Morgunblaðið - 21.01.1992, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.01.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992 23 Reuter 188 félagar í Islömsku hjálpræðisfylkingunni (FIS) sem kosnir voru á þing í fyrri umferð kosninga i Alsír héldu fund í gær til að mótmæla því að seinni umferðinni hefði verið aflýst. Hér sjást mennirnir að fundi loknum og fer Abdelkader Hachani leiðtogi FIS (í miðjunni) fremstur í flokki. Alsír: Stjómvöld undirbúa bann við starfsemi FIS Algeirsborg. Reuter, The Daily Telegraph. HER Alsírs var með mikinn viðbúnað í gær eftir að herskáir stuðningsmenn íslömsku hjálpræðisfylkingarinnar (FIS) höfðu skotið hermann til bana í fyrstu árásinni frá því nýju valdhafarnir í land- inu ákváðu að aflýsa þingkosningunum til að koina í veg fyrir að flokkurinn kæmist til valda. Valdhafarnir voru í gær sagðir und- irbúa algjört bann við starfsemi flokksins. Liðsmenn óeirðalögreglunnar, vopnaðir vélbyssum, gengu um götur í Algeirsborg og skriðdreka- sveitir voru enn við mikilvægar byggingar. Fallhlífahermenn voru á verði við flugvöllinn í höfuðborg- inni og mikill viðbúnaður var í grennd við bæinn Bilda, þar sem skotárásin var gerð. Heimatilbúin sprengja sprakk einnig við höfuð- stöðvar lögreglunnar í Algeirsborg um helgina. Talið er að alit að 2.000 stuðn- ingsmenn íslömsku hjálpræðis- fylkingarinnar hafi verið hand- teknir. Þeirra á meðal eru 132 menn, sem taldir eru hafa fengið þjálfun í skæruhernaði í Afganist- an. Nýju valhafarnir gáfu til kynna að í undirbúningi væri algjört bann við íslömsku hjálpræðisfyiking- unni. Einn þeirra sagði að flokkar, sem samræmdust ekki stjórnar- skránni, yrðu „annaðhvort að hætta starfsemi eða verða leystir Rússar styðja EB-aðild Finna Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. GENNADÍJ Búrbúlís, varaforsætisráðherra Rússlands og náinn sam- starfsmaður Borís Jeltsíns forseta, sagði í gær í Helsinki að Rússar myndu styðja áform Finna um að gerast, aðilar að Evrópubandalag- inu (EB) ef að því kæmi. í raun iná telja að Burbulis hafi hvatt Finna til að ganga í bandalagið, því að sögn hans er stefna Rússa nú að styðja sameiningu Evrópu í einu og öllu. Búrbúlís heimsótti Finnland til þess að undirrita aðalsamning Finna og Rússa um nágrannasam- starf en með þeim samningi var formlega bundinn endi á gildistíma vináttu- og aðstoðarsamnings Finna og Sovétmanna frá árinu 1948 sem var afsprengi kalda stríðsins. Esko Aho, forsætisráð- herra Finna, sagði við fréttamenn að þessir nýju samningar mörkuðu kaflaskil í sambúð Finna og Rússa. Nú væru til dæmis tekin með ákvæði um að þjóðirnar myndu taka tillit til menningarlega réttinda minnihlutahópa af finnskum og náskyldum uppruna í Rússlandi og af rússneskum uppruna í Finn- landi. Einnig var samið um sérskil- yrði fyrir samstarfi í landamæra- héruðum og einnig undirritaður samningur um efnahagssamvinnu þjóðanna. upp“ og vísaði þar til fylkingarinn- ar. Valdhafarnir eru einnig stað- ráðnir í að rjúfa öll tengsl Islömsku hjálpræðisfylkingarinnar við _ er- lend ríki. Sendiherra Alsírs í íran var kallaður heim um helgina vegna stuðnings sem írönsk stjórn- völd hafa veitt fylkingunni. List sem fjárfesting: Dieter Roth í hópi úrvals- listamanna Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdótt- ur, fréttaritara Morgunblaðsins. í ársbyrjun birti þýska fjár- mála- og fjárfestingatímaritið Capital að venju lista yfir þá 100 núlifandi listamenn, sem fræg- astir teljast. Listinn er fyrst og fremst settur saman með það í huga hvaða lista- menn sé vænlegt að kaupa verk eftir í fjárfestingarskyni. Líkt og á listum yfir hlutabréf eru listamenn- irnir og verk þeirra metin eftir því hvort verðið sé hæfilegt miðað við frægð listamannsins og stöðu hans í listaheiminum. Þannig er bent á að verk sumra séu góð kaup og verk annarra lakari miðað við mark- aðsgengi þeirra. Enginn íslenskur listamaður er á listanum en hins vegar er þar lista- maður sem bjó um tíma á íslandi, nefnilega Dieter Roth. Hann er í 78. sæti en var í fyrra í því 75. Þýski listamaðurinn Georg Baselitz, sem hefur um árabil verið prófessor í Berlín, er í fyrsta sæti listans. Einn Dani er á listanum, Per Kirkeby, í 53. sæti. STYRKIR TIL UMHVERFISMÁLA Á næstunni verður úthlutað styrkjum úr Poka- sjóði Landverndar. 1. Um styrk geta sótt: Félög, samtök, stofnanir og einstaklingar. 2. Úthlutun er bundin verkefnum á sviði umhverfis- mála, svo sem landgræðslu, skógrækt, friðun, verndun, fegrun og snyrtingu lands og til fræðslu og rannsókna. Skilyrði er að verkefnin séu í þágu aimennings. 3. Verkefni, sem sótt er um styrk til, þurfa að vera vel afmörkuð og skilgreind. Umsóknum ber að skila á þar til gerðum eyðublöðum, sem fást á skrifstofu Landverndar, Skólavörðustíg 25, 101 Reykjavík, sími 25242 og 625242. 4. Farið er fram á að styrkþegar leggi af mörkum mótframlag, sem getur falist í fjárframlögum, vélum, tækjum, efni eða vinnu. 5. Styrkþegar skuldbinda sig til að skila skýrslu um framkvæmd og árangur verkefnisins fyrir lok úthlutunarárs. 6. Styrkumsóknir þurfa að berast skrifstofu Land- verndar fyrir kl. 17.00 þann 29. febrúar 1992. Þeir, sem eiga eldri umsóknir í Pokasjóðinn, þurfa að endurnýja þær f samræmi við þessa auglýsingu. LANDVERND, SKÓLAVÖRÐUSTÍG 25, 101 REYKJAVÍK. Sími 25242. Myndsendir 625242. Misstu ekki af ódýrustu fermingarmyndatökunum í vor! Myndatökur á kr. 10.500,00 innifalið 6 myndir 9 x 12 cm og 2 stækkanir 20 x 25 cm. og ein stækkun 30 x 40 cm í ramma Ljósmyndastofumar: Bama og fjölskyldu ljósmyndir Ármúla 38 sími 677-644 Ljósmyndastofan Mynd Hafnarfirði sími 65-42-07 Ljósmyndatofa Kópavogs sími 4-30-20 UTSALA 20-50% afsláttur » hummel wi SPORTBÚÐIN Ármúla 40, sími 813555

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.