Morgunblaðið - 21.01.1992, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.01.1992, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANUAR 1992 15 Landbúnaðurinn og GATT, athugasemdir við forystugrein eftir GunnlaugA. Júlíusson í forystugrein Morgunblaðsins laugardaginn 11. janúar sl. er fjallað nokkuð um stöðu GATT-samning- anna, eins og þeir lágu fyrir á þeim tíma. Jafnframt er fjallað nokkuð um viðbrögð bændasamtakanna og fleiri, sem tóku afstöðu gegn fyrir- liggjandi samningsdrögum. I þessari forystugrein lætur Morg- unblaðið það berlega í ljós að því þyki bændasamtökin hafa farið off- ari í þessum málum og gert mikið veður út af litlu og er m.a. talað um að „stóryrði forystumanna bænda um drög að nýjum GATT-samningi hafi komið eins og þruma úr heið- skýru lofti“. í forystugreininni kemur síðan fram að sá sem hana ritaði hefur alls ekki sett sig inn í efnisatriði samningsdraganna og verður það skýrt hér nánar. Fullyrt er í greininni að „einungis sé opnað fyrir innflutning á 3% af innanlandsneyslu hverrar vöruteg- undar árið 1993 og aukningu up í 5% árið 1999“. Hér er um mikinn misskilning að ræða. Þetta magn innflutnings sem hér er minnst á, 3% árið 1993 og aukningu upp í 5% árið 1999, er það magn sem flutt yrði til landsins með „lágmarks eða mjög lágum tollum“ er lagðir yrðu ofan á heimsmarkaðsverð, eins og segir í samningstexta. Hér er því í raun um að ræða þvingaðan innflutn- ing án álagningar tolla sem ein- hveiju nemur. Til viðbótar því yrði síðan opnað fyrir allan annan innflutning á búvör- um, með heimild til álagningar tolla, sem myndu fyrsta árið vega upp mismun á heimsmarkaðsverði og verði innanlands en fara síðan lækk- Gunnlaugur A. Júlíusson „Aukin og- óeðlileg verðsamkeppni ætti sér stað mjög hratt, en hún væri ekki „tiltölulega lítil og kæmi til smám saman“ eins og segir í forystugreininni.“ andi hröðum skrefum. í forystugrein- inni ríkir sá skilningur að tollar yrðu lagðir ofan á „lágmarksmarkaðsað- ganginn" en ekki yrði um aðrar rýmkanir á innflutningi að ræða. Þar sem heimsmarkaðsverð á helstu búvörum er mjög lágt, eins og kemur fram í eftirfarandi töflu, enda stórlega niðurgreitt, þá yrði niðurfærsla tollsins mjög mikil í krónum talið á hveiju ári. Það verð sem hér kemur fram yrði notað sem viðmiðun, ef tillögur Dunkels næðu fram að ganga. Tafla 1. Heimsmarkaðsverð (cif verð) á nokkrum búvörum samkv. fyrirliggjandi GATT-tillögum. Mjólk 6,80 kr/kg Lambakjöt 98,00 kr/kg Egg 35,00 kr/kg Kjúklingar 30,00 kr/kg Nautakjöt 122,00 kr/kg Svínakjöt '71,00 kr/kg Heimild: Norsku bændasamtökin. Það er ljóst að þegar yrði miðað við þessi lágu verð þegar tollurinn væri reiknaður út, þá yrði niður- færsla verðlags mjög hröð, og aukin og óeðlileg verðsamkeppni ætti sér stað mjög hratt, en hún væri ekki „tiltölulega lítil og kæmi til smám saman“ eins og segir í forystugrein- inni. Fyrir utan það sem hér hefur ver- ið nefnt eru önnur atriði þung á metunum, eins og að ekki er reiknað með að upphæðir frá viðmiðunarár- unum 1986-’88 séu verðtryggðar og að útflutningslönd geti niðurgreitt útfluttar búvörur verulega á meðan við eigum að fella niður vald til mótunar eigin stefnu um innflutning búvara, sem hægt væri að fjalla frek- ar um en það verður ekki gert hér. Það verður á hinn bóginn að gera þá kröfu til Morgunblaðsins jafnt og allra annarra aðila, sem vilja fjalla um viðamikil og mikilvæg mál sem þessi þannig að mark sé á tekið, að þekking á grundvallaratriðum sé fyr- ir hendi áður en ályktanir eru dregn- ar og sleggjudómar felldir. Höfundur er hagfræðingur bændasam takanna. SIEMENS Lítið inn til okkar og skoðið vönduð vestur-þýsk heimiiistœki! Hjá SIEMENS eru gœði, ending og fallegt útlit ávallt sett á oddinn! SMITH&NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300 BÓKAMARKAÐUR VÖKU-HELGAFELLS URVALS BÆKUR Alh að 95% ofsláttur! A EINSTOKU VERÐI Dœmi um nokkur sértilboð á bokamarkaonum: Á bláþræði Venjulegt verð: Tilboðs- verð: Afsláttur: - skáldsaga eftir Viktoriu Holt 1.790,- 395,- 78% Fótatak tímans - skáldsaga Kristinar Loftsdóttur 2.480,- 495,- 80% Ævisaga Bryndísar Schram - eftir Ólínu Þorvarðardóttur 2.312,- 495,- 78% l Smásögur - eftir Svövu Jakobsdóttur 1.748,- 495,- ■ \>mn r 60% V • Veisla í farangrinum - skáldsaga Ernest Hemingway í þýðingu Halldórs Laxness 1.829,- 495,- \j£ 73% 1 Launráð - skáldsaga eftir Ken Follet 1.344,- 295,- 78% * Van Gogh og list hans - eftir Hans Bronkhorst. Litprentuð glæsibók í stóru broti, gefin út fyrir tveimur árum er hundrað ár voru liðin frá fæðingu Van Goghs. Hér er farið í fótspor þessa áhrifamikla brautriðjanda í nútíma myndlist. Venjulegt verð: 3.760,- Tilboðsverð: - 995,- Mörg hundruð bókatitlar á einstöku verði bjóðast nú á bókamarkaði Vöku-Helgafells í forlagsversluninni að Síðumúla 6 í Reykjavík. Hér gefst einstakt tækifæri til þess að bæta eigulegum verkum í bókasafn heimilisins - bókum af öllum tegundum við allra hæfi. Opið alla virka daga frá kl. 9-18, laugardaga frá kl. 10-16, sunnudaga frá kl. 12-16. Jakinn í blíðu og stríðu. Venjulegt verð: 2.580,- Tilboðsverð: 495,- Baráttusaga Guðmundar J. Venjulegt verð: 2.680,- Tilboðsverð: 495,- Gustmiklar bækur um Jakann eftir Ómar Valdimarsson. Um fáa íslenska menn hefur staðið jafnmikill styrr síðustu áratugi og Guðmund J. Guðmundsson. í þessum stórmerku bókum segir hann hreinskilningslegafrá lífi sínu og dregur ekkert undan. VAKA-HELGAFELL Síðuniúla 6, sími 688300

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.