ríkisfjármálanna. Ríkisfjármál og vextir Geigvænlega háir vextir gera af- komu fjölskyldna og fyrirtækja verri en hún annars væri og hindra eðli- lega atvinnuuppbyggingu. Það er ljóst að það skortir pólitískan vilja til þess að reka vextina niður með handafli. Aðferðin til að lækka vexti hlýtur þá að vera að létta á fjár- magnsmarkaðinum, annað hvort með erlendum lántökum eða að draga úr lánsfjárþörf hins opinbera. Erlendar skuldir eru miklar og því beinist athyglin að ríkisfjármálun- um. Ekki síst þar sem lánsfjárþörf erindi, þar sem farið er fram á lána- fyrirgreiðslu bankans til Rússa vegna kaupa á 150 þús. tunnum af saltsíld að fjárhæð um 15 milljónir dollara. Af hálfu Síldarútvegsnefnd- ar var lögð áherzla á að málinu yrði hraðað, þar sem ekki mætti seinna vera en 6. janúar að heíja að salta síld upp í samninginn. Landsbankastjórar þreifuðu óformlega á málinu við bankastjóra Seðlabanka, og kom fram mikil and- staða við hugmyndina um lánafyrir- greiðslu eins og ástand mála væri austur þar. Landsbankinn á mikilla hagsmuna að gæta í síldarsölumálum vegna ijölmargra viðskiptavina sinna. Rússneski síldarmarkaðurinn er hinn mikilvægasti og dylst væntanlega engum að hér hlýtur að vera um mikið þjóðhagslegt mál að tefla. Samkvæmt lögum ber Seðlabanka íslands að hafa eftirlit með starfsemi viðskiptabanka og framkvæmir það svikalaust. Seðlabanki er ríkisstjórn á hveijum tíma til ráðuneytis í bank- amálum. Nú hefði Landsbankinn auðvitað hins opinbera á síðastliðnu ári var meiri en peningalegur sparnaður landsmanna. Niðurskurður, skattheimta Þegar fjallað er um ríkisfjármálin togast á tvö sjónarmið. Við viljum draga úr útgjöldum og við viljum tryggja öflugt velferðarkerfi og trausta opinbera þjónustu. Þegar það er viðurkennt að markmiðin rekast á er það ekki tákn um að stefnan sé ekki skýr. Það staðfestir með ótvíræðum hætti að stefnan er erfið í framkvæmd. Þegar t.a.m. er ráðist í skattheimtu á viðkvæmum sviðum mennta- og heilbrigðiskerfis verður að fara með gætni. Hér er ég sammála höfundi Reykjavíkur- bréfs Morgunblaðsins sl. sunnudag sem bendir á að ríkisstjórnin tali of lítið við þjóðina, útskýri stórmál illa og undirbúi mál sín lítt eða ekki. Þegar ráðist er í skattheimtu eða niðurskurð verður um leið að sætta þjóðina við aðgerðirnar að því marki sem hægt er. Það kann ekki góðri lukku að stýra þegar ráðherrar vaða hugsunarlaust fram eins og fílahjörð í glervörubúð. Hvað er skorið niður? Er einungis verið að hækka skatta? Það skiptir auðvitað miklu máli á hvaða sviðum dregið er úr útgjöld- um. Enn mikilvægara er hins vegar hvernig það er gert. Ríkisstjórnin hefur raunar aðeins í takmörkuðum mæli svarað því hvernig hún ætlar opinberum stofn- unum að draga úr útgjöldum. Ríkis- stjórnin hefur fyrst og fremst tekið ákvarðanir um nýjar álögur á þegn- ana. Það mun að sjálfsögðu draga úr lyfjanotkun og heimsóknum til lækna þegar sjúklingum er gert að greiða meira. Mér þykir hins vegar rökréttara að tala um nýjar álögur en niðurskurð útgjalda. Það á við um skólagjöldin. Lækkun barnabóta og sjómannafrádráttar hækkar tekj- uskatt einstaklinga. Líklega er eini niðurskurður rík- isútgjalda sem er í augsýn og eitt- hvað kveður að fólginn í svonefndu sjómannanefndaráliti um búvöru- framleiðslu. Með því samkomulagi „Ríkisstjórnin sam- þykkir ríkisábyrgð þeg- ar síldarvertíð er lokið og Seðlabankinn finnur löngu týndan ábyrgðar- sjóð sem nota má í sama skyni. Þegar hér er komið sýningunni er einstaka maður farinn að brosa út í annað enda fyndnin ekki kom- in á það stig að hlæja megi að henni með öll- um kjaftinum.“ getað svarað erindi Síldarútvegs- nefndar umsvifalaust neitandi vit- andi um afstöðu Seðlabankans. Þeg- ar deilt er á Landsbankann fyrir að hafa snúið sér til ríkisstjórnarinnar eru menn að segja að markaðsmál okkar erlendis og þróun þeirra komi íslenzkri ríkisstjórn ekkert við og eru Síldarsölufarsinn Ásmundur Stefánsson „Ég álít hins vegar óþarft að spyrja um stefnu ASÍ vegna þess að um tveggja ára skeið hefur Alþýðusambandið verið einn áhrifamesti mótandi efnahagsmál- anna hér á landi. Skoðanir okkar og stefnumörkun þekkir fólkið í landinu. Rökrétt spurning er þessi: Hvernig kemst á sátt milli ríkisstjórnarinnar og þegnanna? Þeirri spurningu er eðlilegt að beina til ríkisstjórn- arinnar.“ sem ASÍ, BSRB og atvinnurekendur gerðu þar við bændur voru lögð drög að milljarða sparnaði fyrir rík- ið þó sá sparnaður skili sér ekki strax á þessu ári. Einmitt þar sýnir sig að Alþýðusambandið hefur burði til að takast á við erfið og viðkvæm mál. En hér skilur á milli í vinnu- brögðum okkar og ríkisstjórnarinn- ar. Um vinnubrögð Við gerð kjarasamningsins í febr- úar 1990, þegar hugmyndirnar um stöðugleika, lækkandi verðbólgu og traust atvinnustig voru að fá á sig fast form, var farið með þær um allt land og þær kynntar félögum Sverrir Hermannsson það undarleg viðhorf. Undirritaður hafði mikinn áhuga á málinu og fékk því ráðið að erindi var sent til ríkis- stjórnar og beðið um álit hennar á málinu, bindandi vonir við að fá stuðning frá ríkisstjórninni. Fyrir því var ríkisstjórn sent slíkt erindi 13. desember og fyigdi með greinargerð Síldarútvegsnefndar og lánsbeiðni. Á þetta bréf lagðist viðskiptaráðuneyt- ið í 17 daga.' í stað þess * áð Mtá MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992 25 Alþýðusambandsins. Fólkið okkar var spurt hvort það vildi fara þessa leið í kjarasamningum eða hvort aðrit- kostir væru í boði. Niðurstaðan var sú að yfirgnæfandi stuðningur var við samning í því formi sem síð- ar varð að veruleika. Nákvæmlega sömu vinnubrögð voru uppi þegar álit sjöniannanefnd- ar lá fyrir. Þá fóru fulltrúar ASÍ og BSRB á fundi með forystumönnum bændasamtakanna, því að um mikla hagsmuni var að ræða við bændur. Okkar hlutverk þar var að skýra á hvern hátt framtíðarhagsmunir bænda og neytenda fara saman. Ríkisstjórnin hefur lítið leitast við að skýra út. Hún gefur út tilskipanir. Við nýja skattlagningu þarf að gæta réttlætis og sanngirni. Það er ánægjulegt að leiðarahöfundur Morgunblaðsins skuli sammála því að skattlagning fjármagnstekna hefði stuðlað að auknu réttlæti. Það má hins vegar ekki gleyma því að skattlagning fjármagnstekna hefði jafnframt aukið tekjur ríkissjóðs. Hvernig á að draga úr útgjöldum? Þegar heilbrigðis- og trygginga- ráðherra ákvað að ráðast að lyfjaút- gjöldum hins opinbera átti hann tvo kosti. í fyrsta lagi kom til greina að setja læknum viðmiðunarreglur til að beina lyfjaávísunum á ódýrari lyf. í öðru lagi kom til greina að krefja sjúkiingana um meira fé. Aðhald að læknunum gengur ekki gegn því sjónarmiði að allir fái sömu þjónustu óháð efnahag. Það gerir hins vegar síðari leiðin. Heilbrigðis- og tryggingaráðherra valdi ranga leið. Ég hef kosið að taka hér lyfjamál- ið sem dæmi um ranga leið og röng vinnubrögð til að ná markmiði sem margir eru sammála um. Ymsar aðrar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru sama marki brenndar. Þegar þannig er gengið á hlut fólks að allt fer úr skorðum er hætt við því að upp úr sjóði. Þannig næst ekki árangur. Ábyrgð og raunsæi Alþýðusamband íslands hefur ekki ástundað upphrópanir eða yfir- boð. Alþýðusambandið mótar stefnu sína af ábyrgð og raunsæi. Einmitt þess vegna hlaut miðstjórn Alþýðu- sambandsins að minna ríkisstjórnina á stöðu mála í ályktun sinni í síð- ustu viku. Félagsmenn sambandsins gera kröfu til samtaka sinna. Verði engu breytt af fljótfærnislegum ákvörðunum ríkisstjórnarinnar, er vandséð hvernig samningar muni nást. Höfundur er forseti Alþýðusambnnds íslands Lífeyrissjóðirnir kaupa skuldabréf fyrir 3 milljarða af Húsnæðisstofnun: Vextir hækka um 0,1-0,2% miðað við síðasta samning Húsnæðisstofnun samdi um helg- ina við lífeyrissjóðina um að þeir kaupi af stofnuninni skuldabréf fyrir 3 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs vegna lánsloforða sem eftir er að af- greiða úr húsnæðiskerfinu frá 1986. Alls er Iánsfjárþörf Hús- næðisstofnunar talin 8,5 milljarð- ar á árinu. I samningunuin voru skuldabréfavextirnir færðir nær vöxtum spariskírteina en áður og meta sjóðirnir það til að minnsta kosti 0,1-0,2% vaxtahækkunar frá síðustu samningum sem þessir aðilar gerðu sín á milli um skulda- bréfaviðskipti. Að sögn Þorgeirs Eyjólfssonar formanns Landssambands lífeyris- sjóða er með þessu í raun verið að ljúka samningum sem voru gerðir um skuldabréfakaup á árunum 1990-1991 og gera upp gamla hús- næðiskerfið. Yngvi Orn Kristinsson, formaður stjórnar Húsnæðisstofnunar, sagði að vextir á skuldabréfunum yrðu 0,1% lægri en markaðsvextir á spari- skírteinum ríkissjóðs og væri það 0,1% hækkun frá fyrri samningi. Markaðsvextir spariskírteina eru núna 7,9% og ef þeir halda út fyrsta ársfjórðung þýðir það að Húsnæðis- stofnun greiðir 7,8% vexti. Þorgeir sagði að í samningnum fælist, að athugað yrði hvers konar vöxtum ríkið þyrfti að sæta á fjár- magnsmarkaði. Miðað yrði við spari- skírteini og ef spariskírteinasalan næði ekki ákveðnu hlutfalli yrði skoðað hvaða ávöxtunarkrafa væri í gildi á eftirmarkaði spariskírteina á verðbréfaþingi. Lánsfjárþörf Húsnæðisstofnunar er talin 8,5 milljarðar króna á þessu ári, aðallega til félagslega húsnæðis- kerfisins. Þorgeir sagði að á næstu vikum myndu lífeyrissjóðirnir ræða við stofnunina um framhaldið. Lífeyrissjóðirnir höfðu áður lýst því yfir að þeir væru ekki tilbúnir til að ganga frá samningum um þessi skuldabréfaviðskipti á meðan Alþingi hefði til meðferðar frumvarp sem felur í sér að ríkið ábyrgist ekki lengur iðgjöld til lífeyrissjóða ef fyrirtæki verða gjaldþrota. Þegar Þorgeir var spurður um þetta sagði hann að nú væri nokkurn veginn ljóst hver lendingin yrði á Alþingi, og því hefði verið gengið til samn- inga til að ljúka þessu máli. Veiðiheimildir Færeyinga: Auðlindin ekki skiptímynt - segir sjávarútvegsráðherra „ÞETTA er ekki hægt þar sem auðiindin er ekki skiptimynt, en auðvit- að er alveg sjálfsagt að ræða við Færeyinga um tolla- og viðskipta- mál,“ segir Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, um óformlega ósk sem borist hefur frá Færeyingum um að í stað þess að veiðiheim- ildir þeirra hér við land verði ekki skertar falli tollar niður á íslensk- um útflutningsvörum til Færeyja. Færeysk skip hafa heimild til að veiða 9 þúsund tonn af botnfiski á íslandsmiðum, en í fyrra höfðu þeir heimild til veiða á 11 þúsund tonn. Veiðiheimildirnar ná nú til 1.500 tonna af þorski, en aðrar tegundir eru aðallega lúða, langa, ufsi og keila. Þorsteinn Pálsson hefur til- kynnt færeyskum stjórnvöldum að veiðiheimildirnar verði skertar veru- lega eða jafnvel felldar niður. Sam- ráðsfundur íslenskra og færeyskra stjórnvalda verður haldinn í Stokk- hólmi 30 janúar næstkomandi, og að sögn Þorsteins verður ákvörðun varðandi veiðiheimildirnar tekin að loknum þeim fundi. Hann sagði að óformleg ósk hefði borist um það frá Færeyingum, að í tengslum við umræður um veiði- heimildirnar yrði opnuð umræða um niðurfellingu tolla á einhveijum ótil- teknum vörum sem fluttar væru út frá íslandi til Færeyja, en hins veg- ar væri ekki um neitt tilboð að ræða. Hann sagði þetta ekki koma til greina, en gat þess að margir aðilar sem hefðu hagsmuni af viðskiptum við Færeyinga hefðu sýnt áhuga á málinu. strax umsagnar Seðlabanka var því frestað til 30. desember, og virðist hafa átt að drepa málið á tíma. Hinn 10. janúar, réttum fjórum vikum eftir móttöku erindis Lands- bankans, svarar loks viðskiptaráðu- neytið og verður hér vitnað orðrétt í það bréf og undirgögn þess, en þess ber að geta, að tvívegis áður en Landsbankanum var formlega svarað hafði viðskiptaráðherra mætt í sjónvarpi og talið banka á „hálli braut“ sem hygðist stunda fyrr- greinda lánafyrirgreiðslu vegna hins ótrygga ástands í Rússlandi. Það sem máli skiptir í bréfi við- skiptaráðuneytisins hljóðar svo: „ ... Ríkisstjórnin leitaði eftir umsögn Seðlabanka Íslands og eins var haft samband við fulltrúa íslands í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington. Umsögn Seðlabankans fylgir hér með í ljósriti og einnig ljós- rit af orðsendingu Ingimundar Frið- rikssonar til Jóhannesar Nordal varð- andi rússneska banka. Ráðuneytið beinir því til banka- stjórnarinnar að hún hlýtur að taka ákvörðun á eigin ábyrgð um lánveit- inguna í ljósi allra þeirra upplýsinga sem fyrir liggja og á grundvelli laga og reglna um starfsemi bankans.“ Landsbankastjórn var sem sagt með beinum orðum falið að taka ákvörðun í ljósi umsagnar Seðla- bankans, enda lágu engar aðrar haldbærar upplýsingar fyrir í málinu. í áliti Seðlabankans segir svo: „ ... Það er álit bankastjórnar Seðlabankans að umrædd við- skipti geti orðið mjög áhættusöm eins og nú er ástatt í Rússlandi." Og ennfremur: „Telja verður mjög vafasamt að Landsbankinn taki á sig um- ræddar skuldbindingar og þá miklu áhættu, sem felst í þessum lánaviðskiptum". Ef viðskiptaráðuneytið telur að fleira þurfí að birta úr bréfi þess er skorað á það að birta það allt. Enginn, sem til þekkir, getur mis- skilið þessi svör. Landsbankinn hlaut því að synja beiðni Síldarútvegs- nefndar. Að virða álit Seðlabanka að vettugi hefði verið skýlaust brot á innihaldi þeirra laga, sem gilda um bankaeftirlit Seðlabankans og heimskuleg „forakt", sem engum viðskiptabanka gæti til hugar komið að sýna. En svo hefst 1. þáttur farsans. Þegar í sali Alþingis kemur sveigir viðskiptaráðherra á bakborða og þor- ir ekki að kannast við gerðir sínar, og lýsir því yfir að ríkisstjórnin hafi enga afstöðu tekið til erindis Lands- bankans! Það var ósköp fallegt af forsætisráðherra að ganga undir samráðherra sínum, en undirritaður leyfír sér að tnia því, að hann hafí verið í góðri trú og ekki þekkt inni- hald bréfs viðskiptaráðuneytisins nógu vel. 2. þáttur hefst á því að viðskipta- ráðherra mætir í sjónvarpi með roku- frétt. Rússar hafa aldrei beðið um neitt lán! Og auðvitað leitaði Helgi Már, fréttamaður, ekki neinna skýr- inga, hvorki hjá Landsbanka og ekki heldur hjá Síldarútvegsnefnd, sem var þó með þessum hætti ausin auri og gerð að ómerkingi í augum alþjóð- ar, enda þótt lagið ætti að lenda á Sverri Hermannssyni. Smákratinn hefir viljað láta hið nýja vopn höfðingja síns bíta í sólarhring eða svo án þessa að sannleikurinn fengi að koma í ljós. Morgunblaðið birti rokufréttina yfir þvera baksíðu og leitaði heldur ekki umsagnar þeirra sem með þessum hætti voru bornir ótrúlegum afglapasökum. Þá var Seðlabankinn kominn í an við að hjálpa bankamálaráðherr- anum í vopnaburðinum vegna þeirrar sérkennilegu undirgefni sem þar á bæ hefir löngum ríkt við bankamála- ráðuneytið. Staðreyndir málsins voru hinsveg- ar þær, að 3. desember sl. kom yfir- maður Rosvneshtorg, V. Mangaseev, með fríðu föruneyti á fund banka- stjórnar Landsbankans, ásamt fram- kvæmdastjóra _ Síldarútvegsnefndæ’ og sendiherra íslands í Moskvu, Ól- afí Egilssyni. Erindi þeirra var eitt og aðeins eitt: Að spyijast fyrir um hvort Landsbankinn væri reiðubúinn að annast útvegun og lána þeim fé til að kaupa fyrir saltsíld á Islandi! Þannig fór með sjóferð þá. Að hinu var ekkert komið að Landsbank- inn færi að kanna stöðu mála milli stofnana í Moskvu. Frá því að Lands- bankastjórum var kunnug afstaða Seðlabankans voru þeir vantrúaðir á að af lánveitingu yrði. Meðan svo stóð var ástæðulaust að huga að frá- gangi pappíra í Moskvu austur. Nú er hinsvegar að því komið í farsanum að Björn Tryggvason, aðstoðarbank- astjóri Seðlabankans, er kominn til Moskvu, að líkindum til aðstoðar Mangaseev í Rosvneshtorg að ganga frá umsókn til utanríkisviðskipta- banka Rússlands vegna láns frá ís- landi, sem ekki verður veitt! I síðustu senum sjónleiksins blasir við fát og fum aðalleikenda. í hræðsluköstum yfir að kunna rulluna illa, er tekið að borga á sig í augum- áhorfenda. Ríkisstjórnin samþykkir ríkisábyrgð þegar síldarvertíð er lok- ið og Seðlabankinn finnur löngu týndan ábyrgðarsjóð sem nota má í sama skyni. Þegar hér er komið sýningunni er einstaka maður farinn að brosa út í annað enda fyndnin ekki komin á það stig að hlæja megi að henni með öllum kjaftimrm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.