Morgunblaðið - 21.01.1992, Síða 4

Morgunblaðið - 21.01.1992, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992 Utanríkisráðherrar Norðurlanda funda á Islandi: Ætla að ræða EES-samn- ingana utan dagskrár Utanríkisráðherrar Norðurlanda funda hér í Reykjavík í dag. Fundur þeirra hófst í gærkveldi. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra Islands, sagði í samtali við Morgunblaðið i gær að hann hygðist aðal- lega ræða við kollega sína á Norðurlöndum um stöðu EES-samning- anna, þótt þeir væru ekki á dagskrá. „Ég ræði þá bara utan dag- skrár,“ sagði ráðherra. Á dagskrá fundarins eru m.a. í fyrrum Sovétríkjunum, ástandið á málefni Rússlands og annarra ríkja Balkanskaga, Miðausturlönd og Ólíklegt að hitamet janúar frá 1964 falli FYRSTU 19 dagana í janúar var meðalhiti á landinu um það bil 1,5 gráður en meðaltal fyrri janúarmánuða er 0,5 gráða frost. Einar Svein- björnsson veðurfræöingur telur ólíklegt að 3,6 gráða hitamet í jariúar 1964 verði slegið að þessu sinni. Einar sagði að 5-7 gráða frost ótrúlegt og vísaði til þess að veður fyrstu 5 daga mánaðarins hefði dreg- færi kólnandi í dag og töluvert frost ið meðalhitann töluvert niður og yrði á morgun. Aftur á móti er allt háan hita þyrfti út mánuðinn til að útlit fyrir hlýindi undir lok vikunnar. slá metið frá 1964. Slíkt kvað hann Suður-Afríka og Ráðstefnan um ör- yggi og samvinnu í Evrópu. Auk utanríkisráðherra íslands sækja fundinn Uffe Ellemann-Jens- en, utanríkisráðherra Danmerkur, Paavo Vayrynen, utanríkisráðherra Finnlands, Thorvald Stoltenberg, utanríkisráðherra Noregs, og Marg- aretha af Ugglas, utanríkisráðherra Svíðþjóðar. „Eg ætla aðallega að ræða eitt mál og það er ekki á dagskrá — það eru EES-samningarnir,“ sagði Jón Baldvin. Hann sagðist eiga von á að utanríkisráðherrar Norðurlandanna myndu eyða dijúgum tíma í að ræða hlut Norðurlanda í aðstoð við Eystra- saltsríkin og Rússland. „Annars liggja ekki fyrir nægilega skýrar upplýsingar um tillögur hvers ríkis fyrir sig í þeim efnum. Raunar á ég ekki von á að þær verði ljósar fyrr en eftir fundinn í Washington, síðar í vikunni," sagði Jón Baldvin Hannib- aisson utanríkisráðherra. VEÐUR VEÐURHORFUR í DAG, 21. JANÚAR YFIRLIT: Um 400 km vestur af Hvarfi er 950 mb iægð, sem þok- ast norðnorðvestur. Önnur vaxandi lægð langt suðvestur í hafi, hreyfist í norðaustur, í átt til landsins. SPÁ: Á morgun verður sunnan- og suðvestanátt, víðast kaldi eða stinningskaldi. Él verða vestanlands, skúrir með suðurströndinni en léttskýjað á Norður- og Norðaustanlandi. Hiti nálægt frost- marki vestaniands en 3 til 6 stig víðast austanlands. Undir kvöld má búast við vaxandi suðaustanátt. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðvestlæg átt og hiti nálægt frost- marki. Él sunnan- og vestanlands en léttskýjað norðaustanlands. HORFUR Á FIMMTUDAG: Sunnan- og suðaustanátt og hlýnandi veður í bili. Rigning um sunnanvert landið en þurrt Norðanlands. Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða ’, » Súld CX5 Mistur —j- Skafrenningur [T Þrumuveður / DAG kl. 12.00 Heimild: Veðurstola islands (Byggt á veöurspá kl. 16.151 gær) VEÐUR VIÐA UM HEIM kl, 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavik hiti 7 7 veftur skýjað úrkoma Bergen 3 súld Helsinki •i-10 léttskýjaft Kaupmannahöfn 0 skýjað Narssarssuaq snjókoma Nuuk •f2 snjókoma Osló +6 skýjaft Stokkhólmur +5 hálfskýjað Þórshöfn 6 léttskýjað Algarve 12 heiðskírt Amsterdam 0 léttskýjað Barcelona 6 mistur Berlin 44 skýjað Chicago 46 alskýjað Feneyjar 4 súld Frankfurt 2 skýjað Glasgow 8 rlgning Hamborg +3 iéttskýjað London 5 skýjað LosAngeles 10 heiðskirt Lúxemborg 3 alskýjað Madrid 4-2 þoka Malaga 16 heiðskírt Mallorca 12 léttskýjað Montreal ■(■19 fsnálar NewYork +8 snjókoma Orlando 8 alskýjað Parrs 5 rigning Madeira 16 skýjað Róm 9 rigning Vín ■f4 snjókoma Washington +4 alskýjað Winnipeg •(•14 skafrenningur Frá slysstaðnum við Hringbraut. Morgunbiaðið/Juiius Maður varð fyrir bifhjóli og beið bana 77 ÁRA gamall maður lést á sjúkrahúsi í fyrrakvöld af áverkum sem hann hlaut er hann varð fyrir bifhjóli á Hringbraut fyrr um dag- inn. Ökumaður bifhjólsins, 21 árs var lögð inn á sjúkrahús. Slysið varð á Hringbraut, skammt austan við Laufásveg. Tal- ið er að maðurinn hafi verið á leið norður yfir götuna er hann varð fyrir bifhjólinu, sem ekið var til austurs. Maðurinn hlaut mikla áverka og var fluttur í sjúkrahús, stúlka, hlaut áverka í andliti og þar sem hann lést skömmu síðar. Ókumaður hjólsins meiddist einnig, svo sem fyrr greinir, en farþegi hlaut ekki teljandi meiðsli, að sögn lögreglu. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Tryggingamiðstöðin hf.: Breytt uppbygging ið- gjaidaskrár félagsins Tryggingamiðstöðin hf. hefur í ljósi aukinnar samkeppni vátrygginga- félaganna í ökutækjatryggingum, breytt nokkuð uppbyggingu iðgjald- askrár félagsins. Aðalbreytingin felst í þremur iðgjaldaflokkum. í 1. flokki eru einstaklingar á aldrinum 17 til 24 ára, í öðrum flokki 25 til 29 ára og í hinum þriðja einstaklingar 30 ára og eldri. Samkvæmt upplýsingum Gunnars Felixsonar framkvæmdastjóra Tryggingamiðstöðvarinnar hefur þessi breyting í för með sér almennt nokkra hækkun á iðgjöldum þeirra, sem eru í fyrsta flokki, en óverulega breytingu á iðgjöldum þeirra, sem eru í 2. flokki. Hins vegar munu ökumenn, 30 ára og eldri með 40% bónus eða hærri, fá lækkun allt að 10%. Með iðgjaldabreytingu þessari er ekki verið að hækka heildariðgjöld ökutækjatrygginga, heldur er verið að breyta iðgjaldaskrám með hliðjón af tjónareynslu ofangreindra flokka, að sögn Gunnars. Engar breytingar verða á bónusreglum félagsins, né hefur fjöldi ekinna kílómetra áhrif á iðgjaid, hvorki til hækkunar eða lækkunar. Sjálfsábyrgð verður ekki tekin upp í ábyrgðartryggingu öku- tækja hjá Tryggingamiðstöðinni. Gunnar Felixson sagði að eins og áður myndi Tryggingamiðstöðin verða eina vátryggingafyrirtækið á Islandi, sem endumýjaði ökutækja- tryggingar til 6 mánaða í senn, en sá háttur hefur mælst mjög vel fyr: ir hjá viðskiptavinum félagins. í þessari viku mun viðskiptavinum félagsins verða send endurnýjun allra bifreiðatrygginga, sem end- urnýjast eiga 1. mars næstkomandi. Það er að þessu sinni gert fyrr en áður hefur tíðkast, til þess að allir viðskiptavinir félagsins geti fyrr gert sér grein fyrir hvert iðgjald þeirra verður. Þetta er einnig gert í samræmi við ósk Tryggingaeftir- litsins, að endurnýjanir verði al- mennt sendar út 5 vikum fyrir gjald- daga. Stal útvarpstæki, vara lit og sviðakjamma UNGUR maður var handtekinn á Rauðarárstíg á laugardagsmorg- un eftir að hann hafði, að því er talið er, brotist inn í 8 bíla og stol- ið meðal annars útvarpstækjum, varalit, hangikjöti og soðnum svið- akjamma. Matnum hafði hann stolið úr bíl við Sundhöllina. Um helgina var einnig handtekinn ungur maður, sem var að reyna að bijótast inn í hús við Bræðraborgar- stíg. íbúar komu að manninum og stugguðu honum frá en hann lét ekki segjast heldur færði sig að næsta glugga í sama húsi og reyndi að spenna hann upp. Lögregla kom og handtók manninn, sem gat enga skýringu gefið á athæfi sínu. Að sögn lögreglu var hann mikið ölvað- ur. í miðjum viðræðum við lögreglu- mennina gerði hann sér grein fyrir því að hann væri staddur í Reykja- vík og varð honum mikið um þá uppgötvun. Aðfaranótt sunnudagsins stóð lög- reglan mann að því að reyna að bijót- ast inn í verslun við Bræðraborgar- stíg. Ábending barst frá vegfaranda um að verið væri að bijótast inn í verslunina og þegar lögregla kom á staðinn, greip hún þjófínn glóðvolg- an. 14.660 sáu Töfraflautuna SÍÐASTA sýning á Töfraflaut- unni í uppfærslu íslensku óper- unnar var síðastliðinn sunnudag. Sýningar urðu 35, þar af þrjár utan Reykjavíkur, og sýningar- gestir 14.660. Að sögn Guðríðar Jóhannesdótt- ur, framkvæmdastjóra íslensku óperunnar, er sýningum á Töfra- flautunni hætt vegna æfínga á Ótelló eftir Verdi og er stefnt að frumsýningu 9. febrúar. I >

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.