Morgunblaðið - 21.01.1992, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 21.01.1992, Blaðsíða 48
Framkvæmdasjóður; Viðræður "við Andra um leigu á Isþóri og Fjallalaxi ANDRI hf. hefur til athugunar að hefja fiskeldi. Er fyrirtækið í viðræðum við Framkvæmda- sjóð um leigu á tveimur fisk- , eldisstöðvum sem sjóðurinn hef- ',ur leyst til sín vegna gjaldþrota, strandeldisstöð Isþórs í Þorláks- höfn og seiðaeldisstöð Fjallalax í Grímsnesi. Guðmundur B. Olafsson, fram- kvæmdastjóri Framkvæmdasjóðs Islands, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að sjóðurinn vildi leigja stöðvamar en ekki væri ljóst hvort af því yrði. Andri ætti eftir að fullnægja ýmsum skilyrðum. Haraldur Haraldsson forstjóri j^-Andra sagði að búið væri að fjár- festa mikið í fiskeldinu og afla mikillar þekkingar. „Af hverju á þá að loka? Ég vil ekki leggja þess- um verðmætum fyrir róða ef út- reikningar sýna að hægt sé að reka þetta. Ég hef trú á aðmögu- legt sé að byggja upp þessa at- vinnugrein,“ sagði Haraldur. Hann sagði að ekki ætti að skipta öllu máli hvaða leigugjald sjóðimir fengju því ef reksturinn gengi hjá einstaklingum fengi ríkið skatt- tekjur og þjóðarbúið gjaldeyris- tekjur. Haraldur sagðist enn ekki hafa ákveðið hvort hann færi út í þennan rekstur, en vonaðist til að það skýrðist fljótlega. MIKIÐ hvassviðri gekk yfir allt suðvestanvert landið í gær og fyrrinótt og mældist 12 stiga vindhraði í höfuðborginni í mestu hviðunum í gjerdag. Sjúkrabif- reið á leið frá Olafsvík til Reykja- víkur sótti vanfæra konu upp í Kjós í gærkvöldi, en hún var far- þegi í bifreið sem fauk út af veg- inum um áttaleytið. Konan var flutt á slysadeild Borgarspítalans og gekkst undir rannsókn í gær- kvöldi en virtist þó hafa sloppið við meiðsli samkvæmt upplýsing- um læknis. Byggingakrani eyðilagðist þegar hann féll yfir ljölbýlishús í byggingu í Hafnarfirði í fyrrinótt og olli nokkr- um skemmdum á þaki þess. Víða fuku lausir hlutir á höfuðborgar- svæðinu en ollu hvergi skemmdum svo vitað sé. Lögregla í borginni þurfti að aðstoða skólabörn að kom- ast heim síðdegis vegna hvassviðris- ins og flugfélögin aflýstu áætlunar- ferðum til nokkurra staða síðdegis og í gærkvöldi. Byggingakrani féll yfir fjölbýlishús í byggingu á Hvaleyri í Hafnarfirði í fyrrinótt og er gjörónýtur eftir fallið. A myndinni sést hvernig var umhorfs þegar að var komið í gærmorgun og á innfelldu myndinni sjást skemmdir sem urðu á þakskeggi húss- ins. Mikið hvassviðri suðvestanlands: Bíll fauk út af í Lánskjaravísitala lægri í febrúar en hún var fyrir þremur mánuðum: Vextir víxla og skuldabréfa banka óbreyttir 14,5-16,5% Eðlilegt að nafnvextir lækki um 1-1,5% segir Ragnar Onundarson, framkvæmdastjóri hjá íslandsbanka Lánskjaravísitala sem gildir fyrir febrúarmánuð er lægri en sú láns- kjaravísitala sem var reiknuð út í október og gilti fyrir nóvember- mánuð. Það þýðir að síðustu þrjá mánuði hefur verið verðhjöðnun hérlendis en ekki verðbólga. Umreiknað til árs nemur lækkun vísi- tölunnar tæpu 1%. Vextir banka og sparisjóða eru óbreyttir frá því sem var en vaxtabreytingadagur er í dag. Víxilvextir eru á bilinu 14,5-15,5%, hæstir í Islandsbanka og Landsbanka, og skuldabréfa- vextir í b-flokki eru 15,25-16,5%, hæstir í Landsbanka, en lægstir hjá Búnaðarbanka Islands. Nafnvextirnir hafa verið talsvert yfir 15% undanfama þrjá mánuði. Raunvextir verðtryggðra lána banka hafa verið í kringum 10% á þessu tímabili. Forsvarsmenn Islandsbanka og Landsbanka segja að vaxtalækkanir séu væntanlegar um mánaða- inótin þegar næst má breyta vöxtum. Lánskjaravísitalan sem gildir fyrir febrúar er 3.198 og hækkar úr 3.196 í janúar, sem jafngildir 0,8% hækkun á heilu ári. Vísitalan sem var reiknuð út í október og gilti fyrir nóvember var hins vegar .3.205, en lækkanir á launavísitölu, framfærsluvísitölu og byggingar- vísitölu, sem vega þriðjung hver í lánskjaravísitölunni, hafa gert það að verkum að hún er lægri nú en í nóvember. Síðustu séx mánuði hefur lánskjaravísitalan hækkað um 2,5% miðað við heilt ár og síð- ustu 12 mánuði um 6,5%. Samkvæmt útreikningum Hag- stofu íslands er launavísitala janúarmánuðar óbreytt frá því í desember en byggingarvísitalan lækkar hins vegar um 0,1% frá fyrra mánuði. Því veldur 13% lækkun á innréttingum og ef ekki hefði komið til 0,5% hækkun á tryggingagjaldi iðnaðarmanna hefði byggingarvísitalan lækkað um 0,3%. Byggingarvísitalan hefur ekkert hækkað síðustu 3 mánuði, um 1,1% síðustu sex mánuði miðað við heilt ár og 5,9% síðustu 12 mánuði. Ragnar Önundarson, fram- kvæmdastjóri hjá íslandsbanka, segir að í tengslum við nýja raun- hæfa kjarasamninga og fram að þeim sé hugsanlegt að nafnvextir lækki um 1-1,5% og miðist eftir það við að verðbólga á árinu verði nálægt 3%. Það sé raunhæft að gera ráð fyrir því að vextir verði þannig langt fram eftir árinu. Til þessa hafi bankinn miðað við að verðbólga á árinu yrði 4-4,5% og endurmat á því verðbólgustigi væri ekki tryggt fyrr en nýir kjara- samningar hefðu verið gerðir. Vextirnir yrðu endurskoðaðir um mánaðamótin. Aðspurður hvort ekki sé eðlilegt að viðskiptamenn banka og spari- sjóða geti gert kröfur til þess á hveijum tíma að borga vexti í sam- ræmi við verðbólgustig þar sem hægt sé að breyta vöxtum á 10 daga fresti, sagði Ragnar að það væri út af fyrir sig mjög eðlilegt að raunvextir væru svipaðir á verð- tryggðum og óverðtryggðum lán- um til lengri tíma litið. Bankarnir og stjórnvöld hefðu lagt áherslu á að hvert ár eða uppgjörstímabil kæmi þannig út, en það hefði ekki verið lögð áhersla á samræmi í raunvaxtastigi til styttri tíma. Brynjólfur Helgason, aðstoðar- bankastjóri i Landsbanka íslands, segir að vaxtabreyting verði á dag- skrá næsta bankaráðsfundar Landsbankans og efnahagslegar forsendur séu til að þeir lækki. Dregist hafi að halda fund í banka- ráðinu vegna sérstakra aðstæðna. Framtölin borin í hús um helgina Skattframtalseyðublöðum verð- ur dreift um næstu helgi. Framtal- ið er eins og í fyrra nema hvað það er Ijósfjólublátt að lit en var grænt í fyrra. Er þetta í fyrsta skipti í allmörg ár sem ekki eru gerðar breytingar á reitum fram- talsins. Að sögn Skúla Eggerts Þórðarson- ar vararíkisskattstjóra er búið að prenta skattframtalseyðublöðin og flest önnur eyðublöð og koma þeim til skattstjóra landsins. Þessa dagana er verið að prenta leiðbeiningabækl- inginn sem fylgir framtalinu. Starfs- fólk skattstofanna byijar að bera framtölin í hús um allt land um helg- ina og er búist við að því verki ljúki strax eftir helgi. Að sögn Skúla Eggerts hafa óverulegar breytingar verið gerðar á skattalögum sem snerta fólk sem ekki eru með atvinnurekstur. Framtalsfrestur rennur út mánu- daginn 10. febrúar. Þessa dagana eru launamiðar að berast fólki enda rennur í dag út frestur launagreið- enda til að skila launaframtölum. Kjós Flugleiðir aflýstu öllu flugi til Akureyrar, ísafjarðar, Sauðárkróks, Húsavíkur og Egilsstaða síðdegis en tekist hafði að fljúga til allra áfanga- staða nema Vestfjarða fyrri hluta dagsins. íslandsflug aflýsti flugi til Vestmannaeyja í gær og vél sem fór til Siglufjarðar, Gjögurs og Hólma- víkur var kyrrsett á Sauðárkróki í gærdag, en til stóð að fljúga henni til Reykjavíkur í gærkvöldi þegar veður var farið ganga nokkuð niður á suðvesturhorni landsins. Nokkrar rafmagnstruflanir urðu í gærkvöldi þegar háspennulína frá Búrfelli að Geithálsi fór út vegna veðursins. Hvergi varð þó rafmagns- laust nema í Járnblendiverksmiðj- unni þar sem straumur fór af í hálfa mínútu samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun. Samkvæmt upplýsingum vega- gerðarinnar var ófært í Hvalfirði og undir Hafnarijalli síðdegis í gær og fram eftir kvöldi vegna hvassviðris. Þá fór klæðning af vegi í Kjósinni. í gærkvöldi rigndi en vegna kóln- andi veðurs í nótt var búist við mik- illi hálku á vegum. Djúp lægð yfir Grænlandshafi olli veðrinu ásamt kraftmikilli hæð yfir Norðursjó, sam- kvæmt upplýsingum frá Veðurstofu íslands. Stöðvaður á 158 km LÖGREGLAN stöðvaði í gær- kvöldi bíl sem ekið var vestur Sæbraut á 158 km hraða. Lögreglumenn sem mældu hraða bílsins kölluðu út aðstoð þar sem þeir óttuðust að öku- maðurinn, sem var á kraftmikl- um bíl, hygðist ekki sinna stöðvunarmerkjum. Hann stöðv- aði þó bifreiðina af sjálfsdáðum og var sviptur ökuréttindum á staðnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.