Morgunblaðið - 21.01.1992, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 21.01.1992, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992 47 Jafnréttisráð: Athugasemd gerð við auglýsingu skóverslunar JAFNRÉTTISRÁÐ hefur sent Ólafi Sigmundssyni, sem rekur Skóverslun Reykjavíkur, bréf þar sem gerð er athugasemd við auglýsingu frá versluninni sem birst hefur í Morgunblað- inu. í bréfinu segir að Jafnrétt- isráð hafi fengið allnokkrar ábendingar vegna auglýsingar- innar, sem sé „af glaðlegri, brjóstamikilli konu“, og ráðið telji auglýsinguna ósmekklega og tæpast til þess fallna að laða konur til viðskipta við fyrirtæk- ið. Ólafur sagðist í samtali við Morgunblaðið vera undrandi yfir þessari afstöðu Jafnréttis- ráðs, og ef hann hefði talið aug- lýsinguna ósmekklega hefði aldrei komið til greina að birta hana. í bréfi Jafnréttisráðs er vakin athygli á ákvæði í Jafnréttislögum, þar sem segir að auglýsandi og sá sem hanni eða birti auglýsingu skuli sjá til þess að auglýsingin sé ekki öðru kyninu til minnkun- Hin umdeilda auglýsing, sem birtist í Morgunblaðinu. ar, lítilsvirðingar eða stríði gegn jafnri stöðu og jafnrétti kynjanna á nokkurn hátt, og þeim tilmælum beint til Ólafs að það lagaákvæði verði haft til hliðsjónar þegar Skó- verslun Reykjavíkur auglýsi í framtíðinni. „Það hefur engin kona sem komið hefur í verslunina haft orð á því að þessi auglýsing væri ós- mekkleg á nokkurn hátt, og mér finnst skrýtið að hún skuli hafa farið fyrir bijóstið á Jafnréttis- ráði. Það eru margar konur glað- legar og bijóstamiklar, og mér vitanlega hefur aldrei verið talið ósmekklegt að vera þannig. Aug- lýsingin hefur síður en svo fælt konur frá versluninni, og reyndar hef ég aldrei fengið jafn góð við- brögð við útsölu og núna. Mér fínnst skrýtið Jafnréttisráð skuli vera komið út á braut sem þessa, og óþægilegt að hafa það á tilfinn- ingunni að vakað sé yfír sér af einhveijum stóra bróður,“ sagði hann. Ásgeir Halldórsson afhendir Halldóri Blöndal samgönguráðherra undirskriftalista með nöfnum tæplega fjögur þúsund Reyknesinga. Nokkrir þingmenn kjördæmisins fylgjast með. Breikkun Reykjanesbrautar: Ráðherra afhent Breski vinsældalistinn: Sykurmolarnir komnir upp í sautj ánda sætið SMÁSKÍFA Sykurmolanna, Hit, hækkaði sig um tvö sæti og situr nú í sautjánda sæti breska vinsældalistans. Lagið hefur þá náð jafn hátt og islenskt dægurlag hefur áður náð hæst, en ekki ery taldar miklar líkur á að lagið hækki sig mikið í vikunni. Hit hefur nú setið á breska vin- sældalistanum í þijár vikur, en að sögn Árna Benediktssonar, fram- kvæmdastjóra Hugleysu t.m., sem er fyrirtæki Sykurmolanna, eru menn hóflega bjartsýnir, því nokk- ur sölaukning hafí orðið milli vikna. Áður hefur einu íslensku dægurlagi auðnast að komast þetta hátt á breska vinsældalistanum, þegar Mezzoforte kom lagi sínu Garden Party í sautjánda sætið í mars 1983. Árni sagði þó að erfitt yrði að þoka laginu uppávið og þá sér- staklega þar sem væntanleg breið- skífa hljómsveitarinnar, Stick Aro- und for Joy, kæmi út eftir tvær vikur. Ámi sagði að það hefðu heyrst raddir um að fresta bæri plötunni til að geta fylgt laginu eftir, en ákveðið hefði verið að halda fast við útgáfudaginn 10. febrúar. Að öllu líkindum kæmi platan þó út hér á landi nokkrum dögum áður. Árni sagði það vissulega hafa komið sér vel fyrir kynningu á breiðskífunni hvað Hit hefði gengið vel og sérstaklega að svo virtist sem lagið yrði enn sterkt inn á lista þegar platan kæmi út. áskorun tæplega 4000 Reyknesinga HALLDÓRI Blöndal samgöngu- ráðherra voru hafhentir undir- skriftalistar með nöfnum tæp- lega fjögur þúsund Reyknes- inga í gær, þar sem skorað er á ráðherrann að bæta úr ástandi Reykjanesbrautarinnar og að öll tilboð um endurbætur verði skoðuð til hlítar. í áskoruninni segir að tvöföldun Reykjenesbrautarinnar sé nauð- synleg. Vegatollur sé ekki fýsileg- ur kostur í vegakerfínu hér á landi en sé þó skásti kosturinn miðSR? við núverandi ástand Reykjanes- brautar. Það var Félag ungra sjálf- stæðismanna í Keflavík sem stóð að undirskriftasöfnuninni sem fór fram frá fimmtudegi til sunnu- dags. Ásgeir Halldórsson, formað- ur FUS, og Guðnín Þorsteinsdóttir afhentu ráðherra undirskriftalist- ana á Alþingi í gær. Ráðherra sagðist hefði viljað fá skýrar kveð- ið á um skattinn í áskoruninni þegar hann tók við undriskriftalist- unum. íslenskar sjávarafnrðir selja fyrir Arborg hf. ÁRBORG hf., nýja sjávarútvegs- fyrlrtækið sem varð til með sam- einingu Glettings hf. í Þorláks- höfn og Hraðfrystihúss Stokks- eyrar hf., mun selja bolfiskfram- leiðslu sína fyrir milligöngu ís- lenskra sjávarafurða hf. Hrað- frystihús Stokkseyrar sagði sig úr Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna fyrir áramót. Glettingur hefur verið utan stóru sölusam- takanna að undaförnu en Sjávar- afurðadeild Sambandsins, forveri íslenskra sjávarafurða hf., seldi áður framleiðslu fyrirtækisins. Pétur Reimarsson framkvæmda- stjóri Árborgar hf. sagði í gær að við stofnun þessa nýja fyrirtækis hafí þurft að skoða hvaða leiðir væru bestar við söluna. Hafi stjórn- endum fyrirtækisins sýnst að svipað verð fengist hjá Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna og íslenskum sjávar- afurðum hf. og viðskipti við báða þessa aðila verið talin álitleg. Það hafi verið niðurstaðan af mati þeirra að hugsmunum fyrirtækisins væri betur fyrir komið með viðskiptum við ÍS. Það væri hlutafélag sem þó ekki þyrfti að kaupa hlut í og gæfi fleiri valkosti í samningum. Arborg hf. hefði ekki viljað binda sig með því að ganga inn í samtök eins og SH. Hraðfrystihús Stokkseyrar hefur framleitt um 3.000 tonn af frystum físki á ári, eða um V/2% af fram- leiðslu SH. Eftir sameiningu verður framleiðslan hátt í 5.000 tonn. Eign- arhlutfall Hraðfrystihúss Stokkseyr- ar í SH hefur verið um 2%. Pétur Reimarsson vissi ekki hvers virði Að sögn lögreglu var bifreiðinni ekið austur Bessastíg og í veg fyrir hjólið sem ók suður Heiðarveg með þeim afleiðingum að hjólið skall á bflnum og ökumaður og farþegi köstuðust á bílinn. Ökumaður hjólsins slasaðist mikið og var fluttur til Reykjavíkur á sunnudagskvöld þar sem hann gekkst undir aðgerð. Farþeginn slas- aðist minna og liggur á sjúkrahúsinu þessi eignarhluti væri, taldi hann tugi milljóna, en samkvæmt sam- þykktum SH skal greiða hann út eftir ákveðnum reglum ári frá úr- sögn. Fiskvinnsla er ekki hafín hjá Ár- borg hf. en Pétur sagði stefnt að því að hún hefjist eftir næstu helgi. í Eyjum. Hjól og bíll skemmdust mikið og er talið að bíllinn sé ónýtur. Lögreglan sagði að enginn sjón- arvottur að slysinu hefði gefið sig fram sem væri mjög bagalegt vegna rannsóknar þess og væru það ein- dregin tilmæli til þeirra er vitni urðu að hafa samband við lögregluna í Eyjum sem fyrst. Grímur Harður árekstur í V estmannaeyjum Vestmannaeyjum. HARÐUR árekstur varð síðdegis á sunnudag er mótorhjól og fólks- bifreið skullu saman á gatnamótum Bessastígs og Heiðarvegar. Ökumaður og farþegi mótorhjólsins voru fluttir á sjúkrahúsið í Eyjum en ökumaðurinn var síðan fluttur með sjúkraflugi til Reykja- víkur á sunnudagskvöld. Ökumann bifreiðarinnar sakaði ekki. VANN MN FJOLSKYLDA? Heildarvinningsupphæðin var: 153.545.167 kr. 3. leikvika -18. ianúar 1992 Röðin : 2X2-1X2-X12-212X 13 réttir: 12 réttir: 11 réttir: 10 réttir: 3 raöir á 149 raöir á 2.146 raöir á 18.566 raöir á 13.819.060-kr. 175.180 - kr. 12.870-kr. 3.140 - kr. Upplýsingar um rétta röö og áætlaöar vinningsupphæöir birtast í íþróttaþætti RÚV kl. 17:10 á laugardögum. Einnig er hægt aö hringja í Lukkulínuna í síma 991000 eöa fletta á blaösíöu 460 í Textavarpinu. Tippkveöja: Ragnar Reykás.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.